Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 9 FRÉTTIR Ný kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar Iðnó Ekki gert ráð fyrir húsgögnum eða búnaði í SAMANBURÐI á kostnaðaráætl- unum við endurbyggingu Iðnó kemur fram að kostnaður sam- kvæmt endurskoðaðri heildaráætl- un frá janúar 1995 hafi verið áætl- aður 241,9 milljónir króna en að ný heildaráætlun geri ráð fyrir að kostnaðurinn verði rúmar 198,7 milljónir eða lækki um rúmar 43,3 milljónir. Rétt er að taka fram að í nýju áætluninni, er ekki gert ráð fyrir húsgögnum, lausum innrétt- ingum og búnaði en í eldri áætlun var gert ráð fyrir að kostnaðurinn yrði 41,6 milljónir undir þeim lið. Yfirlit um kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar Iðnó hefur verið lögð fram í borgarráði vegna fyrirspumar frá Ingu Jónu Þórðar- dóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, sem óskaði eftir upplýs- ingum um hver kostnaðaráætlunin væri, hvort gerður hefði verið sam- anburður á nýtingarmöguleikum og hvort gert væri ráð fyrir að- gengi fatlaðra í samræmi við lög og reglur. í svari byggingadeildar borgar- verkfræðings kemur fram að sam- kvæmt endurskoðaðri eldri heild- aráætlun að viðbættum verkþátt- um sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í fyrri áætlun frá 1995 en sýndir væm á teikningum og verk- lýsingum hefði kostnaðurinn verið rúmar 241,9 milljónir miðað við verðlag í júlí 1997. í þeirri áætlun var gert ráð fyrir húsgögnum, lausum og föstum innréttingum, lyftanlegu gólfi og sviðsbúnaði og var áætlaður kostnaður rúmar 41,6 milljónir Ný áætlun I nýrri endurmetinni heildaráætl- un er gert ráð fýrir að heildarkostn- aður verði rúmlega 198,7 millj. og segir í svari byggingardeildar að hún sé grundvölluð á nýjum for- sendum hönnuða varðandi frágang. Ekki er gert ráð fýrir húsgögnum, búnaði, tækjum og lausum innrétt- ingum en föstum innréttingum fyr- ir um milljón. Hætt er við sviðsbún- að og lyftanlegt gólf í sal en gert er ráð ráð fyrir lyftu fyrir fatlaða og er kostnaður vegna hennar 3 millj. Fram kemur að miðað við nýjar forsendur verði kostnaður 18% lægri en áætlunin frá 1995 gerði ráð fyrir eða sem nemur 43,3 milljónum króna. Tekið er fram að nýtingarmögu- leikar hússins séu í öllum aðalatrið- um þeir sömu og áður. Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Minni möguleikar á nýtingu INGA Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að óverulegur munur sé milli eldri og nýrri kostnaðaráætlunar vegna Iðnó. Kjarni málsins sé að nýting- armöguleikar hússins séu minni en kostnaður nánast sá sami. Inga Jóna sagði að verið væri að bera saman tvær áætlanir, þar sem munaði 43,3 millj. „Þetta eru ekki samanburðarhæfar tölur því að í nýju áætluninni er ekki tekið tillit til kostnaðar vegna innrétt- inga búnaðar og tækja,“ sagði hún. „Þær tölu, sem eru saman- burðarhæfar, sýna að það er óveru- legur munur á milli kostnaðar sam- kvæmt eldri áætlun og þessarar nýju hönnunar. Munurinn er rétt rúmar 3 milljónir." Benti hún á að millisumman sýndi 200 millj. í eldri áætluninni en rúmar 194 millj. í nýju áætlun- inni. í þeirri upphæð væri ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna brunavarna en í eldri áætlun væri gert ráð fyrir kerfí sem kostaði 2-3 millj. Því liti hún svo á að munurinn á samanburðarhæfum tölum væri 3 milij. í sparnað. Hönnun breytt „í vetur var tekin ákvörðun um að breyta hönnun hússins," sagði Inga Jóna. „Hönnun á innrétting- um hússins og áætlanir Ingimund- ar Sveinssonar arkitekts voru lagð- ar til hliðar og nýr arkitekt ráðinn til að hanna upp á nýtt. Ein af meginforsendum fyrir þeirri ákvörðun var að hún hefði í för með sér verulegan sparnað vegna endurbóta á Iðnó. Á þeim tíma sem málið var til umræðu í borgar- stjórn tilgreindi borgarstjóri að sá sparnaður gæti numið allt að 65 milljónum króna. Við sjálfstæðis- menn vöruðum við því á þeim tíma að þau drög að kostnaðaráætlun sem þá lágu fyrir væru mjög lág og að öllum líkindum yrði kostnað- urinn mun meiri. Við óskuðumn eftir því að fengnar yrðu upp á borðið kostnaðaráætlanir áður en endanlegar