Morgunblaðið - 01.08.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 39
1
I
r
1
I
I
i
i
]
i
i
i
i
<
i
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Umferðarmál
í Reykjavík
Frá Sigmari Hróbjartssyni:
STUNDUM getur maður rekist á
ritsmíðar í blöðum landsins, sem eru
þrungnar fjandskap í garð einhverra
samborgarara okkar og einskis svif-
ist til þess að gera þá og störf þeirra
tortryggileg. Eina slíka gaf að iíta
í bréfi til Morgunblaðsins nú nýlega.
Þar er því haldið fram að Guðrún
Ágústsdóttir og félagar hennar í
borgarstjórn Reykjavíkur hafi
ákveðið að þrengja að umferð á
götum borgarinnar, vegna þess að
þeim sé illa við fólkið sem notar
einkabíla sem samgöngutæki. Minna
má það ekki kosta.. .
Það var vissulega mikil uppgötvun
að finna upp hjólið. Frá þeim tíma
og til okkar daga hefur maðurinn
sífellt verið að útfæra þessa upp-
götvun sína á öllum mögulegum
sviðum til þess að gera sér lífið Iétt-
ara og jörðina undirgefna.
Samgöngutæki nútímans í lofti, á
láði og á legi eru vissulega greinar
á þeim meiði. Sú þróun, sem orðið
hefur á einum mannsaldri er ævin-
týri líkust.
En í okkar tæknivædda samfélagi
er margs að gæta. Það kemur sí-
fellt betur og betur í ljós, að í þess-
ari Paradís tækninnar leynist marg-
ur snákurinn ...
Höfundi umræddrar greinar verð-
ur líka á að nefna: „umferðaröng-
þveiti, mengun, hávaða og tímasó-
un“, en vill tengja það við að götu-
rými sé ekki nægilegt til þess að
taka við sístækkandi bílaflota ...
Vissulega er bíllinn þægilegt sam-
göngutæki. Hann getur meira að
segja verið einskonar „regnhlíf á
hjólum". En þegar mest á reynir,
t.d. í hríðarbyljum vetrarins og öng-
þveiti sem þá skapast, geta þessi
þæjrindi snúist upp í andhverfu sína.
I borgarsamfélögum okkar tíma
hafa almenningsfarartæki orðið æ
veigameiri úrræði. Hér í Reykjavík
hefur sú þróun orðið heldur síðbúin
af ýmsum orsökum, sem hér verða
ekki raktar. Núverandi borgarstjórn
hefur þó reynt að ráða á því bót,
þó betur megi sjálfsagt gera.
Nú er svo komið að mér þykir í
flestum tilfellum mikið þægilegra
(og jafnvel fljótlegra) að „skreppa í
bæinn“ með strætó heldur en að
nota bílinn minn og standa í leit að
stæði, greiða stöðumælasektir og
eiga á hættu að lenda í árekstrum,
einkum þegar strætó gengur þétt-
ast. Vona ég innilega að fleiri eigi
eftir að gera þá uppgötvun, bæði sín
vegna og samfélagsins.
Ég get að vísu vel skilið að þeir
sem hafa kostað miklu til við að eign-
ast glæsta vélfáka nútímans, vilji
gjarnan nota þá. En þegar þeir verða
of margir sem samtímis ætla að leyfa
sér slíkan munað, koma ókostir
þessa ferðamáta fyrst áþreifanlega
í ljós. (Þá kýs ég fremur að vera á
tveim jafnfljótum og taka strætó.)
Svo má heldur ekki gleyma þeim
stóra hópi vegfarenda, sem af ýms-
um orsökum á ekki kost á öðrum
samgöngumáta en almenningsfarar-
tækjum. Þeir hafa líka sinn rétt.
Mengun frá bílaumferð er að
verða eitt af stærstu vandamálum
okkar tíma. Við því verður að bregð-
ast með öllum tiltækum ráðum. Þar
koma rafdrifin farartæki, t.d. spor-
vagnar, sterklega til greina. Það
hlýtur að verða með biýnustu verk-
efnum borgaryfirvalda að ráða fram-
úr slíkum vandamálum.
