Morgunblaðið - 16.08.1997, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 16.. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sala á ótextuðum myndböndum
Synjun við lög-
banni staðfest
Morgunblaðið/Ásdís
YINNUHÚFA lögreglumanna verður svipuð þessari sem Guðrún Jack
lögreglumaður skartar, en á hana vantar borða yfir skyggninu. Til
samanburðar heldur Guðrún á eldra kaskeiti.
Nýr fatnaður lögreglu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur staðfest synjun sýslumanns-
ins í Reykjavík við þeirri kröfu
Skífunnar að lagt verði lögbann á
sölu og hvers kyns dreifmgu fyrir-
tækisins 2001 ehf. á myndböndum
og geisladiskum með kvikmyndun-
um Braveheart og Independence
Day.
Skífan taldi sig með samningi við
bandaríska kvikmyndafyrirtækið
Fox, sem fer með höfundarrétt
kvikmyndanna tveggja, hafa fengið
einkarétt til að gefa þær út hér á
landi á myndbandi, auglýsa þær og
dreifa þeim til leigu- eða söluaðila.
Lfkur að EES takmarki
samninginn
Fyrirtækið 2001 auglýsti þessar
kvikmyndir til kaups á myndbönd-
um og geisladiskum hér á landi án
íslensks texta. Þetta taldi Skífan
ganga gegn samningi sínum við
Fox, sem ætti höfundarrétt að
þessum myndum og geti því eitt
ráðið hvenær verkin koma út á Is-
landi og í hvaða formi.
Dómurinn taldi hins vegar Skíf-
una ekki hafa sýnt fram á að bann
við smásöludreifingu 2001 ehf. yrði
réttlætt með því að vemda þurfi
höfundarrétt Fox, auk þess sem
2001 hafi fært að því nokkrar líkur
að einkaréttarsamningur Skífunnar
og Fox takmarkist af reglum samn-
ingsins um Evrópskt efnahags-
svæði um frjálsa vöruflutninga og
bann við skiptingu markaða.
Einnig sé vafi um innihald einka-
réttarsamnings Skífunnar og Fox
varðandi smásöludreifíngu á kvik-
myndum, með uppmnalegu tali og
án íslensks texta, og vegna þess og
þeirra reglna sem gilda á EÉS þyki
Skífan ekki hafa sannað eða gert
sennilegt að innflutningur 2001 ehf.
og smásala á vegum fyrirtækisins
til einstaklinga á eintökum af þess-
um myndum brjóti gegn lögvörðum
rétti Skífúnnar.
Því þóttu skilyrði til lögbanns
ekki fyrir hendi og var kröfunni
hafnað og Skífan dæmd til að
greiða 2001 ehf. 100 þúsund krónur
í málskostnað.
VERIÐ er að breyta reglugerð um
einkennisfatnað lögreglumanna og
liggja nú fyrir drög sem gert er
ráð fyrir að gefin verði út í næstu
viku. Meðal nýjunga er ný vinnu-
húfa lögreglumanna, ný vinnuföt
og nýjar merkingar á einkennis-
búningum eftir stöðu lögreglu-
manna.
Gísli Guðmundsson, fyrrum yfir-
lögregluþjónn, var formaður nefnd-
ar er samdi reglugerðina en hún á
að ganga í gildi 1. janúar næstkom-
andi. Tíminn fram að því verður
notaður tíl að bjóða út saumaskap á
nýjum einkennisfatnaði.
Nýja vinnuhúfan er derhúfa og
verður borði yfir skyggninu. Þá fá
lögreglumenn ný vinnuföt, úr gore-
tex-efni, sem merkt verða lögregl-
unni. Meðal breytínga sem verða á
einkennisbúningi lögreglumanna
eru merkingar eftír stöðu lög-
reglumanna og er þar um að ræða
m.a. stjörnur og borða í mismun-
andi litum og breiddum.
Menningarnótt
í Reykjavík
Veitinga-
staðir
ekki opnir
lengur
VEITINGASTAÐIR í
Reykjavík verða opnir lengst
til klukkan 3 í nótt, á menn-
ingarnótt borgarinnar.
Að sögn Karls Steinars
Valssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hefur þess mis-
skilnings gætt í fréttum að
veitingastaðimir fengju að
hafa opið lengur á menning-
amóttina. Hann segir að eng-
in leyfi til framlengingar af-
greiðslutíma hafi verið veitt af
lögreglu og að svo muni ekki
verða.
Fylgst grannt með
veitingastöðum
„Lögreglan mun fylgjast
grannt með því að veitinga-
stöðum verði lokað á tilsettum
tíma og í síðasta lagi klukkan
þrjú,“ sagði Karl Steinar.
Umboðsmaður Alþingis 1 máli hjúkrunarfræðinema
LIN braut jafnræðisreglu
Kvikmyndahátíðin
í Haugasundi
Djöflaeyjan
besta nor-
ræna kvik-
myndin
KVIKMYND Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, Djöflaeyjan, hlaut Am-
anda-verðlaunin sem besta norræna
kvikmynd ársins á kvikmyndahátíð-
inni í Haugasundi í Noregi í gær-
kvöldi. Sýnt var beint frá verð-
launaafhendingunni í klukkustund-
arlöngum þætti í
norska sjónvarp-
inu en hátíðin í
Haugasundi er
stærsta kvik-
myndahátíð Nor-
egs.
Ein kvikmynd
er tilnefnd til
verðlaunanna frá
hveiju Norður-
landanna fimm;
Finnlandi, Sví-
þjóð, Noregi, Danmörku og íslandi
og skipar hver þjóð einn fulltrúa í
dómnefndina. Fulltrúi íslands að
þessu sinni var Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti, og var
hún jafnframt formaður nefndar-
innar. Verðlaunin eru auk Amöndu-
styttunnar 50 þúsund norskar krón-
ur eða rúmlega 500 þúsund íslensk-
ar, sem menntamálaráðherra Nor-
egs, Turid Birkeland, aíhenti.
Að sögn Þorfinns Ómarssonar,
framkvæmdastjóra Kvikmynda-
sjóðs, var samkeppnin hörð og
gerðu margir ráð fyrir að norska
myndin Budbringeren eftir Pál
Sletaune myndi vinna, en hún vann
til áhorfendaverðlauna á kvik-
myndahátíðinni í Cannes og hefur
auk þess fengið nokkur önnur al-
þjóðleg verðlaun að undanfómu.
Friðrik Þór var að vonum ánægð-
ur með verðlaunin og sagði þau
mikinn heiður. Hátíðin í Hauga-
sundi væri mikilvæg í norrænu
samhengi og væri þetta raunar í
fyrsta sinn í mörg ár sem íslensk
mynd fengi góða dreifingu á öllum
Norðurlöndunum.
Þetta er ekld í fyrsta sinn sem
kvikmynd eftir Friðrik Þór fær Am-
anda-verðlaunin, því árið 1994 var
mynd hans, Bíódagar, valin besta
norræna kvikmyndin á sömu hátíð.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
beint því til stjómar Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna að taka að
nýju til meðferðar mál hjúkrunar-
fræðinema sem var synjað um
námslán þar sem hún varð ekki ein
af 60 efstu í samkeppnisprófi sem
takmarkar rétt til áframhaldandi
náms í hjúkrunarfræði.
Þrátt fyrir það hafði konan náð
fjómm prófum af fimm, sem sam-
ræmist þeim kröfum sem almennt
eru gerðar til fullnægjandi náms-
framvindu í skólanum og eru þær
að námsmaður megi eiga einu prófi
ólokið til að flytjast milli námsára.
Auk þeirra 60 hjúkrunarfræði-
nema sem urðu efstir á samkeppn-
isprófum hafði stjóm lánasjóðsins
samþykkt lánveitingar til allra
þeirra sem náð höfðu tilskilinni
lágmarkseinkunn í öllum prófunum
fimm þótt þeir stæðust ekki sam-
keppnisprófið en synjað konunni
sem átti einu prófanna ólokið.
Ekki lagaskilyrði
fyrir mismunun
í áliti umboðsmanns Alþingis
segir að bæði í tilviki þeirra sem
náð hafi öllum prófum en ekki ver-
ið meðal hinna 60 efstu og hinna
sem náð hafi fjórum prófum af
fimm strandi framhald náms ein-
ungis á reglum um fjöldatakmark-
anir, en það er álit umboðsmanns
að þessi tilvik eigi að vera sam-
bærileg gagnvart stjórn lánasjóðs-
ins og ekki lagaskilyrði til þess að
ákvarða rétt þeirra nemenda til
námslána eftir ólíkum lagasjónar-
miðum.
„Sá afgerandi munur sem lána-
sjóðurinn hefur gert á stöðu náms-
manna í þessum tilvikum samrým-
ist að mínum dómi ekki jafnræðis-
reglu 11. greinar stjómsýslulaga,“
segir í álitinu.
Varp fugla
tókst vel
EKKI er vitað annað en að varp
fugla hafi tekist vel í sumar þeg-
ar á heildina er litið og ungar
dafnað ekki síður en í meðalári.
Arnór Sigfússon, fuglafræðing-
ur hjá Náttúrufræðistofnun,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að gæsarungar og andarungar
væru vel á sig komnir og ekki
væri vitað annað en sömu sögu
væri að segja um unga mófugla
þótt erfiðara væri að meta það.
Hann sagði að kuldakast í maí
hefði ekki haft áhrif á varpið og
júnímánuður hefði verið hagstæð-
ur fyrir ungana, en helst væri um
að ræða afföll ef kuldakast kæmi
í þeim mánuði.