Morgunblaðið - 21.06.1997, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Háskólabíó
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
ÁTT ÞÚ EFTIR
AÐ SJÁ KO’bM
HT Rás2
•maUMERHlÍFTJl
Háðung
Ridicule
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Síðustu sýningar
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.30. B. i. 10 ára
PIERCE BROSNAN
LINDA HAMILTON
Myndin er byggð á sönnum atburðum í lífi rithöfundarins Ernest Hemingway
sem ieiddi til þess að hann skrifaði hina frægu skáldsögu Vopnin kvödd.
Leikstjórn: Richard Attenborough
UNDIRDJÚP ÍSLANDS
Die Hard framtíðarinnar. Hörku spennandi mynd um
leigubílstjóra i New York árið 2300 sem fyrir tilviijun
kemst að því að jörðinni er ógnað af ókunnu afli utan
úr geimnum. Til þess að bjarga jörðinni verður hann að
finna fimmta frumefnið.
Búningar: Jean-Paul Gaultier, tónlist Eric Sierra.
Leikstjóri: Luc Besson.
íslensk heimasíða:
xnet.is/5thelement
Enn ein perla í festi
íslenskrar náttúru.
Þingvallavatn, Geysir
Gullfoss og Mývatn.
Náttúra íslands frá
alveg nýju
sjónarhorni
Sýnd kl. 5.30. Enskt tal, ótextað
Morgunblaðið/Silli
KOLBRÚN Þorkelsdóttir fjallkona í skautbúningi ættarinnar.
17. júní á
Egilsstöðum
17. JÚNÍ var haldinn hátíðlegur
með glæsibrag á Egilsstöðum.
Gengið var í skrúðgöngu inn á
hátíðasvæðið í Vémörk í Egils-
staðaskógi. Þar í skjóli tijánna
hafði stórt samkomutjald verið
reist svo samkomugestir mættu
njóta dagskrár og veitinga á þurru
grasi því nokkur rigningarsuddi
var fram eftir degi.
Hátíðardagskráin hófst með
guðsþjónustu og söng kirkjukórs
Egilsstaðakirkju. Fjallkonan,
ómissandi, flutti ræðu sína og að
henni lokinni má segja að unga
kynslóðin hafi tekið völdin með
flutningi leikþáttar, söngs og há-
tíðarræðu. Allt það unga fólk stóð
sig með sóma.
Öllum að óvörum færði Kvenfé-
lagið Bláklukkur bænum sínum
veglega gjöf í tilefni 50 ára afmæl-
is bæjarins á þessu ári. Var það
dökkgrænn kyrtill með faldi, svo-
kallaður faldbúningur. Hann
saumaði og bróderaði Margrét
Björgvinsdóttir frá Egilsstöðum,
nú búsett í Neskaupstað, en Lára
Elísdóttir, klæðskeri á Egilsstöð-
um, sneið.
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir,
einnig á Egilsstöðum, orkeraði
blúnduna, en höfuðbúnaður var
fenginn sunnan úr Reykjavík hjá
Helgu Þórarinsdóttur. Þess skal
getið að mynstur það sem Margrét
bróderaði á kyrtilinn er eftir teikn-
ingu Sigurðar Guðmundssonar
listmálara.
Munu fjallkonur, bæjarstjórafr-
úr og bæjarstjórar koma til með
að skarta þessum dýrindis klæðn-
aði við hátíðleg tækifæri, en fram-
undan er einmitt 50 ára afmæli
Egilsstaðabæjar sem haldið verður
hátíðlegt dagana 20. til 29. júní.
Hátíðahöldunum lauk síðan með
dúndrandi dansleik í Vémörk um
kvöldið.
EDDA Sigfúsdóttir, jafnaldra
Egilsstaðabæjar og fjallkona
dagsins, í kyrtlinum góða.
Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir
Laugavegi 23 - Sími 551 5599
Fjölmenn
hátíðarhöld
►ÞJÓÐHÁTÍÐARHÖLDIN á
Húsavík fóru fram í frekar óhag-
stæðu veðri en voru þó óvenjulega
fjölmenn. Þau hófust með messu
í Húsavíkurkirkju sem sr. Sighvat-
ur Karlsson flutti.
Kl. 14 var farið í skrúðgöngu
með lúðrasveit í broddi fylkingar
frá íþróttavellilnum og gengið var
að Borgarhólsskóla. Þar flutti Ing-
ólfur Freysson, formaður Völs-
unga, hátíðarræðuna en ávarp
fjallkonunnar flutti af skörungs-
skap Kolbrún Þorkelsdóttir, dótt-
urdóttir hinnar þjóðþekktu leik-
konu Regínu Þórðardóttur. Skaut-
aði liún sama búningi og amma
hennar þá hún flutti ávarp fjall-
konunnar á Austurvelli 1949.
Síðan var haldið aftur á íþrótta-
völlinn og þar skemmtu sér börn
og fullorðnir. Um kvöldið var svo
komið saman á hafnaruppfylling-
unni.
Sýninga-
metá
Broadway
►Leikararnir í söngleiknuni
„Cats“ eftir Andrew Loyd Web-
ber fögnuðu ákaft að lokinni
sýningu síðastliðinn fimmtu-
dag. Þá hafði verið slegið met
í sýningafjölda á Broadway en
söngleikurinn hefur verið sýnd-
ur frá árinu 1982 og í alls 6.138
skipti.