Morgunblaðið - 21.06.1997, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Arnaldur
Skátar nema
land í Viðey
EMíbridsi
Island í
3. sæti
Montecatini. Morgunblaðið.
ÍSLENSKA karlaliðið vann
báða leiki sína í gær á
Evrópumótinu í bridsi og er í 3.
sæti í opnum flokki en
kvennaliðið tapaði báðum sínum
leikjum og er í 20. sæti eftir 6
umferðir.
í opna flokknum unnu
íslendingar Hvítrússa 24-6 í 13.
umferð og Úkraínumenn 23-7 í
14. umferð og höfðu í lok
dagsins 263 stig í 3. sæti. ítalar
eru iangefstir með 298 stig en
Spánverjar eru í 2. sæti með 267
stig. í dag spila íslendingar við
íra, ítala og Finna.
I kvennaflokki tapaði Island
fyrir Svíþjóð í 5. umferð, 7-23,
og fyrir Belgíu í 6. umferð, 9-21
og hefur 75 stig. Frakkar eru
efstir í kvennaflokki með 127
stig, þá koma Bretar með 117
stig og Belgar með 115 stig. í
dag spilar íslenska liðið við
Pólverja, Mónakóbúa og Breta.
■ Villulaus/46
í VIÐEY stendur nú yfir hið árlega
Landnemamót, þar sem Landnemar
og önnur skátafólög úr Reykjavík
auk félaga úr Hveragerði og Stykk-
ishólmi eru saman komin, alls á
þriðja hundrað skáta. Margt er
RÍKISSTJÓRNIN áætlar að auka
fjárveitingar til Landhelgisgæzlunn-
ar um 20 milljónir á þessu ári vegna
aukins eftirlits með veiðum erlendra
loðnuskipa innan lögsögu íslands.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið
út reglugerð, þar sem mjög er
þrengt að veiðum norskra loðnu-
skipa innan lögsögunnar frá því sem
verið hefur. Reglugerðin nær ekki
nema að mjög takmörkuðu leyti tii
loðnuskipa frá Grænlandi og
Færeyjum. Hún verður kynnt
norskum stjórnvöldum í næstu viku.
Porsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, segir að með reglugerð
hægt að gera sér til dundurs í Við-
ey, t.d. æfa bjargsig eins og stúlkan
sem hér sést.
Stuð/12
þessari sé aðeins verið að setja
norskum skipum svipaðar skorður
og íslenzkum skipum séu settar við
síldveiðar innan lögsögu Jan Mayen.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, telur þessar nýju reglur full-
nægjandi og segir að Norðmenn geti
sjálfum sér um kennt, telji þeir
þrengt að sér.
Svipaðar reglur og Norðmenn setja
íslenskum skipum
„Helztn breytingar eru þær, að nú
verða ekki gefin út fleiri leyfi en 30 til
norskra skipa, en það er sá fjöldi
skipa, sem hefur mátt stunda veiðar
FJÖLSKYLDAN á Stóra-Kroppi í
Reykholtsdal flutti í gær að Ártún-
um í Rangárvallahreppi, en að sögn
Jóns Kjartanssonar sem á stór kúa-
bú á báðum þessum stöðum, hrökkl-
ast fjölskyldan frá Stóra-Kroppi
vegna hinna harðvítugu deilna sem
staðið hafa um vegarstæði í Reyk-
holtsdal sl. þrjú ár og vegna póli-
tísks loddaraleiks sem nú standi um
þá sáttaleið sem Vegagerðin hefur
kynnt varðandi vegarlagninguna.
„Það sem ég á við með fullyrð-
ingu minni um þennan pólitíska
loddaraleik sem hér er í gangi er
einfaldlega það að aðstoðarmaður
umhverfisráðherra er svo nátengd-
ur þeim aðilum sem hafa barist fyr-
ir því að túnin [á Stóra-Kroppi]
verði malbikuð, að ég fullyrði að það
sé búið að ákveða niðurstöðu máls-
ins fyrirfram," sagði Jón.
samtímis innan lögsögunnar. Fram til
þessa hafa verið gefin út leyfi til alira
norskra skipa, sem þess hafa óskað.
Petta er samskonar regla og Norð-
menn hafa gert okkur að sæta við
veiðar á síld innan sinnar lögsögu."
Aukið fé til Gæzlunnar
„Síðan hafa verið settar nýjar
reglur þess efnis að erlend skip
verða að fara í gegn um sérstakar at-
hugunarstöðvar og tilkynna sig með
ákveðnum fyrirvara á leið inn í lög-
söguna og út úr henni. Loks verður
að senda daglegar tilkynningar um
afla,“ segir sjávarútvegsráðherra.
Hægt að kæra til ráðherra
Umhverfismat vegna vegar-
lagningar í samræmi við sáttaleið
Vegagerðarinnar er að berast
skipulagsstjóra ríkisins og verður
það síðan auglýst. Eftir úrskurð
skipulagsstjóra er talið líklegt að
andstæðingar sáttatillögunnar kæri
matið til umhverfisráðherra.
