Morgunblaðið - 21.06.1997, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ
28 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
NEYTENDUR
Eiríkur Sigurðsson eigandi 10-11-verslananna opnar níundu versl-
unina í dag og þá tíundu í næsta mánuði.
10-11 í Lágmúla
opnar í dag
Rabarbari
Sulta og ábætiskökur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ANNA Guðmundsdóttir lektor við heimilisfræðideild
Kennaraháskólans.
NÍUNDA 10-11-verslunin verður
opnuð í dag, laugardag, að Lágmúla
7. Eiríkur Sigurðsson, eigandi 10-
11-verslananna, segir að um sé að
ræða hefðbundna 10-11-verslun og
hann líti svo á að á þetta svæði
hafí slíka verslun vantað. „Verslunin
sjálf er í 600 fermetra húsnæði og
síðan er lager innan af búðinni,
þannig að þetta er töluvert stór búð.“
Þar sem margir eru að vinna í
þessu hverfí segir Eiríkur að sérstök-
um borðum verði komið upp við ör-
bylgjuofnana í versluninni þannig að
fólk geti borðað á staðnum ef því er
Grillhátíð
Sumarsól-
stöður í Bónus
Holtagörðum
í dag, laugardag, verður hátíð hjá
Bónus í Holtagörðum. Grillað verður
fyrir viðskiptavini verslunarinnar og
hægt að kaupa pylsu og Svala á tíu
krónur. Fjöldi kynninga og tilboða
verða í versluninni t.d. á lambakjöti
frá Kjarnafæði og svínakjöt verður
einnig á tilboði.
að skipta. „Við verðum með tilbúna
rétti sem tekur stutta stund að hita.“
Tómataútsala
„í tilefni opnunarinnar verðum við
með ýmis tilboð í gangi, lambalæri
seljum við á 576 krónur kílóið og við
verðum með sumarútsölu á tómötum
á 89 krónur kílóið. Þá kostar til
dæmis tveggja lítra fema af Frissa
fríska 89 krónur og Del Monte-ís
verður á 98 krónur en venjulegt verð
á honum er 319 krónur.“
Eiríkur segir að viðskiptavinir
geti gætt sér á vínarbrauði og kaffi,
grillað verður ef veður leyfir og börn-
in fá djús, ís og annan glaðning.
10-11-búð opnar í
vesturbænum í haust
Um mánaðamótin júlí-ágúst opn-
ar síðan tíunda 10-11-búðin að Bar-
ónsstíg í Reykjavík. Hún verður
einnig um 600 fermetrar að stærð.
Þegar Eiríkur er spurður hvort
hann velti ekki fyrir sér opnun búð-
ar í vesturbænum segist hann ein-
mitt þessa dagana vera að vinna í
því. „Við stefnum að því að opna
10-11-verslun í vesturbænum með
haustinu en enn er ekki komið á
hreint hvar hún verður þar.“
ÞEIR sem hafa rabarbara í garðin-
um sínum eru líklega að fá fyrstu
uppskeruna um þessar mundir. Hafi
smáar hendur ekki þegar gert rabar-
baranum skil búa margir til sultu
úr honum eða graut og aðrir nota
hann í eftirrétti. Anna Guðmunds-
dóttir, lektor við heimilisfræðideild
Kennaraháskólans, segir að yfírleitt
þyki rauði rabarbarinn bestur svo-
kallaður vínrabarabari. Oft er hægt
að fá nokkrar uppskerur af rabar-
bara yfir sumarið eða vera að tína
hann eftir þörfum allt sumarið.
Ekki sjóða rabarbara
í álpotti
Anna segir að fólk eigi að varast
að nota nota óhúðaðan álpott við
suðu rabarbarans. „Sýran í honum
getur tært álpotta og það er ekki
talið gott. Æskilegra er að nota stál-
pott við suðuna."
Anna féllst fúslega á að gefa les-
endum nokkrar uppskriftir þar sem
rabarabari er í aðalhlutverki.
