Morgunblaðið - 16.08.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MININIIIMGAR
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 43
f
F.h. stjórnar Kaupfélags Stöð-
firðinga,
Bjarni Gíslason.
Þegar ég var yngri voru helstu
áhyggjur mínar tengdar dauðanum
þær að ef ég myndi deyja fyrir ald-
ur fram biði mín enginn í himnaríki
þar sem enginn mér nákominn hafði
I dáið. Þar til í síðustu viku hafði ég
verið svo gæfusöm að svo var enn.
Það var svo á tuttugasta og fjórða
I afmælisdeginum mínum að elskulegi
* afí minn kvaddi þennan heim og
hélt til himna.
„Afí fyrir austan“ eins og við
systkinin kölluðum hann, var eins
og góðu, vitru gömlu mennirnir í
sögubókunum. Eg segi gömlu því
að allt frá fyrstu minningu minni
um hann til þeirrar síðustu fínnst
Imér hann alltaf hafa verið eins.
Útitekinn, hvíthærður, góðlegur full-
orðinn maður sem hafði ákveðna
„afalykt". Lykt sem táknaði í mínum
huga ást, góðvild og umhyggju. Ég
fínn hana enn sterkt er ég hugsa
til allra þeirra skipta sem hann kom
og klappaði mér á höfuðið, kyssti
mig á ennið og sagði að hann sæi
það í augunum á mér að ég væri
góð og falleg. Ég veit að honum
fannst það því afí var svo einlægur
| að hann talaði aldrei nema beint frá
hjartanu og það góður að hann sá
það besta í hvetjum og einum.
Ég spurði afa einhvern timann
þegar ég var lítil hvers vegna fólk
fengi hrukkur og hann sagði það
vera ör sálarinnar. Allt það sem fólk
tækist á í lífínu mætti lesa af and-
liti þess. Ég man hversu oft við
vorum inni í heitu eldhúsinu á Hóli,
við afí nýbúin að gefa hænunum,
og hann kominn inn til að fá sér
kaffí. Hann sat með augun lygnd
aftur meðan hann hlustaði á veður-
* fréttimar og ég sat á móti honum
og reyndi að ímynda mér hvaða
saga lægi á bak við hveija línu í
andliti hans. Oft reyndi ekki á
ímyndunaraflið því afí var mikill
sögumaður. Hann sagði okkur
krökkunum ótrúlegar sögur sem
oftar en ekki höfðu einhvern boð-
skap. Eftir því sem við urðum eldri
tóku sögurnar nýtt form, sem og
boðskapurinn. Þegar ég varð táning-
ur fór hann að spyija mig hvort ég
? ætlaði nú nokkuð að fara að binda
mig svona ung, en ef ég ætlaði mér
það ætti ég að velja með hjartanu
en ekki augunum, því öllu skipti að
maðurinn hefði gott hjartalag. Hann
sagði það best að bíða eftir þeim
eina rétta, enda hefði hann gert það
og fengið bestu konu í heimi sem
hann elskaði ávallt jafnheitt. Það sá
maður greinilega því hann var sí-
fellt að hrósa ömmu og dásama.
Afí hafði unun af því að vera úti
Ií náttúrunni og þá sérstaklega fyrir
austan á staðnum sem hann elskaði.
Ég sá hann jafnvel eitt sinn tárast
þegar við keyrðum inn fjörðinn eftir
að hann hafði verið fyrir sunnan.
Hann elskaði sjóinn og fyöllin sem
umluktu fjörðinn. Það var ávallt mik-
il tilhlökkun að fara austur um sum-
arið og þá ekki síst að fara í steinale-
g it með afa upp á fjall eða fyrir Bjöm
Frey að fara með honum í fuglaskoð-
un og niður í fjöru að leita eftir gler-
g brotum sem sjórinn hafði mótað.
