Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Sjálfstæðisflokksins Arni í fyrsta sætinu með 90,52% atkvæða Kosningin er ekki bindandi ÁRNI Sigíússon, oddviti Sjálfstæð- isflokksins, varð í fyrsta sæti í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fór um helgina. Hann hlaut 4.542 atkvæði eða 90,52%. Á kjörskrá voru 15.160. Atkvæði greiddu 6.575 eða 43,37% og er kosningin því ekki bind- andi. Gild atkvæði voru samtals 6.348 en auðir og ógildir seðlar voru 227. í öðru sæti varð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson með 3.323 atkvæði eða 80,26% atkvæða. í þriðja sæti varð Inga Jóna Þórðardóttir með 3.377 atkvæði eða 71,2% og í fjórða sæti varð Júlíus Vífíll Ingvarsson með 2.693 atkvæði eða 70,92%. Júlíus Vífill og Guðlaugur Þór Þórðarsson, sem er í sjöunda sæti listans, eru meðal nýliða á listanum en þrír borgarfulltrúar, þau Hilmar Guðlaugsson, Gunnar Jóhann Birg- isson og Guðrún Zoéga gáfu ekki kost á sér. I prófkjöri flokksins fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar vorið 1994 hlutu tíu efstu frambjóðendumir bindandi kosningu. Til þess að kosn- ing verði bindandi þarf helmingur flokksbundinna að taka þátt í próf- kjörinu og frambjóðendur að fá helming greiddra atkæða. Árni Sigfússon Anægður með lýðræðislega niðurstöðu „ÞETTA er ágæt niðurstaða,“ sagði Ámi Sigfússon, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, en hann hlaut flest atkvæði eða 90,52% í fyrsta sæti. „Ég tel að þegar á sjöunda þúsund sjálf- stæðismenn koma saman sé þetta lýðræð- isleg niðurstaða og það er ekki annað en að vera ánægður með þá niðurstöðu. Sér- staklega þegar haft er í huga að þama koma saman karlar og kon- ur, ungir og aldnir, hver með sitt atkvæði og raða þessu svona upp.“ Ámi benti á að eins og sjálfstæð- ismenn störfuðu í borgarstjórnar- flokknum væri um að ræða 18 mann hóp þar sem hvert sæti skipti máli. „Miðað við niðurstöður próf- kjörsins em átta konur í þessum 18 manna hópi og það er vel,“ sagði hann. „Ef menn vilja hafa röðina öðravísi en fram kemur í prófkjörinu er það kjömefndar að skoða og leggja það síðan fyrir fulltrúaráðið. Listinn er ekki bind- andi og það þarf ekki að vera verra að kjömefnd hefur heimild til að að hreyfa til öll nöfn.“ Árni telur ekki ólíklegt að ein- hverjar breytingar verði á hópnum, það hafi gjarnan verið gert eftir frekari skoðun. „Það er eitt að gefa kost á sér í prófkjör og ná góðu kjöri,“ sagði hann. „Einhveij- ir verða aftarlega og það er ekki sjálfgefið að þeir sitji í þeim sætum sem þeir höfnuðu í.“ Ámi sagði að sér fyndist hópur- inn mjög sterkur og að ef verið væri að hugleiða að kalla til utanað- komandi fólk á listann yrði það mjög vandasamt og flókið. „Það er ekkert sem kallar á slíkt að mínu mati,“ sagði hann. „Listinn er af mörgum metinn sterkari en hann hefur oft verið út úr prófkjöri en það er kjömefndar að ákveða." ffrrnmrmmTmmTmTTTfi Allt til rafsuðu = HÉÐINN = VERSLUN SEUAVEGI 2 SÍMI 562 4260 Þú færð allt til rafsuðu hjá okkur, bæði TÆKI, VÍR og FYLGIHLUTI. Forysta ESAB er trygging fyrir gæoum og góðri þjónustu Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1997 ÁX Atkvæði greiddu 6.348 1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti 1.