Morgunblaðið - 01.08.1997, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Brotlend-
ing á
Newark
ALLIR sluppu ómeiddir að
kalla þegar McDonnell Douglas
MD-11 fraktflugvél fórst í lend-
ingu á Newarkflugvelli í New
Jersey í Bandaríkjunum um
klukkan hálf sex í gærmorgun
að íslenskum tíma. Fimm
áhafnarmeðlimir voru um borð,
og tókst þeim að skríða út um
glugga á stjórnklefanum. Vélin
var að koma frá Anchorage í
Alaska. í lendingunni hvolfdi
vélinni og kviknaði í henni. Síð-
degis í gær var óljóst hveijar
voru orsakir óhappsins. Vélin
var í eigu flutningafyrirtækis-
ins Federal Express. Newark-
flugvöllur er einn af þrem völl-
um sem þjónar New York, og
umferð um hann mikil. Hana
varð alla að stöðva þar til
skömmu fyrir hádegi í gær.
Reuter
Ekkert samkomulag um skattbreytmgar í Þýzkalandi
Kosningabaráttan hafin
»nn. Reuter.
ÞÝZKA ríkisstjórnin hét því í gær
að hún myndi ekki bakka með
tímamótaáform sín um breytingar
á skattkerfinu, en allt lítur nú út
fyrir að stjórnarandstaðan, sem
er í lykilaðstöðu í efri deild þýzka
þingsins, Sambandsráðinu, muni
standa í vegi fyrir því að áformin
nái fram að ganga allt fram að
næstu þingkosningum, sem fram
eiga að fara eftir rúmt ár.
Gerðu Waigel grikk
Theo Waigel fjármálaráðherra
var gerður verulegur grikkur þeg-
ar fulltrúar jafnaðarmanna, SPD,
í málamiðlunarnefnd þingsins
höfnuðu snemma í gærmorgun
allir sem einn áformum stjómar-
innar, sem hafa að markmiði að
lækka skatta um sem nemur 30
milljörðum marka, um 1.200 millj-
örðum króna. Hinn sameiginlegi
vinnuhópur stjómar- og stjórnar-
andstöðuflokkanna, sem á undan-
förnum mánuðum hefur unnið að
því að ná málamiðlun um skatta-
breytingar, sem sátt gæti ríkt um,
hefur þar með svo gott sem gefið
algerlega upp á bátinn vonina um
að málamiðlun náist. Báðir aðilar
skella nú skuldinni á andstæðing-
inn. Þar með er kosningabaráttan
fyrir þingkosningarnar, sem áætl-
að er að fari fram í september
1998, í raun hafin fyrir alvöru.
„Þetta spillir til muna samkeppn-
isstöðu okkar [gagnvart öðrum
löndum], þetta veldur okkur skaða
og SPD ber ábyrgð á því,“ sagði
Waigel í útvarpsviðtali. Á frétta-
mannafundi í gær hét Waigel því
að stjórnin myndi stefna óhögguð
að því að gera alvöru úr sem mestu
af skattalækkunaráformum sínum,
jafnvel þótt SPD héldi „hindrunar-
stefnu“ sinni áfram.
SPD segir áformin
á kostnað launafólks
Talsmaður þingflokks SPD,
Peter Struck, sagði aftur á móti
að flokkur hans gæti ekki fallizt
á áform stjórnarinnar vegna þess
að fyrirtæki og hinir betur meg-
andi myndu njóta góðs af þeim á
kostnað launafólks. Struck tjáði
fréttamönnum í gær að mjög lítil
von væri í að samkomulag næðist
um megininntak skattbreytinga-
áformanna nema ríkisstjórnin
gæfi eftir í ýmsum lykilþáttum.
Engum dylst að tímamótaáform
stjórnarinnar um breytingar á
skatta- og lífeyriskerfi Þýzkalands
verða kjarnaatriði í kosningabar-
áttunni. Helmut Kohl kanzlari
hafði vonað að hann gæti hafið
baráttuna fyrir fimmta endurkjöri
sínu með samkomulag um þessar
mikilvægu kerfísbreytingar í vas-
anum. En nú er komið í ljós að
honum verður tæpast að þessari
ósk sinni og á brattann verði að
sækja fyrir hann, ekki sízt með
tilliti til þess hve stórum hluta
kjósenda virðist þykja stefna
kanzlarans varðandi Efnahags- og
myntbandalag Evrópusambands-
ins, EMU, tortryggileg.
Vco
. 10.-14. september
PARIS
39.900.-
Hin margrómaða haustferð Visa og Flugteiða til Parísar. Innifalið
í verðinu; Flug, gisting í fjórar nætur, m/morgunverði, akstur
til og frá flugvelli í París, flugv.skattar og Islensk fararstjórn.
Fararstjóri er Laufey Helgadóttir.
20.-27. september
BUDAPEST 56.400.-
Innifalið í verðinu; Flug, gisting m/morgunverði, akstur til og
frá flugvelli, íslensk fararstjórn, skoöunnarferö um Búdapest
og gönguferö á útimarkaöi. Fararstjóri: Sigmar B. Hauksson
19.-27 september
Innifalið í v
eina viku í r
dagskrám.ski
.890.-
^i^WIgTFÓrt Lauderdale, sigling I
....jfa með fullu fæði og skemmti-
og akstri og íslenskri fararstjórn.
BÓKANIR:
Sími; 5050 484 5050 534
5050 491
VtSA
VISA ISLAND
FLUGLEIÐIR
Pol Pot í stofufangelsi í Anlong Veng
Báðir deiluaðilar
vilja framsal
Phnom Penh. Reuter.
