Morgunblaðið - 16.08.1997, Side 24
24 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 ' j|!j|| MORGUNBLAÐIÐ
M
yj.li
Einfaldur
stíll ag
þraut-
hugsaður
Persónulegir hlutir hertogahjónanna frá
Windsor verða boðnir upp hjá Sotheby's í
New York dagana 11.-19. september næst-
komandi. Sigríður Ingvarsdóttir fjallar hér
um „ástarævintýri aldarinnar“, konuna sem
þar var í aðalhlutverki og þá fágætu muni
sem um er að ræða á uppboðinu.
þeirra Wallis Simpson og prinsins af
Wales bar fyrst saman árið 1932,
þegar Simpson hjónunum var boðið
á sveitasetur hans. Fram til þessa
hafði þessi kona látið lítið á sér bera
og enginn mun hafa óttast hana sem
keppinaut bresku krúnunnar. Ceeil
Beaton, frægasti ljósmyndari á
þessari öld, fannst ekki mikið til um
fegurð hennar þegar hann hitti hana
í Lundúnum 1930. „Hún hafði há-
væra og skræka rödd og hafði útlit
bamfóstru." í kyrrþey tókst Wallis
að vinna ást og trúnað prinsins.
Simpson hjónin gerðust nú tíðir
gestir í samkvæmum prinsins af
Wales. I salarkynnum hans hitti
Wallis margt af því fólki, sem taldist
blóminn af veraldlegri yfirstétt
Lundúna. Þótt Wallis væri ekki tal-
in tiltakanlega gáfuð hafði hún aðra
eiginleika sem nýttust henni jafnvel
betur, hún var hyggin og gædd vak-
andi athygli.
TilBÍnkaði sér
nýjan lífsstíi
Wallis kom snemma auga á að
margt mátti af þessu fólki læra.
Hún tileinkaði sér lífsstíl heldra
fólksins, samkvæmi þeirra, klæðnað
og samræðulist. Hún byrjaði að
lækka röddina og réð til sín besta
matreiðslumann í Lundúnum.
ASTARÆVINTÝRI hertog-
ans og hertogaynjunnar af
Windsor er án efa söguleg-
asta ástarsaga aldarinnar. Vafalaust
hefur fátt á þessari öld orðið bresku
þjóðinni slík hneykslunarhella sem
það þegar Játvarður VIII Bret-
landskonungur tilkynnti þegnum
sínum í desember árið 1936 að hann
mundi afsala sér konungdómi til að
kvænast konunni sem hann elskaði.
Lengst af þögðu bresk blöð um
málið þótt samband konungs og
Wallis Simpson væri á allra vitorði.
Það lá hins vegar Ijóst fyrir að bres-
ekki borin til mikilla metorða er hún
fæddist í Baltimore árið 1896. í
skóla þótti hún fremur ófélagslynd
og fór ekki alfaraleið, en hún var
viljasterk, þrjósk, sjálfstæð og
framagjörn. Eiginleikar sem komu
henni í góðar þarfir í því framandi
umhverfi sem hún átti síðar eftir að
ala aldur sinn í. Tvítug að aldri gift-
ist hún Earl Spencer, drykkfelldum
flugmanni úr bandaríska flughem-
um. Hjónabandið varð ekki farsælt
og skildu þau eftir nokkur ár. Hún
giftist síðan Emest Simpson, kaup-
sýslumanni, árið 1928. Fundum
ka þjóðin myndi aldrei samþykkja
að Játvarður konungur, sem var
æðsti maður kirkjunnar, kvæntist
tvífráskilinni bandarískri konu.
Þegar bresk blöð rufu þögn sína,
átti konungur um tvo kosti að velja.
Segja skilið við konuna sem átti hug
hans og hjarta eða afsala sér kon-
ungdómi.
Hver var Wallis
Simpsan?
Játvarður hafði verið konungur í
325 daga þegar hann sagði af sér.
Hann fékk þá nafnbótina hertoginn
af Windsor og fór strax í útlegð og
kom aldrei til Bretlands eftir það,
nema í stuttar heimsóknir. Hertoga-
hjónin voru gefin saman í Frakk-
landi í júní árið 1937. Þau settust að
í Frakklandi og bjuggu þar, þar til
heimsstyrjöldin braust út. Um tíma
létu hertogahjónin glepjast af áróðri
Hitlers, en minnstu munaði að þau
brennndu sig illa á því tiltæki. Þau
vom sökuð um að hafa gælt við þá
hugmynd að snúa aftur til Bretlands
sem konungshjón þegar Þjóðverjar
sigraðu í stríðinu. Arið 1940 var her-
toginn skipaður landstjóri Breta á
Bahamaeyjum, en breska stjómin
vildi koma í veg fyrir að þau féllu í
hendur Þjóðverja.
Bessie Wallis Warfield virtist
Glæsileg kvöldverðarboð
hennar í London voru fræg
þar sem hún bauð fáeinum
útvöldum vinum og þótti
glæsilegur gestgjafi. Hún
kunni þá list að fitja upp á
áhugaverðu umræðuefni
þar sem gestir hennar nutu
sín til fulls. Hún átti gott
með að hlusta á aðra, brást
við athugasemdum þeirra
og virtist hafa áhuga á því
sem sagt var við hana. Þeg-
ar Ceeil Beaton hitti hana
aftur 1934 tók hann eftir
breytingum í fari hennar:
„Hún var skemmtileg í við-
ræðum og hafði ágæta
kímnigáfu, öraggan og fág-
aðan smekk.“
Eftir að hún giftist her-
toganum virtist tími hennar
fara í það að snúast í kring-
um hertogann, versla og
annast dagleg skylduverk á
heimili þeirra, þótt hún réði
yfir 18 manna þjónustuliði.
Hún krafðist þess að skipt
væri á rúmunum tvisvar á
dag. Skipt var um bað-
þurrkur og handklæði
þrisvar á dag og sömuleiðis
var skipt um munnþurrkur
tvisvar sinnum undir hverri
máltíð. Á daginn hafði hún
Q LJÓSMYND af Wallis Simp-
son og hertoganum af
Windsor. Myndin var tekin
daginn fyrir brúðkaup þeirra af
Cecil Beaton. Mat á Ijósmyndum
í kringum brúðkaup þeirra er frá
8.000 tii 12.000 doiiurum.
ANDDYRIÐ á heimiii hertogahjón-
anna f Parfs.
MÁLVERK eftir Sir Alfred Munn-
ings. Prínsinn af Wales frá 1921.
Olfa á striga, 138x186 cm. Mat
600.000-800.000 dollarar.
BÓKAHERBERGI hertogahjónanna f
Parfs. Málverkið er af hertogaynjunni
eftir Gerald Leslie Brochurst frá 1939
Olfa á striga, 101x81 em. Mat
70.000-90.000 dollarar.
DAGSTOFAN á helmlli þeirra í Parls.
Skrifborðið er það sem hertoginn not
aði þegar hann afsalaði sér konung-
dóml. Borðlð er frá 1755 f stil Ge-
orgs 3., úr mahóní.
NOKKRAR af fiíkum hertogans sem
verða á uppboðinu.
BLÁR kvöldkjóll eftir Christian
Dior, franskur, haust/vetur
1948-9 Mat 10.000-15.000 doll-
arar.
Q