Morgunblaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 17
ERLENT
Reuter
BJÖRGUNARMENN leita í rústum tveggja skíðaskála, sem eyði-
lögðust í skriðu á vinsælasta skiðasvæði Astralíu.
Skriða fellur á skíðasvæði í Astralíu
Eitt lík fundið og
19 manna saknað
Jindabyne. Reuter.
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu í
gær að nítján mönnum í rústum
tveggja skíðaskála, sem eyðilögðust
í skriðu á vinsælasta skíðasvæði
Ástralíu, Thredbo, í fyrradag. Eitt
lík hafði fundist í gær.
Ekki var hægt að hefja leitina
fyrr en í gær vegna hættu á frekari
skriðuföllum og búist var við snjó-
komu, sem gæti tafið leitina frekar.
Ellefu karlmenn og átta konur
voru enn í rústunum í gær og vonir
manna um að þau fyndust á lífi fóru
dvínandi. „Kraftaverk hafa þó gerst
á öðrum stöðum í heiminum," sagði
einn björgunarmannanna.
Ferðamenn í nálægum skíðaskál-
um sögðust hafa heyrt raddir þriggja
manna úr rústunum. „Þegar björg-
unarmennirnir komu töldu þeir
ástandið of hættulegt og sögðu okk-
ur að fara í burtu,“ sagði einn þeirra.
Þúsundir ástralskra og erlendra
ferðamanna voru á skíðasvæðinu.
Sjónarvottar sögðu að jarðvegurinn
hefði hrunið um 100 metra niður
hlíðina. „Það er eins og einhver hafi
tekið stóra ýtu og ekið yfir báða
skálanna og þeir runnu niður hlíð-
ina,“ sagði einn þeirra. „Það er ekk-
ert eftir af þeim nema brot hér og
þar.“
Skíðasvæðið er í Fannarfjöllum,
um 150 km suðvestur af Canberra.
Rússneskir fjármálamenn mótmæla
Samið um stórfellda fjárhagsaðstoð við Washington
Borgarstj órinn sviptur
nær öllum völdum
EMBÆTTISMENN í Hvíta hús-
inu og leiðtogar Bandaríkjaþings
hafa náð samkomulagi um rót-
tæka áætlun til að bjarga Wash-
ington DC frá gjaldþroti. Sam-
kvæmt áætluninni fær höfuð-
borgin stórfellda fjárhagsaðstoð
en dregið verður verulega úr
völdum Marions Barry, umdeilds
borgarstjóra Washington, og
annarra kjörinna embættis-
manna borgarinnar. Gert er ráð
fyrir að sérstök tilsjónarnefnd
stjórni borginni að mestu í að
minnsta kosti fjögur ár, að sögn
The Washington Post.
Höfuðborgin hefur notið tak-
markaðrar sjálfstjórnar, sam-
kvæmt svokallaðri heimastjórn-
arstofnskrá frá árinu 1973, en
þau réttindi verða skert verulega.
Marion Barry brást ókvæða við
þessari niðurstöðu og lýsti henni
sem „nauðgun" á lýðræðinu.
Hann fagnaði hins vegar fjár-
hagsaðstoðinni, sem nemur
hundruðum milljóna dala á næstu
árum.
„Stjórnið, ef þið viljið
heimastjórn“
Demókratinn Eleanor Holmes
Norton, fulltrúi Washington á
Bandaríkjaþingi án atkvæðisrétt-
ar, tók þátt í viðræðunum um
áætlunina og kvaðst óánægð með
að skerða hefði þurft völd kjör-
inna embættismanna borgarinn-
ar. Hún sagði þó að þingið hefði
átt einskis annars úrkosti þar
sem embættismönnum borgar-
innar hefði ekki tekist að leysa
vandamál hennar. „Stjórnið, ef
þið viljið heimastjórn," ráðlagði
hún borgaryfirvöld-
unum.
Norton lýsti áætl-
uninni sem „stór-
sigri“ fyrir höfuð-
borgina vegna fjár-
hagsaðstoðarinnar,
sem til lengri tíma
litið mun nema millj-
örðum dala, auk þess
sem fyrirtækjum og
íbúum borgarinnar
verður veittur
hundraða milljóna
dala skattaafsláttur
til að blása nýju lífi
í efnahaginn.
Borgarstjórinn
verður sviptur mest-
öllum völdum sínum yfir níu mik-
ilvægum stofnunum borgarinnar
og þær verða undir stjórn nefnd-
ar, sem þingið stofnaði árið 1995
til leysa fjárhags- og stjórnunar-
vanda borgarinnar. Nefndin fær
vald til að víkja yfirmönnum
borgarstofnana frá og á einnig
að sjá um alla samninga við verk-
taka.
Nefndin hefur fengið fyrir-
mæli um að gera þegar í stað
ráðstafanir til að leysa hin fjöl-
mörgu vandamál borgarinnar, að
sögn The Washington Post. Þing-
ið felur nefndinni að senda ráð-
gjafa í stofnanirnar og koma á
umbótum á næstu mánuðum.
Samkomulagið felur m.a. í sér
að alríkisstjórnin tekur við 4,9
milljarða dala lífeyrisskuldbind-
ingum borgarinnar,
auk þess sem hún á
að bera kostnað af
rekstri fangelsa,
dómstóla og ýmissa
stofnana sem ríkin
eða fylkin hafa yfir-
leitt fjármagnað
sjálf.
Barry sjálfum
að kenna?
