Morgunblaðið - 20.09.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 19
VERIÐ
800 þús. tonn
Síldarafli
Fyrsta síld haustins komin á land
„Þetta var ekki
nein stórveizla“
„ÞETTA var ekki nein stórveizla, en
sleppur alveg fyrir horn,“ segir
Bjami Sveinsson, skipstjóri á Víkingi
AK, um upphaf síldveiða á þessu
hausti. Víkingur fékk um 270 tonn
af sfld og Jóna Eðvalds SF náði 180
tonnum í fyrrinótt. Bæði skipin voru
á veiðum á Breiðdalsgrunni. Þriðja
skipið, sem hafði farið til veiða,
Húnaröstin, bilaði og hefur engan
afla fengið enn.
Dálítið um algjörar beljur
„Þetta voru frekar smáar torfur
og mikill straumur þannig að við
urðum að kasta fimm sinnum til að
ná þessu,“ sagði Bjami. „Síldin er
hins vegar stór, svolítið misstór. það
er ekkert smátt i henni en dálítið
um algjörar „beljur", breddur, allt
upp í 40 sentímetra að lengd. Það
var alveg bærilegt veður um nóttina
en síðan hvessi og það er ekkert
veiðiveður eins og er og verður varla
fyrr en hann lægir. Þess vegna förum
við með þetta inn á Eskifjörð því
aflinn er of lítill til að það borgi sig
að fara heim til Akraness til löndun-
ar. Ætli við dólum okkur svo ekki
af stað aftur í rólegheitunum eftir
löndun en það lítur ekki út fyrir veiði-
veður í nótt,“ sagði Bjami þegar
hann var á leið inn á Eskifjörð í gær.
Bara stór síld
„Þetta fer líklega í frystingu en
við löndum hjá Borgey að þessu
sinni,“ segir Ingólfur Ásgrímsson,
skipstjóri á Jónu Eðvalds. Hann land-
aði um hádegisbilið í gær og sagði
að síldin væri góð, ekkert smátt í
henni, bara stórt og allt upp í bolta-
síld. „Við fengum þetta á Breiðdals-
grunninu, heldur norðar en við upp-
haf tveggja síðustu vertíða. Það var
ágætis veður og við köstuðum þrisv-
ar á þetta, en nú er komin kalda-
drulla og ekki veiðiveður. Mér sýnist
þetta fara betur af stað en í fyrra
og það er töluvert af síld þama á
slóðinni en mikill straumur."
Kælingin skilar úrvals hráefni
til vinnslu
Bjami á Víkingi gerði ráð fyrir
að eitthvað af síldinni færi í fryst-
ingu, en megnið í bræðslu og sagðist
hann ekki vita hve mikið væri borgað
fyrir hana. Víkingur er ekki með sjó-
kælingu, en þar er þó hægt að kælá
eitthvað af síldinni niður með blönd-
un íss og sjávar. Jóna Eðvalds er
með kælitanka og segir Ingólfur
Ásgrímsson að með því að kæla síld-
ina niður strax fáist úrvalshráefni
til vinnslunnar.
Landa lyá Borgey
Útgerð Jónu Eðvalds, Skinney á
Homafirði, vinnur einnig síld, en
Ingólfur sagði að þeir væru ekki til-
búnir að hefja vinnslu. „Við vomm
eiginlega á leiðinni í norsk-íslenzku
síldina innan norsku lögsögunnar.
Svo kom upp bilun hjá Húnaröstinni
og þeir hjá Borgey báðu okkur að
taka eitthvað fyrir sig til að geta
byijað vinnslu. Þess vegna löndum
við til vinnslu þar en ekki hjá okk-
ur,“ segir Ingóifur.
Þrettán á síld í
lögsögu Noregs
ÞRETTÁN íslenzk nótaskip hafa
fengið leyfí til síldveiða innan lög-
sögu Noregs. Leyfið er hluti af samn-
ingi um heildarnýtingu norsk-
íslenzku síldarinnar. Samkvæmt
honum máttum við í ár taka 233.000
tonn af síld úr þessum stofni, innan
eigin lögsögu, í Síldarsmugunni og
innan lögsagna Jan Mayen og Fær-
eyja. Þar af var okkur svo heimilt
að taka 10.000 innan norsku lögsög-
unnar, en utan 12 mílna línunnar og
norðan við 62. gráðu. Aflanum má
aðeins landa á Islandi eða í Noregi
og skal þannig farið með hann um
borð að hann hæfi til manneldi-
svinnslu.