Eina færa ieiðin er að bæta ai-
menningssamgöngukerfið. Þar
verða allir aðilar að þekkja sinn vitj-
unartíma og taka höndum saman til
þess að finna farsælar lausnir. Virð-
um rétt annarra - og væntum þess
sama af þeim. Þá mun öllum vel
farnast.
SIGMAR HRÓBJARTSSON,
Brautarási 10, Reykjavík.
Ekki einungis konum
er nauðgað
Frá Katrínu Hamilton:
ÞAÐ hefur varla farið fram hjá nein-
um það mikla umtal sem verið hefur
um stórglæpinn nauðgun vegna
komandi verslunarmannahelgar.
Fjölmiðlar hafa auglýst grimmt gegn
þessum virkilega viðkvæma glæp:
Allir eiga að vera allsgáðir!
Þetta getur komið fyrir hvem sem er!
Ungmenni, haldið hópinn!
Hvetjum er helst nauðgað á okkar
stærstu útihátíðarhelgi? Líklega er
það ungum konum á aldrinum
14-17 ára sem eru nógu varnar-
lausar fyrir gerandann. En stundum
á það til að gleymast að einnig eru
strákar fórnarlömb nauðgunar.
Það er óhætt að alhæfa að upplýs-
ingar um hlutfall stráka sem er
nauðgað eru miklu ónákvæmari en
um stelpur. Strákar hafa öðruvísi
stolt og flestir þeirra voga sér ekki
að segja frá ógæfu sinni. Þeim finnst
þeir hafi orðið fyrir enn meiri niður-
lægingu en stelpurnar, þeir telja sig
jú „sterkara kynið“!
Stígamót og Neyðarmóttaka
Borgarspítala standa konum nær en
körlum. Karimenn sem beittir hafa
verið kynferðislegu ofbeldi eru líka
velkomnir þangað og það mætti
koma betur fram í fjölmiðlum.
Nauðgun er gríðarleg smán og
getur lagt tilfinningalíf fólks í rúst.
Þeir sem hafa framið svona glæp
eða vita að þeir eru hættulegir, t.d.
undir áhrifum Bakkusar, ættu að
hlekkja sig heima við rúmgaflinn þar
til hættan hefur liðið hjá. Eða hvem-
ig væri að leita sér hjálpar?
Það er frekar augljóst að kven-
menn verða miklu oftar fyrir nauðg-
un en það eru karlmenn þarna inn
á milli og örugglega fleiri en við
gerum okkur grein fyrir.
Eins og oft er búið að tönnlast á
getur þetta komið fyrir hvern sem
er. Og ekki ætti að gera grín að
þessu málefni, sama hvað!
Hafið augun opin og verið varkár
um verslunarmannahelgina jafnt og
aðra daga. Langar mig að óska öllum
góðrar, gleðilegrar og áhyggjulausr-
ar helgar.
KATRÍN HAMILTON,
Nemandi á félagsfræðibraut
Menntaskólans við Sund.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Dýraglens
Grettir
MUNUM VIÐ HVERMiG 'A AP
^ OPNA FUGLABORIÐ ?
EKJCl BASA |?AP
VIÐGLZVMDUM
(AÐFUtflARöeTA
\ fri-OGiP
17AVf& 4Z
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
I WROTE TO SPIKE SO
HE'LL BE EXPECTIN6 Y0U
REMEM6ERJMEM00N
15 ALWMS 0VER
M0LLYW00D SOJUST
F01L0U) THE MOON..
^3------------""
6-/8
TME LA5T TIME U)E U)ENT
50MEPLACE, HE TOLD U5
TME NORTH STAR 15
ALU)AY5 0VERMINNEAP0LI5„ i
Ég skrifaði Sámi svo að
hann á von á ykkur.
Munið að tunglið er
alltaf yfir Hollywood
svo þið fylgið bara
tunglinu.
Síðast þegar við fórum
eitthvert sagði hann okkur
að Pólstjarnan væri alltaf
yfir Minneapolis ...