Morgunblaðið - 01.08.1997, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÍDAG
MUN Log'i Laxdal og Sprengju-Hvellur verða í þessari aðstöðu
að keppni lokinni á HM og færa Islendingum eina gullið á HM i
Seljord - eða verða þau fleiri?
A brattann
að sækja gullið
HESTAR
Umsjón Valdimar
Kristinsson
GULLVERÐLAUN er það sem
stefnt er að hveiju sinni á heims-
meistaramótum í hestaíþróttum og
svo er einnig nú. Að sjálfsögðu er
markmiðið nú ekki raunhæft í öllum
greinum frekar en á fyrri mótum
en flestir munu sammála um að
gullverðlaun í öllum greinum sé
raunhæft og verðugt langtíma-
markmið. Nú þegar keppni heims-
meistaramótsins hefst í næstu viku
er ekki sérstök ástæða til mikillar
bjartsýni um árangur. Liðsstjóri og
einvaldur, Sigurður Sæmundsson,
segist oft hafa verið bjartsýnni en
nú og er sammála því að aðeins sé
eitt gull vel í sjónmáli á þessari
stundu.
Ef litið er yfir liðsskipan íslenska
liðsins samanstendur það af þremur
reyndum landsliðsmönnum, þeim
Atla Guðmundssyni með Hróður frá
Hofsstöðum og Sigurbirni Bárðar-
syni með Gordon frá Stóru-Ásgeirs-
á. Svo mæta heimsmeistaramir Sig-
urður V. Matthíassson og Huginn
frá Kjartansstöðum. Sigurbjörn
hefur verið keppandi á níu HM-mót-
um og unnið sjö gull á fjórum mót-
um og alltaf verið í A-úrslitum og
verðlaunasætum að einu móti und-
anskildu, þegar hestur hans veikt-
ist.
Þetta er í þriðja skipti sem Atli
er í liðinu á HM, en hann hlaut silf-
ur ’89 í fímmgangi í Danmörku en
á síðasta móti, ’95 í Sviss, var hest-
ur hans ekki keppnishæfur og mátti
hann því verma bekkinn. Sama er
að segja um Sigurð, hann keppir
einnig á sínu þriðja móti. í Hollandi
var hann í verðlaunasæti en á síð-
asta móti hlaut hann tvenn gull-
verðlaun og freistar þess að veija
titil í fímmgangi og samanlögðum
stigum úr þremur greinum. Hinir
fímm eru allir nýliðar en mikilvægt
þykir að hafa góða reynslu á þess-
um mótum. Ekki eru þessir menn
þó neinir nýgræðingar, allir búnir
að skapa sér gott nafn í keppni síð-
ustu árin.
Logi Laxdal og Sprengju-Hvellur
frá Efstadal þykja eiga besta mögu-
leika á að vinna gull, en þeir hafa
verið nær ósigrandi síðustu tvö árin
og skeiða vart yfír 23 sekúndum
og hafa farið nokkrum sinnum und-
ir 22 sekúndur, síðast í úrtökunni,
á 21,75 sekúndum. Logi og Hvellur-
inn eru með besta tíma keppenda
í 250 metra skeiði á HM og má
telja þá sigurstranglega þótt vissu-
lega verði þeir að hafa eitthvað
fyrir sigrinum. Þá má ætla að Sig-
urður V. Matthíasson og Huginn
eigi góða möguleika á sigri í fímm-
gangi. Þegar rætt var við Sigurð
fyrir skömmu sagðist hann vera
mjög ánægður með stöðuna á klárn-
um. Hann væri mjög flottur og eig-
inlega væri hann í skýjunum með
hann. Sagði Sigurður að hann væri
að sínu mati betri en fyrir tveimur
árum. Hann væri betur stilltur í
höfuðburði á brokki, vigalegri á
töltinu og skeiðið ekki síðra en ’85.
Ekki vildi Sigurður nefna nein sæti,
hann myndi aðeins gera sitt besta.
Næstur í röðinni hlýtur að vera
Sigurbjöm Bárðarson með Gordon,
en hann gæti átt möguleika í sigur-
vegara mótsins. Eftir umsögn Sig-
urðar Matthíassonar um Hugin
verður þó að ætla að þeir verði þar
efstir íslendinganna í samanlögðu.