■ Hlutir sem mér fannst ósköp smá-
vægilegir, eins og brúni frakkinn
hans afa og svarta húfan, pírðu góð-
legu augun hans, göngulagið og
hvemig hann strauk á sér skeggið
verða núna mikilvæg atriði sem toga
aftur og aftur í allar þær góðu minn-
ingar sem ég og bræður mínir eigum
g um afa. Minningar og sögur sem
■ eiga eftir að fylgja okkur það sem
eftir er.
Afi sagði alltaf að ágúst væri
besti mánuður ársins. Þá væri birt-
an fallegust, berin kæmu og það
væri besti tíminn til að ganga á
fjöll. Þennan ágústmánuð hafði afi
ekki þrek til að gera það sem hon-
um þótti svo vænt um. Því er það
gott að hann fékk að fara þangað
sem honum líður betur. Þar sem
<jj hann getur gengið upp á hæstu
fjallstinda, tínt öll þau ber sem
hann vill og horft yfír sjóinn og
okkur öll sem minnumst hans.
Hildur Björg.
Borg’arskák-
mótíð á mánudag
skák
Ráöhús
Reykjavíkur
BORGARSKÁKMÓT 1997
Borgarskákmótið 1997 verður
haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur á af-
mælisdegi borgarinnar mánudag-
inn 18. ágúst. Mótið hefst kl. 15:00.
Á HINU árlega vinsæla
Borgarskákmóti eru tefldar sjö
umferðir og er umhugsunartíminn
7 mínútur á skákina.
Eins og í fyrra mun borgar-
stjórinn í Reykjavík, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, leika fyrsta
leiknum á mótinu.
Fyrsta Borgarskákmótið var
haldið á 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar árið 1986 og hefur
verið haldið á hveiju ári síðan og
er þetta því í 12. skipti sem mót-
ið fer fram. í fyrra tóku 84 skák-
menn þátt í mótinu, þar á meðal
flestir sterkustu skákmenn lands-
ins.
Tefidar eru 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi og umhugsunar-
tími er 7 mínútur á skák. Þátt-
taka í mótinu er ókeypis og áhorf-
endur eru velkomnir.
Keppt er um farandbikar, sem
Reykjavíkurborg gaf til keppninn-
ar. Auk þess eru peningaverðlaun
fyrir þijú efstu sætin. Fyrstu verð-
laun eru kr. 12.000, önnur verð-
laun kr. 7.000 og þriðju verðlaun
kr. 5.000. í fyrra sigruðu íslensk-
ir aðalverktakar á mótinu, en
Hannes Hlífar Stefánsson tefldi
fyrir þeirra hönd.
Rétt er að vekja athygli á því
að fjöldi þátttakenda er tak-
markaður og þeir sem skrá sig
fyrst ganga fyrir með þátttöku.
Daði Örn Jónsson (sími
557-7805) og Ríkharður Sveins-
son (sími 568-2990) taka við
skráningu þátttakenda í síma.
Eins og undanfarin ár halda
Taflfélag Reykjavíkur og Taflfé-
lagið Hellir mótið í sameiningu.
Alþjóðaskákmót Hellis
Taflfélagið Hellir hefur ákveðið
að efna til alþjóðlegs skákmóts í
haust. Mótið hefst föstudaginn
24. október. Tefldar verðar 9
umferðir, ein umferð á dag, þann-
ig að mótinu lýkur laugardaginn
1. nóvember. Mótið verður öllum
opið. Reiknað er með að 6 stór-
meistarar taki þátt í mótinu auk
6-8 alþjóðlegra meistara. Mótið
ætti því að bjóða upp á kjörið
tækifæri til þess að ná alþjóðleg-
um titiláföngum.
Þátttökugjöld í mótinu ráðast
af alþjóðlegum skákstigum. Fé-
lagsmenn Hellis fá sérstakan af-
slátt frá þátttökugjöldum. Þátt-
tökugjöld verða eftirfarandi (Þátt-
tökugjöld utanfélagsmanna eru
sýnd innan sviga)
Yfir 2300 stig: Ókeypis (5.000)
2205-2300 stig: kr. 3.000 (8.000)
2105-2200 stig: kr. 6.000
(12.000)
2000-2100 stig: kr. 9.000
(15.000)
Stigalausir: kr. 12.000 (20.000)
Islenskir skákmenn þurfa yfir-
leitt að leita til útlanda eftir mót-
um af þessu tagi, með öllum þeim
kostnaði sem því fylgir. Hér gefst
þeim því kostur á að ná titilá-
fanga, eða fá alþjóðleg skákstig,
með mun minni kostnaði en fylgir
þátttöku í erlendu móti.
