Morgunblaðið - 16.08.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.08.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚ3T 1997 ERLENT NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Talið er að tæplega 20.000 Pakistanar búi í Danmörku Einhliða mynd en margþættur vandi Reuter PAKISTANAR halda á fánum Pakistans og Múslimabandalags- ins á útifundi í bænum Rawalpindi í tilefni af sjálfstæðisaf- mæli landsins á fimmtudag. Pakistanar í Danmörku eru tæp tuttugu þúsund. Sigrún Davíðsdóttir hugar að aðstæðum þeirra á tímamótum Pakistans. SAMKVÆMT opinberum tölum eru um sjö þúsund Pakistanar í Dan- mörku, en ef taldir eru þeir sem komu þangað frá öðrum löndum er nærri lagi að áætla að um átján þúsund búi þar. Þeir hófu að koma þangað fyrir tæpum þijátíu árum, þegar Pakistanar streymdu til Vest- ur-Evrópu í leit að atvinnu og betri afkomu. Stóru dönsku blöðin nefna þetta þjóðarbrot helst í sambandi við dapurlegar sögur um atvinnu- leysi og uppflosnuð ungmenni eða tröllasögur um hvað þeim takist að hafa út úr félagskerfinu. Góða sag- an í ár er þó að sá sem fékk hæstu einkunn á stúdentsprófi er úr pa- kistanskri íjölskyldu og margir þeirra eru frábærir námsmenn. Danska útvarpið er með útsending- ar á urdu, sjálfír gefa Pakistanar út blað á sama máli og eru með sjónvarpssendingar tvisvar í viku. Á 50 ára tímamótunum nú heldur pakistanska sendiráðið sýningu, en hún gefur býsna einhliða mynd af landinu, sem Pakistanarnar hurfu frá og Pakistanarnir vilja sem minnst vita af. Sjoppueigandi sem vill fá tengdadóttur frá Pakistan Hin hefðbundna mynd af mið- aldra Pakistana í Danmörku er að hann búi á Norðurbrú, reki sjoppu, láti félagskerfið um að framfleyta foreldrum sínum og leiti tengda- dóttur í Pakistan handa syni sínum. Pakistani hér, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að þetta sé þó harla mikil einföldun. Ástæðan fyrir því hve margir hafa snúið sér að litlum einkarekstri sé einfaldlega sú að þó vinnumarkaðurinn hafi tekið þeim opnum örmum hér áður fyrr, þá hafi Pakistanar iíka verið þeir fyrstu sem misstu vinnuna, þegar hún fór að dragast saman fyrir 10-15 árum. Einkarekstur eða opinber framfærsla sé því oft eina tekjuleiðin. Þegar Pakistanarnir tóku að koma spurði enginn þá hvort þeir kynnu dönsku, enda nóg af verksmiðjuvinnu og annarri vinnu fyrir lítið menntað fólk. Nú eru gerðar kröfur um að fólk kunni dönsku og það veitist eldra fólkinu nánast óyfírstíganleg hindrun í at- vinnuleit. Hið dapurlega er að unga fólkið, sem er fætt í Danmörku og talar dönsku eins og innfæddir jafnaldr- ar, á iðulega ekkert auðveldara með að fá vinnu, jafnvel þó það sé vel menntað. Mörg dæmi eru um að nafnið eitt nægi til að fyrirtæki flokki umsóknir innflytjendanna frá og dugir þá hvorki menntun né dönskukunnátta. Margir menntaðir ungir Pakistanar leita því fyrir sér um vinnu hjá fjölþjóðafyrirtækjum og dæmi eru um að dönsk fyrirtæki nýti krafta þeirra með því að senda þá til Asíu. Samt er enn straumur Pakistana til Danmörku, en þá frá Englandi og Þýskalandi, því afstað- an sé betri til þeirra þar og eins vegna félagskerfisins. Tíðni barnsfæðinga meðal Pak- istana í Danmörku er hærri en með- al Dananna sjálfra og foreldrarnir eru áfram um að börnin hljóti góða menntun. Þeim fer fjölgandi í grein- um eins og verkfræði og læknis- fræði og því gæti aðstaða þeirra breyst með árunum, en viðhorf Dan- anna þarf þá líka að breytast. Vandræði ungmennanna bloss- uðu nýlega upp í fjölmiðlum þegar til átaka kom á Norðurbrú í pakist- önskum unglingagengjum þar. Þá var lýðum Ijóst að það er aðeins spurning um tíma hvenær upp úr sýður, þar sem unglingarnir eru iðulega hvorki í skóla né vinnu og komast heldur ekki í læri. Stjórn- málamenn stigu fram og