Þá verður að reikna með Sigurbirni
sterkum á Gordon í gæðingaskeið-
inu, en þar hefur Sigurbjörn verið
fremstur á síðustu tveimur mótum.
Slök frammistaða Sigurbjöms og
Gordons á íslandsmótinu setur þó
strik í reikninginn og dregur heldur
úr trú manna á þeim félögum. Enn
og aftur má þó minna á að Sigur-
björn er aldrei sterkari en þegar
mest á ríður og er hann manna
vísastur til að kippa hlutunum í lið-
inn þegar mest á reynir og í þeirri
trú má vænta sigurs í gæðinga-
skeiðinu.
Atli Guðmundsson og Hróður
munu keppa í fimmgangi, gæðinga-
skeiði og slaktaumatölti. Ætla má
að Atli eigi góða möguleika á að
komast í A-úrslit í fímmgangi en
sigur vart í augsýn á þessari stundu.
Þó er ekki grunlaust um að Hróður
sé ekki kominn á toppinn hjá Atla
í þjálfunarferlinu. Spurninger hvort
eitt eða tvö tromp leynist í erminni
hjá Atla sem er í dag einn snjall-
asti reiðmaður landsins og kannski
ekki síst hans reiðsnilli sem hefur
komið honum svo langt með þennan
upplagsgóða hest.
Og þá eru fjórgangshestarnir og
knapar þeirra eftir. Möguleikar
Höskuldar Jónssonar og Þyts frá
Krossum og Styrmis Ámasonar og
Boða frá Gerðum virðast nokkuð
svipaðir, sigurlíkur litlar bæði i tölti
og fjórgangi en raunhæft að ætla
þeim báðum eða öðrum þeirra sæti
í A-úrslitum í báðum þessum grein-
um. Erfíðara er að átta sig á mögu-
leikum Vignis Siggeirssonar og
Þyrils frá Vatnsleysu. Þeir vom í
mikilli uppsveiflu síðast þegar frétt-
ist af þeim í keppni og miðað við
fyrri afrek má alveg eins gera ráð
fyrir þeim upp að hlið þeirra fýrr-
nefndu. Páll Bragi Hólmarsson virð-
ist vera sá liðsmanna sem hefur
allt að vinna og engu að tapa. Hann
kemur með ungan hest sinn,
Hramm frá Þóreyjarnúpi, á góðum
tímapunkti í úrtökuna en síðar dal-
aði hann nokkuð og er nú eitt stórt
spurningarmerki.
Niðurstaðan gæti verið sú að góð
von sé á einu gulli hjá Loga og
Hvellinum, nokkuð góðir möguleik-
ar á einum til tvennum gullverð-
launum hjá Sigurði og Hugin og
ætla verður að Sigurbjöm og Gor-
don séu vel inni í myndinni í gæð-
ingaskeiðinu. Þvi gætu verðlaunin
orðið fem ef allt gengur vel og
minna má á að oftar en ekki hafa
íslendingar staðið sig betur en
björtustu vonir leyfðu. Við sjáum
hvað setur.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Drukkin stúlka
ver sig ekki
ÞAÐ er og hefur verið óðs
manns æði að halda fjöl-
mennustu útihátíðir sum-
arsins í byijun ágústmán-
aðar þegar skuggsýnt er
orðið að kvöld- og nætur-
lagi. Væri ekki ráð að flytja
frídag verslunarmanna
fram um tvær, þijár vikur?
Að minnsta kosti yrði þá
þjart á nætumar og auð-
veldara að fylgjast með því
sem fram fer. Við verðum
að vemda unglingana fyrir
innlendum sem erlendum
glæpalýð sem situr um að
halda áfengi og eiturlyfjum
að þeim. Hvernig fær
dmkkin unglingsstúlka,
sem lendir í klóm nauðg-
ara, varist honum? Sem
dæmi um hættuna sem
stúkumar eru í er frétt í
Morgunblaðinu 23. júlí
þess efnis að 13 ára stúlka
hafí kært tvo menn fyrir
nauðgun á tjaldstæð í
Bíldudal og frétt í DV 29.
júlí þar sem segir að 16
ára stúlka hafí kært tvo
portúgalska landsliðsmenn
í fótbolta fyrir líkamsárás
og nauðgunartilraun við
Meiaskólann í Reykjavík.