Þeir sem greiða þátttökugjaldið
fyrir 15. september fá 2.000
króna afslátt. Skráningarfrestur
rennur út 10. október.
Miðað við þátttökuna í fyrsta
alþjóðlega Hellismótinu árið 1993
má búast við að töluverðir mögu-
leikar verði á titiláföngum. Þá
eiga skákmenn sem ekki eru með
alþjóðleg skákstig, en náð hafa
styrkleika upp á u.þ.b. 2.000 stig,
einnig góða von til þess að kom-
ast á hinn alþjóðlega stigalista
FIDE.
Hraðskákkeppni taflfélaga á
Suðvesturlandi
Hraðskákkeppni taflfélaga á
Suðvesturlandi er nú haldin í
þriðja sinn. Átta félög taka þátt
í keppninni, sem er útsláttar-
keppni. Fyrstu umferð er nú lokið
og var hún afar spennandi. I
tveimur af fjórum viðureignunum
ultu úrslitin á einni skák. Fyrir-
komulag keppninnar er þannig
að hvert lið er skipað sex skák-
mönnum og eru tefldar tvær skák-
ir með 5 mínútna umhugsunar-
tíma við hvern liðsmann andstæð-
inganna. Heildarfjöldi skáka í
hverri viðureign er því 72 og það
lið kemst áfram, sem hlýtur fleiri
vinninga. Það er Taflfélagið Hell-
ir sem stendur fyrir þessari
keppni.
Taflfélagið Hellir sigraði í
keppninni í fyrra eftir að hafa
slegið Taflfélag Reykjavíkur út í
fyrstu umferð með minnsta mun,
37 vinningum gegn 35. Heilladís-
irnar snerust hins vegar á sveif
með TR að þessu sinni og lokatöl-
urnar urðu þær sömu og í fyrra,
en nú TR í vil. Eftir fyrstu umferð-
irnar í viðureign þessara sterkustu
félaga landsins var allt útlit fyrir
stórsigur Hellis. Smám saman
náði TR þó að saxa á forskotið
og sigra í viðureigninni. Hvorugt
félagið náði að stilla upp sínu
sterkasta liði.
Viðureign Skákfélags Hafnar-
fjarðar og Taflfélags Kópavogs
var ekki síður spennandi. Reyndar
þróaðist hún mjög svipað og hjá
Helli og TR. Hafnfirðingar fóru
vel af stað, en misstu smám sam-
an niður forystuna í seinni hlutan-
um og töpuðu að lokum með
minnsta mun.
Hinar tvær viðureignirnar í
fyrstu umferð voru ekki jafn-
spennandi. Skákfélag Selfoss
sigraði Taflfélag Akraness með
42 vinningum gegn 30 og Taflfé-
lag Garðabæjar sigraði Skákfélag
Keflavíkur með 45 vinningum
gegn 27.
A fimmtudaginn var síðan
dregið í aðra umferð keppninnar.
Þá keppir Taflfélag Garðabæjar
við Taflfélag Reykjavíkur og
Skákfélag Selfoss_ við Taflfélag
Kópavogs. Það er Ólafur Ásgríms-
son, alþjóðlegur skákdómari, sem
hafði umsjón með drættinum, en
hann er jafnframt úrskurðaraðili
í deilumálum, sem upp kunna að
koma í keppninni.
Bolvíkingar leggja ísfirðinga
Þann 29. júní fór fram bæjar-
keppni í skák milli Bolungarvíkur
og ísafjarðarbæjar. Bolvíkingar
skoruðu ísfirðinga á hólm og var
teflt í sjómannastofu Bolungar-
víkur. Sveitir liðanna voru skipað-
ar sex einstaklingum og voru þeir
eftirfarandi:
Bolungarvík: Daði Guðmundsson,
Falur Þorkelsson, Guðmundur Einars-
son, Guðmundur M. Daðason, Magnús
Siguijónsson og Unnsteinn Sigurjóns-
son.
