Morgunblaðið - 21.08.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINIUINGAR
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 43
+ Guðrún Þórey
Örnólfsdóttlr
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 3.
ágúst 1914. Hún lést
í Sjúkrahúsi Akra-
ness 9. ágúst síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Akraneskirkju 19.
ágúst.
Fósturlandsins Freyja
fagra Vanadís
móðir kona meyja
meðtak lof og pris.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullin tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
„Minni kvenna“ eftir Matthías
Jochumsson hefur verið í huga mér
undanfarna daga, þegar ég hugsa
um Guðrúnu Örnólfsdóttur, sem nú
hefur kvatt okkur samferðamenn
sína. Ég er komin á þann aldur að
mér þykir vænt um þetta ijóð,
reyndar hefur mér líklega alltaf
þótt til um það. Sannarlega er þetta
ljóð tileinkað konum eins og henni.
Konu sem var þeirrar gerðar að
heimili hennar stóð, sem um þjóð-
braut þvera, eins og sagt var um
stórkonur fornaldar.
Hún kom að vestan. Hann að
austan. Guðrún var fædd og uppal-
in á Suðureyri við Súgandafjörð,
en Sveinn, maður hennar, á Búðum
við Fáskrúðsfjörð. Þau mættust á
Akranesi. Hann kom sem kaupfé-
lagsstjóri við Kaupfélag Suður-
Borgfirðinga, en hún sem starfs-
stúlka við mötuneytið hjá Lóu á
Staðarfelli þar sem Sveinn borðaði.
Frá fyrsta fundi þeirra má segja
að þau hafi haldist hönd í hönd,
ævina á enda. Guðrún og Sveinn,
mér fínnst að þau hafi alltaf verið
nefnd um leið, bæði tvö. Þau hófu
búskap sinn í Kaupfélaginu. Það
var skemmtilegt samfélag í Kaupfé-
lagshúsinu. Sveinn og Guðrún á
efstu hæðinni, Arn-
mundur og Inga á mið-
hæðinni og Einar og
Guðrún sem alltaf er
kennd við Einarsbúð.
Einar var kaupmaður.
Arnmundur pakkhús-
maður hjá Kaupfélag-
inu og Inga skúraði
búðina.
Ég vann í Kaupfé-
laginu hjá Sveini og
kynntist þeim hjónum.
Þau kynni áttu eftir
að verða að vináttu
ekki aðeins við þau,
heldur einnig börn
þeirra og fjölskyldur.
í Kaupfélaginu kynntist ég mín-
um manni, Jóhannesi Finnssyni,
sem kom að vestan til starfa í
Kaupfélaginu. Við hófum okkar
búskap í Kaupfélaginu í sömu íbúð
og þau. Síðar urðum við Guðrún
nágrannakonur, þá voru þau hjón
flutt í verkamannabústað á Suður-
götunni, við hjónin á Sunnubraut í
hús foreldra minna.
Fljótlega byggðu þau Sveinn og
Guðrún sér stórt hús á Jaðarsbraut
3. Þar ólust öll börnin þeirra upp,
en þau áttu fjögur börn. Loks flutt-
ust þau í þægilegt hús að Espi-
grund 7, þar bjuggu þau þar til
yfir lauk.
Guðrún var stórbrotin kona og
heimili sitt annaðist hún af miklum
höfðingsskap. Hún vann aldrei utan
heimilis. Hún var manni sínum og
börnum allt. Hún var ein af þeim
konum sem alltaf var heima. Ég
hygg að fáir hafi komið þar að lok-
uðu húsi. Gestrisnin var henni í
blóð borin og þess nutu bæði fólkið
að vestan og austan, fyrir utan
okkur öll hin. Allt sem hún gerði
var unnið af stakri vandvirkni og
listfengi. Mikið hafði hún gaman
af að punta einkadótturina hana
Rúnu Möggu sem var elst. Oft sýndi
Rúna Magga mér dúkkurnar sínar,
sem mamma hennar hafði saumað
og pijónað á.
Börnin þeirra báru svipmót þess
góða uppeldis sem þau nutu. Syn-
irnir allir hafa haslað sér völl sem-
nýtir menn hver á sínum stað.
Einkadóttirin Guðrún Margrét var
elskuleg stúlka, sem öllum þótti
vænt um. Mikil námsmanneskja,
lauk stúdentsprófi með láði og síðan
kennaraprófi, búin að stofna heim-
ili og átti litla yndislega stúlku og
góðan mann. Rúna Magga átti von
á öðru barni. Þá skall reiðarslagið
á. Hún dó af barnsförum og barnið
líka.
