Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 13 LANDIÐ Morgunblaðið/KVM KAFFIHÚSIÐ Fjöruhúsið á Hellnum tekur um tuttugu manns í sæti. Grundarfjörður - Útvegsbændur á Hellnum undir Jökli hafa opnað kaffihús sem ber heitið Fjöruhús- ið. Frá Hellnum undir Jökli hafa bændur róið um aldir. Fram á miðjan níunda áratuginn verkuðu menn aðaliega í salt, en frá þeim tíma hefur fiski verið iandað á Arnarstapa á markað og þaðan hefur hann verið fluttur í vinnslu, ýmjst um Nesið eða suður á land. Á Hellnum standa eftir fá hús sem voru notuð i tengslum við útræðið. Niðri við höfnina er eitt þeirra. Húsið stendur við bratta brekku sem veit að sjó. Þaðan sést yfir allt hafnarstæðið og fjör- una. Frá Fjöruhúsinu má heyra í öldunni tala við landið og líka í fuglunum sem eiga sér heimili í fögru og ævintýralegu umhverfi. Kristján Brandsson, bóndi í Gömlu fiskverk- unarhúsi breytt í kaffihús Barðarbúð, byggði húsið árið 1937 með aðstoð sona sinna, Leifs og Kristins, sem betur er þekktur undir nafninu Diddi í Bárðarbúð. Hús þetta var notað fyrir geymslu á veiðarfærum og saltaður var þar fiskur. Stóð ónotað í 20 ár í meira en tuttugu ár hefur húsjð staðið ónotað þar til í vor að Ólína Gunnlaugsdóttir frá Ökr- um, barnabarn Kristjáns, og Sig- ríður Einarsdóttir, mágkona Ól- ínu, fengu þá snjöllu hugmynd að gera úr því kaffihús. Hugmyndinni var fljótlega hrundið í framkvæmd og kaffi- húsið var opnað 9. júlí sl. Að öllu leyti er haganlega að verki staðið með Kristjáni Einarssyni snikk- ara frá Ökrum í fararbroddi framkvæmda. Húsið, sem nú gengur undir nafninu Fjöruhúsið, tekur um tuttugu manns í sæti, auk þess er verönd þar sem þreytt- ir og þyrstir geta tyllt sér utan- dyra og fengið notið hinnar dýrð- legu náttúru sem þar er. Vatnsknúin kornmylla fer á safnið í Skógum Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir ÞORSTEINN Oddsson við kornmyll- una sem verður varðveitt á Byggða- safninu í Skógum. Hellu - Margir munir sem forfeður okkar töldu hið mesta þarfaþing eru nú gleymdir og glataðir. En sem betur fer er þó margt til á söfnum og enn finnast menn af eldri kynslóðinni sem muna hvernig þessir hlutir voru notaðir og það sem meira er, leggja sitt af mörkum til þess að þeir sem á eftir koma fái innsýn í löngu horfna starfshætti og þar með daglegt líf fólks á öldum áður. Einn þessara manna er Þorsteinn Oddsson fyrrum bóndi á Heiði á Rangárvöll- um, nú búsettur á Hellu. Hann hefur í sumar unnið að endurgerð og smíði á vatnsknúinni kommyllu sem áður malaði kom fyrir heimilismenn á Heiði. Að sögn Þorsteins voru myllur þessar algengar fram undir síðustu aldamót, en hans mylla var notuð fram á þriðja áratug þessarar ald- ar. „Steinarnir í þessari myllu vom fengnir um 1920 úr Höfnum, en þá var hún endumýjuð, ég man eftir að myllan var síðast gangsett 1926 en hætt var að nota hana upp frá því. Það kom til af því að farið var að flytja inn malað kom og ekki var lengur þörf fyrir hana. Komið sem notað var til mölunar var aðallega innflutt, rúgur og bankabygg og eitthvað var um að menn möluðu melkorn. Það var myllukofi við bæjarlæk- inn, en vatnið var leitt í gegnum kofann, þar sem það knúði spaðana sem eru undir mjölkassanum. Korn- ið fór eftir rennunni niður í gat í miðju efri kvamarsteinsins þar sem það malaðist á milli steinanna og hmndi smám saman undan þeim sem mjöl í mjölkassann, en á honum var lítið op með fyöl sem hægt var að opna og loka að vild og sópa mjölinu út um.