Morgunblaðið - 21.06.1997, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
HL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Kindakjötsútsala í Hagkaup fyrir nokkrum árum.
Kjötfjallið horfið
Ferdinand
Smáfólk
OKAV, lucv, stand
\jJM BACK THERE BV
TH05E BU5ME5..
~zr
l*M éONNA MIT
YOU A FLY
v BALL..
TRV TO GET IT BACK
A5 FA5T A5 YOU CAN
Allt í lagi, Gunna, Ég ætla að slá
stattu þarna við þennan flugbolta til þin ...
runna þarna...
Reyndu að kasta honum
til baka eins fljótt og þú
getur.
Hann er einhvers staðar
hérna inni í...
Frá Kristínu Kalmansdóttur:
MIKILL útflutningur og sam-
dráttur í framleiðslu kindakjöts
hafa gert það að verkum að kjöt-
fjallið er horfið. Þetta eru söguleg
og mjög jákvæð tímamót fyrir ís-
lenska sauðfjárbændur því mörg
síðustu ár hafa birgðir kindakjöts
í upphafi sláturt-
íðar í september
verið afar miklar
og farið allt upp
í rúm 2.500
tonn.
Birgðir kinda-
kjöts í lok apríl
1997 voru tæp
2.900 tonn. Til
samanburðar
voru birgðir
kindakjöts í lok
apríl 1996 rúm 4.800 tonn. Mánað-
arsala á kindakjöti er að meðaltali
um 600 tonn en salan er nokkuð
breytileg eftir mánuðum og árstíð-
um.
Flutt voru úr landi rúm 2.900
tonn af kindakjöti árið 1996. Til
samanburðar var útflutningur á
bilinu 1.000 til 1.300 tonn síðustu
5 árin þar á undan. Árið 1996 var
mest flutt út til Norðurlandanna,
ESB-landanna og Austur-Evrópu.
Verð fyrir útflutt kjöt á hefðbundna
markaði (aðallega Norðurlöndin og
ESB-löndin) hefur hækkað veru-
lega á árinu 1997 og algengt FOB-
verð á þessum mörkuðum er á bil-
inu 200 kr/kg til 250 kr/kg. Mjög
lítið hefur verið flutt út á óhefð-
bunda markaði eins og t.d. Austur-
Evrópu á árinu 1997 en þar fæst,
í flestum tilfellum, mun lægra verð
heldur en á hefðbundnum mörkuð-
um.
Framleiðsla á kindakjöti hefur
dregist mjög saman á seinni árum.
Framleidd voru rúm 13.500 tonn
árið 1980 en einungis rúm 8.000
tonn árið 1996. Neysla innanlands
hefur einnig dregist verulega sam-
an. Sala innanlands árið 1980 var
rúm 9.900 tonn en aðeins tæp 7.000
tonn árið 1996. Framleiðsla kinda-
kjöts hefur þannig dregist saman
um 5.500 tonn og neysla kindakjöts
innanlands hefur dregist saman um
2.900 tonn frá árinu 1980 til ársins
1996. í þessu endurspeglast sorg-
lega hliðin á málinu, samdrátturinn
og erfiðleikarnir sem sauðfjárbænd-
ur standa frammi fyrir í dag og þar
með aukin hætta á verulegri
byggðaröskun.
Ekki mun verða skortur á kinda-
kjöti í verslunum í sumar. Minnk-
andi birgðum verður mætt með
öflugri slátrun í ágúst og töluverðri
slátrun í júlí. Nokkuð lengi hefur
verið áhugi fyrir því að hefja slát-
urtíð fyrr en verið hefur (hefðbund-
in sláturtíð byijar í september).
Ekki síst til þess að geta boðið
neytendum upp á ferskt lambakjöt
yfir lengri tíma. Þetta hefur verið
erfitt í framkvæmd vegna mikilla
birgða á liðnum árum. í ár munu
kjötbirgðir frá fyrra ári hafa minnk-
að mikið þegar nýtt kjöt kemur á
markað. Engar verðlækkanir munu
verða á birgðum fyrra árs. Þar með
hefur hvatinn til að auka sumar-
slátrun og bjóða fyrr upp á ferskt
kjöt aukist til mikilla muna.
KRISTÍN KALMANSDÓTTIR
fulltrúi Markaðsráðs kindakjöts.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt ! upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.