Ég vona að sjálfboðaliðar
skipuleggi eftirlit og aðstoð
við þá unglinga sem em
hjálpar þurfi og að á hverri
útihátíð verði athvarf fyrir
þá. Komið heil heim.
Rannveig Tryggvadóttir,
Bjarmaiandi 7, 108 Rvík.
Geta skal þess
sem gott er
MÁNUDAGINN 28. júlí
tók ég mér far með Al-
menningsvögnum, leið 41.
Ég ætlaði að Sólvangi,
hlaðin pinklum. Við
stoppustöðina vafðist fyrir
mér að komast úr vagnin-
um. Snarast þá bflstjórinn
út, tekur pinklana mína,
réttir mér höndina og styð-
ur mig út. Síðan óskaði
hann mér velfamaðar,
kvaddi og ók á brott. Ég
hafði veitt því athygli, að
öllum bauð hann góðan
dag og átti blítt bros. Með
kurteislegri og hlýrri fram-
komu sinni veitti þessi
ókunnugi maður mér gleði
yfir því að ennþá er til fólk,
sem ber hlýhug til sam-
borgara sinna.
María B. Maronsdóttir,
Einarsnesi 78.
Jóhannesar-
jurt
KONA hringdi og vildi
koma því á framfæri að
hún hefði fengið sér Jó-
hannesaijurt í Heilsuhús-
inu í Kringlunni. Hún segir
að þetta sé mjög góð
næiing fyrir taugakerfíð
og gott við þunglyndi. Hún
segir að þetta hafí hjálpað
sér mjög mikið og hún sé
allt önnur eftir aðeins þtjár
vikur. Hún mælir eindregið
með þessu fyrir alla.
Tapað/fundið
Gullhringur
tapaðist
GULLHRINGUR með rúb-
ín og demanti tapaðist, lík-
lega miðvikudaginn 23.
júlí. Hringurinn hefur mik-
ið tilfmningalegt gildi fyrir
eiganda. Skilvís fmnandi
vinsamlega hringi í síma
554-0565.
Gleraugu
töpuðust
12 ÁRA stelpa tapaði gler-
augum (brún/gyllt) sl.
laugardag um kl. 19 á leið-
inni frá Stjörnubíói yfir
Miklatún að Barmahlíð.
Uppl. í síma 568-5645.
Álstigi tapaðist í
Hafnarfirði
ÁLSTIGI tapaðist frá
Staðarhvammi 11 í Hafn-
arfirði. Þeir sem hafa orðið
varir við stigann hafi sam-
band í síma 555-4417.
Dýrahald
Páfagaukur fannst
á Seltjarnarnesi
GULUR páfagaukur kom
fljúgandi inn um gluggann
á risíbúð við Lambastaða-
braut á Seltjarnamesi um
tíuleytið á þriðjudagskvöld.
Hann er ósköp gæfur og
greinilega frá góðu heimili.
Þeir sem sakna hans geta
hringt í Önnu Þóm í síma
561- 0016 í dag eða í síma
562- 2595 frá og með
laugardeginum.
Hvolpar fást
gefins
NOKKRIR hvolpar fást
gefins, fæddir 22. maí.
Hvolparnir em dökkir
blendingar. Uppl. á kvöldin
í síma 587-6988 eða hjá
Magneu, Vindheimum 2
við Hafravatnsveg (Suður
landsveg).
Kisa tapaðist
frá Grettisgötu
5 MÁNAÐA gömul læða,
grábröndótt, tapaðist frá
Grettisgötu sunnudaginn
27. júlí. Þeir sem hafa orð-
ið varir við kisu vinsamlega
láti vita í síma 562-4558.
Persneskur köttur
hvarf að heiman
BRANDARI, sem er pers-
neskur köttur, hvarf að
heiman frá sér frá Torfu-
felli 50 föstudaginn 25.
júlí. Hann er ómerktur og
ólarlaus. Þeir sem hafa
orðið varir við kisa hafi
samband í síma 567-6414.
Forðist
spjöll á
jarðargróðri.
Farið
varlega með
eld.