Jón Sigurðsson
undir færeysku flaggi
Nokkur skip hafa þegar haldið til
veiðanna, en samkvæmt fréttum frá
Noregi er mest um smásíld á miðun-
um. Stóra síldin hefur ekki gengið
inn á þau enn þá, en þegar líður á
haustin gengur síldin inn fyrir 12
mílurnar og þá getum við ekki veitt
hana lengur. Þorsteinn EA var fyrsta
skipið í þessum hópi sem kom á
miðin innan norsku lögsögunnar síð-
degis í gær. Fyrir var annað nóta-
skip í eigu Samheija hf., Jón Sigurðs-
son, en hann er nú undir færeysku
flaggi. Jón kom á miðin fyrir viku
en síðan þá hefur verið stanzlaus
bræla og engin leið að athafna sig.
Skipveijar hafa þó orðið varir við
töluvert af síld og vonast til að geta
veitt vel, þegar veðrið gengur niður.
770 tonn á hvert skip
Skipin þrettán skipta 10.000 tonna
heildarafla jafnt á milli sín og koma
770 tonn í hlut hvers. Aflaheimildir
þessar eru óframseljanlegar. Eftir-
talin skip hafa fengið leyfí til veið-
anna:
Gullberg VE, Júpíter ÞH, Víkur-
berg GK, Þorsteinn EA, Bergur VE,
Bjarni Ólafsson AK, Hólmaborg SU,
Þórshamar GK, Sighvatur Bjarna-
son VE eða Kap VE, Antares VE,
Jóna Eðvalds SF, Beitir NK og Ell-
iði GK.
ERLENT
Lífvörður Dodi
Fayed man ekkert
París. Reuter
DÓMARINN sem vinnur að rann-
sókn bflslyssins sem dró Díönu,
prinsessu af Wales, vin hennar,
Dodi Fayed, og bílstjóra þeirra,
Henri Paul, til dauða 31. ágúst
síðastliðinn, átti sinn fyrsta fund
með Trevor Rees-Jones, lífverði, í
gær. Vonast hafði verið til að
Rees-Jones, sem var sá eini sem
komst lífs af úr slysinu, gæti veitt
upplýsingar um aðdraganda slyss-
ins.
Eftir fundinn, sem stóð í tvo
tíma, gaf dómarinn ekki út neina
yfirlýsingu. Samstarfsmenn hans
sögðu hins vegar að Rees-Jones
hafi getað svarað einhveijum
spurningum um aðdraganda slyss-
ins en muni ekkert af því sem
gerðist eftir að hann settist inn í
bílinn. Hann geti því ekki gefið
upplýsingar um hvort slysið hafi
tengst öðrum bíl.
Algengt er að fólk gleymi slys-
um vegna áfallsins sem þeim fylg-
ir. Að auki gekkst Rees-Jones und-
ir 10 tíma skurðaðgerð strax eftir
slysið og var á mikilli lyfjagjöf sem
getur orsakað minnisleysi.
Fölsuð mynd á alnetinu
Franskir lögreglumenn segja
mynd sem dagblaðið France-Soir
Trevor
Rees-Jones
birti í gær ekki vera af prinsess-
unni. Myndin, sem birt var á alnet-
inu á fimmtudag, sýnir björgunar-
menn vinna að því að losa alblóð-
uga ljóshærða konu úr bílflaki. Því
var haldið fram að myndin sýndi
Díönu og hafí verið tekin skömmu
eftir að björgunarmenn komu á
vettvang. Franskir lögreglumenn
hafa hins vegar bent á að búning-
ar björgunarmannanna á myndinni
séu gulir en ekki appelsínugulir
eins og búningar franskra björg-
unarmanna og að neyðarnúmer
sem sjáist í bakgrunni myndarinn-
ar sé ekki franskt númer.
Það var hópur sem kallar sig
„Rotten" og sérhæfír sig í dreif-
ingu óhugnanlegra mynda sem
stóð fyrir birtingu myndarinnar á
alnetinu. Hópurinn hefur neitað
að gefa upplýsingar um uppruna
myndrinnar en alls kyns falsanir
eru algengar á alnetinu og lítið
hægt að gera til að koma í veg
fyrir þær. France-Soir réttlætti
myndbirtinguna með því að um
heimild væri að ræða.
