Morgunblaðið - 21.06.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ1997 29
AÐSENDAR GREINAR
Sjálfstæðismenn bera
ábyrgð á árangri
Björn Bjarnason
UMRÆÐUR um
menntamál mega ekki
einkennast af ein-
földunum eða tillögum
um patentlausnir. Þeir
sem hæst hrópa slá
um sig með þeirri full-
yrðingu að töfralausn-
in sé aukið fjármagn
til menntamála. Sé
einblínt á peninga er
athyglinni beint frá
brýnum úrlausnarefn-
um í innra starfi skóla.
Menntastefna sem
byggist á of litlum
kröfum, óljósri
markmiðasetningu og
skorti á aga skilar til dæmis litlum
árangri. Ágúst Einarsson þing-
maður jafnaðarmanna (eftir að
þingflokkur Þjóðvaka lagði upp
laupana) er einn þeirra sem fellur
illa í gryiju einföldunar í grein í
Morgunblaðinu sl. fimmtudag.
Staðfestir hún markleysi málflutn-
Framlög til menntamála
hafa aukist segir Björn
Bjarnason þvert á það
sem Agúst Einarsson
fullyrðir í grein sinni.
ings þingmanna Þjóðvaka, sem
nýtur nú einskis stuðnings kjós-
enda.
Aukið framlag til allra
skólastiga
Ágúst fullyrðir að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi látið menntamál
drabbast niður á valdatíma sínum
í menntamálaráðuneytinu. Fyrir
þessu færir Ágúst engin rök. Hann
nefnir ýmsar tölur þar sem borin
er saman staðan hér á landi og
erlendis. Því miður er staða okkar
oft slæm í slíkum samanburði en
ef við skoðum þróun hér á landi
undir forystu sjálfstæðismanna
undanfarin ár er ástæða til meiri
bjartsýni. Við slíkar upplýsingar
verður að miða viiji menn fella dóm
yfir störfum sjálfstæðismanna í
menntamálum. Staðreyndin er sú,
að auknu fjármagni er varið til
menntamála.
Líkt og sést á meðfylgjandi
mynd nemur aukningin til fræðslu-
mála um 2,2 milljörðum frá árinu
1993. Það eru um 400 milljónir á
ári að meðaltali og er þá tekinn
með kostnaður við grunnskólann.
Eini samdrátturinn í útgjöldum
til fræðsiumála hefur komið fram
í fjárveitingum til Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Árið 1992 var
lögum um sjóðinn breytt og tekið
upp aukið aðhald í lánveitingum
hans til að koma í veg fyrir gjald-
þrot sjóðsins. Með þeim breyting-
um sem nú hafa verið gerðar á
lögum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna má hins vegar gera
ráð fyrir að útgjöld til hans aukist
verulega eða yfir 200 milljónir
króna á ári.
Framlög tii háskóla hafa farið
hækkandi á núverandi kjörtímabili
og forsendur fyrir fjölbreyttari
starfsemi á háskólastigi hafa verið
treystar. Fjárframlög á hvem nem-
anda hafa hins vegar lækkað en
gera verður ráð fyrir að í einhverj-
um tilvikum geti hagkvænmi stærð-
arinnar notið sín. Ljóst er að fjár-
framlög á hvern nemanda í Há-
skóla Islands mega þó ekki lækka
frekar. I gagnrýni sinni á það að
fáir ljúki hér háskólaprófi setur
Ágúst Einarsson ekki fram þá fyrir-
vara sem nauðsynlegt er að hafa í
huga í umfjöllun um svo viðkvæmt
mál. Sveinbörn Bjömsson rektor
sagði til dæmis í ræðu sinni við
brautskráningu úr Há-
skóla íslands að til að
fá gleggri mynd af
stöðu mála hefði þurft
í tölum OECD að
greina í milli skemmra
náms og náms til al-
þjóðlegra prófgráða
sem krefjast þriggja
ára háskólanáms hið
skemmsta. Þá hefðu
tölur sýnt að við eram
yfir meðaltali um
lengra námið en okkur
vantar að mestu
skemmra námið. Einn-
ig þarf að hafa í huga
að það sem stundum
telst háskólanám erlendis er oft
flokkað undir framhaldsskólanám
hér á landi.
Þá hafa framlög á hvern nem-
anda í framhaldsskólum aukist á
þessu tímabili. Árið 1993 var fram-
lag ríkisins á hvern nemanda 290
þúsund en árið 1997 307 þúsund
á verðlagi fjárlaga 1997.
Rannsóknir og þróun
Ágúst kvartar yfir framlögum
til rannsókna og þróunar. Honum
verða enn og aftur á þau mistök
að nefna ekki hver þróunin hefur
verið hér á landi undanfarin ár.
Staðreyndin er sú að heildarfram-
lög íslendinga til rannsókna og
þróunar hafa vaxið úr 1,9 milljarði
króna árið 1975 í um 6,9 milljarða
króna árið 1995 á verðlagi þessa
árs. Þetta átak er meðal annars
að skila okkur þeim hagvexti, sem
nú má alls staðar sjá merki.