Rabarbarakaka
_______400-500 g rabarbari_______
_____1 epli eðo 1-1 'hb blóber
___________1 -1 Vádl sykur ______
_______2-3 msk. kgrtöflumjöl____
______50-100gmöndlureða_________
___________hnetukjgrnar__________
______________2e99_______________
____________1 dlsykur___________
___________1 tsk. yftiduft_______
1 dl hveiti
Skerið rabarbarann í bita og flysj-
ið hann. Skerið eplið í báta og látið
í smurt eldfast form. Blandið saman
sykri og kartöflumjöli og dreifið yfir
rabarbarann. Stráið söxuðum
möndlum yfir. Þeytið egg og sykur
í þétta froðu. Sáldrið saman hveiti
og lyftidufti og blandið í eggjafroð-
una og hellið yfir rabarbarann. Bak-
ið neðarlega í 200°C heitum ofni í
20-30 mínútur. Berið kökuna fram
volga með þeyttum ijóma eða ís.
Rabarbaramulnlngur
_______4-5 stilkor rabarbari_____
1 dl sykur
_________1 msk. kortöflumjöl_______
Mulningur:_____________
_____________1 dl hveiti___________
__________1 Vádl hgfrgmjöl_________
____________2 msk. sykur___________
100 g smjörlíki
Rabarbari er þveginn og skorinn
í bita og honum blandað saman við
kartöflumjuöl og sykur og síðan er
blandan sett í botn á eldföstu móti.
Mulningi er stráð yfir. En þá eru
þurrefnin í uppskriftinni mulin sam-
an við smjörlíkið. Mulningi er stráð
yfir rabarbarann og þetta síðan bak-
að í 20-30 mínútur við 200-220°C.
Rétturinn er borinn fram volgur með
þeyttum ijóma eða ís.
Rabarbarakaka
______8-10 rabarbarastilkar________
___________kqrtöflumjól____________
_______________sykur_______________
____________Mulningur:_____________
150 g smjör/smjörlíki
1 dlsykur
_____________3 dl hveiti___________
3Adl hgframjöl
Smjörlíki brætt og sykri, hafra-
mjöli og hveiti blandað saman við.
Þessu er dreift yfir rabarbarann sem
búið er að velta upp úr sykri og
kartöflumjöli eins og í uppskriftinni
hér að ofan. Þessi uppskrift er stærri
og rabarbaraleggirnir því 8-10 í
stað 4-5. Bakað við 200-220°C uns
kakan hefur fengið á sig fallegan lit.
Rabarbara-
jarðarberjasulta
_________500 p rabarbari________
________400-500 q sykur_______
______400-500 g jgrðarber_______
Sjóðið saman rabarbara og sykur
í frekar þunna sultu. Bætið jarðar-
beijunum út í og sjóðið í fimm til
tíu mínútur. Sultuna á að sjóða í
opnum potti.
Rabarbara-
krækiberjasulta
_________500 g rabarbori________
___________400 g sykur__________
250 g krækiber
Sjóðið rabarbara og sykur i opnum
potti í þunna sultu. Bætið jarðarbeij-
um út í og sjóðið í 5—10 mínútur.
Sultuna á að sjóða i opnum potti.
Anna segir það bragast vel að
setja bláber í sultuna í stað kræki-
betja. Sama aðferð er þá notuð við
sultugerðina að þessu frátöldu.
UPPLSÝSINGAR um frönsku húðsnyrtivörurnar
Dermophil er að finna á alnetinu.
Snyrtiráðgjöf á alnetinu
Spurt og svarað um neytendamál
Hægt að fylla á
helíumblöðrur
Vistvænt
lambakjöt
á markað
í haust
Á ANNAÐ hundrað sauðfjárbænda
víðsvegar um landið hefur fengið
vottun á dilkakjötsframleiðslu sinni
samkvæmt nýlegri reglugerð um sér-
tæka gæðastýrða íslenska landbún-
aðarframleiðslu. Reglugerðin felur í
sér að ekki má nota fúkkalyf, skor-
dýraeitur, illgresiseyðingarlyf eða
hormóna við framleiðslu kjötsins.
Einnig er skilyrði að féð sé skráð í
skýrslukerfi Bændasamtaka íslands
og að áburðamotkun sé hófleg þ.e.
400-600 kíló á hektara.
Að sögn Ólafs Dýrmundssonar
ráðunauts hjá Búnaðarfélagi íslands
er helsti ávinningur bænda við að
vera með vistvænt kjöt að möguleiki
er að fá hærra verð fyrir útflutning
á dilkakjöti og segir hann að hreyf-
ing sé komin á þau mál.
„Sláturhúsið á Húsavík hefur feng-
ið vottun til að framleiða vistvænt
kjöt nú í haust og eiga fleiri slátur-
hús eflaust eftir að bætast í hópinn.
