Morgunblaðið - 21.08.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tveir menn slösuðust í sprengingu í Krossanesverksmiðjunni á Akureyri
Mesta mildi þykir að
ekki varð stórslys
TVEIR menn slösuðust er forsjóðari
í Krossanesverksmiðjunni á Akur-
eyri sprakk á ellefta tímanum í
gærmorgun. Sprengingin var gífur-
lega öflug og heyrðist víða um bæ-
inn og þykir mesta mildi að ekki
varð þarna stórslys.
Forsjóðarinn er hátt uppi í verk-
smiðjunni og voru fjórir menn nærri
honum er hann sprakk. Tveir þeirra
slösuðust, annar hlaut m.a. annars
stigs bruna í andliti og marðist á
skrokknum og þá var jafnvel talið
að hljóðhimnur í báðum mönnunum
hafi skaddast. Hinir mennirnir tveir
sluppu betur en þurftu þó að láta
mæla í sér heyrnina eftir ósköpin.
Sprengifimar lofttegundir
Helgi Haraldsson, umdæmisstjóri
Vinnueftirlits ríkisins á Norðurlandi
eystra, skoðaði verksummerki í gær
og hann telur að sprengifimar loft-
tegundir hafi myndast inni í forsjóð-
aranum, vegna innri leka, sem hafi
svo sprungið er verið var að rafsjóða
utan á belg hans. Forsjóðari er tank-
ur, um 3 metrar í þvermál og 10-12
metra langur og notaður til að hita
upp hráefni með gufu. Hann liggur
lárétt í verksmiðjunni og eru lokin
á enda hans boltuð föst.
Jóhann Pétur Andersen fram-
kvæmdastjóri Krossaness, sagðist í
gær ekki geta sagt til um hversu
mikið tjón hafi orðið í verksmiðjunni
og heldur ekki hvort atvikið komi
til með að hafa áhrif á vinnsluna.
Ekkert hráefni var í verksmiðjunni
og lá bræðsla niðri í gær en unnið
að viðhaldi. Forsjóðarinn hefur ekki
verið í notkun í um þijár vikur og
því ekki verið notaður við bræðslu
að undanförnu.
Hvellurinn var rosalegur
Starfsmaður í stjórnherbergi í hin-
um enda verksmiðjunnar sagði í
samtali við Morgunblaðið að spreng-
ingin hafi verið gríðarlega öflug og
hvellurinn rosalegur. Rúða í stjórn-
herberginu sprakk í látunum og
HJÖRTUR Guðniundsson, starfs-
maður Véla- og stálsmiðju Akur-
eyrar var að rafsjóða í forsjóðar-
ann í Krossanesverksmiðjunni er
sprengingin varð. „Við spreng-
inguna slokknaði á öllum ljósum
í verksmiðjunni og húsið hrein-
lega nötraði og skalf. Það er
skrýtið að tankurinn skyldi ekki
springa í tætlur og í raun Guðs
mildi að ekki varð þarna stór-
slys,“ sagði Hjörtur í samtali við
Morgunblaðið.
Hjörtur og Páll Sigurðsson,
starfsmenn VSA, Halldór Brynj-
arsson, framkvæmdasljóri VSA,
og Hilmar Steinarsson, verk-
smiðjustjóri Krossaness, voru við
forsjóðarann er hann sprakk og
urðu þeir Halldór og Hilmar fyr-
ir meiðslum og voru fluttir á
hurðin sprakk upp. Hannes Óskars-
son múrari var staddur úti á bryggju
við Krossanes þegar sprengingin
varð. Hann sagðist hafa fundið fyrir
bylgju frá sprengingunni og auk
þess séð skrúfur úr þakplötum verk-
smiðjunnar þjóta upp í loftið.
Þtjú hnefastór göt komu á klæðn-
ingu á útvegg verksmiðjunnar, auk
þess sem einangrun spýttist undan
klæðningunni á útveggnum.
slysadeild FSA. Hjörtur og Páll
fóru í heyrnarmælingu en sluppu
að öðru leyti með skrekkinn.
Páll stóð við hlið Hjartar og sagði
hann að þeir Halldór og Hilmar
hafi kastast í átt til þeirra í
sprengingunni. „Eg sá að Halldór
var meiddur og fór því með hann
út úr verksmiðjunni og beina leið
upp á slysadeild. Þarna mátti
ekki tæpara standa og það hefði
ekki þurft að spyrja að leikslok-
um ef þeir hefðu staðið einum
metra nær lokinu sem sprakk af
forsjóðaranum," sagði Páll. Hann
sagði að vinnugalli Halldórs hafi
hreinlega rifnað í tætlur í látun-
um. Liðan þeirra Halldórs og
Hilmars var eftir atvikum góð og
áttu þeir að fá að fara heim af
sjúkrahúsinu í gærkvöld.
Hjörtur Guðmundsson, starfsmaður VSA
Húsið nötraði og skalf
rt rittiti****
*}i****Hllil$m
V iih»hi«íi»a.
Ht
• i s 4 í I ; I 'I b:> i <
,,, AV
(\\\\\»)
Morgunblaðið/Björn Gíslason
LOKIÐ þeyttist af forsjóðaranum í sprengingunni, fór í gegnum
handrið og hafnaði á palli i 10-15 metra fjarlægð en þar voru
tveir menn við vinnu skömmu áður.
