Morgunblaðið - 21.08.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 13
HUNDRAÐ ár eru síðan Blanda var brúuð.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Minkaskottið á 1200 krónur
Vogum - Þrír strákar,
Stefán Guðmundsson,
Davíð Björgvinsson og
Guðjón Órlygsson,
veiddu mink í gildru ná-
lægt fyrirtækinu Sæbýli
um síðustu helgi. Með því
að skila skottinu á
hreppsskrifstofuna
fengu þeir greiddar
1.200 kr. í veiðilaun.
Strákarnir sögðust hafa
viljað vera með refaskott
en j>að gæfi 2.800 kr.
I samtali við Morgun-
blaðið sögðust strákarnir hafa heyrt talað um að minkar hafi sést
víða í Vogunum og ætluðu þeir að halda þessum veiðum áfram.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
GUÐJÓN, Stefán og Davíð
með minkinn.
Hundrað
ára af-
mæli brú-
ar yfir
Blöndu
Blönduósi - Eitt hundrað ár eru
liðin frá því fyrst var byggð brú
yfir jökulána Blöndu. Þessara
tímamóta ætla Húnvetningar að
minnast með fjölbreyttri hátíðar-
dagskrá laugardaginn 23. ágúst
. Dagskrá „Brúarhátíðar á
Blönduósi" hefst kl. 9 um morg-
uninn og lýkur með útidansleik
um kvöldið. Útigrill og útimark-
aður verður svo og hvalaskoðun,
Blöndu-„rafting“, lúðrasveit leik-
ur og kórsöngur mun óma svo
eitthvað sé nefnt.
Blöndubrú hin fyrsta var vígð
25. ágúst 1897 og gegndi hún
hlutverki sínu fram til ársins
1962 að sú brú sem nú er á
Blöndu við Blönduós var byggð.
Gamla brúin gegnir enn hlut-
verki þar sem hún er nú á Svartá
í Svartárdal fram við bæinn
Steiná. í Þjóðólfi kom ítarleg
frásögn af vígslu brúarinnar og
m.a. var þetta ritað: „... að lok-
inni vígsluræðu Páls Briems
amtmanns tóku menn á rás yfir
brúna, töldust það full 600 sálna,
er þar voru staddir. Léku menn
nú lausum hala um stund hér og
þar í kring, sumir sóttu heim
brennivínskrá veitingamannsins
á Blönduósi, sem byggt hafði
nýlendu allnærri." Líklegt er að
frásagnir af hundrað ára afmæli
brúar á Blöndu verði ekki líkar
frásögninni í Þjóðólfi því undir-
búningsnefnd beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til brúarhátíð-
argesta að hafa ekki um hönd
áfengi né aðra vímugjafi því hér
sé um fjölskylduhátíð að ræða.
Undirbúningsnefnd brúarhátíð-
ar vonar að allir finni eitthvað
við sitt hæfi á hátiðinni og legg-
ur áherslu á að allir séu velkomn-
ír.
Fréttir um fólksflótta frá
Vestfjörðum gagnrýndar
ísafirði - Forsvarsmenn sveitarfé-
laga á Vestfjörðum gagnrýna fréttir
sem birst hafa undanfarið í dagblaði
um fólksflótta úr byggðarlaginu, og
benda á að fólk sé. einnig að flytja
til svæðisins.
Dagblaðið DV hefur birt fréttir
um að 60 manns séu að flytja frá
Patreksfirði í sumar og að 16 fjöl-
skyldur séu að flytjast brott frá
ísafirði. Viðar Helgason bæjarstjóri
í Vesturbyggð staðfestir að fólk sé
að flytja þaðan og líklega hafi um
60 manns flutt í burtu, eða séu að
hugsa um að flytja, það sem af er
þessu ári. Hann telji hins vegar
ekki rétt að 60 manns séu að flytja
eða hafi flutt í sumar. Þá flyttist
fólk einnig til bæjarins, og nú væri
t.d. von á sex manna fjölskyldu
þangað.
„Það er auðvitað vítaverð blaða-
mennska að greina eingöngu frá
brottflutningi fólks og láta hjá líða
að segja frá þeim sem eru að flytja
hingað í staðinn. Það er eins og að
birta eingöngu tölur um gjöld fyrir-
tækis en stinga upplýsingum um tekj-
ur undir stól. Mér finnst að með
fréttaflutningi sem þessum sé gagn-
gert verið að reyna að koma höggi
á þetta byggðarlag og Vesturbyggð
má ekki við því,“ sagði Viðar.
