Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 10

Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 KENNARASAMNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Breytingar á launatöflu og aukinn sveigjanleiki Samningur Launanefndar sveitarfélaga og KÍ og HÍK Nokkur dæmi um breytingar á samningstímabilinu: Nýútskrifaður kennari (byrjandi) s Kennari, 4 ára háskólanám 18 ára starfsreynsla Skólastjóri í meðalstórum skóla, | 18árastarfsreynsla Skólastjórar í stærstu skólum, 18 ára starfsreynsla SAMKOMULAG Launanefndar sveitarfélaga annars vegar og Kennarafélags íslands og Hins ís- lenska kennarafélags hins vegar var undirritað í gærkvöldi og kveð- ur á um 33% launahækkanir á samningstímanum, sem er til 31. desember árið 2000. í samkomulag- inu kemur fram að launatafia kenn- ara breytist og sveigjanleiki eykst. Boðuðu verkfalli kennara var frest- að í gær eftir að það hafði staðið i tæpan sólarhring og verður sam- komulagið borið upp við kennara innan þriggja vikna frá undirritun. í samkomulaginu segir að upp- byggingu launatöflu grunnskóla- kennara hafi verið breytt. Nú er um að ræða sex þrepa töflu í stað átta áður og segir að munurinn milli launaflokka sé 3% til 3,5%. Er tekið fram að „vegin meðal- hækkun launatöflu [sé] 5,04%“ og gildistími hennar sé frá 1. ágúst þessa árs. Samkvæmt samkomulaginu munu laun kennara hækka um 3,5% 1. janúar 1998,1,5% 1. ágúst 1998, 3,5% 1. janúar 1999, 3,5% 1. jan- úar 2000 og 3,25% 1. desember 2000. Þar kveður á um það að kennslu- ferlisflokkar eftir eins og tveggja ára kennsluferil falli niður og röðun kennara á fyrsta og öðru ári í starfí hækki sem því nemur. Hækkað um launaflokk Þá hafa kennarar fengið því framgengt í samkomulaginu að röð- un grunnskólakennara og leiðbein- enda eftir menntun í launaflokka breytist þannig að þeir hækki um einn launaflokk 1. ágúst 1998. nóvember sama ár. Hámarkskennsla í stað kennsluskyldu Ein grein samningsins fjaliar um desemberuppbót, sem eigi að nema tæpum 30 þúsund krónum hjá kennara sem hefur verið í fullu starfí tímabilið 1. janúar til 30. í samkomulaginu segir að í nýj- um kjarasamningi eigi að kveða á um hámarkskennslu í stað kennslu- skyldu. Hámarkskennsla, aldursaf- sláttur og fyrirkomulag starfsdaga sé óbreytt frá fyrra kjarasamningi og hámarkskennsla í dagvinnu hjá almennum kennara verði því áfram 28 kennslustundir á viku. „Markmiðið með framangreind- um breytingum er að ná fram aukn- um sveigjanleika í skipulagningu skólastarfs," segir í samkomulag- inu. „Þannig skapast betri mögu- leikar á því að mæta óskum kenn- ara úm fullt starf við einsetningu grunnskólans auk þess sem unnt verður að fela kennurum í auknum mæli önnur verkefni sem samræm- ast starfssviði þeirra.“ Segir enn fremur að sé sá mögu- leiki nýttur að bæta inn öðrum störfum geti það falið þrennt í sér, að kennsla víki fyrir öðrum störfum, stöðuhlutfall hækki og greiðslu yfir- vinnu. Þetta var liður í tillögu sveitarfé- laga í síðustu viku og gefur kost á kjarabótum. Aukin ábyrgð skólasljóra Sérstök grein er um breytta stöðu skólastjóra eftir yfirfærslu grunn- skólans til sveitarfélaganna, enda hafí þeir við það orðið forstöðumenn stofnunar á vegum síns sveitarfé- lags, sem hafí meðal annars í för með sér ábyrgð á rekstri stofnunar- innar, þátttöku í áætlanagerð, fjár- málastjórn og starfsmannastjórn- un. Segir að til að mæta þessu verði skólastjórar hækkaðir um einn launaflokk frá 1. nóvember 1997 og einn launaflokk frá 1. júní 1998. Aðstoðarskólastjórar hækki um einn launaflokk frá 1. nóvember 1997. Enn fremur