Forsvarsmenn ístex hf. fyrirtækisins
sem hefur keypt alla ull af bændum
eru að skoða hvort þeir eigi að borga
hærra verð fyrir ull til þeirra bænda
sem hafa fengið vistvæna vottun til
að framleiða vistvænt kjöt nú í haust.
Eiga fleiri sláturhús eflaust eftir að
bætast í hópinn. Þá er að koma út
viðauki um reglugerðina um fiskeldi
á Islandi,“ segir ólafur.
UNNT er að fá almennar ráðlegg-
ingar um andlitsumhirðu og val á
frönsku húðverndarvörunum,
Dermophil á heimasíðu íslenska
innflutningsfyrirtækisins á alnet-
inu. Það er snyrtifræðingurinn
Guðrún Þorbjarnardóttir, eigandi
Saloon Ritz, sem veitir ráðgjöfina
og svarar spurningum alnetsnot-
enda með tölvupósti.
Tilboð og getraunaleikur
Að sögn Kjartans Valgarðs-
sonar, framkvæmdastjóra ís-
lenska innflutningsfélagsins, hef-
ur þessi nýjung mælst vel fyrir.
„Heimasíðan kemur að góðum
notum, sérstaklega fyrir þá sem
ekki eiga heimangengt en þar er
hægt að hafa gagnvirk sam-
skipti. Með henni komumst við
því í beint samband við notendur
en til að mynda er talið að um
20.000 konur séu tengdar netinu
hérlendis."
Á heimasíðunni er einnig hægt
að kalla fram innihaldslýsingu á
snyrtivörunum, ýmis tilboð eru í
gangi svo og getraunaleikur.
Dermophil vörurnar eru aðeins
seldar í apótekum. Slóðin er:
http://www.centrum.is/dermophil.
Helíumblöðrur voru áberandi á
þjóðhátíðardaginn. Þær kostuðu frá
300-500 krónur stykkið. Eru blöðr-
urnar ónýtar þegar helíumið er
runnið úr þeim eða er kannski
hægt að geyma þær fram að næsta
17. júní og fylla á þær?
Svar: „Það má bæta helíum í
þessar blöðrur aftur ef fólk getur
fengið slíka áfyllingu", segir Anna
Dóra Steinþórsdóttir hjá heildversl-
uninni Festi sem sér um innflutning
á helíumblöðrum.
„Blöðrumar halda sér best innan-
dyra því helíumið fer fyrr úr þeim
Borði einn í hópi fjölskyldu eða
vina einungis grænmetisrétti er
oftast einhver réttur í boði á veit-
ingahúsum sem er við hans hæfi.
Erlendis er til dæmis hægt að
kaupa salat á MacDonalds. Hér-
lendis er enginn slíkur valkostur
fyrir fólk hjá MacDonalds. Hvers-
vegna?
Svar: „Allsstaðar þar sem ég
hef spurt er tap á sölu salats",
segir Kjartan Öm Kjartansson for-
stjóri hjá Lyst ehf. „Fram til þessa
í kulda“, segir Anna Dóra. „Sé
blaðran í lagi og rétt fyllt á hana
er ekki ólíklegt að hún endist í um
það bil mánuð.“
Ingveldur Gísladóttir eigandi sölu-
turnsins Jolla í Lækjargötu selur
helíumblöðmr í sumar. Hún segist
jafnvel halda áfram með blöðrumar
í vetur ef vel gangi í sumar. Ingveld-
ur býður upp á þá þjónustu að fylla
á helíumblöðrur fyrir fólk. „Helíum
er dýrt og áfylling fer eftir stærð
blaðranna og hversu mikið bæta
þarf á þær. Að meðaltali kostar
áfylling 50-80 krónur“, segir hún.
hefur ekki verið almenn eftirspurn
eftir salatréttum hjá okkur. Um
leið og breyting verður þar á mun-
um við mæta óskum neytenda.
Við erum að velta fyrir okkur
að setja grænmetisborgara á
markað í haust. Við höfum prófað
grænmetisborgara á starfsfólki og
það er ákaflega hrifið. Okkur vant-
ar hinsvegar tækjabúnað svo hægt
sé að hefja framleiðslu þeirra og
slíkt er töluverð fjárfesting. Því er
málið enn á þróunarstigi."
Grænmetisborgarar
væntanlegir hjá MacDonalds?