Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 49 ' * MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP YAMAHA Ég mæli með Myndum lausum við rembing Kristinn Einarsson hákarlabóndi KRISTINN horfir meira á mynd- bönd á sumrin en á vetuma þar sem hann stundar þá nám sam- hliða vinnunni. „Mér þykir nauð- synlegt að horfa á afþreyingu eins og góðar spennumyndir. Það eru samt ekki þær myndir sem era eftirminnlegastar, heldur myndir sem hafa einfalda góða sögu, sem vel er farið með og fjallað um á nýjan hátt. Jafnvel gömul klisja séð út frá nýju sjónarhorni." Fargo Fargo -1996 Leikstjóri: Joel Coen. Frances McDormand, William H. Macy, Steve Buscemi, Harve Presnell og Peter Stormare. „Fargo fjallar um miðaldra bílasala í Kanada sem á við fjárhagsörðugleika að stríða. Til þess að leysa fjárhagsvandræði sín fær hann tvo smákrimma sem reiða vitið ekki í þverpokum, til að nema eiginkonu sína á brott og krefjast lausnargjalds af forríkum tengdaföður sem hefur óbeit á duglausum tengdasyni sínum. Vegna andlegs þróttleysis smák- rimmanna tveggja og samvisku- leysis fer atburðarás af stað sem engin leið er að hafa stjórn á. Það sem gerir þessa mynd fyrst og fremst skemmtilega era þessar óhefðbundnu persónur sem halda myndinni uppi en sagan sjálf er Morgunblaðið/Ásdis „RÓLEG og hversdagsleg samskipti lögreglukonunnar og eiginmannsins í Fargo, er ástarsamband aldarinnar á hvíta tjaldinu." hvorki ný né framleg. Persónu- sköpun er stórkostleg og leikur frábær. Ef taka ætti eina persónu út er það bílasalinn hörmulegi sem stendur upp úr því þar fer saman mjög vel skrifuð persóna og ótrúleg túlkun Williams H. Macy á þessum örvæntingarfulla mannvesalingi sem reynir í sífellu að snúa sig út úr gjörsamlega vonlausum aðstæð- um. Lögreglukonan kasólétta sem leysir morðgátuna er ofurhvers- dagsleg og látlaus. Róleg og hvers- dagleg samskipti milli lögreglu- konunnar og eiginmanns hennar era svo skemmtileg að í mínum huga er þetta ástarsamband aldar- innar á hvíta tjaldinu." Bitur máni Bitter Moon - 1992 Leikstjóri: Roman Polanski. Hugh Grant, Kristin Scott-Thomas, Pet- er Coyote og Emanuelle Seigner. „Myndin fjallar um bamlaus hjón sem fara í siglingu á skemmti- ferðaskipi til austurlanda til þess að lappa upp á hjónabandið. í skip- inu hitta þau lamaðan rithöfund og heillandi eiginkonu hans sem H.G. hríst af. Rithöfundurinn býð- ur H.G til káetu sinnar og segir honum sögu sína og eiginkonu sinnar. H.G. verður gagntekinn af sögu rithöfundarins en er jafn- framt fullur viðbjóðs og hneyksl- unar bæði á sögunni og rithöf- undinum en verður að koma aftur og aftur til að heyra alla söguna. Af leikendum stendur P.C. upp úr sem lamaði rithöfundurinn. H.G. er þokkalegur sem taugaveiklaður breskur millistéttarmaður enda leikið það hlutverk æ síðan. K.S.T. er ágæt sem rólega eiginkonan sem tekur þá sveiflu sem H.G. ætlaði sér við litla hrifningu eigin- manns síns.“ Hundalíf Mit liv som hund - 1985 Leikstjóri: Lasse Hallström. An- ton Glanzelius, Tomas von Brömssen og Anki Liden. „Myndin fjallar um eitt og hálft ár í lífi drengs sem er u.þ.b. tíu ára gam- all. Hann elst upp hjá berklaveikri móður sinni og eldri bróður sínum. Drengurinn er óhemju orkumikill og uppátektasamur þannig að heisuveil móðir hans treystir sér ekki til að hugsa um hann og kemur honum fyrir í öðru byggðarlagi. Myndin lýsir sam- skiptum drengsins við fólkið í þorpinu sem honum er komið fyr- ir í og spaugilegri athafnasemi hans þar. Það sem þessi mynd hefur fram yfir margar aðrar myndir sem fjalla um sama efni er hversu látlaus, hlý og falleg hún er og laus við allan rembing. Um leik er lítil ástæða til að fjöl- yrða nema Anton Glanzelius sem leikur strákinn og er hreint eins og lítill djöfull í sumum uppátækj- um sínum en eins og engill þess á milli og að sjálfsögðu indælis barn.