Morgunblaðið - 16.08.1997, Side 44

Morgunblaðið - 16.08.1997, Side 44
44 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ UOSID I MMX Intel ÖRGJÖRVI Gronsásvegi 3 • Sími 588 5900 • www.bttoivur.is TARGA • 2560 MB Quantum harður diskur • 15" TARGA hágæða skjár • ATI Mach 2 MB skjákort • 16 hraða geisladrif • Sound Blaster 32 hljóðkort • 120W hátalarar • Windows 95 • Auk þess fylgja með Lon og Don 6 íslenskir leikir, Intemetkynning hjá Xnet og 50% afsláttur af einu tölvu- námskeiði hjá Xnet 32 Mb ^^■UMINNI + Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, teng- daföður, afa og langafa, MAGNÚSAR INGVARSSONAR frá Minna-Hofi, Heiðvangi 13, Hellu. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheim- ilisins Lundar. Ingvar Magnússon, Svanlaug Adolfsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Hilmar Eysteinsson, Guðrún Magnúsdóttir, Már Adolfsson, Sigurður Mangússon, Arndís Sveinsdóttir, Þorgeir Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför EINARS GUÐBRANDSSONAR, Álftalandi 7, Reykjavík. Erna Egilsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Skúli Már Sigurðsson, Kristín Einarsdóttir, Ingvar Helgi Jakobsson, Sigurbjörg Einarsdóttir, Erna Einarsdótttir, Sighvatur Sturla Jónsson og barnabörn. t Þökkum öllum þeim er sýndu samúð og virðingu við andlát SIGTRYGGS G. SÍMONARSONAR fyrrverandi mjóikurbílstjóra, Norðurgötu 34, Akureyri. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Kristnesspítala og Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Hrafnhildur Aðalsteinsdóttir. Heimsmeistaramótið í Seljord Tími kynbótasýn- inganna á enda? KOLFINNA frá Egilsstöðum kom vel fyrir á sýningu enda stóð hún efst í sínum flokki, knapi er Styrmir Árnason. BREKI frá Eyrarbakka hafði betur á móti danska hestinum Feyki frá Sötofte, knapi á Breka er Angantýr Þórðarson. DÓMARARNIR sem hér meta sköpulag Feykis frá Sötofte þóttu frekar strangir en þeir sögðu á móti að flest hrossin hefðu ekki komið vel fyrir og sum þeirra afspyrnu léleg. Þórð- ur Jónsson sem sýndi Feyki heldur í hestinn. HESTAR Scljord í Norcgi KYNBÓTASÝNING Á HEIMSMEISTARAMÓTI FRAMTÍÐ kynbótasýninga á heimsmeistaramótunum virðist í uppnámi eftir mótið í Seljord án þess þó að þar hafi gengið svo mikið á umfram það venjulega að þjóðveijar eru alltaf hundóá- nægðir og á skjön við önnur aðild- arlönd FEIF. Tilgangur með kyn- bótasýningum á HM er sá fyrst og fremst að kynna það sem aðild- arlöndin eru að rækta. Oftsinnis hafa orðið harðar deilur út af dómum á þessum vettvangi. Það er alkunna að Þjóðveijar gefa kynbótahrossum mun hærri ein- kunnir en aðrar þjóðir innan sam- takanna og þegar hrossin þeirra koma í samanburð kemur mis- ræmið vel í ljós. Strangir dómar innan marka Dómararnir þóttu strangir á HM að þessu sinni sem er út af fyrir sig viðeigandi ef ekki er gengið of langt en svo virðist ekki hafa verið gert nú, hefur líklega verið á mörkunum. Þjóðveijar töluðu um skrípaleik og virðast hættir að svekkja sig á þessari vitleysu sem þeir telja dómana vera og reyna bara að hafa gaman af. Hins ber að gæta að ekki eru allir Þjóðveijar þessarar skoðunar og telja margir þeirra sig skynja að dómarnir í Þýskalandi séu ekki í takt við það sem gerist í öðrum löndum. Spyija má sig að því hvaða tilgangur sé í því að gefa háar einkunnir. Vissulega lítur það vel út á papp- ímum og getur vafalaust liðkað fyrir sölu á hrossum en þegar kem- ur að samanburði við önnur lönd eru menn fyrst og fremst að svíkja sjálfa sig og það hafa Þjóðveijar gert í ríkum mæli meðal annars með rýmilegum fótabúnaðarregl- um. Minnkandi áhugi fyrir kynbótadómum á HM Áhugi mótsgesta á heims- meistaramótum á kynbótasýning- um virðist frekar blendinn og ekki hægt að nota sæmilega þéttsetna áhorfendabekki