SKÆRULIÐAR Rauðu khmer-
anna, sem í síðustu viku dæmdu
fyrrum leiðtoga sinn, Pol Pot, í lífst-
íðarfangelsi, lýstu því yfir í gær að
hreyfingin styddi hinn brottræka
forsætisráðherra Norodom Rana-
riddh prins. Stjórnmálaskýrendur
velta nú vöngum yfir hugsanlegu
framsali Pol Pots.
Forsætisráðherrann Hun Sen
sagði í viðtali við ABC sjónvarps-
stöðina á miðvikudag að leiða ætti
Pol Pot fyrir alþjóðlegan dómstól,
þar sem hann myndi svara til saka
fyrir þjóðarmorð. Breska dagblaðið
Daily Telegraph hafði eftir háttsett-
um starfsmanni Sameinuðu þjóð-
anna að Ranariddh prins hefði átt
viðræður við Rauðu khmerana um
framsal hans. Samkomulag hafi
verið í burðarliðnum, en það hafi
farið út um þúfur þegar Hun Sen
steypti honum af stóli.
Christophe Peschoux, sem fylgst
hefur með Rauðu khmerunum í árar-
aðir, telur að forsætisráðherramir
tveir hafi hvor sína ástæðuna fyrir
að vilja leiða Pol Pot fyrir alþjóðleg-
an dómstól. Hann segir að Rana-
riddh vilji bæta ímynd Rauðu khmer-
anna svo hann geti gert bandalag
við hreyfinguna, en Hun Sen vilji
bæði koma í veg fyrir að Ranariddh
takist það ætlunarverk sitt, og bæta
ímynd sína á alþjóðavettvangi.
í stofufangelsi
Pol Pot er nú hafður í haldi í
bækistöðvum Rauðu khmeranna í
Anlong Veng, skammt frá landa-
mærum Tælands. David Ashley,
sérfræðingur í málefnum Kambód-
íu, segir að verði hann ekki fram-
seldur breyti dómurinn ef til vill
ekki miklu fyrir hann sjálfan.
„Rauðu khmerarnir hafa enga að-
stöðu til að vista fanga til lengri
tíma. Ég tel að þeir muni halda
honum í stofufangelsi heima hjá sér
og leyfa fjölskyldu hans að dvelja
hjá honum. En hann var nær far-
lama hvort sem er,“ sagði Ashley.
Harðstjórinn fyrrverandi nálgast nú
sjötugt og hefur í mörg ár verið
talinn heilsuveill.
Pol Pot var við völd í Kambódíu
á árunum 1975 til 1979, og talið
er að í stjórnartíð hans hafi að
minnsta kosti ein milljón Kambódíu-
manna verið myrt eða látist vegna
pyntinga, hungurs og vinnuþrælk-
unar.
STUTT
Blóðugt
sprengju-
tilræði
í Alsír
ÁTTA manns biðu bana og
25 særðust þegar sprengja
sprakk í bíl við veitingahús í
Algeirsborg í gær. Þar með
lauk tveggja vikna hléi á blóð-
ugum sprengjutilræðum heit-
trúaðra múslima í borginni.
Uppreisnarmennirnir hafa
myrt 170 manns í vikunni í
árásum á þorp til að hefna
aðgerða alsírska hersins sem
hafa kostað 300 félaga þeirra
lífið.
Myrti fjöl-
skyldu sína
32 ÁRA Austurríkismaður
myrti í gær eiginkonu sína og
fjögur börn þeirra og reyndi
síðan að svipta sig lífi. Maður-
inn var fluttur illa haldinn á
sjúkrahús eftir að hann
hringdi á lögreglunni úr húsi
eiginkonunnar, sem hafði sótt
um skilnað. Börnin voru á aldr-
inum eins til fimm ára.
Átta fangar
drepnir
ÁTTA fangar biðu bana þegar
brasilíska lögreglan gerði árás
á fangelsi í ríkinu Paraiba í
fyrrakvöld til að binda enda á
fangauppreisn. Fulltrúar
kaþólsku kirkjunnar lýstu
árásinni sem „fjöldamorði".
Smitberinn í
fangelsi
DÓMSTÓLL á Kýpur dæmdi
í gær þarlendan sjómann í
fimmtán mánaða fangelsi fyrir
að smita ástkonu sína af al-
næmi. Maðurinn var sagður
hafa haft kynferðislegt sam-
band við konuna í tvö ár án
þess að segja henni frá því að
hann væri smitaður og að eig-
inkona hans hefði látist úr al-
næmi.
Rættum
Kyrrahafs-
laxinn
RÍKISSTJÓRAR Alaska, Was-
hington-ríkis og Oregon sam-
þykktu í gær að efna til við-
ræðna við embættismenn
kanadíska sjávarútvegsráðu-
neytisins í haust vegna deilu
Bandaríkjanna og Kanada um
veiðar á Kyrrahafslaxi. At-
hygli vakti að Glen Clark, for-
sætisráðherra British Columb-
ia, á ekki að taka þátt í viðræð-
unum. Harðorðar yfírlýsingar
hans hafa valdið spennu í sam-
skiptum ríkjanna.
500 Tyrkir
sektaðir
TYRKNESKA lögreglan hefur
sektað rúmlega 500 bílstjóra
fyrir að hindra umferð í bæn-
um Kayseri síðustu þtjá daga.
Heittrúaðir múslimar hafa ek-
ið um bæinn til að mótmæla
áformum stjórnarinnar um að
loka framhaldsskólum, þar
sem kennt er á trúarlegum
grunni.