Morgunblaðið - 20.09.1997, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
213. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Slysið var í Southall
í vesturhluta London
k i— Páddíngton'Stöðin
Miðborg
London
Ný ævisaga Goethes
Deilt um
kynhneigð
skáld-
jöfursins
Bonn. Reuter.
BÓKAVERZLANIR víðs vegar
um Þýzkaland hafa hafnað því
að bjóða nýútkomna ævisögu
Johanns Wolfgangs von Goethe
til sölu í hillum sínum, en í bók-
inni er því haldið fram að hinn
þýzki skáldjöfur hafi verið sam-
kynhneigður.
Bókin ber titilinn „Ljúfar
strokur tígrisdýrsins“ og hefur
skapað uppnám í heimi bók-
menntafræðinga. Höfundurinn,
Karl Hugo Pruys, er rithöfund-
ur og blaðamaður, sem þekkt-
astur er fyrir að hafa ritað ævi-
sögu Helmuts Kohl kanzlara,
sem út kom fyrir tveimui- árum.
Yfirhylming?
Pruys segist hafa lesið um
2.500 sendibréf úr safni Goethes
og heldur því fram að sannleik-
urinn um kynhneigð Goethes
gæti verið „ein stærsta yfir-
hylming bókmenntasögunnar".
En margir sérfræðingar í verk-
um Goethes gagnrýna bókina og
segja höfund hennar hafa mis-
skilið eðli vináttu milli karl-
manna á átjándu öld. Þeir vísa
til ófárra ástarljóða Goethes,
þar sem hann mærir kvenkynið,
og spyrja hvernig á að hafa ver-
ið hægt að halda því leyndu, ef
Goethe hefði verið hommi.
Sex farast í lestar-
slysi í Lundúnum
Lundúnum. Rcuter.
SEX manns létu lífið og þrettán
slösuðust alvarlega þegar farþega-
lest lenti á fullri ferð á tómri flutn-
ingalest í vesturjaðri Lundúna í
gær. Lestarstjórar beggja lestanna
voru teknir til yfirheyrslu og var sá
sem stjórnaði farþegalestinni úr-
skurðaður í gæzluvarðhald. Hinn
var látinn laus að yfirheyrslunni
lokinni.
Það tók slökkviliðsmenn tvær og
hálfa klukkustund að losa 16 far-
þega úr rústum lestarvagna, sem
höfðu krumpazt saman við árekst-
urinn. I asanum sem skapaðist í
kjölfar slyssins sagði lögregla í
fyrstu að sjö farþegar hefðu farizt,
en leiðrétti síðan töluna í sex.
Slysið varð skömmu eftir hádegi
að staðartíma, þegar hraðlest, sem
var á leið með um 170 farþega frá
Swansea í Wales til Paddington-
stöðvar í Lundúnum, ók á óhlaðna
flutningalest, sem var verið að
ferja þvert yfir teinana sem far-
þegalestin var á. Áreksturinn varð
í Southall-hverfi í vesturhluta
borgarinnar.
„A augnabliki var lestin komin af
teinunum, gler skauzt í gegn um
gluggana, vagninn sem ég var í
hentist af fteinunum] og það kvikn-
aði í honum,“ sagði Mark Cole,
fréttamaður brezka ríkissjónvarps-
ins BBC, sem var farþegi í lestinni.
„Það var reykur alls staðar.“
Sjónarvottar að slysinu lýstu
hörmulegri aðkomunni, þar sem
stórslasað fólk blasti við í rústum
lestarvagnanna. Nokkrir farþeg-
anna sáust reika um í losti meðfram
lestinni. Það kviknaði í einni eimreið
lestarinnar, en slökkviliðsmenn
voru fjótir að ráða niðurlögum elds-
ins.
Versta slys frá 1988
Talsmenn jáimbrautanna sögðu
að slysið hefði orðið þegar verið var
að aka flutningalestinni inn á
geymslusvæði. Astæður slyssins
voru óljósar, en yfirvöld lýstu því
yfir að fara myndi fram ýtarleg op-
inber rannsókn á orsökum þess.
Þetta var versta lestarslys sem orð-
ið hefur á Bretlandi frá því 1988,
þegar 35 manns létust við árekstur
þriggja lesta á járnbrautamótum
við Clapham Junction í Suður-
Lundúnum.
Reuter
Zeppelin
flýgur á ný
LOFTSKIPIÐ LZ N 07 leggur upp
í jómfrúrferð sína frá Zeppelin-
verksmiðjunum í Friedrichshafen.
Er það fyrsta Zeppelinfarið sem
byggt er í 57 ár. Það er 70 metra
langt, getur náð 140 km/klst.
hámarkshraða og flutt 12 farþega.
Motzfeldt
tekur við á
Grænlandi
Sprengja
sprakk í
Mostar
Mostar. Reuter.