„Mín krafa er einfaldlega sú að
þeir aðilar sem málinu ráða komi
fram í dagsljósið og kveði upp úr
um það hvað þeir eru í raun og veru
að gera. Þeir eru ekki að styðja eða
styrkja atvinnulíf hér í sveitarfélag-
inu, þeir eru ekki að fara að vilja
hreppsnefndarinnar og ekki að taka
tillit til ábúenda og eigenda þeirra
jarða sem í hlut eiga.“
■ Fjölskyldan/32
„Pað er óhjákvæmilegt að auka
landhelgisgæzluna vegna þessa.
Forstjóri Landhelgisgæzlunnar hef-
ur lagt fram tillögur í þeim efnum.
Þær munu kosta aukið úthald varð-
skipanna og Fokker-flugvélar Gæzl-
unnar frá því sem áætlað er í fjár-
lögum. Ríkisstjórnin hefur fallizt á
að nauðsynlegur kostnaður vegna
þessa verði settur inn á fjáraukalög
í haust, en hann er áætlaður um 20
milljónir króna,“ segir Porsteinn
Pálsson.
■ Fylgjumst með/18
Ný reglugerð um loðnuveiðar norskra skipa innan íslenzku lögsögunnar
Leyfí til 30 skipa í senn
Verkfall hófst hjá
Sleipni í nótt
VERKFALL hófst hjá Bifreiða-
stjórafélaginu Sleipni í nótt. Samn-
ingafundur stóð hjá ríkissáttasemj-
ara frá hádegi í gær og þokaðist í
rétta átt í viðræðunum. Tilboð
gengu á milli deiluaðila, en undir
miðnætti var enn talsvert stórt bil á
milli þeirra. Framan af samninga-
fundi í gær tókust Sleipnismenn og
vinnuveitendur á um framkvæmd
verkfallsins, en ágreiningur er um
hverjir megi vinna í verkfalli. Um
miðjan dag tóku menn hins vegar
að ræða um launatölur.
Samninganefndir Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur og ríkisins náðu
ekki að ljúka samningum vegna
starfsfólks sem vinnur við sjúkra-
húsið á Húsavík, en það hefur boðað
verkfall 23. júní.
Grunnkaupshækkun/33
Nýtt flutning'afyr-
irtæki á Húsavík
AÐALGEIR Sigurgeirsson hf. og Skipaafgreiðsla Húsavíkur ehf. hafa sam-
einast í einu landflutningafyrirtæki. Eimskipafélag íslands og Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um þátttöku. Hið samein-
aða félag tekur til starfa 1. júlí nk. Að sögn Sigurgeirs Aðalgeirssonar,
framkvæmdastjóra hins nýja fyrirtækis, næst mikil hagræðing með sam-
einingunni, aukin ferðatíðni og bætt þjónusta við viðskiptavini. Fyrirtækið
ætlar að auka umsvif sín og vera með flutninga á milli Reykjavíkur og
Húsavíkur alla daga vikunnar.
Daglegar ferðir verða sömuleiðis
milli Húsavíkur og Akm-eyrar og
sama gildir austur á bóginn til Kópa-
skers og Raufarhafnar. Þá verða
ferðir þrisvar í viku austur til Þórs-
hafnar, Bakkafjarðar og Vopnafjarð-
ar. Fyrirtækið hefur yfir að ráða 12
flutningabifreiðum með kæli- og
frystibúnaði auk tengivagna sem
bera nafn Aðalgeirs Sigurgeirsson-
ar. Á milli 25 og 30 manns munu
starfa hjá fyrirtækinu.
Verið er að meta eignir fyrirtækj-
anna, en gert er ráð fyrir að eignar-
hlutur Aðalgeirs Sigurgeirssonar hf.
og Skipaafgreiðslu Húsavíkur ehf.
verði jafnir. Eignarhlutur Eimskips
verður um 30% og FH mun einnig
eiga hlut í félaginu. Sigurgeir sagði
hugsanlegt að fleiri aðilar myndu
taka þátt í fyrirtækinu.
Pétur Jónsson getur ekki
lagst að á Húsavík
Fram að þessu hefur FH flutt
stærstan hluta afurða sinna með
Samskipum. Utlit er fyrir að með
þeim breytingum sem eru að verða á
hráefnisöflun hjá FH aukist flutning-
ar hjá fyrirtækinu mikið þvi að nýja
rækjuskipið Pétur Jónsson er það
stórt að það getur ekki lagst að
bryggju á Húsavík og því verður að
flytja allan afla skipsins frá Akureyri.
Bæði flutningafyrirtækin sem nú
sameinast standa á gömlum merg. Á
sl. ári voru 40 ár liðin frá því Aðal-
geir Sigurgeirsson hóf flutninga milli
Húsavíkur og Reykjavíkur. Skipaaf-
greiðslan var stofnuð árið 1984 og er
eitt öflugasta fyrirtæki Húsavíkur.
Það hefur rekið akstursdeild, bif-
reiðaverkstæði og almenna skipaaf-
greiðslu. Það hefur veitt Kísiliðjunni
við Mývatn þjónustu og framleiðir
vörubretti. Skipaafgreiðslan er um-
boðsaðili Eimskips á Húsavík. Aðal-
geir Sigurgeirsson er einn stofnenda
Vöruflutningamiðstöðvarinnai- hf. og
er fyrirtækið hluthafi þar ásamt
Eimskip og fleiri flutningsaðilum.
Deilur um vegarstæði í Reykholtsdal
Abúendur Stóra-
Kropps fluttir