sögðu að nóg væri hægt að gera, en enn á eftir að koma i ljós hvort tekst að kljúfa hópana og hindra gengja- myndun, sem er gróðrarstía glæpa og vandræða. Trúarbrögð og menning Það er óljóst hve stór hluti Pak- istananna er trúarlega sinnaður, en dijúgur hópur þeirra er múhameðs- trúarmenn, sem iðka trú sína. Fyrir nokkru stóð til að reisa stóra mosku á Amager, en sú áætlun féll um sjálfa sig sökum kröftugra mót- mæla íbúa þar, sem ekki vildu vera vaktir í býtið með bænakalli. Eina viðurkennda moskan er úti í Hvidovre, úthverfi Kaupmanna- hafnar, en trúarlegar miðstöðvar múhameðstrúarmanna eru kallaðar menningarmiðstöðvar, því þannig fá þær styrk til tómstundastarfs. Áfstaðan til heimalandsins er blendin. „Ég fer stöku sinnum heim og læt þá eins og ég sakni ails þaðan,“ segir pakistanskur viðmæl- andi, sem búið hefur erlendis í tutt- ugu ár, „en sannleikurinn er sá að fyrir flestum er Pakistan aðeins draumur. Þeir sem ég þekki og hafa snúið aftur heim eftir langa fjarveru hafa ekki getað fest þar rætur aftur eftir að hafa búið í Evrópu.“ Vandinn er að hluti pak- istanskra foreldra í Danmörku sér það enn sem æðstu dyggð að gifta börn sín ungmennum frá Pakistan og það er oft orsök gríðarlegrar togstreitu. Fyrst togstreitu við að fá krakkana, sem eru meira dönsk en pakistönsk, til að fallast á ráða- haginn og svo togstreitu milli ungu hjónanna, sem tilheyra hvort sínum heimi. Ung pakistönsk stúlka, sem lagt hefur stund á arkitektúr heima, er ekki endilega vel sett að vera flutt vil Danmerkur og látin vinna í sjoppu tengdaforeldranna. Tog- streita myndast einnig í kringum klæðaburð, þegar foreldrarnir láta dæturnar klæðast hefðbundnum fötum, en blæja er sjaldséð í Dan- mörku. Helst að ungu stúlkurnar og ungu mæðurnar sjáist með háls- klúta þéttbundna um höfuðið. Þeir sem leggja leið sína um Norðurbrú sjá fatabúðir með pakist- önskum fötum, sjoppur með Pak- istönum og annað sem minnir á þá, en það er fjarri því að hverfið hafi á sér einsleitan blæ. Það eru þó til hverfi, þar sem mikill meirihluti skóiabarnanna er af pakistönskum ættum og þar stefnir sums staðar í gettó. Það er engin auðveld lausn á sambúðarvandanum, en Pakistani búsettur í Danmörku sem þekkir vel til aðstæðna landa sinna undir- strikar að mikilvægt sé að hætta að setja alla landa hans undir einn hatt og blása vandann upp í fjöl- miðlum. Það heyrist sjaldan um lít- inn minnihluta sem hefur komið sér mjög vel fyrir. Hin eina sanna mynd af Pakistan eins og Pakistanar vilja sjálfir láta líta á það fæst á sýningu pakist- anska sendiráðsins í ráðhúsinu í Höfn. Þar er ekkert fjallað um hina fjölbreyttu menningu landsins og menningararf, heldur aðeins sagt frá landi og þjóð undanfama hálfa öld. Hin einhliða mynd er því ekki aðeins vandi Dana og Pakistana innbyrðis. Ljósmynd/Anna Pjóla Gísladóttir LERKISVEPPIR vaxa í lerkiskógum. Myndin er úr bókinni Villtir matsveppir á Islandi. Um 2.000 sveppateg1- undir skráðar hér MÉR dugir alveg að nota ullblekil, furu- og lerkisveppi til matargerðar, sagði Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, dr. í sveppafræðum, þegar blaða- maður sló á þráðinn til hennar. En hún vinnur á Akureyrarsetri Nátt- úrufræðistofnunar íslands, þar sem sveppadeildin er til húsa. Það er frá miðju sumri og fram á haust sem hægt er að tína sveppi. Að sögn Guðríðar er það eftir al- mennilega rigningu sem búast má við að finna sveppi. En þá er hún að tala um þá sveppi sem lifa við rætur tijáa, má þar nefna lerki- sveppinn sem vex við lerkitré, en latneska heitið á honum er suillus grevillei. Guðríður segir að það sé betra að nota latnesku heitin á sveppum, allavegana að nota þau með vegna þess að það er svo stutt síðan þeir fengu íslensk heiti. „Lerki- sveppurinn