“ Trufluð tilvera Trainspotting -1996 Leikstjóri: Danny Boyle. Ewan McGregor, Robert Carlyle, John Lee Miller, Keven McKidd og Ewan Bremner. „Fjallar um líf nokkurra ungmenna í Edinborg sem flest era atvinnulausir fíkniefnaneytendur. Myndin er hrá og einföld, tónlistar- vai mjög vel heppnað og er þetta hreint út sagt veisla frá upphafí til enda og kaldranalegur húmorinn hárbeittur. Vissulega er freistandi að nefna atvik sem mér finnst í senn geggjuð og spaugileg en læt það vera svo ég falli ekki um þrep í samfélagsstiganum. Af framan- sögðu mætti ætla að þessi mynd væri ein lofgjörð um fíkniefna- neyslu en hún er þvert á móti einn albesti áróður sem ég hef séð gegn fíkniefnaneyslu vegna þess að hún er algerlega laus við alla predikun. Það sem hér er á ferðinni er einfald- lega lýsing á lífí ungmenna sem hafa ánetjast fíkniefnum og afleið- ingum þess. Manngerðimar era ógleymanlegar en ég læt nægja að nefna þær tvær sem mér fannst athyglisverðastar. Þar ber fyrst að nefna hinn ólánlega og lánlausa Spud sem ekki er hægt að hugsa til án þess að skella upp úr og svo Begbie sem er gjörsamlega sið- blindur og óhæfur til að lifa í mann- legu samfélagi. Þetta er ein af eftir- minnilegri myndum síðari ára.“ YZF 600 kr. 1.225.000 Útiskilti Vatnsheld og vindþolin Allar stærðir og gerðir Margir litir - gott verð Verslun Háteigsvegi 7 • Sfmi 511 1100 Verksmiöja Flatahrauni 13 • Sfmi 555 6100 Alvarleg- ur imbi ► KVIKMYNDALEIKARINN Brendan Fraser vill láta taka sig alvarlega sem listamann. Þegar hann lék sitt fyrsta aðalhlutverk í Hollywood-kvikmynd, „School Ties“ frá árinu 1992, var hann auglýstur upp sem mikil upp- götvun. Fraser er samt ekki best þekktur fyrir stórhlutverk í al- varlegum myndum heldur sem heilalaus gaur í gamanmyndum eins og „Encino Man“ (einnig þekkt sem „California Man“) og „Airheads". í nýjustu mynd sinni heldur Fraser áfram í imbahlutverkun- um. Hann leikur titilhlutverkið í „George of the Jungle", sem er byggð á teiknimyndasögu frá sjö- unda áratugnum þar sem gert er grín af hetjum eins og Tarz- BRENDAN Fraser lagði áherslu á að útlit sitt væri gott fyrir „George of the Jungle". an. Til þess að finna sig í hlut- verkinu æfði Fraser líkamsrækt af miklum krafti í fjóra mánuði enda betra að vera í formi í hlut- verki sem krefst þess að hann sé hálfnakinn mest alla myndina. Vinnið gegn fíla- penslum og bólum Saguná silicol skin silicol sk\n Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð. íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum. í sumarleik Shellstöðvanna geta allir krakkar eignast fjórar hljóösnaeldur meö skemmtilegu efni eftir Gunna og Felix. Nóöu þér i þótttökuseöil ó næstu Shellstöö eön i Ferðabók Gunna og Felix og byrjaðu nð safna skeljum. Það fast ein skel viö hverja ófyllingu ó Shellstöövunum og þegar skeljarnar eru orðnar f jórar, færöu hljóösnældu. Ferðabók Gunna og Felix fylgir öllum kössum af Hl-C sem keyptir eru ó Shellstöðvunum. ——p- £ [VfÆ 5j :’v l ál. v ^sátea m Matvaro ■ sérvara SO fríkortspvfíktar 1 fyrír hverjar lOOOkr. Shellstöðvarnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.