ákvarðanir yrðu tekn- ar. En meirihlutinn vildi ekki bíða eftir því og samþykkti ekki þá málsmeðferð. Það kemur síðan á daginn að sparnaðurinn er óveru- legur á þessum fjárhæðum en á móti hafa nýtingarmöguleikar hússins skerst töluvert en þeir eru mun minni miðað við þessa hönn- un. Ég hef aflað mér þeirra upplýs- inga að ætla megi að nýtingar- möguleikarnir skerðist um allt að 25%. Það finnst mér vera kjaminn í málinu, við erum að fá minna út úr húsinu fyrir næstum því sama kostnað." Sagði hún ljóst af þessum kostnaðaráætlunum, sem dreift hefði verið í borgarráði að þær væru gerðar með fyrirvara um breytingar vegna rekstraraðila. Þær gætu því tekið breytingum og þá að öllum líkindum til hækk- unar þegar ljóst væri hvers konar starfsemi og hvaða búnað þyrfti í húsið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Munar mest um glerskála og gólf INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að munurinn milli síðustu kostnaðaráætlunar og þeirra eldri séu þær breytingar, sem urðu þegar fallið var frá gler- skálanum við suðurhlið Iðnó og að hætt hafí verið við sviðsbúnað og lyftanlegt gólf í sal. „Þetta eru stærstu liðirnir en nú er gert ráð fyrir að gera upp gamla gólfið í stað lyftanlegs gólfs,“ sagði hún. „Ovissuþáttur- inn er búnaður innan húss og þess vegna er ekkert sett inn á þann lið í nýju áætluninni. Hugmyndirnar hafa verið þær að þarna kæmi ein- hver rekstraraðili inn, sem kæmi þá með búnað með sér í húsið að einhveiju leyti. Við legðum til dæmis ekkert til af því sem þyrfti varðandi veitingaaðstöðuna en í fyrri áætlun var gert ráð fyrir öll- um hlutum föstum og bundnum. Þarna er óvissuþáttur og gæti ver- ið að einhver kostnaður kæmi á borgina af því.“ Fimm kostnaðaráætlanir Borgarstjóri benti á að nýja áætlunin væri fimmta kostnaðar- áætlun sem gerð væri vegna Iðnó. Sú fýrsta hafí verið lausleg og ekki byggð á nákvæmri skoðun á húsinu. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir að kostnaðurinn yrði um 100 millj. „Það á ekki að vera mikil óvissa í þessari nýjustu áætl- un,“ sagði Ingibjörg. „En ég átti von á að meiri sparnaður yrði til dæmis við að flytja ekki stigann eins og ráðgert var, þar sem við notum áfram stigann sem er í húsinu. Spurningin er hvort eitt- hvað hafi verið vanáætlað í þeim efnum.“ Endurbygging Samanburður á Irnctnoðoráoatliinnm Iðnó Ný áætlun hönnuða og verktaka er með fyrirvara um breytingar vegna rekstraraðila pij ; Endurmetin áætlun á»t nn afl t!l werkloka, byggð aætlun að viðbættum A rallnkn«:tnaði nn verkþáttum sem þar /|?|un hönnuða9 hafa falliö niöur “"T.íktaka Verðlag í júlí 1997 Sundurliðun áætlunar Útveggir frágengnir að utan 14.467.178 14.467.178 Gluggar og útidyr 17.755.480 17.755.480 Þak frágengið 9.130.427 9.130.427 Viðbygging: - sökklar og frág. lóðar 4.287.819 4.287.819 - glerhús 9.300.008 7.100.008 - niðurrif og lagfæringar 1.110.000 Viðgerð inni 67.500.000 66.170.795 Lagnir 37.000.000 30.424.143 Frágangur utandyra (sorpg. og fl.) 2.000.000 2.000.000 Hönnun, eftirlit og fl. 38.875.628 42.260.360 Millisumma: 200.316.540 194.706.210 Húsgögn og lausar innréttingar 9.827.000 0 Fastar innréttingar 5.350.000 1.000.000 Lyftanlegt gólf og sviðsbúnaður 8.523.000 0 Búnaður og tæki 17.969.000 0 Lyfta 3.000.000 Samtals: 41.669.000 4.000.000 í HEILD: 241.986.000 198.706.000 Síðasti dagur útsölunnar öðumu^ tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Sími 561 1680. Pottar í Gullnámunni 24. - 30. júlí 1997: Silfurpottar: Dags. Staður Upphæð kr. 24. júlí Ölver............................. 404.939 25. júlí Ölver.............................. 78.386 26. júlí Mónakó............................ 270.644 27. júlí Háspenna, Laugavegi................ 77.832 28. júlí Catalína, Kópavogi................ 133.736 28. júlí Ölver.............................. 57.152 28. júlí Háspenna, Hafnarstræti............ 126.798 29. júlí Hótel Örk, Hveragerði.......... 182.528 30. júlí Háspenna, Laugavegi................ 94.417 1 2 < o Staða Gullpottsins 31. júlí kl. 8.00 var 5.700.000 kr. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.