hefur verið kallaður ler- kisúlungur, lerkisúla og lerkisvepp- ur. Hann er í rauninni ekki eini sveppurinn sem vex í nálægð við lerkið þannig réttast væri að tala um lerkisveppi í fleirtölu. En það er líklegt að hann verði kallaður lerki- súla í framtíðinni." Hún segir að lík- ami sveppsins, sem er ofan í jörð- inni, sé vafinn utan um rætur tijánna. „Þessi líkami ákveður að æxlast og þ:'. koma sveppirnir upp, þessir hattar sem maður kallar sveppi, það eru æxlunarfærin," seg- ir sveppafræðingurinn. Hún segir það borga sig að tína bara þá sveppi sem maður þekkir og aldrei að éta þá sem maður er í vafa um. Það er búið að planta mik- ið af lerkitijám hér á landi og því er mikið af lerkisveppunum. „Ef lerkitrén ná manni orðið í axlarhæð er næstum fullvíst að hægt sé að finna lerkisveppi sem eru gulbrúnir að lit.“ Guðríður segir að best sé að velja þurran dag því það er erfitt að tína sveppi ef þeir eru mjög blaut- ir. „Sveppirnir draga í sig raka eins og svampur og ef þeir eru mjög blautir eru þeir erfiðir í vinnslu." Þegar Guðríður tínir sveppi passar hún sig á að tína unga sveppi því þeir gömlu geta verið maðkaðir og byijaðir að rotna. „Ég sker yfirleitt Nýtt íslenskir fisk- réttir í nýrri bók ICELAND Review hefur gefið út nýja matreiðslubók á ensku sem nefnist Atlantic Gourmet - The Best of Icelandic Seafood. I frétta- tilkynningu frá Iceland Review seg- ir að í bókinni sé að finna uppskrift- ir að íslenskum fískréttum, bæði forréttum og aðalréttum og þær séu aðgengilegar og auðveldar. Bjarni Þór Ólafsson matreiðslumeistari sá um matreiðslu þeirra 25 rétta sem neðan af stilknum á lerkisveppnum þannig að hann sé fagurgulur í sár- ið, neðst getur stilkurinn verið trén- aður og það er ekkert annað en að skera það í burtu þar til maður sér fagurgulan iit. Allar plöntuleifar á sveppnum á að fjarlægja áður en hann er látinn í körfuna. Hnífurinn sem notaður er við sveppatínslu á að vera flugbeyttur, þunnblaða stuttur skrælihnífur." Guðríður segir að það sé nauðsynlegt að tína sveppi í hart ílát og alls ekki plastpoka því þá fara þeir í klessu. Hún segir nauð- synlegt að ganga fljótt frá sveppun- um eftir tínslu því þeir þoli illa geymslu þó svo að þeir séu geymdir á svölum stað. Til að sveppirnir geymist sem best frystir hún þá en það ku vera algengasta og þægilegasta aðferðin, fyrir utan þurrkun. Guðríður hefur sveppina í heilu lagi þangað til hún er tilbúin að sjóða þá. „Ég tek botn- víðan pott og set í hann u.þ.b. dl af vatni eða eins lítið og ég kemst af með og læt það sjóða á meðan ég brytja sveppina í meðalstóra bita og set hæfilegt magn ofan í sjóð- andi vatnið og hræri í. Sveppir eru að langmestu ieyti vatn þannig að þegar þeir fara í vatnið sjúga þeir það í sig. En síðan, þegar þeir fara að hitna, gefa þeir frá sér það vatn sem var í þeim og þá fer að koma ! aukinn vökvi í pottinn. Eftir að suð- i an er komin upp sýð ég sveppina í fimm mínútur og hræri stöðugt í og læt ögn af salti í pottinn.“ Eftir suðuna lætur hún sveppina í skál þar sem þeir eru látnir kólna, síðan eru þeir settir í hæfilegum skömmt- um í frystipoka ásamt safanum, og í frysti þar sem þeir eru tilbúnir í matargerðina. Að sögn Guðríðar eru sveppir ekki bara bragðgóðir heldur virka þeir á meltingarfærin eins og ) trefjar og því er ekki ráðlagt að j hafa meira en ‘A hluta af sveppum í matnum. Einnig segir hún að nauð- 1 synlegt sé fyrir þá sem eru að byija að þreifa sig áfram í sveppatínslu að fara varlega og borða aðeins eina tegund í fyrsta skipti, því það getur hent að fólk hafi ofnæmi fyrir vissum sveppategundum. er að finna í bókinni og Guðmundur ) Ingólfsson tók myndirnar. Anna | Yates þýddi á ensku. Bókin kostar 1.992 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.