Ég gleymi því aldrei. Það var
kaldranalegur nóvemberdagur. Ég
hafði verið í Reykjavík og var að
fara upp á Akranes einmitt þennan
dag og fór niður í skipið. Þá sat
hún Guðrún þar og hélt á lítilli
stúlku í fanginu. Þeir voru þar líka
Sveinn og Páll maðurinn hennar
Rúnu Möggu. Þau voru að koma
með líkið hennar heim. Þá var það
Guðrún, sem lét ekki bugast, hún
vafði aðeins litlu telpuna að sér og
sagði huggandi: „Hún skildi hana
Guðnýju litlu eftir handa okkur.“
Þessi litla stúlka er nú orðin há-
menntuð kona. Hún hefur borið
hróður móður sinnar og ættar milli
heimsálfa og verið sannkallaður
sólargeisli afa síns og ömmu. Alltaf
fylgdist ég með þessari stúlku í
gegnum Guðrúnu. Hve oft hún
sýndi mér myndir af henni við hin
ýmsu tækifæri í lífi hennar. Ég
fylgdist með elsku hennar, ekki
aðeins gagnvart þessu barnabarni
sínu heldur líka öllum hinum.
Hann er orðinn stór hópurinn
þeirra Sveins og Guðrúnar. Þau
héldust í hendur í lífi sínu og starfi,
sem hefur borið ríkulegan ávöxt.
Bömin þeirra og fjölskyldur þeirra
hafa verið samstíga í að létta for-
eldrum sínum ellina og þau veikindi
sem henni hafa fylgt.
Nú hefur Guðrún lokið göngu
sinni. Blessuð veri hún. Þakklæti
mitt flyt ég henni yfir gröf og
dauða. Sveini, manninum hennar,
bið ég blessunar guðs á þessum
erfiðu dögum. Börnum hennar og
fjölskyldum þeirra votta ég samúð
mína.
Bjarnfríður Leósdóttir,
Akranesi.
GUÐRUN ÞOREY
ÖRNÓLFSDÓTTIR
+ Guðmundur Jón
Dagsson fædd-
ist 7. júlí 1914.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
hinn 12. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Dagur
Guðmundsson, f.
28. maí 1885 í Ávík,
Árneshreppi í
Strandasýslu, d. 17.
nóvember 1914, og
Guðrún Margrét
Guðjónsdóttir, f. 8.
september 1888 í
Byrgisvík, Árnes-
hreppi í Strandasýslu, d. 17.
ágúst 1960. Guðmundur var
fæddur á Víðidalsá í Stranda-
sýslu en ólst upp hjá móðurfor-
eldrum sínum Guðjóni Jónssyni
og Sigþrúði Sigurðardóttur á
Mundi bróðir er farinn yfir móð-
una miklu en eftir hann lifa fallegar
minningar um góðan dreng. Hann
var ekki bróðir minn heldur móður-
bróðir en til aðgreiningar frá öllum
hinum Mundunum sem voru frændur
okkar systkinanna sögðum við alltaf
Mundi bróðir en ekki Mundi frændi
og þannig hefur henn verið og verð-
ur í huga okkar áfram.
Mundi var ákaflega ljúfur og hlýr
maður. Hann heilsaði alltaf öllum
sem hann þekkti með hlýju faðmlagi
og kossi og klappi á kinn og seinni
árin sagði hann gjarnan: „Ert þetta
þú, elskan mín?“ eða „Ég þekki þig
ekki, elskan mín“.
Mínar fyrstu minningar um
Munda bróður eru þegar hann kom
að heimsækja „elsku systur" og ég
Kaldbak í Kald-
baksvík ásamt móð-
ursystkinum sínum.
Þar bjuggu þau þar
til þau fluttu til Isa-
fjarðar árið 1966.
Síðustu æviárin var
Guðmundur á Dval-
arheimilinu Ási,
Hveragerði.
Eftirlifandi
systkini Guðmund-
ar eru Njóla Dags-
dóttir og hálfbróðir
þeirra Sigvaldi
Dagsson. Guð-
mundur var
ókvæntur og barnlaus.
