Morgunblaðið - 21.08.1997, Síða 45

Morgunblaðið - 21.08.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 45 MIWIMIIMGAR GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON + Guðmundur Benediktsson var fæddur á Moldhaugum í Glæsibæjarhreppi hinn 23. september 1911. Hann lést hinn 29. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Benedikt Guðjónsson hreppstjóri og Málmfríður Baldvinsdóttir. Systkini Guð- mundar voru Jón Marinó, Snjó- laug, Anna, Unnur og Daney sem eru öll látin nema Anna sem búsett er á Akureyri. Guðmundur kvæntist As- laugu Guðlaugsdóttur hinn 14. júní 1945 og eignuðust þau fjögur börn sem öll eru á lífi. Þau eru: Birgir, búsettur í Borgarnesi, kvæntur Brit Bi- eltvedt og eiga þau þrjá syni; Torfhildur, búsett í Kópavogi, gift Reyni Ragnarssyni og eiga þau þijú börn; Sigrún, búsett á Akureyri, gift Gunnari Bill Á yngri árum voru páskarnir allt- af tilhlökkunarefni fyrir okkur strákana, því að þá fórum við að heimsækja ykkur ömmu á Akur- eyri. Þá var alltaf tími fyrir sögu og létt spjall um lífið og tilveruna. Við tefldum nokkrar skákir og svo tróðst þú í pípuna og mjúka tóbaks- lyktin var þér oftast nærri. Þú varst lunkinn skákmaður og keppnismað- ur fram í fingurgóma. Það er víst, að eitthvað af þessu keppnisskapi hefur haldið áfram til næstu kyn- slóða. Það var ævintýrakarl í þér, þú virðist óhræddur hafa prófað þig áfram. Þú tókst hindrunum eins og þær komu, dróst ályktanir og lærð- ir af þeim. Það hugarfar er ekki öllum gefið og til eftirbreytni, of margir eru hræddir við lífið og að lifa því. Þú reyndir ýmis störf á ýmsum stöðum áður en þú fórst að vinna hjá Vegagerðinni sem var Björnssyni og eiga þau þrjú börn; Benedikt, búsettur á Ak- ureyri, kvæntur Svanhildi Sig- urgeirsdóttur og eiga þau einn- ig þijú börn. Guðmundur naut almennrar menntunar þeirra tíma, en einnig var hann einn vetur í skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Hann stundaði ýmis störf, aðallega við bifreiðaakst- ur fram til 1945 er hann gerð- ist starfsmaður Vegagerðar- innar. Fyrst í stað vann hann á ýmsum vélum þar til hann var gerður að verkstjóra. í mörg ár vann hann við vegagerð víða á Eyjafjarðarsvæðinu uns hann var gerður að umdæmisverk- sljóra og síðar rekstrarsljóra þar til hann lét af störfum 1981. Guðmundur var jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk. þér ætíð ofarlega í huga. í veikind- um þínum sem hægt og bítandi drógu úr þér styrk, stóð amma þér við hlið eins og klettur. Elsku amma, óeigingirni þín í veikindum afa og hversu vel þú hugsaðir um hann verður ekki þakkað með orð- um. Undir það síðasta varst þú orðinn mjög þreyttur og kveðjustundin var óhjákvæmileg. Stundaglas lífsins hefur runnið út en því hefur nú verið snúið við á öðrum stað og tíma. Þú hafðir lúmskan áhuga á skilum lífs og dauða, til dæmis þeg- ar þú söngst i vörubílnum þínum og fékkst hlustanda að handan. Elsku afi, sögurnar þínar munu lifa með okkur. Við munum ætíð meta hversu vel þú fylgdist með okkur alla tíð, það var og verður okkur mikil hvatning. Birgir Örn, Jón Óttar og Oli Þór. JAKOBINA BJÖRNSDÓTTIR + Jakobína Björnsdóttir fæddist á Borgarfirði eystra 22. ágúst 1920. Hún lést á heimli sínu 8. ágúst síðastlið- inn. Útför Jakobínu fór fram frá Bakkagerðiskirkju 16. ágúst. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftamjóð og mjallhvítir svanir syngja sorgblið vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Dáinn, horfinn! - Harmafregn! Hvílíkt orð mig dynur yfir! En ég veit að látinn lifir. Það er huggun harmi gegn. (J.H.) Hvíl í friði. Ingunn Aðalbjörg og Skarphéðinn Þrúðmar Sverrisbörn. + Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför sonar, föður, tengdaföður, bróður og afa, SIGHVATAR KARLSSONAR, áður til heimilis í Berjarima 1. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild E-2 á dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík. Ásta Sighvatsdóttir, Sigurjón Sighvatsson, Sigríður Jóna Þórisdóttir, Sigrún Karlsdóttir og barnabörn. Lokað Skrifstofur okkar verða lokaðar I dag, fimmtudaginn 21. ágúst, frá kl. 10.00—12.00 vegna jarðarfarar. Marel hf., Höfðabakka 9, Reykjavík. www.mbl.is/boltinn Giskaðu á hverjir fá gull-, silfur- og bronsskóna sem Adidas veitir markahæstu mönnum Sjóvár^Almennrar deildarinnar í sumar. Taktu þátt í spennandi leik knattspyrnuvefs Morgunblaðsins og Adidas dagana 18.-3 I. ágúst. Þú fyllir út þátttökuseðil á knattspyrnuvef Morgunblaðsins á slóðinni: www.mbl.is/boltinn Ef þú hefur ekki aðgang að Netinu getur þú heimsótt okkur fyrir utan Sportkringluna á I. hæð Kringlunnar milli klukkan 14.00 og 18.00 virka daga og milli kl. 12.00 og 15.00 á laugardögum og fengið aðstoð við að taka þátt. Ef þú getur rétt hverjir fá gull-, silfur- og bronsskóna áttu möguleika á glæsilegum vinningum: 1. verðlaun: 30.000 kr. vóruúttekt frá Adidas 2. verðlaun: 20.000 kr. vöruúttekt frá Adidas 3. -12. verðlaun: Bolir frá Adidas

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.