Morgunblaðið - 01.08.1997, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hátíðin Halló Akureyri hófst í gær
Eftirlit í hópferða-
bifreiðum á leið til bæjarins
Morgunblaðið/Björn Gíslason
RÆTT við ferðalanga á leið til Akureyrar. Reynt er að skipu-
leggja fyrirfram hvert gestirnir fara og hvar þeir tjalda.
Bók-
mennta-
vaka
BÓKMENNTAVAKA verður í
Deiglunni í Grófargili á sunnu-
dagskvöld, 3. ágúst kl. 22.
Þar lesa úr verkum sínum skáld
og rithöfundar, ýmist reyr.dir höf-
undar eða yngri og óharðnaðir.
Ungt fólk á Akureyri sem fæst við
að skrifa sögur og ljóð í frístundum
sínum verður áberandi, en þar má
nefna Þórarin Torfa Finnbogason,
Björn Guðmundsson, Jóhönnu H.
Hafsteinsdóttur, Gunni Ósk Frið-
riksdóttur, Pétur Má Guðmunds-
son og Þórhildi Fjólu Kristjánsdótt-
ur. Af reyndari mönnum má nefna
Aðalstein Svan Sigfússon, Jón
Laxdal, Magneu frá Kleifum og
Helgu Ágústsdóttur. Bókaforlagið
Mál og menning styrkir bók-
menntavökuna með því að bjóða
Þórarni Eldjám norður til að lesa
úr verkum sínum.
Norskur
barnabókarithöfundur
NORSKI barnabókarithöfundur-
inn Torill Haugen verður gestur í
Davíðshúsi í ágústbyijun og ætlar
hann að leyfa Akureyringum að
njóta listar sinnar, en hann les upp
á Aksjón Café á laugardag, 2.
ágúst kl. 16.
Stormen i Norden
ÍSLENSKIR, grænlenskir og
danskir leikarar leiða saman hesta
sína í verki sem byggt er á Óveðri
Shakespeares og heitir Stormen i
Nord. Það verður sýnt í íþrótta-
skemmunni á Akureyri um versl-
unarmannahelgina, 2. og 3. ágúst
og hefst kl. 20. bæði kvöldin. Leik-
stjóri er Kári Halldór.
-----♦ ♦ ♦---
Gönguferð
um Innbæ
og Fjöru
GÖNGUFERÐ um Innbæinn og
Fjöruna verður farin sunnudaginn
3. ágúst undir leiðsögn Katrínar
Ríkarðsdóttur, safnvarðar á Minja-
safninu á Akureyri.
Gengið verður um gömlu kaup-
staðarlóðina og inn eftir Fjörunni
og saga byggðarinnar og húsanna
rakin.
Lagt verður upp frá Laxdals-
húsi, Hafnarstræti 11, kl. 14 á
sunnudag. Gangan tekur um einn
og hálfan tíma og er þátttaka
ókeypis.
FULLTRÚARtækni- og félags-
málasviðs Akureyrarbæjar og
lögregla hófu síðdegis í gær að
stöðva hópferðabifreiðir við
bæjarmörkin norðanmegin, en
ætlunin er að sögn Guðmundar
Birgis Heiðarssonar, forstöðu-
manns Ferðamálamiðstöðvar
Eyjafjarðar, að stýra umferð inn
í bæinn í tengslum við hátíðina
Halló Akureyri, sem sett var í
gærdag.
„Tilgangurinn er að koma í
veg fyrir að öngþveiti myndist
í bænum, skipuleggja fyrirfram
hvert fólkið fer og einnig til að
hafa eftirlit með því hvort eitt-
hvað óeðlilegt sé á seyði áður
en fólk kemur í bæinn,“ sagði
Guðmundur Birgir, en áhersia
verður lögð á hópferðarbíla.
Þetta starf verður í gangi í
dag, föstudag, og fram á kvöld
á morgun, laugardag, eða svo
lengi sem þurfa þykir.
Fjölmenni var í miðbæ Akur-
eyrar í gærdag þegar hátíðin
var formlega sett, en dagskrá
var á palli við Ráðhústorg síð-
degis. Skemmtistaðir voru opnir
til kl. 3 eftir miðnætti og um
helgina verður opið til kl. 4.
Stjórnstöð í íþróttahöll
Sljórnstöð verður starfrækt á
vegum Akureyrarbæjar og
framkvæmdanefndar hátíðar-
innar og er hún í anddyri
íþróttahallarinnar við Þórunn-
arstræti. Hún verður opin frá
kl. 10 til 24 frá föstudegi til
mánudags.
HÁTÍÐIN Halló Akureyri var sett á Ráðhústorgi í gær. Gestir gátu meðal annars gætt sér á pylsum.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Jónasi fagnað í Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.