Guðmundur verður kvaddur
frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30
en hann verður jarðsettur á
ísafirði.
bara lítið kríli, þá gaf hann sér allt-
af tíma til að tala við litlu frænku
og gauka að henni bijóstsykurspoka,
aurum eða einhveiju smávegis sem
gladdi litla barnssál. í síðustu heim-
sókn sinni til mín í vor hafði hann
einna mestan áhuga á litlu dóttur-
dóttur minni, mánaðargamalli, og
vildi endilega að mamma hennar
keypti eitthvað fyrir sig handa henni.
Svona var Mundi bróðir, barngóður
og gjafmildur.
Hann var mjög trúaður maður og
seinni árin talaði hann oft við mig
um Guð og þau kraftaverk sem gerð
hafa verið í hans nafni og oftar en
ekki snerust samræðurnar um eilífð-
armálin og alltaf þegar við kvödd-
umst bað hann Guð að blessa mig
„og ykkur öll“.
Mundi var mikið náttúrubarn og
unni fegurð náttúrunnar, ekki síst
stórbrotnum mikilfengleik Kaldbak-
svíkurinnar þar sem hann bjó lengst-
an hluta ævi sinnar og veiddi silung
og reri á færi með Gauja frænda.
Þar leið honum vel og átti þaðan
góðar minningar.
Síðustu árin þegar tómstundir
voru nægar fór hann að teikna og
lita og ég á eftir að sakna þess að
fá ekki fleiri teiknimöppur en hann
sendi þær fyrst í stað til mömmu
en þær síðustu til mín. Blýants- og
pennateikningar og vatnslitamynd-
irnar, allar með skrifuðum skýring-
um og vísum, minna mig mikið á
Sölva Helgason. Flestar tengjast
þær líðandi stundu, eru af fréttum
og fólki og atburðum sem hæst eru
á baugi þá stundina.
Ég er sannfærð um að ef Mundi
bróðir hefði fæðst á öðrum stað og
við aðrar aðstæður hefði æviferill
hans orðið annar og listagyðjan
glaðst.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Ég veit einn
að aldregi deyr
dómur um dauðan hvem.
(Ur Hávamálum)
Guðbjörg Ingimundardóttir.
Handrit afmæiis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokaliaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess (minning(a>mbl.is) — vinsam-
legast sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar
má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg
tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
GUÐMUNDUR JÓN
DAGSSON
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SVEINBJÖRN JÓHANNESSON,
Hofsstöðum,
Garðabæ,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju-
daginn 19. ágúst,
Sigríður Gfsladóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, afi og langafi,
BJARNI GUÐMUNDUR BOGASON,
Óðinsgötu 30A,
sem lést fimmtudaginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 22. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Haraldsdóttir.
+
Okkar ástkæri fóstursonur, sonur og bróðir,
STURLA ÞORGEiRSSON
Heiðarbrún 98,
Hveragerði,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju föstu-
daginn 22. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heila-
vernd, sími 588 9220 eða skátafélagið Strók í Hveragerði.
Björgvin Ármannsson, Hrönn Bergþórsdóttir,
Þorgeir Tryggvason,
Sigrún Þorgeirsdóttir,
Kristrún Þorgeirsdóttir,
Lilja Dögg Björgvinsdóttir,
Bergþór Ingvar Björgvinsson,
Víðir Reyr Björgvinsson.
+
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
HALLA BERGSTEINA GUÐLAUGSDÓT-
TIR,
Hjallaseli 55,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 22. ágúst kl. 15.00.
jarðsett verður í Neskaupsstað,
Guðlaugur Stefánsson, Lilja Jóhanna Gunnarsdóttir,
Halla V. Stefánsdóttir, Höskuldur Stefánsson,
Stefanía Stefánsdóttir,
og aðstandendur.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
MAGNÚS INGI GÍSLASON,
Birkihlíð,
Stokkseyri,
sem lést þriðjudaginn 12. ágúst, verður
jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugar-
daginn 23. ágúst kl. 14.00.
Aðalheiður Karlsdóttir,
Erna Magnúsdóttir, Steindór Kári Reynisson,
Aðalheiður Miilý Steindórsdóttir,
Elln Gíslína Steindórsdóttir.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURJÓN SIGURÐSSON,
Vallargötu 18,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugar-
daginn 23. ágúst kl. 14.00.
Viktor Sigurjónsson,
Þorkell Sigurjónsson, Elfsabet Ólafsdóttir,
Karl Björnsson, Ásta Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
>. -