Prinsessan
Gleðisöngleikur
frumsýndur 4. sept. á
HÓTEL
ÍSLANDI
Leikfélagið Regína og
Sniglabandið
Uppi. og miðapantanir á
HÓTEL ÍSLANDI
kl. 13-17 í
síma 568 7111
fax 568 9934
<
X
(O
o
H
BRAUTRYÐJANDINN
í myndbandstækninni!
Pro-Drum myndhausinn er byltíng,
40% færri hlutir,
minna viðhald og betri myndgæði.
Pro-Drum tækin eru
nr. 1 á topp 10 lista WHAT VIDE0!
7 gerðir, verð trá kr. 38.610 stgr.
///-'
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28, sími 562 2901 / 562 2900
ísafjörður
Hann sagðist hafa óskað eftir
upplýsingum frá Hagstofu íslands
um hvað margir hefðu tilkynnt brott-
flutning frá 1. desember sl. og
hversu margir hefðu tilkynnt flutn-
ing inn á svæðið, en þær lægju ekki
fyrir enn.
Næg atvinna er á Patreksfirði,
að sögn Viðars, og skortur er á
vinnuafli. Hann óttast þó afleiðingar
sem kunna að verða vegna fækk-
unar sóknardaga krókabáta á næsta
fiskveiðiári og á von á að skerðingin
hafi slæm áhrif á búsetuskilyrði í
Vesturbyggð sem og á Vestfjörðum
almennt.
Mikil tilfærsla fólks
„Það getur vel verið að sextán
fjölskyldur séu að flytja héðan en
það eru einnig margir sem eru að
flytja hingað, þannig að fólksfjöldi
er sjálfsagt um það bil hinn sami
eftir sem áður,“ sagði Þórunn Gests-
dóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra
ísafjarðarbæjar.
Staðreyndin er sú að nú til dags
á sér stað mikil tilfærsla fólks milli
landshluta og byggðarlaga og það á
ekki eingöngu við um Vestfirði, eins
og gefur auga leið. Reyndar er nú
sá árstími þegar mikið er um að
fólk færi sig um set. Fjölskyldur eru
að fara vegna þess að börnin eru
að fara í skóla og það sama á við
um margt ungt fólk sem t.d. hyggur
á háskólanám eða annað. Þetta ger-
ist á hveiju hausti eins og eðlilegt
er, en hingað er að koma nýtt fólk
í staðinn. Þetta er streymi sem hefur
Viðgengist hér til margra ára,“ sagði
Þórunn.
Aðspurð um atvinnuástand í Isa-
fjarðarbæ sagði hún að vinnuafl
vantaði á Þingeyri, næg atvinna
væri á Flateyri og á Suðureyri hefði
verið mjög mikil vinna í sumar. Á
ísafirði væru um tuttugu manns á
atvinnuleysisskrá sem teldist ekki
óeðlilegt miðað við fólksfjölda þar í
bæ. Skortur er á leiguhúsnæði á
ísafirði og á Suðureyri eru íbúðir í
eigu ísafjarðarbæjar, sem lengi hafa
staðið auðar, nú allar í leigu, að
sögn Þórunnar.
Happafengur
Veiöimannsiris
Ef þú verslar hjá Veiðimanninum færðu afhentan númeraöan happdrættismiða, merkir þér miðann og skilur eftir í lukkupotti í versluninni. Dregið er úr miöunum hálfsmánaðarlega um glæsilega vinn- inga. Laugardaginn 23. ágúst kl. 17, verður dreginn út Berkley flugu- eða kaststöng frá Veiöi-
manninum. Vinningshafi þann 9. ágúst var Bjami Amarson og fékk bann afhent Ambassadeur 6600 laxveiðihjól frá ABU Garcia. Opnunartímar:
Virka daga frá 8-20 Laugardaga frá 9-17 Sunnudaga frá 10 - 16
iKomiö viö og takið þátt í Happafeng Veiöimannsins.
Veiðimaðurinn hl. Hafnarstrail 5, siml 551-6760