Viðbúnaður við útför
bílstjórans
Henri Paul, bílstjóri, verður jarð-
settur í dag en útför hans hefur
dregist þar sem fjölskylda hans fór
fram á að ný blóðsýni yrðu rann-
sökuð. Mikill öryggisviðbúnaður
verður við jarðarförina en komið
hefur í ljós að Paul var óhæfur til
aksturs þar sem hann var langt
yfír leyfilegum ölvunarmörkum
auk þess sem leifar tveggja geð-
lyija fundust í blóði hans.
Kohl hvetur Breta til að ganga í myntbandalag
Cook segir erfitt að verða
utan EMU ef vel tekst til
Weimar, London. Reuter.
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, og Jacques Chirac, forseti
Frakklands, lýstu því yfir að loknum
fundi sínum í gær að Efnahags-
og myntbandalag Evrópu (EMU)
yrði að veruleika og að lönd þeirra
myndu uppfylla inntökuskilyrðin.
Kohl skoraði á Breta að bætast í
hóp EMU-ríkja. Robin Cook utan-
ríkisráðherra Bretlands sagði hins
vegar í gær að Bretar yrðu ekki
verða með frá upphafi, en erfítt
yrði að standa utan myntbandalags-
ins, tækist vel til.
Kohl og Chirac komu saman á
reglubundnum leiðtogafundi í
Weimar í gær. Að loknum fundinum
sagði Kohl á blaðamannafundi að
bæði Frakkland og Þýzkaland
myndu uppfylla skilyrði Maastricht-
sáttmálans fyrir þátttöku í EMU.
„Ég er algerlega viss um að það
er enginn vafi á að við munum
uppfylla skilyrðin á réttum tíma.
Ég hef engar efasemdir um að það
sama mun eiga við um Frakka,"
sagði Kohl.
Chirac tók undir þetta, sagði að
fundurinn hefði eflt bæði frönsk og
þýzk stjómvöld í hollustu við mál-
stað samruna í Evrópu og að EMU
væri nú „innan seilingar."
Stefnubreyting hjá Jospin
Athygli vakti að Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, sem
einnig sat fundinn, virðist vera bú-
inn að breyta þeirri stefnu franskra
stjórnvalda að mótvægi stjórnmála-
manna þurfi við fyrirhugaðan
Seðlabanka Evrópu. „Evrópska
seðlabankanum þarf ekki að fylgja
ráð af neinu tagi,“ sagði Jospin, en
Frakkar hafa ítrekað talað um að
einhvers konar efnahagsmálaráð
ætti að vera til mótvægis við vald
bankans.
Reuter
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzkalands (t.h.), ræddi einkum Evr-
ópumál við Jacques Chirac forseta og Lionel Jospin forsætisráð-
herra Frakklands, á 70. þýzk-franska samráðsfundinum, sem
fram fór í Weimar í gær.
****★.
EVROPA^
„Þegar Seðlabanki Evrópu verð-
ur orðinn til verður hann sjálfstæð-
ur. Hugmyndin um sjálfstæðan
seðlabanka var okkur áður fram-
andi en við gerum nú ráð fyrir henni
í hugsun okkar um efnahags- og
stjórnmál," sagði Jospin. „Við verð-
um að hætta að tengja þessi mál."
Ný stjórn upptekin við annað
en EMU-aðild
Kohl sagði á blaðamannafundin-
um að hann væri viss um að í fjár-
málahverfi Lundúnaborgar vildu
menn gjarnan að Bretland tilheyrði
Efnahags- og myntbandalaginu.
„The City vill vera þátttakandi í
evróinu,“ sagði hann.
Fyrr í gær sagði Robin Cook,
utanríkisráðherra Bretlands, hins
vegar í viðtali við BBC að ólíklegt
væri að Bretar gengju í EMU strax
í upphafi árið 1999, meðal annars
vegna þess að hin nýja stjórn
Verkamannaflokksins væri upptek-
in af öðru.
Aðspurður hvort líklegt væri að
Bretland gengi í EMU fljótlega eft-
ir upptöku sameiginlegs gjaldmiðils
sagði Cook: „Ég veit ekki hvort það
yrði fljótlega en hins vegar höfum
við alltaf sagt að gangi stofnun
myntbandalags eftir og takist vel
til, verði erfitt fyrir Bretland að
standa fyrir utan.“