Morgunblaðið - 01.08.1997, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Eimskips minnkaði um 13% á fyrri árshelmingi
Raunaukning veltu
nam 30% milli ára
HAGNAÐUR Eimskips og áóttur-
félaga nam 253 milljónum króna
á fyrri árshelmingi og dróst hann
saman um 13% miðað við sama
tímabil í fyrra. Lakari afkoma er
rakin til lágra flutningsgjalda
vegna mikillar samkeppni og
kostnaðarauka í rekstri auk slakr-
ar afkomu Maras Linija Ltd., dótt-
urfyrirtækis Eimskips. Unnið er
að því að bæta afkomu af flutn-
ingastarfsemi og mun hún batna
á síðari hluta ársins samkvæmt
áætlunum félagsins.
Velta Eimskips fyrstu sex mán-
uðina nam 7,9 milljörðum króna
og jókst um 46% á milli ára. Raun-
aukning veltu nam hins vegar 30%
þar sem þriðjung veltuaukningar-
innar má rekja til þess að tekjur
af áframflutningi erlendis eru nú
færðar í rekstrarreikning í sam-
ræmi við ákvæði um ný farmskjöl
sem félagið tók í notkun í upphafi
ársins. Þriðjung aukningarinnar
má rekja til reksturs skipafélagsins
Maras Linija Ltd., sem hóf fiutn-
ingastarfsemi um mitt síðasta ár,
og þriðjung til útleigu skipa erlend-
is og annarra verkefna á sviði
flutningaþjónustu.
Flutningar með skipum Eim-
skips hafa aukist milli ára í tonnum
talið. Voru þeir 585 þúsund tonn
fyrstu sex mánuði þessa árs, sam-
anborið við 569 þúsund tonn í
fyrra. Innflutningur jókst, m.a.
vegna aukinna flutninga í tengsl-
um við stóriðjuframkvæmdir en
útflutningur var svipaður á milli
ára.
Óviðunandi afkoma
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, segir afkomuna vera
óviðunandi og ekki í samræmi við
þau markmið sem félagið setti sér
í upphafi ársins. „Hækkun rekstr-
argjalda skýrist m.a. af því að
veturinn var okkur erfiður vegna
veðráttu og urðu verulegar tafir
og umframkostnaður af þeim sök-
um. Flutningsgjöld eru enn lág
eftir mikið verðstríð á undanförn-
um 12-18 mánuðum en unnið
hefur verið að því að bæta þessa
þætti innan fyrirtækisins og á ég
von á því að sú vinna skili sér á
síðari hluta ársins. T.d. verða gjöld
hækkuð þar sem þau eru ekki í
samræmi við tilkostnað og skipa-
flotinn styrktur með kaupum á
stærri og hagkvæmari skipum."
Flutningar á vegum Marijas
Linija Ltd., sem er að mestu í eigu
Eimskips, námu tæpum 300 þús-
und tonnum á fyrri hluta ársins
en féiagið hóf siglingar á milli
hafna í Evrópu, Rússlandi og Eyst-
rasaltsríkjunum um mitt síðasta
ár. Að sögn Harðar er enn nokk-
urt tap á því fyrirtæki en rekstur
þess hefur þó lagast á árinu. „Það
voru ekki mistök hjá okkur að
kaupa Marijas Linija enda gerðum
EIMSKIPl rmill árii luppgjori i 1997
Jan.-júní Jan.-júní
Rekstur Milljónir króna 1997 1996 Breyting
Rekstrartekjur Rekstrargjöld án afskrifta Afskriftir Fjármunatekjur og (fjárm.gjöld) Söluhagnaður /(tap)eigna Tekju- og eignarskattur 7.901 7.041 665 145 14 (101) 5.419 +46% 4.613 +53% 562 +18% 181 -20% 6 +133% (140) -28%
Hagnaður Veftufá frá rekstri 253 914 291 -13% 944 -3%
Efnahapur 30. Iúní 1997 Milljónir kr.
Eignir 17.843 14.790 +21%
Skuldir 11.373 8.727 +30%
Eigið fé 6.470 6.063 +7%
Eiginfjárhlutfall 36% 41 %
Arðsemi eigin fjár 8% 10 %
Veltufjárhlutfall 1,17 1,10
& w
j
EIMSKIP
við alltaf ráð fyrir því að það tæki
tíma að koma rekstrinum á því
fyrir horn.“
Góð afkoma Burðaráss
Afkoma af fjárávöxtun og
rekstri íjárfestingarfélagsins
Burðaráss var góð á fyrri árshelm-
ingi og hækkaði matsverð hluta-
bréfa þess um rúma þrjá milljarða
króna, úr 6,5 milljörðum í upphafi
árs í 9,7.