“ Harmon- íkutónar og söngur á Daladögum Búðardal - Ljúfir harmoníkutón- ar og fagur söngur hljómuðu um Búðardal síðdegis föstudaginn 25. júlí auk þess sem ilmur af grilluðu lambakjöti Iagði yfir þorpið. Ungar stúlkur biðu eftir- væntingarfullar eftir því að kom- ast til dularfullu spákonunnar sem spáði í lófa og spil. Aðrir fóru í biðröð til þess að láta teikna af sér andlitsmynd. Sólin sendi geisla sína á gesti og gang- Morgunblaðið/Guðrún Vala HALLDÓR Þórðarson harmon- íkuleikari og Ásgeir Saiberg Jónsson tenórsöngvari létu tón- ana óma um Búðardalinn. andi og stemmningin minnti helst á atriði úr rómantískri bíómynd. Þarna átti sér stað síðasta „föstu- dagskryddið" á þessu sumri, sem haldið er í tengslum við Dala- daga ár hvert. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ÁGÚST R. Morthens í versluninni Veiðisporti á Selfossi. Veiðisport á Selfossi 10 ára Agæt veiði á Suðurlandi Selfossi - Verslunin Veiðisport á Selfossi heldur nú í sumar upp á 10 ára starfsafmæli verslunarinnar. Eigendur Veiðisports eru hjónin Ágúst R. Morthens og Hrefna Hall- dórsdóttir. í Veiðisporti er hægt að kaupa veiðileyfi í ár og vötn víðs vegar um Suðurland og að sögn Ágústs Morthens eru bæði seld veiðileyfi i lax og silung. „Hingað hafa komið menn af öllu landinu, einnig er tölu- vert um það að erlendir ferðamenn kaupi hér veiðileyfi," segir Ágúst. Þj óðhátíðarstemmn- ing á sæluhelgi Morgunblaðið/Sturla Páll Á MEÐAN dómarar í mansakeppninni sátu og réðu ráðum sín- um gáfu keppendur sér tíma til þess að virða fyrir sér aflann í fiskkörunum. Fjöldi tók þátt í mansakeppni Suðureyri - Mansavinir á Suður- eyri héldu í ár sína tíundu mansa- keppni. í tilefni afmælisins var dagskrá Sæluhelgarinnar, sem haldin er í tengslum við mansa- keppnina, með veglegasta móti. Margir brottfluttir Súgfirðingar og aðrir góðir gestir sóttu Súg- andafjörð heim í tilefni hátíðar- haldanna 18.-21. júlí. Dagskráin hófst að vanda með fjölskylduferð yfir á Norðureyri, sem er gegnt Suðureyri. Þangað voru 200 manns ferjufluttir yfir á bátum og grillað og sungið. Var gleðin við völd langt fram eftir nóttu. Á laugardeginum voru ýmsar uppákomur, m.a. dansleik- ur fyrir börn og fullorðna og körfuboltakeppni. Sjálf mansa- keppnin vakti þó mesta hrifningu. 108 þátttakendur mættu til leiks í aldurshópnum 0-12 ára og nokkrir tugir í fullorðinskeppnina. Ævar Einarsson, sem er upphafs- maður mansakeppninnar, stýrði henni af röggsemi að vanda. Veitt var í eina klukkustund og var allur afli, sem kom á land á þeim tíma, veginn og síðan sleppt lif- andi í fiskkör. Að keppni lokinni var öllum aflanum sleppt aftur í höfnina. Það var mikill handa- gangur í öskjunni meðan á keppni stóð og mátti sjá afa og ömmu og pabba og mömmu á þeytingi með aflann til vigtarmannsins á meðan veiðimennirnir viku ekki frá stönginni. Helgi Þór er mansakóngur Þegar keppni var blásin af kom í ljós að Helgi Þór Arason hafði veitt flesta mansana. Var hann því krýndur mansakóngur annað árið í röð og fékk að launum veg- legan bikar. Þá voru veittar viður- kenningar og bikarar fyrir stærsta og minnsta mansann, furðuleg- ustu veiðina og annan og þriðja mesta aflann. Viðurkenningarnar eru gefnar af trillusjómönnum á Suðureyri sem standa vel að baki kegpninnar. A sunnudeginum var svo „kamiv- al“-stemmning í bænum þegar búið var að setja upp útimarkað í mið- bænum. Þar fór einnig fram keppni í ýmsum léttum keppnisgreinum, s.s. húsmæðrafótbolti, kraftkeppni karla og kvenna, sleggjukast, söngvakeppni o.m.fl. Þegar kvölda tók var tendraður varðeldur og grillaðar pylsur við söng og gítarleik fram eftir kvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.