Morgunblaðið - 21.08.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.08.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Sáttanefnd um lífeyrisfrumvarp fjármálaráðherra Ovíst hvort samkomu- lag næst fyrir haustið Stjórn Náttúru- verndar ríkisins Gosi með hjálp sápu hafnað STJÓRN Náttúruverndar ríkisins hafnaði því að sápa yrði notuð til að franikalla Geysisgos á fundi sínum í gær. Samþykkt var að ráðast í rannsóknir af tvennu tagi og hefjast þær í haust. Aðalheiður Jóhannsdóttir, for- stjóri Náttúruverndar ríkisins, sagði að annars vegar yrði kann- að hversu mikið þurfi að lækka yfirborðið til að Geysir skvetti úr sér eða gjósi. „Hins vegar verða skoðaðar skemmdir á kísilyfir- borðinu, orsakir þeirra og leiðir til að gera við stærstu skemmd- irnar,“ segir hún. Ekki fjallað um borun Hún segir að í fyrri rannsókn- inni verði dæling notuð til að lækka yfirborð hversins og ná fram áðurgreindum áhrifum. Dælingin eigi ekki að breyta hvernum. Eftir að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir verði tekin ákvörðun um hvort dælingin verði notuð í framtíðinni. Stjórnin samþykkti að leita leiða til að vernda Geysi sem gos- hver og ekki var fjallað um þann möguleika að bora í hverinn. Ekki er talið rétt að leyfa sápugos þar sem framköllun á slíku gosi muni hafa í för með sér skemmdir á skálinni og vegna þess að ekki sé ljóst hvaða áhrif slík gos hafi á lífríki svæðisins. NEFND sem falið var að yfirfara drög að frumvarpi fjármálaráð- herra um skyldutryggingu lífeyris- réttinda og starfsemi lífeyrissjóða hefur haldið fundi regiulega að undanförnu en enn er þó ekki far- ið að reyna á hvort samkomulag næst um þau atriði sem ágreining- ur hefur verið um, skv. upplýsing- um Vilhjálms Egilssonar, alþingis- manns og formanns nefndarinnar. Vegna mikils ágreinings á Al- þingi um lífeyrissjóðafrumvarpið í vor og gagnrýni samtaka almenna vinnumarkaðarins ákvað ríkis- stjórnin að fresta afgreiðslu frum- varpsins til hausts og fela nefnd með aðild fulltrúa ASí og VSÍ, sem fjármálaráðherra skipaði, að fara yfir efni þess í sumar til þess að freista þess_ að skapa um það meiri sátt. í nefndinni eru Vil- hjálmur Egilsson, alþingismaður, sem jafnframt er formaður nefnd- arinnar, Baldur Guðlaugsson hrl., Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, Steingrímur A. Arason, aðstoðar- maður ráðherra, Þórarinn V. Þór- arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- Iagsins, og Örn Gústafsson, við- skiptafræðingur. Taka á fleiri þáttum og einfalda framsetninguna Nefndinni var ætlað að skila niðurstöðum sínum fyrir 15. sept- ember nk. og er stefnt að því að frumvarp verði afgreitt fyrir næstu áramót. Vilhjálmur Egils- son segir nefndina hafa farið ræki- lega yfir frumvarpið. „Það er ver- ið að reyna að taka á fleiri þáttum en var gert í vor og einfalda fram- setninguna. Það er hins vegar ekki farið að sjá fyrir endann á starfinu,“ segir hann. Vilhjálmur segir alls óvíst hvort takist að ljúka starfinu fyrir miðjan september og vill ekkett ræða hversu miklar breytingar kunni að verða gerðar. Hann segir ekki sjálfgefið að tak- ist að ná sameiginlegri niðurstöðu í nefndinni. „Efnisleg umræða hefur verið afskaplega lítil enn sem komið er,“ segir Grétar Þorsteinsson. „Við eigum að skila fyrir 15. sept- ember en reyndar er það viðhorf allra að hvað sem öðru líður og hvernig sem þessu máli reiðir af þá þurfum við allan september í þessa vinnu,“ segir hann. Grétar segir enn ekki unnt að meta hvort líkur séu á að samkomulag náist um frumvarpið. Stjórn Dagvistar barna Þremur gæsluvöll- um lokað STJÓRN Dagvistar barna sam- þykkti á fundi sínum í gær að þrem- ur gæsluvöllum í Reykjavík skyldi lokað í vetur frá og með 1. október nk. til 1. apríl á næsta ári. Gæslu- vellirnir sem um ræðir eru gæsluvöll- urinn við Sæviðarsund, gæsluvöllur- inn við Dunhaga og gæsluvöllurinn við Yrsufell. Þrír fulltrúar í stjórn- inni greiddu atkvæði með tillögunni, en Árni Sigfússon, fulltrúi Sjálfstæð- isflokks, greiddi atkvæði á móti. Það sem réð þessari _ ákvörðun meirihlutans, að sögn Árna Þórs Sigurðssonar stjórnarformanns Dagvistar barna, var aðallega sú staðreynd að þessir gæsluvellir væru hvað lakast