Morgunblaðið - 20.09.1997, Qupperneq 56
r *
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
OZ býður
íslenskum
fjárfestum
hlutabréf
Hugbúnaðarfyrirtækið OZ er
að hefja þriðja og síðasta
áfanga hlutafjármögnunar.
Forsvarsmenn OZ kynntu
hlutafjárútboðið nokkrum ís-
lenskum fagfjárfestum og
verðbréfafyrirtækjum á
fimmtudag og kom þar fram
að boðnir verða út allt að 7
milljónir hluta á genginu 1,3
dollarar. Söluvirði bréfanna er
því um 9,1 milljón dollara, eða
um 646 milljónir íslenskra
króna.
Hlutabréfín verða boðin
bandarískum og japönskum
fjárfestum auk þess sem ís-
lenskum fagfjárfestum stend-
ur til boða að kaupa 2 milljónir
hluta. Lágmarkshlutur hvers
fagfjárfestis verður 5 milljónir
króna að söluvirði. Aformað er
að skrá bréf fyrirtækisins á
opna tilboðsmarkaðnum í New
York, NASDAQ, síðari hluta
árs 1998.
Stofnendur OZ eru stærstu
hluthafar fyrirtækisins með
76,81% hlut en nokkrir stórir
japanskir og bandarískir fjár-
festar eiga á bilinu 1-5,6%.
Starfsmenn OZ eru nú um 70.
■ Islenskum/18
Lést í
vinnuslysi
í vélsmiðju
RÚMLEGA sextugur maður lést í
vinnuslysi sem varð í vélsmiðju við
Funahöfða í gær.
Að sögn Gylfa Jónssonar hjá
slysarannsóknadeild lögreglunnar
varð maðurinn undir þungri vél sem
verið var að koma fyrir í vélsmiðj-
unni og er talið að hann hafí látist
samstundis. Málið er enn í rann-
sókn.
Samningafundur í leikskóladeilunni stóð enn á miðnætti eftir meira en 30 tíma setu
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ er ekki víst að barnið hafi
skilið hvað er um að vera í leik-
skólanum, en svo getur farið að
hann verði lokaður á mánudaginn.
Lokatilraun til að
afstýra verkfalli
SAMNINGAFUNDUR í kjara-
deilu leikskólakennara og sveitar-
félaganna stóð enn á miðnætti í
nótt og hafði þá staðið í yfír 30
klukkutíma. Þórir Einarsson ríkis-
sáttasemjari sagði að í gangi væri
úrslitatilraun til að ná samningum
fyrir boðað verkfall.
Þórir sagði í gærkvöldi að brugð-
ið gæti til beggja vona um árangur
af samningaviðræðum. Hann vildi
ekld greina frá stöðunni í viðræðun-
um í einstökum atriðum. Reynt yrði
til þrautar í nótt að ná samningum.
Verkfall leikskólakennara hefst
nk. mánudag hafi samningar ekki
tekist. Það nær til um 200 leikskóla
á landinu öllu, en á þeim eru um 15
þúsund böm.
Reykjavíkurborg rekur 63 leik-
skóla og verða þeir allir lokaðir á
meðan væntanleg vinnustöðvun
varir nema leikskólinn Barónsborg
við Barónsstíg, sem starfar að
hluta þar sem leikskólastjórinn er
ekki félagsmaður í Félagi íslenskra
leikskólakennara.
Óbreytt starfsemi verður á
gæsluleikvöllum borgarinnar en
þar eru fáir leikskólakennarar við
störf. Skv. upplýsingum sem feng-
ust hjá Dagvist barna er búist við
að foreldrar muni nota gæsluvell-
ina í einhverjum mæli en það er
takmarkað úrræði, enda fyrst og
fremst um útigæslu að ræða. Ekki
er þó gert ráð fyrir að foreldrar
sem stunda fulla vinnu nýti sér
þann kost, sem er fyrst og fremst
hugsaður fyrir heimavinnandi
fólk.
I Hafnarfirði verður ellefu leik-
skólum, sem reknir eru af Hafnar-
fjarðarbæ, lokað meðan á verkfalli
stendur. Vafí lék á um hvort loka
þyrfti leikskólanum Garðavöllum
við Hjallabraut þar sem leikskóla-
stjórinn er ekki í Félagi íslenskra
leikskólakennara en bæjaryfírvöld
í Hafnarfirði tóku þá ákvörðun að
loka honum einnig komi til verk-
falls. Tveir einkareknir leikskólar
eru í Hafnarfirði sem verða báðir
opnir þrátt fyrir verkfallið.