Laun kennara
hafa hækkað
Ágúst sem einnig þefur verið
prófessor við Háskóla íslands hef-
ur réttmætar áhyggjur af því að
laun_ kennara séu ekki nægilega
há. Áhyggjur hans eru í samræmi
við það sem ég sagði á mennta-
þingi sl. haust að því miður virtist
menntun ekki vera nægilega mik-
ils metin í launaumslaginu. Ágúst
gleymir hins vegar að nefna að
kennarar hafa nýlega gert kjara-
samninga við ríkið sem fela í sér
umtalsverðar launahækkanir. For-
ystumenn kennarasamtakanna
hafa lýst yfir ánægju sinni með
þá samninga en þeir fela ekki ein-
ungis í sér launahækkanir heldur
einnig algjörlega nýtt vinnutíma-
kerfi sem á að stuðla að umbótum
í skólastarfi. Elna Katrín Jónsdótt-
ir formaður HIK hefur sagt, að
með samningunum sé dregið skýr-
ar fram, að kennarar eigi að gera
fleira en kenna og prófa. Nú séu
önnur störf kennara vel skilgreind
og ljóst að þeir eiga að vinna að
skólanámskrá, að innra mati,
stefnumótun og fleiru. Þannig hef-
ur verið komið verulega til móts
við kröfur kennara í launamálum
en einnig eru gerðar meiri kröfur
til starfa kennara sem stuðla að
umbótum í skólakerfmu. Það er í
anda nýlegrar skýrslu OECD um
ísland þar sem segir að erfitt sé
að réttlæta hærri kennaralaun án
þess að aukið vinnuframlag komi
á móti. Þetta virðisþ hins vegar
ekki skipta máli hjá Ágústi.
Óhræddir við ábyrð
í lok greinar sinnar segir Ágúst
Einarsson að draga eigi Sjálf-
stæðisflokkinn til ábyrgðar í
menntamálum. Aldrei hefur
hvarflað að sjálfstæðismönnum að
víkjast undan ábyrgð í þessu efni,
hvort heldur þeir sinna landsmál-
um eða sveitarstjórnarmálum.
Þegar litið er til starfsaðstöðu
skóla, rannsókna og vísinda má
ekki horfa fram hjá mikilvægi þess,
að stöðugleiki og síkaukinn hag-
vöxtur setur svip á allt efnahagslíf-
Framlög til
fræðslumála
1993-1997
>4 verðlagi fjárlaga 1997
milljónir króna
ir>
05
oo
'93 '94 '95 '96 '97
ið. Raunar verður það seint metið
til fulls frekar en góð menntun.
Óráðsía í ríkisfjármálum er ekki
skynsamlegasta leiðin til að treysta
forsendur menntunar þjóðarinnar.
Sjálfstæðismenn geta verið
stoltir af þróun síðustu ára þó að
enn megi þeir gera betur. Þeir
drukkna ekki í slagorðaflaumi eins
og frambjóðendur Þjóðvaka heit-
ins, sem skáka svo í því skjóli, að
þeir verða aldrei kallaðir til ábyrgð-
ar.
Menntamál verða snarari þáttur
í stjórnmálastarfi en áður og því
ber að fagna. Okkur miðar hins
vegar lítið áfram á stjórnmálavett-
vangi, ef byggt er á röngum for-
sendum. Þeir fara villir vega, sem
ganga fram í stjórnmálum með það
á vörunum, að um stöðugan niður-
skurð til menntamála hafi verið
að ræða hér undanfarin ár. Slíkir
menn hafa hvorki góðan málstað
né eru líklegir til að ná árangri.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
Mikiá úrvai af
fdlegum rúfflfatnaái
Stuðningnr við
amtsbóka- og
héraðsskjalasafn
HINN 27. maí sl.
samþykkti menningar-
málanefnd Akureyrar
mikilvæga ályktun.
Sammála nefndar-
mönnum voru og Ing-
ólfur Ármannsson
sviðsstjóri menningar-
mála, amtsbókavörður
og héraðsskjalavörður.
Við vitnum til þessarar
samþykktar sem m.a.
gerir ráð fyrir því að
Amtsbókasafnið haldi
prentskilum sínum um
langa framtíð og staðið
verði við marggefin lof-
orð um úrbætur á hús-
næði safnanna.
Við minnum á hátíð-
leg loforð bæjarstjórnar Akureyrar
um nýbyggingar yfir söfnin.
Við minnum á loforð og
vanefndir, segja Gísli
Jónsson og Sigurður
Eggert Davíðsson, og
biðjast undan fleiri
menningarslysum.
Við minnum á furðulegar van-
efndir sömu loforða.
Við teljum að með því að taka
Gísli
Jónsson
Sigurður Eggert
Davíðsson
af Amtsbókasafninu prentskilin og
flytja þau til háskólans á Akureyri
væri skólanum gerður fremur lítill
greiði, en safninu óbætanlegt tjón.
Við teljum samvinnu milli þessara
stofnana sjálfsagða og auðvelda.
Við hvetjum stjórnendur Akur-
eyrarbæjar og landsfeður til að láta
sig ekki henda það slys að vinna
Amtsbókasafninu, 170 ára stofnun,
sögulegt tjón. Við meira en nógar
vanefndir og virðingarleysi hefur
safnið þurft að búa um sinn.
Við biðjumst undan fleiri menn-
ingarslysum í bænum okkar en orð-
in eru síðustu árin.
Höfundar hafa fengist við kennslu
Sækiö sumarið til okkar