sóttir í borginni. „En almennt séð hefur heimsóknum á gæsluvelli borgarinnar fækkað mjög að undanförnu, einkum á veturna," segir hann. „Þá höfum við talið að gæsluvell- ir séu tiltölulega dýrt úrræði miðað við þann fjölda sem nýtir sér þá. Gæsluvellirnir í Reykjavík kosta borgina um eitt hundrað milljónir króna á ári og tekjurnar af þeim, þ.e. gjöldin sem fólk borgar fyrir þjónustuna skilar um tíu milljónum króna á ári,“ segir hann. Árni Þór segir að ýmsar ástæður gætu legið að baki því að gæsluvellirnir væru ekki meira sóttir en raun ber vitni, til dæmis gæti það verið lélegri kynningu um að kenna eða þá því að nú kæmust börn fyrr að hjá leik- skójum borgarinnar. Árni Þór segir að í vetur muni stjórnin fara frekar yfir málefni gæsluvallanna, þá hugsanlega með það í huga að þeir gætu nýst betur. Ekki náðist í Árna Sigfússon í gær. -----» ♦ » Bílslys á Lag- arfljótsbrú BÍLL stórskemmdist eftir að hann rann til á brúnni yfir Lagarfljót í fyrrinótt og kastaðist á milli brúar- handriðanna. Tveir voru í bílnum og voru þeir fluttir á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum en meiðsli þeirra reyndust ekki vera alvarleg. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum var nýlega skipt um timburgólf á brúnni og lagt vírnet ofan á sem reynst hefur mjög hált í bleytu. Morgunblaðið/Ásdís SIGRÚN Jana Finnbogadóttir og Una Baldvinsdóttir skoða skólatöskur fyrir utan verslun Máls og menningar á Laugavegi. Ríkissljórn fjallar um fjárlagafrumvarp 1998 um helgina Stefnt að betri afkomu þrátt fyrir skattalækkanir Styttist í að skólar hefjist NEMENDUR og kennarar búa sig þessa dagana undir væntanlegt skólaár. Nær 4.500 nemendur hefja skólagöngu í 1. bekk grunn- skóla í haust. Grunnskólar hefjast samkvæmt lögum 1. september og starfa í níu mánuði. Samkvæmt þjóðskrá eru 42.650 nú á grunn- skólaaldri en í fyrra voru 42.300 í grunnskólum landsins að meðtöld- um sérskólum. Síðasta haust voru 17.766 í fram- haldsskólum. Þeir hefja göngu sína á bilinu 25. ágúst til 1. september en samkvæmt samningum við HÍK er framhaldsskólum nú heimilt að hefja göngu sína fyrr en áður og á næsta ári geta þeir hafist 20. ágúst. Misjafnt er hvort skólar nýta sér þessa heimild en í flestum skólum sem Morgunblaðið hafði samband við hefst kennsla 1. sept- ember. Nemendur á háskólastigi voru í fyrra 7.864. Á síðasta ári sátu því um 26% íslendinga á skólabekk á þessum þremur skólastigum. RÍKISSTJÓRNIN mun væntan- lega fjalla um útgjaldatillögur ráðuneytanna og taka endanlegar ákvarðanir um upphæðir fjárlaga- frumvarps fyrir næsta ár yfir helgina og fram eftir næstu viku. Einstök ráðuneyti hafa nú að mestu leyti skilað útgjaldatillög- um sínum, innan þeirra útgjalda- ramma sem ríkisstjórnin setti þeim, til fjármálaráðuneytisins. Að sögn Halldórs Árnasonar, skrifstofustjóra fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, stefnir ríkisstjórnin að því að afkoma rík- issjóðs verði betri á næsta ári en á yfirstandandi ári, þannig að fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verði skilað með meiri afgangi á greiðslugrunni en reiknað er með Ráðuneyti hafa skilað útgjalda- tillögum sínum að náist á þessu ári. Halldór segir að útlit sé fyrir að afkoma ríkissjóðs batni á næsta ári þrátt fyrir að ríkissjóð- ur verði fyrir meira tekjutapi vegna ákvarðana um skattalækk- anir sem voru teknar sl. vetur á næsta ári en á yfirstandandi ári. „Það má reikna með að næstu dagar verði nýttir vel vegna þess að ákvarðanir stjórnvalda þurfa að liggja fyrir í lok mánaðarins svo hægt verði að vinna frum- varpið með eðlilegum hætti,“ seg- ir Halldór. Flókin og viðamikil vinna Mikil breyting verður á fram- setningu fjárlagafrumvarpsins skv. nýjum lögum um fjárreiður ríkisins en fjárlög verða þá sett fram á rekstrargrunni en sýna jafnframt greiðsluhreyfingar. Halldór segir að vinna við gerð fjárlagafrumvarpsins hafi verið mun viðameiri og flóknari vegna þessarar breytingar. Þannig eru margar stofnanir færðar úr B- hluta fjárlaga yfir í A-hluta og reynt er að koma á sem mestu samræmi á milli ríkisreiknings og fjárlaga, sem munu vegna þessa sýna bæði aukin útgjöld og tekjur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.