í upphafi móts sem staðfestingu á vinsældum því þá var ekkert annað við að vera á mótsstað. Nær væri að nota sýningu á hrossunum á laugardag þegar kynbótahrossin voru sýnd og dagskrá var komin í fullan gang. Þá brá svo við að snarfækk- aði í áhorfendastúkunni. Saman- borið við kynbótasýningar á ís- landi eru sýningar heimsmeistara- mótanna hvorki fugl né fiskur. Annað sem er órækt vitni um áhugaleysi er lítil þátttaka í þess- um þætti mótsins. Hvert land mátti senda átta hross, aðeins tvær þjóðir, Þjóðveijar og Islend- ingar senda fullt lið. Meira að segja gestgjafarnir, Norðmenn, senda aðeins tvö hross. Þá senda þjóðirnar afspyrnuléleg hross inn- an um sem ekkert erindi eiga á svona sýningu. Lægsta aðalein- kunnin nú var 7,23 og ein upp á 7,28. Tvö hross voru með 7,23 og eitt með 7,25 fyrir sköpulag. Og lægsta hæfileikaeinkunnin upp á heila 6,91. Fyrir íslendinga hefur þessi þáttur mótsins litla þýðingu aðra en þá að svekkja vini okkar innan FEIF og þá kannski helst Þjóð- veija og það er ekki göfugur til- gangur. Ljóst má öllum vera að ef Islendingar sendu alltaf kyn- bótahross í fremstu röð miðað við íslenska gæðaflokkun væru alltaf sex til átta gull trygg og engin spenna í leiknum. Svo er það ann- að, þessi ágætu hross sem send eru utan í þessum tilgangi nýtast ekki til frekari afreka í ræktun á íslandi. Kynbótahrossin út - fleiri gæðingar inn Hugmyndir voru settar fram á mótsstað um að best væri að flauta kynbótahrossin útaf þessum vettvangi og fjölga frekar þeim hestum sem fá að keppa á mótun- um. Væri hægt að hafa það hesta í háum gæðaflokki og væri til dæmis hægt að nota afrekslistann sem gefinn er út reglulega við val á þeim. Eða þá að þeim þjóðum, sem stóðu sig best á síðasta móti, yrði úthlutað aukasætum eftir ein- hverri reikningsreglu sem sátt væri um. Er hiklaust hægt að taka undir hugmyndir í þessa átt því mikilvægt er að menn séu fljótir að átta sig á þvi hvað er vinsælt og hvað ekki og vera fljótir að henda því út sem ekki er ofarlega á vinsældarlista fólks. En svo vikið sé að hrossunum sem komu fram á mótinu fer best að byija á eina hrossinu sem efst stóð og ekki var frá íslandi, Rimmu frá Schloss Neubronn en ræktandi er sá kunni íslandsvinur Heidi Schwörer. Rimma er undan einhveijum Gusti sem ekki eru frekari upplýsingar um í skrá og Rúnu frá Egg sem margir kann- ast við frá HM í Hollandi ’93 en þar stóð hún efst í kynbótadómum. Tengdasonur Heidi, Thomas Haag, sýndi hryssuna og voru menn almennt sáttir við þessa hryssu efsta í sínum flokki. Bar hún af, sérstaklega hvað varðar hæfileika, en með 7,90 fyrir sköpulag. Hlaut hún 8,23 fyrir hæfileika, hæst fyrir skeið 9,0 og 8,07 sem er 0,28 lægri einkunn en hún hafði fengið í Þýskalandi. íslenska hryssan Viðja frá Síðu var mun lakari en hún hafði verið á íslandi hlaut nú 7,98, lækkaði um 0,22, Kristján Kristjónsson sýndi hana. Kolfinna frá Egilsstöð- um var án efa eitt glæsilegasta hross sýningarinnar að sjá á velli. Hún hlaut hinsvegar ekki nema 7,92 sem er ansi klént, 8,11 fyrir hæfileika pg 7,73 fyrir sköpulag. Þota frá Árgerði var líklega eina hrossið sem hækkar í einkunn en hún er undan Orra frá Þúfu. Hlaut nú í einkunn 8,15 og stóð efst af fímm vetra hryssum. Knapi var Gísli Gíslason. íslensku stóðhestarnir gerðu það gott, voru allir efstir og tveir þeirra langefstir. Breki frá Eyrarbakka sem Angantýr Þórðarson sýndi hafði þriggja kommu vinning á Feyki frá Sötofte en Fengur frá íbishóli sem Jóhann R. Skúlason sýndi og Glaður frá Hólabaki sem Sigurður Matthíassson sýndi báru höfuð og herðar yfír keppinautana. Um aðrar niðurstöður vísast til þriðjudagsblaðsins 12. ágúst þar sem öll heildarúrslit mótsins birtust. Valdimar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.