Góð afkoma hjá Þróunarfélagi íslands hf. fyrstu sex mánuði ársins
Hagnaður
jókst um 30%
TÆPLEGA 292 milljóna króna
hagnaður varð af rekstri Þróunar-
félags íslands hf. á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs. Er þetta um 30%
afkomubati miðað við sama tímabil
í fyrra er hagnaður félagsins nam
224 milljónum króna. Hreinar fjár-
munatekjur félagsins jukust um
37% milli ára og námu rúmum 432
milljónum á fyrri árshelmingi.
Að sögn Hreins Jakobssonar,
framkvæmdastjóra Þróunarfélags-
ins, er skýringuna á þessum aukna
hagnaði fyrst og fremst að fínna í
góðri ávöxtun hlutabréfa á þessu
tímabili. Alls hafí gengishagnaður
hlutabréfa numið 407 milljónum
króna á fyrri ársheimingi, og þar
af sé innleystur gengishagnaður
vegna seldra hlutabréfa um 194
milljónir króna.
„Ég tel þetta vera mjög góða
afkomu sem skýrist af miklum upp-
gangi á hlutabréfamarkaði á þessu
tímabili. Afkoma Þróunarfélagsins
ræðst auðvitað mjög mikið af þróun-
inni á hlutabréfamarkaði, enda eru
74% af heildareignum félagsins
bundin í hlutabréfum. Það má því
segja að afkoma félagsins endur-
spegli afkomu atvinnulífsins í heild.“
Avöxtun eigin fjár félagsins nam
16,7% á fyrri árshelmingi. Raun-
ávöxtun hlutabréfa í eigu félagsins
hafí numið 71,2% á fyrri árshelm-
ingi, á sama tíma og hlutabréfavísi-
tala Verðbréfaþings hækkaði um
29,4%.
400 milljóna gengishagnaður
af eign félagsins í Opnum
kerfum
Hvað varðar horfur á síðari hluta
ársins segist Hreinn ekki treysta sér
Þróunarfélag íslands hf. Yfirlit rekstrarreiknings og efnahagsreiknings, milliuppgjör 6 mán. 6 mán.
| Rekstrarreikningur þús. kr. 1997 1996 Breyt.
Fjármunatekjur 456.772 347.900 +31%
Fjármagnsgjöid 24.475 31.409 -22%
Hreinar fjármunatekjur Rekstrargjöld 432.297 13.371 316.491 11.842 +37% +13%
Hagnaður fyrir skatta 418.926 304.649 +37%
Reiknaðir skattar 127.000 80.500 +58%
Hagnaður tímabilsins 291.926 224.149 +30%
30. júní 31. des.
Efnahagsreikningur 1997 1996 Breyt.
\ Eignir: | Þús. kr.
jVeltufjármunír 2.114.894 1.830.705 +15%
Fastaf jármunir 29.125 29.555 -1%
Eignir ails 2.144.019 1.860.260 +15%
| Skuidir og eigiö té: \ þi'is kr
Skuldír 394.494 336.291 +17%
Eigiöfé 1.749.525 1.523.969 +15%
Skuidir og eigið fé samtals 2.144.019 1.860.260 +15%
til að spá til um hvert hlutabréfa-
verð stefni. Gengi hlutabréfa hafi
farið hækkandi í júlí, en framhaldið
muni m.a. ráðast af milliuppgjörum
fyrirtækja^ vaxtaþróun og fleiri
þáttum. „Ég á þó ekki von á neinum
stórkostlegum sveiflum, hvorki upp
á við né niður.“
Hann segir hins vegar rétt að
benda á að óinnleystur gengishagn-
aður félagsins vegna hlutabréfa-
eignar þess í Opnum kerfum hf.
nemi nú um 400 milljónum króna,
sem ekki komi fram í uppgjöri fyrstu
sex mánaða ársins.
Þetta stafí af því að fyrir skrán-
ingu Opinna kerfa á Verðbréfaþingi
hafi hlutabréfin verið bókfærð á
kostnaðarverði en eftir skráningu
sé hún bókfærð á markaðsvirði
hverju sinni. Þróunarfélagið eigi um
11 milljóna króna hlut að nafnvirði,
eða sem samsvari um 440 milljónum
króna að markaðsvirði miðað við
núverandi gengi bréfanna.
