Morgunblaðið - 16.08.1997, Page 1

Morgunblaðið - 16.08.1997, Page 1
183. TBL. 85. ÁRG. Neyðin í N-Kóreu S-Kórea býður aðstoð Seoul. Reuter. KIM Young-sam, forseti Suður- Kóreu, bauð í gær Norður-Kóreu alla þá aðstoð sem Suður-Kórea geti veitt til að forða nágrannaríkinu frá algjöru efnahagslegu hruni, en setti það skilyrði að kommúnista- stjórnin í Pyongyang yrði að breyta íjandsamlegri afstöðu sinni gagn- vart Suður-Kóreu. „Ef Norður-Kórea velur braut umbóta erum við viljugir og reiðu- búnir til að eiga eins mikið samstarf við hana og hún vill,“ sagði Kim í ræðu fluttri í minningu þess, að nú eru 52 ár liðin frá því 35 ára löngum nýlenduyfirráðum Japana yfir Kóreu lauk. Kim sagði Kóreuskagann aðeins hafa verið frelsaðan að hluta árið 1945, þar sem sigurvegarar heims- styijaldarinnar síðari skiptu landinu fljótlega upp í kommúnískan norð- urhluta og kapítalískan suðurhluta. Hann sagði að þrátt fyrir erfiðleika væru samskipti ríkjanna tveggja „greinilega að batna“, sem hann sagðist vona að myndi leiða til sam- einingar landsins. Hungursneyðin að versna Bill Richardson, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, sagði í Tókýó í gær, að hung- ursneyðin í Norður-Kóreu væri að versna, en Bandaríkjamenn hefðu ekki neinar sannanir fyrir því að stjórnvöld í Pyongyang hefðu látið herinn njóta góðs af gögnum, sem alþjóðlegar hjálparstofnanir hefðu sent, eins og hermt hefði verið. Richardson sagði Bandaríkin til- búin til að leggja meira af mörkum, ef Norður-Kóreumenn óskuðu þess. ■ Hungrið blasir/16 ♦ ♦ ♦--- Ný lög í Louisiana Leyft að skjóta bílþjófa Baton Rouge. Reuter. UMDEILD lög, sem heimila bifreiða- eigendum að skjóta bílþjófa telji þeir lífi sínu ógnað, tóku gildi í Louis- iana í Bandaríkjunum í gær. Þing ríkisins samþykkti lögin fyrr í sumar með 133 atkvæðum gegn einu og þau fylgja lögum frá 1993 sem heimila mönnum að skjóta þjófa sem bijótast inn í hús þeirra. Talsmaður lögreglunnar sagði að lögin væru skýr skilaboð til bílþjófa og þau ættu að koma í veg fyrir að þeir réðust á bifreiðaeigendur þar sem þeir vissu að þeir gætu nú var- ið sig. „Þetta gæti bjargað mannslíf- um, en aðeins ef lagabókstafnum er fylgt. Þetta gildir aðeins um menn sem eru inni í bílum og telja lífi sínu ógnað.“ 80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Skattfé skilað UM ÞRJÚ þúsund ítalskir borg- arar biðu í röð tímunum saman í steikjandi sólskini við ráðhús Rómarborgar í gær til þess að fá í hendur 50.000 lírur (2.000 kr.) frá framtakssömum stjórnmála- manni Róttæka flokksins, sem útdeildi fénu til að mótmæla að stjórnmálaflokkar fái fé úr vösum skattgreiðenda. Stjórnmálamaðurinn, Mareo Pannella, er talinn hafa útdeilt samtals 150 milljónum líra, eða sex milljónum króna. Fénu var útdeilt í formi tveggja 10.000 líra seðla, sem á var prentað: „Þetta er hluti ránsfjárins, sem borgarar landsins hafa verið flettir. Rót- tæki flokkurinn hefur ákveðið að nota ekki þetta stolna fé heldur skila því.“ Róttæki flokkurinn berst fyrir afnámi ríkisstyrkja til stjórnmálaflokka og er Emma Bonino meðal félaga í honum. Kosningabaráttan í Noregi Framfaraflokk- urinn í stórsókn HVER skoðanakönnunin á fætur annarri í Noregi staðfestir risaskref Carls I. Hagens og Framfaraflokks- ins upp á við, en hann hefur 21%-25% fylgi. Hægrimenn og Mið- flokkurinn tapa hins vegar miklu fylgi. Þetta gæti þó enn átt eftir að breytast mikið, því 42% kjósenda hafa enn ekki gert upp hug sinn. I skoðanakönnun Scan-Fact, sem birt var í fyrradag, sagðist fjórði hver maður af þeim sem tóku af- stöðu styðja Framfarafiokkinn. Svipað var upp á teningnum í skoð- anakönnun sem gerð var fyrir Aften- posten og birt í gær, en þar hlýtur Hagen stuðning 21,2%. Þessi niðurstaða er ekki síst at- hyglisverð í ljósi þess að Framfara- flokkurinn hefut- lagt fram afar umdeildar og róttækar tillögur í menningarmálum og byggðastefnu sem snúast um að draga mjög úr ríkisstyrkjum. Þá nýtur flokkurinn, sem er lengst til hægri í norskum stjórnmálum, ekki mikils trausts annarra flokka, en m.a. hefur leið- togi