Heimsókn 7. flokks Þórs í
knattspyrnu til KA
Leikgleðin skein úr
hverju andliti
Stefna á
meistaraflokk
SILJA og Ottó berjast um boltann í leik
KA og Þórs í 7. flokki á KA-vellinum í gær.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
KA tefldi fram
tveimur liðum sem
eingöngu voru
skipuð stúlkum og
léku þau á móti
strákaliðum Þórs. I
öðru þeirra var Silja
Jóhannesdóttir en
hún hóf að æfa
knattspyrnu nú í
sumar. Silja sagðist
hafa mjög gaman af
knattspyrnu og liði
hennar hefði gengið
hreint ágætlega í
sumar. Hún hyggst
halda áfram
knattspyrnuiðkun og
hefur sett stefnuna á
meistaraflokk þegar fram líða
stundir.
framlínunni og það sé reyndar
mun skemmtilegra en að leika í
vörn.
ÞAÐ var líflegt á félagssvæði
KA í gærmorgun, er börn í 7.
flokki Þórs í knattspyrnu heim-
sóttu jafnaldra sína í KA og léku
við þá nokkra létta æfingaleiki.
Leikgleðin skein úr hverju and-
liti og þarna fóru framtíðarleik-
menn félaganna, bæði í karla-
og kvennaflokki.
KA tefldi fram mun fleiri
stelpum í leikjunum en Þór, eða
tuttugu á móti tveimur Þórs-
stelpum. Alls voru um 60 börn
í hvorum hópi og
leikirnir því fjöl-
margir.
Ottó Reynisson fór fyrir
sínum mönnum í 3:1 sigri á Silju
og stöllum hennar í KA. Ottó
hóf að æfa knattspyrnu á síðasta
sumri og líkt og Silja stefnir
hann að því að halda áfram
alveg upp í meistaraflokk.
Hann segir að liði sínu hafi
gengið vel í sumar þótt ekki
hafi unnist mjög margir leikir.
Skemmtilegast finnst honum þó
að leggja KA að velli. Ottó segist
hafa gaman af því að spila í
ÍSLENSKU og sænsku ungmennin saman komin á góðri stund
í heimsókninni til Svíþjóðar.
Norðlensk ung-menni
á faraldsfæti
Heimsóttu
jafnaldra
sína í Svíþjóð
FJÓRTÁN ungmenni frá Húsavík,
Akureyri og Dalvík komu í vikunni
frá Svíþjóð, þar sem jafnaldrar
þeirra í Ornsköldsvik í Norður-Sví-
þjóð voru heimsótt. Sænsku ung-
mennin höfðu komið til Akureyrar
fyrr í sumar og skoðað sig um víða
um Norðurland.
Þema þessara samskipta var hrein
náttúra og skoðuðu íslensku ung-
mennin félagsmiðstöðvar í Svíþjóð
og kynntu sér menningu og það
umhverfi sem heimamenn lifa í. Mar-
ías Kristjánsson, annar fararstjóra
íslensku ungmennanna, sagði að báð-
ir hóparnir hafi fengið fjárstyrk frá
samtökunum Ungt fólk í Evrópu og
sá styrkur hafi gert þessar gagn-
kvæmu heimsóknir mögulegar. Áuk
þess söfnuðu íslensku ungmennin
peningum hér heima til fararinnar.
Marías sagði að ferðin til Svíþjóðar
hafi heppnast í alla staði mjög vel,
þar hafi verið margt forvitnilegt að
sjá, auk þess sem ungmennin hafi
fengið að reyna ýmislegt fyrir sér.
Heimsókn íslensku gestanna vakti
nokkra athygli og var fjallað um
hana í staðarblaðinu í Örnsköldsvik.
Tónleikar
ÞESSA vikuna hefur staðið yfir
flautunámskeið í Tónlistarskólanum
á Akureyri á vegum Kristínar og
Tristans Cardrew. Kristín býr í
Frakklandi en kemur heim til Akur-
eyrar til að kenna áhugasömum
flautuunnendum. Að þessu sinni
njóta nemendur einnig tiisagnar
Manuelu Wiesler. í lok námskeiðs-
ins, laugardaginn 23. ágúst verða
nemendatónleikar í Deiglunni kl.
12.00. Verður forvitnilegt að heyra
í hinum ungu og upprennandi flautu-
leikurum.
Jazz í Deiglunni
Á heitu fimmtudagskvöldi þann
21. ágúst ki. 22.00 mun Tríó Grönw-
alds koma saman í Deiglunni og
spila jazz. Tríóið skipa Haukur Grön-
dai, sax, Hitmar Jensson, gíta,r óg
ungra flautuleikara
SUMAR
AKUREYRI
Ólafur Stolzenwald, kontrabassi.
Farið verður um frumskóg jazzlag-
anna og gömui slóð troðin og önnur
ný könnuð.
Islenskt skyr í myndlist
Listamaðurinn Stan Roncken sem
dvalið hefur í gestavinnustofu Gilfé-
lagsins í ágústmánuði, opnar sýn-
ingu í Gallerí Plús, Brekkugötu 35
kl. 16.00 á laugardag.
Stan er fæddur í Hollandi árið
1963. Hann nam myndlist við
Stadacademie í Maastrikcht og AKI
í Enschede 1981-1987. Hann hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt
í samsýningum í Hollandi, nú síðast
í Beam Gallery í Nijmegen. Stan
starfar að myndlist og er einnig list-
ráðunautur í Enschede. Á myndirnar
á sýningunni í Gallerí Piús notar
hann m.a. íslenskt skyr.
Tónleikar
Olafs Arna
Ólafur Árni Bjarnason tenór held-
ur einsöngstónleika í Safnaðarheim-
ili Akureyrarkirkju þriðjudaginn 26.
ágúst kl. 20.30. Undirleikari erÓlaf-
ur Vignir Albertsson.