Morgunblaðið - 21.08.1997, Page 19

Morgunblaðið - 21.08.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 19 ÚR VERIIMU Handbók fyrir fisk- vinnslu og útgerð ÚT ER komin fjórða útgáfa af Þjón- ustubók útgerðar og fískvinnslu. Bókin er hugsuð sem handbók allra þeirra er tengjast útgerð og fisk- vinnslu; heimild sem þeir geta nýtt sér daglega til að nálgast upplýs- ingar um stjórnun, reglugerðir og markaðsmál í greininni og til að fínna þjónustufyrirtæki. Efni bókarinnar skiptist eins og áður í tvo meginþætti: annars vegar upplýsingakafla og hins vegar þjón- ustuskrá þar sem skráð eru um 1100 fyrirtæki, stofnanir og lögaðilar er tengjast á einhvern hátt útgerð og fiskvinnslu. Líkt og í fyrri bók er gæðastjórnun aðalviðfangsefni upp- lýsingakafla bókarinnar. Þar er að finna upplýsingar um HACCP eftir- litskerfíð og ISO 9000 gæðastjórn- unarkerfið og leiðbeiningar um hvaða kröfur slík kerfi gera. Birtar eru greinar frá hinum ýmsu stofnun- um sjávarútvegsins um það nýjasta sem er að gerast á þeirra vettvangi. Að auki eru birtar gagnlegar upplýs- ingar um útfiutning og bankaþjón- ustu, ásamt skrám yfír hin ýmsu eyðublöð sem fiskútflytjendur þurfa að nota. í þjónustuskránni er skráður fjöldi þjónustufyrirtækja og stofnana í sjávarútvegi, auk allra vinnsluleyfís- hafa í landi og/eða með báta yfir 10 tonn. í viðauka eru listi yfír stjómir, nefndir og ráð sjávarútvegsins, listi yfír nöfn sjávardýra á nokkrum tungumálum, myndræn útfærsla á aflatölum helstu nytjategunda og umreikningstafla fyrir ýmsar mæli- einingar. Einnig fylgir bókinni ítarleg atriðisorðaskrá með tilvísunum bæði í þjónustuskrá og upplýsingakafla. Bókinni er dreift til allra aðila sem skráðir eru í hana og dreifir Fiski- stofa henni til vinnsluleyfishafa. Aðrir geta nálgast bókina hjá útgef- anda eða hjá bókabúð Máls og menn- ingar, Laugavegi 18. GUÐMUNDUR Lýðsson, útgefandi, færir Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra eintak af Þjónustubókinni. SIGURÐUR VE á leið inn til Krossaness með fullfermi. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Loðnuskipin flest innan grænlensku lögsögunnar LOÐNUSKIPIN voru flest á veiðum rétt norðan landhelgislínunnar í gær, norður af Kolbeinsey. Veiði hefur verið fremur dræm síðustu daga, eftir að loðnuveiðar voru bann- aðar á loðnumiðunum fyrir Norður- landi um síðustu helgi. „Þetta er orðinn hálfgerður barn- ingur og talsvert fyrir kvikindunum haft,“ sagði Agnar Sigurðsson, stýri- maður á loðnuskipinu Faxa RE, í samtali við Morgunblaðið í gær. Skipið var þá á landleið með um 600 tonn af loðnu. „Við erum að fá iítil köst og kasta oft. Ætli við höfum ekki kastað 17 sinnum í þessum túr. Það virðist samt sem áður vera talsvert af loðnu á svæðinu en hún er mjög dreifð, smápeðrur hér og þar,“ sagði Agnar. Blönduð loðna Agnar sagði loðnuna mun betri en þá sem fékkst á Kolbeinseyjar- svæðinu. Það væri þó misjafnt eftir köstum, í sumum væri stór og falleg loðna en í öðrum væri hún bland- aðri. Hann sagði veiðina vera aðal- lega vera yfir birtutímann þarna norður frá, ólíkt því sem var við Kolbeinsey, þegar mest fékkst í rök- krinu. Hann sagði skipin ekki verða vör við „sultuna" svokölluðu, sem var að hrella loðnusjómenn við Kol- beinseyna. „Þessi ófögnuður virðist ekki vera hér norðar og við erum því ósköp fegnir. Nótin varð óhemju þung þegar drullan settist í hana. Þetta var eins og að draga plast- poka,“ sagði Agnar. 2.300 tonn eftir af kvóta Norðmanna Norðmenn eiga nú eftir um 2.300 tonn eftir af leyfilegum loðnuafla innan islensku landhelginnar, hafa veitt samtals 78.135 tonn. Ekkert norskt loðnuskip var að veiðum inn- an landhelginnar í gær en nokkur voru voru á veiðisvæðinum innan grænlensku lögsögunnar, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Loðnuafli íslendinga á sumarvertíð- inni er nú orðinn um 358.000 tonn og eru þá um 211.000 tonn eftir af upphafskvótanum. TREK 800 SPORT Breið gróf- nynstruðdekk Krómólý/stálste,| m< *v|langri ábyrgð '•gírar Vandaði búnaður eins árs Sterkar álfel< * Tilboðið stendur aðeins í nokkra daga á örfáum hjálum af árgerð 1997 35% AFSLÁTTUR! Sértilboð á FREESTYLE hjólum TREK Subvert 1.0 á f.STZ (áður 30.410) FISHER Pure Bender Spin á ----------(áður 29.129) Dæmi: TREK 800, (21 gíra Shimano Altus, E-Z Fire Shimano skiptir, krómólí stell í mörgum stærðum, 26" álgiarðir og átaksbremsur) á kr. 23,620 (áður kr. 31.494) á kr. 27,564 (áður kr. 36.752) ULTRA WHEELS USA, LÍNUSKAUTAR, hlífar og fylgihlutir með 25% afslætti. Mikið úrval. Línuskautar frá kr. 4,432 (áður kr. 5.909)______ Ath.: Nokkrar gerðir barnahjálma á sértilboði á kr. 990. ALLVBG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI SÉRTILBOD Á BELL HJÁLMUM WM, áJÉimaM Kr. 19.609, - — Reiðhjóla versiunin irntmm (aöur kr- 26.145,-) QRNIhJf* OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-16 SKEIFUNNI V V VERSLUN SÍMI 588-9890 VERKSTÆÐISÍMI 588-9891 Tilboðið á bjólunum gildir einnig í Sportveri, Akureyri og Hjólabæ, Selfossi --— - E* E K Jf f N G ME TAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.