ísafjarðarbær: Einar Garðar Hjalta-
son, Hlynur Þór Magnússon, Jakob
Thorarensen, Ólafur Thorarensen,
Smári Haraldsson og Sigurður Ólafs-
son.
Fyrirkomulagið var þannig að
teflt var á sex borðum og tefldu
allir við alla, þ.e. sex umferðir
samtals. Umhugsunartíminn var
10 mínútur á mann. Bolvíkingar
náðu strax öruggri forystu sem
þeir juku jafnt og þétt allt til loka
og sigruðu að lokum með 26 vinn-
ingum gegn 10 vinningum ísa-
íjarðarbæjar. í lið ísfírðinga vant-
aði nokkra af þeirra sterkustu
skákmönnum en minna var um
afföll í liði Bolvíkinga. Eftir tafl-
rnennskuna sögðu Smári og Daði
nokkur orð og þökkuðu þeir
drengilega keppni fyrir hönd
sinna liða. Vonandi verður þessi
óformlega bæjarkeppni upphafið
á öflugra skáklífi vestur á fjörðum
en verið hefur síðastliðin ár. ís-
firðingar hafa þegar boðið Bolvík-
ingum í heimsókn og næsta skref
er að efla unglingastarfið með
haustinu.
Helgi Ólafsson
í 2.-4. sæti
Fyrir síðustu umferð á alþjóð-
lega mótinu í Stokkhólmi er Eist-
inn Mikhail Rytsjagov efstur með
7 72 v. af 10 mögulegum. Helgi
Ólafsson kemur næstur með sjö
vinninga ásamt þeim Tarvo See-
man, Eistlandi og Rússanum
Evgení Agrest, sem býr í Sví-
þjóð. Svíarnir Lars Karlsson og
Ralf Ákesson 672 v. eru í 5.-6.
sæti, Helgi tapaði í tíundu og
næstsíðustu umferð fyrir John-
Paul Wallace frá Ástralíu, sem
vann þar fyrstu skák sína á mót-
inu. I síðustu umferðinni tefla
Helgi og Ákesson en Rytsjagov
mætir Svíanum Patrick Lyrberg
sem hefur hlotið 3 'U v.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
hefur staðið sig vel á stóra opna
mótinu í Berlín og er með þrjá
vinninga eftir fimm umferðir.
M.a. hafði Guðfríður lagt að velli
þýskan skákmann með 2.100
stig.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
+
Faðir minn, bróðir okkar og mágur,
GÍSLI KRISTINN GUÐBRANDSSON,
skipstjóri,
Laugateig 10,
sem andaðist á heimili sínu 12. ágúst, verður
jarðsettur frá Fossvogskirkju mánudaginn
18. ágúst kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Sverrir Gíslason,
Guðbjörg H. Guðbrandsdóttir,
Hrafnhildur Guðbrandsdóttir,
Þorbjörg Jósefsdóttir,
Gunnar Pétursson,
Gunnar Richardson,
Þórarinn Óskarsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ARINBJARNAR STEINDÓRSSONAR.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
hjartadeildar Landspítalans.
Steinunn Jónsdóttir,
Kristján Arinbjarnarson, Inger Persson
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem auðsýndu samúð og vinarhug við
andlát og útför
PÁLMA JÓHANNSSONAR,
Odda,
Dalvík,
og vottuðu minningu hans virðingu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Flornbrekku í Ólafsfirði og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lilja Hannesdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærrar systur
minnar og móðursystur okkar,
SOFFÍU VIGFÚSDÓTTUR,
Austurbrún 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á
deild 14G og 11E á Landspítalanum fyrir frá-
bæra hjúkrun og umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Marta Holdo, Inga Holdo,
Borghild Inger Steingrímsdóttir.
J