■ Veit ekki hvað ég tek/4
■ Börnin læra og þroskast/12
Morgunblaðið/Kristinn
Styrkir samkvæmt rannsóknaráætlunum Evrópusambandsins
Yfir 400 millj. til rannsókna
í íslenzkum sjávarútvegi
V;*
Á ÞEIM rúmlega þremur árum
sem liðin eru frá gildistöku samn-
ingsins um Evrópskt efnahagssvæði
hafa íslenzk fýrirtæki og rann-
sóknastofnanir fengið talsvert á
fimmta hundrað milljóna króna í
styrki úr rannsóknasjóðum Evrópu-
sambandsins til rannsókna, sem
tengjast íslenzkum sjávarútvegi.
Þetta eru um 40% þess fjár, sem
fengist hefur til íslenzkra rannsókn-
arverkefna samkvæmt 4. ramma-
áætlun Evrópusambandsins um
rannsóknir og þróun.
Síðastliðið vor höfðu fengizt í
styrki tæplega 413 milljónir króna
til rannsóknaverkefna tengdra sjáv-
arútveginum, samkvæmt upplýsing-
um frá Kynningarmiðstöð Evrópu-
rannsókna. Fé hefur fengizt til
rannsókna samkvæmt ýmsum undir-
áætlunum 4. rammaáætlunarinnar.
Til rannsókna, sem heyra undir
upplýsingatækniáætlun, hefur feng-
izt 101 milljón og má sem dæmi
nefna að Tæknival og fjögur frysti-
hús fengu 50 milljónir vegna þróun-
ar tölvukerfis í sjávarútvegi.
Fengizt hafa 62,8 milljónir úr
sjóðum iðnaðar- og efnistækniáætl-
unar og hefur mest af því fé runnið
til Hafrannsóknastofnunar, sem
samtals hefur fengið rúmlega 110
milljónir króna í styrki frá ESB.
Þá hafa fengizt tæplega 200
milljónir til rannsókna samkvæmt
landbúnaðar- og sjávarútvegsáætl-
un og hafa þeir peningar einkum
runnið til Hafrannsóknastofnunar,
Iðntæknistofnunar og Háskóla ís-
lands.
Rannsóknir, sem heyra undir ný-
sköpunaráætlun, hafa fengið 36,4
milljónir í styrki og líftæknirann-
sóknir tengdar sjávarútvegi 21,8
milljónir.
Framlag ísiands 800 milljónir
en 1.100 hafa þegar skilað sér
Yfirleitt veitir ESB styrk fyrir
50% af kostnaði við viðkomandi
verkefni og rannsóknaraðilar leggja
sjálfir til hinn helminginn eða fjár-
magna hann með öðrum hætti.
Þá eru hér einungis taldir þeir
styrkir, sem veittir eru íslenzkum
aðilum, sem taka þátt í þessum
rannsóknum, en skilyrði fyrir styrk-
veitingu er að fyrirtæki eða stofnan-
ir frá fleiri en einu landi komi að
rannsóknunum. Viðmælendur
Morgunblaðsins eru á einu máli um
að auk þess að meira fé til rann-
sókna sé nú til ráðstöfunar hafi
rannsóknasamstarfið komið þeim í
samband við nýja samstarfsaðila.
Sigurður Tómas Björgvinsson hjá
Kynningarmiðstöð Evrópurann-
sókna segir að frá því að þessar töl-
ur lágu fyrir í vor hafi nokkrir
styrkir bætzt við og því sé ljóst að
talan sé enn hærri.
Samtals hafa um 1.100 milljónir
komið í hlut Islendinga úr sjóðum 4.
rammaáætlunarinnar, en hún er í
gildi frá árinu 1994 og fram á mitt
næsta ár. Gjald Islands fyrir þátt-
töku í áætluninni er um 800 milljón-
ir króna og hefur því mun meira
skilað sér til baka en lagt var fram.
Sigurður Tómas segir að enn séu til
athugunar hjá ESB verkefni, sem
líkleg séu til að hljóta styrk, og
muni heildartalan því enn hækka.
Septem-
berganga
við Gróttu
HVER árstíð hefur sína töfra og
þó septembermánuður hafi verið
kaldur hefur veður verið fallegt og
vel viðrað til útivistar. A morgun
er gert ráð fyrir vest- og suðvest-
lægum áttum og víðast kalda.
Rigningarsúldi verður um vestan-
vert landið. Annars verður úr-
komulítið.
A sunnudag ættu að ríkja hægar
suðlægar áttir. Gert er ráð fyrir
súld eða rigningu, einkum sunnan-
lands. Hlýtt verður í veðri.
----♦♦♦----
Flugbanni á
TF-Líf aflétt
FLUGBANNI hefur verið aflétt af
TF-LÍF, Super Puma-þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Norðmenn afléttu
flugbanni af Super-Puma þyrlum í
Noregi í fyrradag. TF-LIF var þó
notuð í neyðartilfellum meðan flug-
bannið stóð.