Morgunblaðið - 01.08.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. ÁGLIST 1997 11
FRÉTTIR
I
»
Gangarollur
ÞESSI súgfirska fjölskylda ætlaði
að kanna hvort grasið væri ekki
örugglega grænna við Isafjörð.
Ferðalaginu var þó aflýst eftir
að ljósmyndari Morgunblaðsins
benti á að líkur væru á að fjöl-
skyldan lenti á grillinu á leiðinni
i dimmum jarðgöngunum.
Vélstjórafélag
Islands
Heimild til
verkfalls-
boðunar
SAMNINGANEFND Vélstjórafé-
lags íslands hefur samþykkt að leita
heimilda félagsmanna um að boða
verkfall frá og með miðnætti 1. jan-
úar 1998. Að sögn Helg;a Laxdal,
formanns Vélstjórafélags íslands, er
krafan fyrst og fremst að breytingar
verði gerð á hlutaskiptum.
Kosning um verkfallsheimild fer
fram bréflega og er stefnt að því
að bréfin verði send félagsmönnum
í dag en atkvæðagreiðsla stendur til
17. október. „Þessi langi tímafrestur
er settur til þess að tryggja að þeir
félagsmenn sem eru í Smugunni eða
á Flæmingjagrunni geti tekið þátt í
atkvæðagreiðslunni," sagði Helgi.
„Það líða því rúmir þrír mánuðir frá
atkvæðagreiðslunni þar til verkfallið
skellur á. Við eigum því að hafa
þokkalega góðan tíma til að tala
Morgunblaðið/Arnaldur
Heilbrigðiseftirlitsgjald
Vilja viðræður um
endurgreiðslu
VINNUVEITENDASAMBANDIÐ
og Verslunarráð lýsa sig reiðubúin
til viðræðna við borgaryfirvöld um
hvernig staðið verður að endur-
greiðslum oftekinna heilbrigðiseft-
irlitsgjalda ásamt vanskilavöxtum
og bótum til hlutaðeigandi fyrir-
tækja í borginni.
Gjaldið tók gildi í ágúst 1995 en
gjaldtökunni var skotið til Umboðs-
manns Alþingis, sem hefur úrskurð-
að að álagning sérstaks mengunar-
og heilbrigðiseftirlitsgjalds sé ólög-
leg.
í bókun Árna Sigfússonar oddvita
sjálfstæðismanna í borgarráði, kem-
ur fram að sjálfstæðismenn hafi
ítrekað bent á að fyrirkomulag heil-
brigðisgjalds væri nýr skattur á fyr-
irtæki í borginni. Er fyrri tillaga
sjálfstæðismanna ítrekuð, um að
gjaldtökunni verði breytt þannig að
greitt verði fyrir veitta þjónustu í
stað almenns gjalds, sem innheimt
er án tillits til þjónustu.
Borgarráð vísaði erindinu til um-
sagnar skrifstofustjóra Heilbrigði-
seftirlitsins.
♦ ♦ ♦
Styttist í nýju
ökuskírteinin
UNDIRBÚNINGUR útgáfu nýrra
ökuskírteina er í fullum gangi. Að
sögn Símonar Sigvaldasonar skrif-
stofustjóra í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu verður opnað fyrir
tölvutengingar út í sýslumannsemb-
ættin í næstu viku þannig að hægt
verði að prófa kerfið áður en farið
verður að gefa út skírteinin. „Við
fáum ökuskírteini til framleiðslu í
næstu viku þannig að þetta er allt
að smella saman,“ segir Símon. Út-
gáfa skírteinanna hefst 15. ágúst
og þá verður hætt að endurnýja
gömlu skírteinin.
♦ ♦ ♦---
Harður árekst-
ur á Höfn
JEPPA var ekið aftan á fólksbíl á
Hafnarbraut við mjólkurstöðina á
Höfn á þriðjudagskvöld. Fólksbíllinn
kastaðist yfir gatnamót og langleið-
ina inn á plan við mjólkurstöðina.
Þtjár stúlkur voru í bílnum og voru
þær fluttar á heilsugæslustöðina á
Höfn til aðhlynningar en þær kvört-
uðu undan eymslum í hálsi og baki.
Þær fengu að fara heim fljótlega.
Bílstjóra jeppans sakaði ekki. Ekkert
þeirra var í bílbeltum. Fólksbíllinn
er ónýtur.
Unglingar
vilja skýr
skilaboð
Foreldrar vita öllum betur hvað börnum
þeirra er fyrir bestu. í nýlegri könnun kemur
fram að yfirgnaefandi meirihluti þeirra vill
takmarka aðgang að útihátíðum við 16 ár
og 96% þeirra vilja ekki að börn á
grunnskólaaldri neyti áfengis.
Við styðjum foreldra heilshugar í því að vera
samtaka, ákveðnir og elskulegir; hleypa
börnum sínum ekki eftirlitslaust á komandi
útihátíðir og fara ekki í „ríkið" fyrir þau.
¥
Við hvetjum fjöiskyldur til þess að halda
hópinn og njóta ánaegjulegra samvista um
næstu helgi.
^tönduftf ö((
Foreldrar eru bestir
samtaka, ákveðnir
og elskulegir
þejotr Vtfyuefni eru nnn^rs vejnr
2002
j-