- 5. sæti 1.-6. sæti 1.- 7. sæti Samtals, 1.-8. sæti Hlutfall % 1. Árni Sigfússon 4.542 5.746 90,52 2. Viihjálmur Þ. Vilhjálmsson 189 3.323 5.095 80,26 3. Inga Jóna Þórðardóttir 1.184 2.280 3.377 4.559 71,82 4. Júlíus Vífill Ingvarsson 99 480 1.229 2.693 4.502 70,92 5. Jóna Gróa Sigurðardóttir 31 234 1.353 1.904 2.345 3.523 55,50 6. Ólafur F. Magnússon 64 222 609 1.703 2.247 2.688 3.512 55,32 7. Guðlaugur Þór Þórðarson 22 247 934 1.512 2.010 2.488 2.973 3.360 52,93 8. Kjartan Magnússon 34 143 398 786 1.761 2.287 2.836 3.254 51,26 9. EyþórArnalds 24 71 200 443 863 1.336 1.797 2.249 35,43 10. Snorri Hjaltason 49 87 229 414 1.070 1.439 1.837 2.157 33,98 11. Kristján Guðmundsson 7 37 128 278 526 1.147 1.525 1.869 29,44 12. Helga Jóhannsdóttir 8 44 135 293 581 998 1.420 1.795 28,28 13. Ágústa Johnson 18 42 102 275 445 725 1.076 1.427 22,48 14. Baltasar Kormákur 5 40 105 205 410 653 920 1.274 20,07 15. Linda Rós Michaelsdóttir 10 113 237 364 538 730 986 1.241 19,55 Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1994 Atkvæði greiddu 8.845 1. sæti 1.-2. sæti 1.-3. sæti 1.-4. sæti 1.- 5. sæti 1.- 6. sæti 1.-7. sæti Samtals, 1.- 8. sæti Hlutfall % 1. Markús Örn Antonsson 6.329 7.452 88,3 2. Árni Sigfússon 762 3.401 6.721 79,6 3. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 563 1.813 2.890 6.066 71,9 4. Inga Jóna Þórðardóttir 106 1.433 2.423 2.992 5.681 67,3 5. Hilmar Guðlaugsson 44 171 438 2.130 2.680 5.308 62,9 6. Gunnar Jóhann Birgisson 60 302 712 1.964 2.623 3.147 5.249 62,2 7. GuðrúnZoéga 42 266 1.462 1.978 2.529 2.981 3.500 5.109 60,5 8. Jóna Gróa Sigurðardóttir 13 147 986 1.386 1.876 2.365 2.859 4.853 57,5 9. Þorbergur Aðalsteinsson 36 102 243 442 741 2.066 2.571 4.556 54,0 10. Ólafur F. Magnússon 47 172 361 826 1.307 1.846 2.396 4.379 51,9 11. Páll Gíslason 73 593 960 1.233 1.630 1.961 2.367 4.177 49,5 12. Anna K. Jónsdóttir 38 225 558 838 1.332 1.724 2.158 4.000 47,4 13. Júlíus Hafstein 68 804 1.242 1.510 1.819 2.080 2.410 3.595 42,6 14. Helga Jóhannsdóttir 8 37 122 242 454 711 1.351 3.294 39,0 15. Björgúlfur Guðmundsson 77 205 409 597 1.165 1.502 1.874 3.264 38,7 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Anægður með niður- stöðuna „ÉG ER mjög ánægður með þessa niðurstöðu, bæði hvað mig varðar og eins gagnvart listanum í heild. Ég þakka öllum þeim sem studdu mitt framboð. Ótvíræður stuðningur við Áma Sigfússon í 1. sæti er mik- ill styrkur fyrir listann og þá kosningabaráttu sem er framund- an,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son sem varð í 2. sæti í prófkjöri . Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórakosninganna. Vilhjálmur fékk 3.323 atkvæði í 1. og 2. sætið en samanlagt 5.095 atkvæði í prófkjörinu eða 80,26%. „Ég er þeirrar skoðunar að við séum með mjög sterkan lista og með góðri samstöðu og þróttmiklu málefnastarfi er fátt sem sem get- ur komið í veg fyrir að Sjálfstæðis- flokkurinn nái meirihluta í borgar- stjórnarkosningunum í maí. Mál- efnastaða Sjálfstæðisflokksins i borgarmálum er mjög góð,“ sagði Vilhjálmur ennfremur. Hann sagðist í engum vafa um að listinn eins og hann lægi fyrir núna væri öflugur. Á listanum væri fólk sem kæmi víða að og hefði ólík- an bakgrann. Listinn væri kraftmik- ill og ferskur blær yfír honum. „Það er auðvitað ekki hægt að uppfylla óskir allra þegar svona listi er settur saman. Það er fólkið sem velur og þeir sem fara í prófkjör verða að vera tilbúnir til þess að taka niðurstöðunni. Ég held að nú hafi tekist mjög vel til og þess vegna er mjög bjartsýnn á fram- háldið,“ sagði Vilhjálmur einnig. Júlíus Vífill Ingvarsson Fann fyrir miklum stuðningi „ÉG ER að vonum afskaplega glað- ur yfir þessari niðurstöðu," sagði Júlíus Vífill Ingvarsson en hann er einn nýliðanna sem buðu sig fram í prófkjör- inu og lenti í fjórða sæti list- ans með 70,92% atkvæða. „Ég lagði út í þessa kosningabaráttu með stuttum fyr- irvara og hafði því ekki undirbúið baráttuna eins og aðrir frambjóðendur eðlilega höfðu gert,“ sagði hann. „Ég gat ekki gert mér grein fyrir því að ég fengi svona göðan stuðning fyrr en líða tók á kosningabaráttuna en þá fann ég fyrir miklum stuðningi og er afskaplega þakklátur fyrir hann.“ Júlíus telur listann að mörgu leyti sterkan. Listann skipi góð blanda af fólki, bæði ungu og nýju sem og reyndu, sem taka muni þátt í þeim baráttu sem framundan er. „Ég þekki þetta fólk og ég held að sam- vinna okkar geti orðið með miklum ágætum," sagði hann. Júlíus sagðist hafa starfað mikið í félagsmálum á háskólaáram sínum og eins í listalífinu og nú síðast í atvinnulífinu. „Þannig að sá hluti er mér vel kunnugur," sagði hann. „Ég hef verið í Sjálfstæðisflokknum lengi og starfað með honum í mörg undanfarin ár en ég hef ekki áður tekið virkan þátt í stjómmálum og renndi því nokkuð blint í sjóinn með hvaða stuðning ég mundi fá í próf- kjörinu. Mér skilst á reyndum stjórnmálamönnum að það sé sjald- gæft ef menn koma ekki úr hringiðu stjómmálanna að ná kosningu sem þessari." IngaJóna Þórðardóttir Setti markið hátt „ÉG SETTI markið hátt og ákvað að stefna í fyrsta sæti,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir en hún ásamt Áma Sigfússyni gaf kost á sér í fyrsta sæti og hafnaði í þriðja sæti með 71,82% atkvæða. „Ég er mjög sátt við að hafa reynt við fyrsta sætið og sátt við sjálfa mig á eftir." „Ég treysti mér til að leiða listann til sigurs í borgarstjómarkosningun- um í vor,“ sagði hún. „Ég er ekki ánægð með að hafa ekki náð settu marki en ég gerði mér grein fyrir að ég væri að taka mikla áhættu. Þá áhættu að ég gæti dottið niður listann og með þliðsjón af því er ég sátt við að halda mínu þriðja sæti.“ Inga Jóna sagði að sér fyndist slæmt að sjá hlut kvenna rýrna miðað við það sem áður var en kjör- nefnd eigi eftir að skoða listann og reyna að koma með tillögu sem höfðar til breiðs hóps.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.