TUGIR manna særðust er sprengja
sprakk í króatíska hluta borgarinnar
Mostar seint á fimmtudagskvöld.
Sprengjan sprakk nálægt lögreglu-
stöð i vesturhluta borgarinnar og er
talið að henni hafi verið ætlað að
auka á spennu milli Ki-óata og
múslíma í borginni.
Spenna var þegar mikil í Mostar,
sem stjórnað er af fulltrúum beggja
þjóðarbrota, og munaði litlu að upp
úr syði fyrir borgarstjórnarkosning-
ar sem fram fóru í síðustu viku. Þá
brugðust múslímskir leiðtogar reiðir
við því í vikunni er króatískir emb-
ættismenn gáfu í skyn að þeir hygð-
ust sameina hverfi í vesturhluta
borgarinnar sem eru að mestu
byggð Króötum. Aður höfðu þeir lof-
að að leggja niður öll slík áform.
GRÆNLENSKA landsþingið stað-
festi í gær útnefningu Jonathans
Motzfeldt sem formanns græn-
lensku heima-
stjórnarinnar.
Tekur hann við
starfi flokksbróður
síns Lars Emils
Johansens, sem
hverfur til annarra
starfa. Jafnframt
varð sú breyting á
ráðherraliðinu að
Mikael Petersen,
sem tók við flokks-
formennsku í Si-
umut af Johansen,
tók við starfí at-
vinnu- og félags-
málaráðherra af
Benedikte Thor-
steinsson.
I endurskoðuð-
um sáttmála
stj ómarflokkanna
tveggja, Atassut
og Siumut, er boðuð aukin áhersla á
umhverfis-, auðlinda-, orku- og
ferðamál, verðlækkun á vatni og
hita. Ennfremur hefur stjórnin sett
sér það sem markmið að atvinnu-
leysi, sem nú er um 10%, verði kom-
ið undir 3% innan áratugar. Loks
boðar Motzfeldt aukna áherslu á ut-
anríkismál.
Jonathan
Motzfeldt
Benedikte
Thorsteinsson
Fórnað í valdabaráttu
Benedikte Thorsteinsson, sem
látin var víkja úr stjórninni, er fórn-
arlamb í valdatafli sem nú stendur
yfir í Siumut-flokknum, að því er
Jorgen Fleischer, ritstjóri blaðsins
Atuagagdlintit til margi-a ára, held-
ur fram. „Benedikte Thorsteinsson
er fórnað á altari valdabaráttu. Ég
fæ ekki séð hvað hægt er að setja út
á hana og ég er efins um að Jonath-
an Motzfeldt eigi auðvelda daga
framundan, eftir að henni hefur ver-
ið hafnað," skrifar hann og kveðst
undrast, að alla framtíðarsýn fyrir
grænlenska heimastjóm skuli vanta
í endurskoðaðan stjórnarsáttmála.
Karl Bretaprins kemur fram eftir jarðarför Díönu
Þakkaði sam-
úð og stuðning
London. Reuter.
KARL Bretaprins þakkaði í gær Iöndum sínum og því
fólki utan landsteinanna, sem sýnt hefði „samúð og
hluttekningu" vegna fráfalls Dtönu prinsessu. Hrósaði
hann einnig sonum þeirra, William og Harry, fyrir
þann dugnað, sem þeir hefðu sýnt á erfiðri stund.
Karli var tekið ntjög vel er hann kom í heimsókn til
Manchester í gær en þá kont hann í fyrsta sinn fram
opinberlega frá því að útför Dt'önu fór frant fyrir hálf-
um mánuði. Hoiiunt og sonum hans hafa borist rneira
en 250.000 bréf með samúðarkveðjum víðs vegar að
úr heimi.
„Þessi bréf og kveðjur hafa snortið okkur djúpt,"
sagði Karl og lof&ði syni sína fyrir að hafa ekki látið
bugast í sorginni. „Dauði móður þeirra var þeim að
sjálfsögðu gífurlegt áfall en samúðin og vinarhugur-
inn, sem birst hefur t bréfunum, hafa verið okkur mik-
ill styrkur."
Reuter
KARL tekur við blómvendi frá ungri blóntarós.
Breskir Ijölmiðlar hafa gagnrýnt konungsfjölskyld-
una fyrir að vera í litlu santbandi við fólkið í landinu
og fréttaskýrendur og aðrir hafa hvatt hana til að
draga úr formlegheitunum. Frjálsleg framkoma Karls
í Manchester i gær er talin til marks unt, að hann
hyggist taka tillit til þessa.
✓ 's
SUÐUR-ENGLAND
/I
, 30 km , Í r
'--------1 i:
.ýýýlý-JSÉ'Briahtttn.
K..-I u ■ r
Motgunblaðið/KRT
SLÖKKVILIÐSMENN sinna björgunarstörfum á vettvangi versta lest-
arslyss sem orðið hefur í Bretlandi í áratug.