Hægriflokksins, Jan Petersen, aftekið með öllu að eiga samstarf við Framfaraflokkinn. Af þeim sem taka afstöðu styðja flestir Verkamannaflokkinn, um 31,1%, sem er 5,8% minna en í síð- ustu kosningum. Afhroði Miðflokksins spáð Miðflokkurinn bíður afhroð í skoð- anakönnunum, fær aðeins um 8,7% atkvæða en fékk 16,8% í síðustu kosningum. Er þingsæti Anne Enger Lahnstein, leiðtoga flokksins, í hættu, en flestir þakka henni stór- sigur flokksins í síðustu kosningum. Hægrimenn tapa fylgi, er spáð 13,8%, sem er 3,2% minna en 1993. Þá nýtur Kristilegi þjóðarflokkurinn stuðnings um 10,6% kjósenda sem er mikil aukning frá síðustu kosning- um, er flokkurinn fékk 2,7% at- kvæða. Urskurðað gegn Plasic Sar^jevo. Reuter. STJÓRNLAGADÓMSTÓLL Bosníu-Serba úrskurðaði í gær að sú ákvörðun Biljönu Plasic, forseta Bosníu-Serba, að leysa upp þing og boða til kosninga væri „ekki í samræmi við stjórnarskrána, hvorki í form- legri, né efnislegri merkingu". Þess hafði verið vænst að úrskurðurinn yrði á þennan veg og er talið víst að dómstóllinn verði gagnrýndur víða um heim. Dómstóllinn er undir áhrifum frá stuðningsmönnum Radovans Karadzics, sem var forseti Bosníu-Serba í átökun- um í Bosníu og er hann sagður hafa knúið úrskurðinn fram. Horft til fortíðar og framtíðar á hálfrar aldar afmæli sjálfstæðis Indlands Indverjar hvattir til að beita ráðum Gandhis gegn spillingu Rcutcr INDVERJAR í Bombay veifa fánum og kyndlum til að fagna því að hálf öld er liðin frá því að Indland fékk sjálfstæði frá Bretum. Nýju Delhí. Reuter. INDVERJAR héldu í gær upp á hálfrar aldar sjálfstæði um allt land, þyrlur stráðu krónublöðum rósa yfir þátttakendur í hátíðahöldunum, barnakórar sungu og mörg hundruð manns gengu berfætt að minnis- varða Mohandas Gandhis, sem hafði viðurnefnið „mahatma" eða hin mikla sál og var að hyggju flestra Indveija hið leiðandi afl í barátt- unni gegn nýlendustjórn Breta. En ofbeldisverk aðskilnaðarsinna settu einnig mark sitt á daginn og leið- togar landsins ítrekuðu þau vanda- mál, sem blasa við Indverjum; ólæsi, offjölgun og yfirþyrmandi spilling. Inder Kumar Gujral, forsætisráð- herra Indlands, sagði í ávarpi í gær að margir teldu að spilling heyrði til réttinda þeirra, en það fólk ætti að vara sig. „Við þurfum að mynda fjöldahreyfingu, sem allir geta tekið þátt í þannig að endir verði bundinn á spillingu í stjórnmálum og opin- beru lífi,“ sagði Gujral í Delhí og hvatti Indverja til borgaralegrar óhlýðni líkt og Gandhi þegar hann barðist gegn nýlenduyfirráðum Breta. „[Spillingin] étur sig eins og termítar inn í líffæri þjóðarinnar.“ K.R. Narayanan, forseti Ind- lands, gerði spillingu einnig að höfuðatriði ræðu sinnar þegar hann tók til máls á sérstökum fundi indverska þingsins á miðnætti að- faranótt gærdagsins. Indversk dagblöð lögðu mörg áherslu á það, sem miður hefði farið á undanförnum 50 árum. „Við höfðum heitið að „þurrka hvert einasta tár af hveijum ein- asta hvarmi" við dögun frelsisins," sagði í dagblaðinu The Pioneer og var vísað til heitis Gandhis. „Tárin hafa runnið um sýnu fleiri hvarma á undanförnum 50 árum.“ En einnig var talað um framfarir í fjölmiðlum og Indvetjar hvattir til bjartsýni. Bent var á að læsi hefði tvöfaldast milli 1961 og 1992 og sama væri að segja um lífslíkur Indvetja, sem nú væru 61 ár. Áhersla á réttindi kvenna Gujral talaði í eina og hálfa klukkustund og var ræðunni sjón- varpað um allt Indland. Hann lagði einnig áherslu á réttindi kvenna, hét því að beita sér gegn mismunun stúlkna og auka þátt kvenna í stjórnmálum. Hann tilkynnti að læknum yrði bannað að greina for- eldrum frá því hvort fóstur væri strákur eða stúlka og greindi frá stofnun sérstaks sjóðs handa stúlk- um í fátækum fjölskyldum. Aðskilnaðarhreyfingar hafa einnig sett mark sitt á 50 ára sögu Indlands og í gær létust sex manns í norðausturhluta landsins og var gripið til allsheijai'verkfalls í fjórum héruðum. Þar tóku aðeins opinberir starfsmenn þátt í hátíðahöldum. Almenningur sat heima. ■ Var blóðbaðið/18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.