Þann 30. júní sl. átti Þróunarfé-
lagið hlutabréf í 64 fyrirtækjum.
Þar af voru 27 skráð á Verðbréfa-
þingi íslands, 17 á Opna tilboðs-
markaðnum og 20 fyrirtæki hafi
verið óskráð. Heildareignir námu
rúmum 2,1 milljarði króna og eru
um 74% þeirra bundin í hlutabréf-
um, 23% í skuldabréfum en 3% í
öðrum eignum.
Tekjur Hampiðjunnar og dótturfélaga minnkuðu um rúm 8% fyrstu sex mánuði ársins 1997
Hampiðjan nt. M illiuppgjör í lok júní 1997
Jan.-júní 1997 Jan.-júní
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 Breyting
Rekstrartekjur Rekstrargjöld Hagnaður af reglulegri star fsemi Aðrar tekjur Haonaður fvrir skatta 730,6 660,4 64,7 6,3 71.0 796,6 -8,3% 656,8 +0,5% 131.3 -50,7% 0 131.3 -45.9%
Hagnaður tímabiisins 55,8 86,7 -35,6%
Efnahagsreikningur 30. juní 1997 1996 Breyting
í Etgnir: j
Veltufjármunir 849,4 726,6 +16,9%
Fastafjármunir 1.110,2 1.080,3 +2,8%
Eignir samtals 1.959,6 1.807,0 +8,4%
I Skuidir og eigið fé: I
Skammtímaskuldir 564,5 411,6 +37,1%
Langtímaskuldir 373,5 388,7 +3,9%
Skuldir samtals 995,0 856,7 +16,1%
Eígið fé 964,6 950,3 +1,5%
Skuldir og eigið fé samtals 1.959,6 1.807,0 +8,4%
Hagnaður 56 millj.
HAGNAÐUR Hampiðjunnar hf. og
dótturfélaga nam tæpum 56 millj-
ónum króna á fyrri árshelmingi
og dróst saman um 35% miðað við
sama tímabil í fyrra. Tekjur sam-
stæðunnar minnkuðu um 66 millj-
ónir milli ára eða úr 796,5 í 730,6
milljónir króna, eða rúm 8%. Er
það meiri samdráttur en gert var
ráð fyrir í áætlunum. Má að mestu
leyti rekja hann til minni sölu flott-
rolla á íslenska markaðnum, sem
skýrist að hluta til af minni og
jafnframt skipulegri sókn íslenska
flotans á úthafinu sem og innan
landhelginnar. Helstu lykiltölur úr
milliuppgjöri samstæðunnar eru
sýndar í meðfylgjandi töflu.
Samdráttur í rekstrartekjum
móðurfélagsins varð nokkru meiri
en hjá samstæðunni. Tekjur þess
lækkuðu námu 631 milljón og
lækkuðu um 111 milljónir.
Aukin áhersla á útflutning
Verðmæti útflutnings varð svip-
að og á síðasta ári og jókst hlut-
deild hans hjá samstæðunni úr 39%
miðað við allt árið 1996 í 47% á
fyrri helmingi þessa árs að sögn
Gunnars Svavarssonar, forstjóra
Hampiðjunnar. Að undanförnu
hafi verið lögð aukin áhersla á
markaðsstarfsemi, ekki síst á er-
lendum mörkuðum. „Sú vinna hef-
ur enn sem komið er aðeins skilað
sér að hluta og er vænst aukning-
ar útflutnings á komandi árum.“
Gunnar segir að minni sam-
dráttur hafi orðið hjá samstæðunni
en móðurfélaginu vegna hreyfinga
milli þess og dótturfélagsins Wal-
vis Trawl Ltd. vegna uppbyggingu
birgðageymslna þess í Namibíu á
síðasta ári. Þá jókst sala dótturfé-
laganna DNG-Sjóvéla hf. frá fyrra
ári og Balmar Lda jók sölu til ann-
arra en Hampiðjunnar.
Óvíst að hagnaðarmarkmið
ársins náist
í áætlunum samstæðunnar var
gert ráð fyrir 75 milljóna króna
hagnaði á árinu en Gunnar á ekki
von á að það markmið náist. „Sam-
dráttur á innanlandsmarkaði varð
meiri en búist var við var við en
hlutdeild fyrirtækisins á markaðn-
um er þó samkvæmt áætlun. Það
er trú okkar að aukin sókn á erlend-
um mörkuðum skili sér þegar fram
líða stundir og búast megi við viðun-
andi afkomu næstu árin.“