AÐ OLLUM öðrum flugmönn-
um ólöstuðum þykir Grímsey-
ingum Jónas Finnbogason með
þeim betri. Jónas var lengi flug-
maður hjá Flugfélagi Norður-
lands en lét af störfum þar fyr-
ir nokkrum árum og fór þá til
Gronlandsfly. Nú um helgina
kom hann til Grímseyjar í fyrsta
sinn frá því hann hætti þjá FN
og þótti endurkoman góð, sagð-
ist hafa verið búinn að bíða
lengi eftir þessu. Gronlandsfly
er í samstarfi við Flugfélag Is-
lands og var að þessu sinni að
fljúga með hóp ferðamanna af
skemmtiferðaskipi sem lá inn á
Polli.
Bæjarráð Akureyrar
Húseign Ferða-
félagsins keypt
BÆJARRÁÐ Akureyrar staðfesti í
gær samning sem bæjarstjóri gerði
á dögunum við Ferðafélag Akur-
eyrar um kaup á húseign félagsins
að Strandgötu 23b, bakhúsi við
Lundargötu, niðurrif hússins og frá-
gang á lóð. Samningurinn er upp á
3,5 milljónir króna.
Bæjarráð vísaði erindi SS-Byggis
til bæjarverkfræðings en fyrirtækið
óskaði viðræðna við Akureyrarbæ
um „sjálfstætt samstarf" um bygg-
ingu bílageymslu undir fyrirhuguðu
verslunar-, þjónustu- og íbúðarhúsi
í miðbæ Akureyrar. Bæjarverkfræð-
ingi var falið að skoða máiið og
ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins
um hugsanlega bílageymslu undir
húsinu.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu er-
indis Hafnasamlags Norðurlands
sem var þess efnis að bæjarstjórn
segði upp stöðuleyfum verbúða og
annarra mannvirkja við Fiskitanga
með 6 mánaða fyrirvara, frá 1. sept-
ember næstl omandi. Hafnasamlag
Norðurlands hafði einnig farið þess
á leit við bæjarstjórn að heimild yrði
veitt til að bjóða út og hefja fram-
kvæmdir við hafnarhús í samræmi
v ið fyrirliggjandi útboðsgögn, þó svo
að byggingin sé ekki á fjárhagsáætl-
un þessa árs. Bæjarráð frestaði af-
greiðslu þessa erindis.
Rokkað á
Aksjón Café
DÆGURLAGAHLJÓM-
SVEITIN Húfa og skeifurokk-
sveitin Cab Sad Moon spila á
Aksjón Café á laugardags- og
sunnudagskvöld.
Cab Sad Moon er skipuð
þeim Sigfúsi Erni, trommu-
leikara, Rögnvaldi Braga,
bassaleikara og Konráð Wil-
helm, gítarleikara og söngv-
ara. Hljómsveitin spilar popp-
að skeifurokk og er allt efni
sveitarinnar frumsamið. Fé-
lagarnir hafa undanfarið hljóð-
ritað efni og verður eitt lag-
anna, Elanor Cokclynn, á
væntanlegri geislaplötu, en
það er þegar farið að heyrast
á öldum ljósvakans.
Dægurlagapönksveitin Húf-
an er skipuð þeim Rögnvaldi
gáfaða á bassa og Hreini
Laufdal á kassagítar og flytja
þeir þekktar dæguriagaperlur
á einstakan og framsækinn
hátt. Allir ættu að geta sungið
með.
Kristín sýnir
í Sæborg
í Hrísey
KRISTÍN Nikulásdóttir opnar
myndlistarsýningu í félags-
heimilinu Sæborg í Hrísey á
morgun, laugardaginn 2. ág-
úst, kl. 14.
Kristín stundaði nám við
Myndlistarskóla Reykjavíkur
í tvo vetur og einn vetur í
Myndlistarskólanum á Akur-
eyri. Þetta er fjórða einkasýn-
ing hennar, en hún hefur áður
sýnt í Hrísey, 1978, í Vogum,
1984 og á Mokkakaffi í
Reykjavík. Sýningin er opin
daglega milli kl. 14 og 18, en
síðasti sýningardagur er
sunnudagurinn 10. ágúst
næstkomandi.
Brunahanar
í Deiglunni
DJ ASSKV ARTETTINN
Brunahanar leikur í Deigl-
unni, Akureyri, mánudaginn
4. ágúst, á Kaffi menningu,
Dalvík, 5. ágúst og Hótel
Reynihlíð, Mývatni, 6. ágúst.
Hljómsveitina skipa Kjart-
an Valdemarsson, píanó; Jóel
Kr. Pálsson, saxafón; Einar
Scheving, trommum og Þórð-
ur Högnason, kontrabassa.
Leikið verður efni eftir með-
limi kvartettsins og hugsan-
lega slæðast með verk eftir
aðra höfunda, segir í fréttatil-
kynningu.
Bryndís
sýnir á Kaffi
Karólínu
BRYNDÍS Arnardóttir sýnir
um þessar mundir á Kaffi
Karólínu og er síðasta sýning-
arhelgi nú um verslunar-
mannahelgina. Á sýningunni
eru 22 vatnslitamyndir,
mannlífsmyndir. Bryndís er
myndlistarkennari við Verk-
menntaskólann á Akureyri.
Þetta er önnur einkasýning
hennar en hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga.