Morgunblaðið - 16.08.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 16.08.1997, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ í MINNINGU ROKKKÓNGSINS Milljónir aðdáenda Elvis Presleys minnast þess í dag að liðin eru tutt- ugu ár frá því hann lést á heimili sínu Graceland í Memphis. Af því tilefni rifjar Sveinn Guðjónsson upp goðsögnina um rokkkóng- inn og sögusagnir varðandi dauða hans og „eilíft líf'. YFIRSKRIFT þessarar greinar er slagorð sem aðdá- endur rokkkóngsins sáluga, Elvis Presley, flíka gjarnan við há- tíðleg tækifæri og eiga þá vísast við að svo lengi sem tónlist hans lifir muni minning hans aldrei gleymast. Ekki er ástæða til að gera lítið úr því, þótt hitt megi vafalaust draga stórlega í efa að kóngurinn sé enn á lífi, eins og sumir hörðustu Presley- aðdáendur halda fram. Sögusagnir um þetta hafa gengið ljósum logum allar götur frá því Elvis lést og full- yrðingar þess efnis, að honum hafi sést bregða fyrir á hinum ólíkleg- ustu stöðum víða um heim skjóta upp kollinum við og við, sem vita- skuld eru óskhyggja ein. En þessar sögusagnir undirstrika hversu sár söknuður margra varð, þegar þessi ástsæli söngvari lést langt fyrir ald- ur fram, aðeins 42 ára gamall. Raunar er með ólíkindum hversu fersk minningin um Elvis er enn í hugum milljóna manna og má af því draga þá ályktun að líklega hefur Elvis verið vinsælasti skemmti- kraftur, sem uppi hefur verið í heiminum, fyrr og síðar. Einkum eru það Bandaríkjamenn sem gera sér dælt við minninguna um þennan ástsæla þjóðardýrling sinn og að undanfómu hafa þarlend blöð og tímarit birt lærðar greinar um feril hans, og ekki síður óvæntan og „dul- arfullan" dauðdaga, sem bar upp á þennan dag, 16. ágúst, árið 1977. Tilgátur um marð eða sjáifsmarð? Það er fróðlegt að glugga í þessi skrif, þar sem slegið er fram ýmsum tilgátum um hvemig dauða rokkkóngsins bar að höndum, að- dragandann og eftirmál, og sýnist þar sitt hverjum. I einni greininni er því gert skóna að Elvis hafi verið hjálpað yfir móðuna miklu og þar hafi verið að verki bandaríska mafí- an, enda hafi Presley búið yfir v . | hættulegri vitneskju um vafa- — wnilW»W»a««f sama starf- semi glæpasamtakanna. Ber grein þessi yfirskriftina „Þess vegna varð Elvis að deyja", og er skrifuð af þeirri innlifun og sannfæringar- krafti sem bandarískum blaðamönn- um einum er lagið. Önnur grein undir fyrirsögninni „Hver myrti El- vis?“ er í svipuðum dúr og þar full- yrt að hann hafi átt að bera vitni í máli alríkislögreglunnar FBI gegn mafíunni um það leyti sem hann lést svo sviplega. Þar er ennfremur full- yrt að FBI hafi haft undir höndum leynilega skýrslu og sannanir um áætlun um að myrða Elvis, og hafí hann því verið undir sérstöku eftir- liti alríkislögreglunnar. Nokkrir greinahöfunda gefa í skyn að Elvis hafi svipt sig lífi og vitna í stjúpmóður hans, Dee Presley, máli sínu til stuðnings. Er hún sögð hafa látið þau ummæli „leka út“ að Yemon Presley, faðir Elvis sem nú er látinn, hafi sagt sér í trúnaði að Elvis hafi skilið eftir sig bréf þess efnis, að hann væri með ólæknandi krabbamein og gæti ekki hugsað sér að ganga í gegnum kvalafullt dauðastríð sem slíkum sjúkdómi fylgdi. Hann væri betur kominn í gröfinni, við hlið móður sinnar, sem lést er hún var 42 ára, eða á sama aldursári og Elvis var er hann lést. Hin opinbera skýring á dauða El- vis er hins vegar sú að hann hafi lát- ist af völdum hjartaslags. Margir eru þó þeirrar skoðunar að of stórir skammtar lyfja, sem hann notaði að staðaldri, hafi átt sinn þátt í dauða hans. Talið er fullvíst að við krufn- ingu hafi fundist í líkama rokkkóngsins fjölskrúðug blanda af lyfjum, þar á meðal sérlega magn- aður skammtur af codeini. Vitað er að Elvis misnotaði sterk verkjalyf af ýmsu tagi, svo og svefnlyf, róandi lyf og örvandi lyf, og áttu öll þessi Lífs eða liðinn? Sögusagnir um að Elvis væri á lífi og við góða heilsu komust á kreik aðeins nokkrum mánuð- um eftir jarðarförina á herrasetri hans Graceland í Memphis. Á nýársdag 1978 taldi Mike nokkur Joseph sig hafa séð hann á bak við gluggatjöldin, þar sem hann horfði bros- andi á gröfina og fólkið sem þar hafði safnast saman til að votta minningu hans virðingu sína. Á næstu dögum og vik- um gáfu fleiri sig fram, sem höfðu sömu sögu að segja, og síðan fóru að berast tilkynning- ar víðs vegar að úr Bandarfkj- unum frá fólki, sem taldi sig hafa séð Elvis ljóslifandi. Reyndar hafa einnig borist til- kynningar víðar að úr heimin- um þar sem rokkkóngurinn á að hafa skotið upp kollinum. Ósk- hyggja að sjálfsögðu, - eða hvað? Árið 1994 sendi sjálfskipuð rannsóknamefnd, The Presley Commission, frá sér skýrslu þar sem lögð voru rök að því að and- lát Elvis hefði verið sett á svið að undirlagi bandarísku alrfkislög- reglunnar til að forða honum frá morðsam- særi, og hann hefði síð- an farið huldu höfði. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að nefndin var skipuð fólki sem átti það sameiginlegt að vera miklir Presley-aðdáendur og ef til vill hefur það haft sitt að segja varðandi niðurstöðu rannsóknarinnar. Hér verður ekki tekin afstaða til þessa enda verður hver og einn að gera það upp við sjálfan sig hverju hann vill trúa I þessum efnum. fSjBJ 1 M ■r lyf það sanieigin- 3H legt að fást út á lyf- fH seðla frá læknum, en 9 9^ þau geta reynst mönnum n 9 jafnhættuleg og ólögleg 9 eiturlyf, séu þau notuð í ■ óhófi. Krufningsskýrslunni í hefur hins vegar verið haldið H leyndri og var líkami Elvis krufinn ^ undir nafninu „Ethel Moore“ til að ' villa um fyrir þeim sem hugsanlega hefðu áhuga á að hnýsast í skýrsluna. „Hvers vegna var þetta gert?“ spyr einn greinahöfunda og þykir málið allt hið tor- tryggilegasta. Banvænn skammturé9 ELVIS á einum frægustu tónleikum sínum „Aloha From Hawaii“ árið 1972, en þeim var sjónvarpað beint um víða veröld og talið að hundruð milljóna manna hafi horft á. Um lyfjainntöku Presleys síðustu klukku- stundimar fyrir andlátið segir blaðamaðurinn og rithöfundurinn Albert Goldman að Presley hafi fyrst gengið til náða um klukkan hálfsjö um morg- uninn og hafi þá hringt niður eftir svefnlyfjum sín- um. Stjúpbróðir hans, Rickey Stanley, sem var á „vakt“ kom þá upp með nokkrar Dilaudid-töflur, en um klukkan átta vaknaði Ginger Alden, þáverandi lagskona Elvis, við það að hann hringdi niður eftir meiri svefnlyfjum. Rickey kom þá upp með „venjuleg- an“ svefntöfluskammt, þar á meðal Quaalude, Seconal, Tuinal, Amytal, Valium og tvær Demerol-töflur, alls voru þetta átta töflur og banvænn skammtur fyrir venjulega manneskju. „En þetta var skammturinn sem Elvis tók á hverjum einasta morgni áður en hann komst í ró,“ segir Goldman. Elvis mun þó hafa óttast að þessi skammtur dygði ekki því hann varð sér úti um þriðja lyfjaumslagið þennan morgun og í þetta skiptið var það frænka hans Delta Mae, sem færði honum lyfin. Engin vitni eru að athöfnum Elvis eftir að hann tók við lyfjunum, að Ginger undanskilinni, en hún var sofandi og rumskaði aðeins við og við. Hún var hálfsofandi þegar hún varð vör við að Elvis tók sér bók í hönd og hélt í átt til baðherbergisins. „Ég ætla inn á bað- herbergi, djásnið mitt, og lesa stundarkorn," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.