Barry óskaði
fyrst eftir því í febr-
úar 1995 að alríkis-
stjórnin tæki við
stjórn nokkurra
verkefna í höfuð-
borginni til að
bjarga henni frá gjaldþroti. Hann
var hins vegar andvígur þeirri
miklu valdaskerðingu sem repú-
blikanar settu sem skilyrði fyrir
fjárhagsaðstoð.
Einn af þingmönnum repúblik-
ana, Thomas M. Davis, sagði að
það væri Barry sjálfum að kenna
að hann var sviptur völdunum.
Hann hefði ekki sýnt nokkurn
áhuga á samvinnu við tilsjónar-
nefndina þau tvö ár sem hún
hefur starfað og kosið að fara
til Afríku í stað þess að taka þátt
í samningaviðræðunum við leið-
toga þingsins um fjárhagsaðstoð-
ina.
Marion
Barry
f málvið
keppinauta
Moskvu. Reuter.
HARKA færðist í etjur áhrifamikilla
flármálamanna í Rússlandi vegna
einkavæðingar stjórnarinnar þegar
einn flölmiðla- og bankajöfranna til-
kynnti í gær að hann hygðist höfða
meiðyrðamál gegn keppinaut sínum.
Talsmaður hans gaf ennfremur í
skyn að deilan gæti orðið ungum
umbótasinnum í stjórninni að falli.
Anatolí Tsjúbajs, sem stjórnar
efnahagsumbótunum, reyndi að
lægja reiðina í fjármálamönnunum
á miðvikudag og sagði að Borís Jelts-
ín forseti væri sáttur við hvernig
staðið var að sölu á fjórðungs hlut
í fjarskiptafyrirtækinu Svjazinvest,
sem er mesta einkavæðing sem
stjórnin hefur ráðist í til þessa. Fall-
ist var á tilboð nokkurra fyrirtækja,
sem bankastjórinn Vladímír Potanin,
fyrrverandi aðstoðarforsætisráð-
herra, fór fyrir. Fyrirtækin voru í
samstarfi við nokkra erlenda fjár-
festa, m.a. bandaríska auðjöfurinn
George Soros.
Deilan hélt þó áfram að magnast
í gær þegar fjölmiðla- og bankajöf-
urinn Vladímír Gúsínskí skýrði frá
því að hann hygðist höfða meiðyrða-
mál gegn Potanín, sem hafði sakað
hann um að hafa reynt að sölsa
Svjazinvest undir sig með „baktjald-
amakki“. Heimildarmenn í Moskvu
segja að Gúsínskí hafi verið einn af
aðalmönnunum á bak við tiiboð í
Svjazinvest sem var hafnað.
Vjatsjeslav Kostíkov, talsmaður
Gúsínskís, sagði að Jeltsín kynni og
ætti að „taka hart“ á umbótasinnuð-
um ráðherrum sem studdu söluna.
Talsmaðurinn kvaðst fagna afstöðu
Viktors Tsjernomyrdíns forsætisráð-
herra, sem hefur sagst ætla að
kanna söluna nánar. Kostíkov lýsti
kaupendum Svjazinvest sem útlend-
um bröskurum, sem væru í makki
við háttsetta ráðherra í rússnesku
stjórninni.
Heimildarmenn í Kreml sögðu að
salan markaði tímamót í einkavæð-
ingu stjórnarinnar að því leyti að
látið hefði verið af öllu baktjaldam-
akki um skiptingu ríkiseigna milli
fyrirtækja og fjúrmálamanna, sem
studdu Jeltsín í forsetakosningunum
á liðnu ári.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar Verzlunarmannatélags Reykjavíkur hetur Fjölskyldu- 09 húsdýragarðurinn í Laug-
ardal verið tekinn á leigu á trídegi verslunarmanna, mánudaginn 4. ágúst, og verða garðarnir opnir endur-
gjaldslaust illum télagsminnum UR, svo og Reykvíkingum og iðrum gestum, á trídaginn frá kl. 10:00 til 18:00.
Fjölskyldugarðurinn
Dagskrá Fjölskyldugarösins:
13:00 Bé tveir (Furöuleikhúsiö)
14:00 Furöufjölskyldan (götuleikhús)
14:30 Hljómsveitin Geirfuglarnir
15:00 Brúöuleikhúsiö
16:00 Mjallhvít og dvergarnir sjö
(Furðuleikhúsið)
16:30 Hljómsveitin Geirfuglarnir
B|M|
QLSKYLDU s
m i
Húsdýragarðurinn
Dagskrá Húsdýragarðsins:
10:45 Hreindýrum gefiö
11:00 Selum gefið
11:30 Hestar teymdir um garöinn
12:00 Refum og minkum gefiö
13:00 Fuglagarðurinn opinn (1 klst.)
13:30 Klapphorn hjá kanínum
14:00 Svínum hleypt út ef veður leyfir
15:00 Hestar teymdir um garðinn
15:30 Fuglagaröurinn opinn (1 klst.)
16:00 Selum gefiö
16:15 Dýrum í smádýrahúsi gefiö
16:30 Hestar, kindur og geitur sett í hús
17:00 Svínum gefið
17:15 Mjaltir í fjósi
17:45 Refum og minkum gefiö
VERIÐ 1/ELKOiVIIIM í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐIIUIU
Á FRÍDEGI VERSLUIUARMANNA, MÁNUDAGINN 4. ÁGÚST!
VERZLUNARMANNAFELAG
REYKJAVÍKUR