Gangið vel
um landið.
HEILRÆÐI
KOMUM HEIL HEIM
HÖGNIHREKKVÍ SI
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI telur að Veðurstof-
unni hafi oft tekist betur upp
í veðurspám sínum en í sumar.
Þetta hefur komið illa við bændur
sem eru mjög háðir veðri við vinnu
sína yfír sumarmánuðina.
í síðustu viku spáði Veðurstofan
t.d. að það yrði norðanátt og þurr-
viðri suðvestanlands um helgina.
Víkveiji veit til þess að margir
bændur tóku mið af þessu og slógu
tún sín af miklum krafti til að eiga
nóg flatt áður en þurrkurinn kæmi.
Dæmi munu vera um að bændur
væru við slátt fram eftir nóttu að-
faranótt föstudags.
Þeir hafa væntanlega vaknað illa
um morguninn því að þá hafði Veð-
urstofan skipt um skoðun og spáði
nú eindreginni rigningu um helgina,
sem og varð. Þetta þýddi að mikið
af heyjum hefur verið að hrekjast á
túnum, en hey hrekst hratt í þeim
miklu hitum sem verið hafa á land-
inu síðustu vikumar. Sú spurning
vaknar hvort langtímaspár Veður-
stofunnar eru það traustar að bænd-
ur og aðrir geti skipulagt vinnu sína
með hliðsjón af þeim. Réttar spár
geta hjálpað mikið, en rangar spár
geta líka spillt fyrir. Vonandi tekst
Veðurstofunni að halda áfram að
bæta sig þannig að réttu spámar
verði fleiri í framtíðinni.
xxx
Á HEFUR Víkveiji oft furðað
sig á því hvað ríkisskattstjóri
er seinn að senda gíróseðla vegna
bifreiðagjalda til bifreiðaeigenda. Á
síðustu árum hefur verið algengt
að þeir hafí verið sendir mörgum
dögum eftir gjalddaga. Þetta olli
Víkveija óþægindum í sumar þegar
hann keypti sér nýjan bíl. Víkveiji
ætlaði 10. júlí að láta umskrá gamla
bílinn á nýjan eiganda, en þá kom
í ljós að bifreiðagjöld af bílnum
vom í vanskilum. Astæðan var sú
að enginn gíróseðill hafði borist.
Raunar þurfti Víkveiji að bíða í
viku til viðbótar eftir gíróseðlinum.
Á honum stóð hins vegar skýrum
stöfum að gjalddagi væri 1. júlí.
Ekki er að vita hvort ríkisskatt-
stjóraembættinu eða Reiknings-
stofu bankanna er að kenna um
þessa lélegu þjónustu, en hitt er
víst að þetta er ekki til þess fallið
að auka skilvísi gjaldendanna.
xxx
MJÖG hefur farið batnandi að
fyrirtæki, sem auglýsa vöru
sína og þjónustu, geti um verð,
a.m.k. í blaðaauglýsingum. Segja
má að þetta hafi til þessa einkum
átt við ferðaskrifstofur og bílaum-
boð en í vaxandi mæli má sjá verð
á fatnaði tilgreint í auglýsingum
tískubúðanna. Þetta á einnig við
um bókaforlögin, ekki síst þegar
jólabókaflóðið stendur enda mikil-
vægt að ná athygli með upplýsing-
um um hið hagstæða bókaverð
ekki síður en upplýsingum um inni-
haldið!
Á hinn bóginn má segja að minna
sé um að verð sé tilgreint í glugga-
útstillingum verslana. Rekur Vík-
veija minni til að slíkt sé skylt lög-
um samkvæmt. Þegar gengið er um
helstu verslunargötur Reykjavíkur
og litið í glugga má sjá að verslun-
arstjórar hafa í mörgum tilvikum
látið undir höfuð leggjast að sinna
þessum verðmerkingum. Þær hljóta
að vera þáttur í að laða menn að
- nú og ef þeir halda að verðið
fæli - má grípa til aðferðar sölu-
manna sólarlandaferða eða bflasala
og segja að verðið sé frá kr. þetta
eða hitt. Það getur varla spillt að
tilgreina sem best nauðsynlegar
upplýsingar þegar boðin er vara eða
þjónusta.