segir að endurskoða verði innbyrðis samsetningu launa skólastjóra með það að markmiði að auka vægi fastra launa á kostn- að annarra launagreiðslna. „Lögð er áhersla á aukningu stjórnunarþáttar í starfi skólastjóra grunnskóla og dregið verði úr vinnu við önnur störf en stjórnun með því að minnka vægi hámarkskennslu í dagvinnu í starfí skólastjóra," segir í samkomulaginu og á endur- skoðuninni að ljúka í lok apríl á næsta ári og útfærsla hennar að taka gildi frá og með 1. ágúst 1998. Segir að samningsaðilar skuli „bera þennan kjarasamning upp til samþykktar eða synjunar innan þriggja vikna frá undirritun. Hafí gagnaðila ekki borist tilkynning um niðurstöðu fyrir kl. 15:00 17. nóv- ember nk. skoðast hann samþykkt- ur.“ Fyrirvari um lagabreytingar Nokkrar bókanir fylgja sam- komulaginu. Um vinnutímafyrir- komulag segir að aðilar séu sam- mála um að á samningstímanum verði fjallað um mögulegar efnis- breytingar á því, til dæmis í tengsl- um við endurskoðun aðalnámsskrár og hugsanlegar breytingar í kjölfar þeirrar endurskoðunar. Samningsaðilar taka fram að þeir séu sammála um að kanna á samningstímanum möguleika á því að taka upp einfalt lífaldurskerfi í stað viðmiðana við starfs- og próf- aldur, án þess að þeir fjalli nánar um það atriði. Þá er bókun þess efnis að verði gerðar breytingar á lögum um rétt- indi og skyldur kennara og skóla- stjórnenda í andstöðu við samtök kennara skal þeim heimilt að segja upp kjarasamningnum. Eigi að miða uppsögn samningsins við gildistöku slíkra laga. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra Engin rök eru til að taka upp samninga Atelur vinnubrögð STJÓRN Kennarafélags Reykja- víkur hefur sent Morgunblaðinu eftirfarandi ályktun: „Stjóm Kennarafélags Reylya- víkur átelur harðlega þau vinnu- brögð sveitarstjórnarmanna sem birst hafa kennurum undanfarna daga og nánar var um fjallað á blaðamannafundi kennarafélag- anna í Kennarahúsinu fyrr í dag. Svo virðist sem grunnskólanum skuli fórnað á altari pólitískra hagsmuna. Við lýsum furðu okkar á að viðræðunefnd sveitarstjórn- armanna skuli misnota aðstöðu sína og bijóta trúnað gegn við- semjendum sínum og sýna þannig í verki að það var aldrei meining- in að semja við kennarafélögin. Við lýsum fulium stuðningi við störf samninganefndar kennara- félaganna og krefjumst heiðar- leika af háifu viðsemjenda þeirra. Jafnframt hörmum við að al- menningur skuli ekki verða upp- lýstur um hvaða hugmyndir borg- arstjórinn í Reykjavík hafði í far- teskinu á fundi sumra sveit- arstjórnarmanna með viðræðu- nefnd Launanefndar sveitarfélag- anna í gær. Við lýsum fullri ábyrgð á hend- ur sveitarstjórnum iandsins er virðast hafa það markmið að leið- arljósi að hrekja u.þ.b. 40.000 grunnskólanema út í óvissuna.“ FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra segir að það séu engin rök fyrir því að samningar ríkis og sveit- arfélaga um yfirfærslu grunnskól- ans verði teknir upp vegna nýgerðra kjarasamninga sveitarfélaganna við kennara. Þeir tekjustofnar sem sveitarfélögin hafi fengið við yfir- færslu grunnskólans hafí verið um- talsvert meiri en nam þáverandi kostnaði af rekstri grunnskólans. Friðrik sagði að þegar samning- arnir um yfírfærsluna hefðu verið gerðir hefðu samningar við kennara nýlega verið afstaðnir. Tekið hefði verið að fullu tillit til allra hækkana sem þeir kjarasamningar höfðu í för með sér á samningstímabilinu. í öðru lagi hefði verið meðtalinn fyrir- sjáanlegur kostnaður vegna fjölgun- ar kennslustunda fram yfír aldamót, sem og aukinnar sérkennslu. í þriðja lagi hefði sveitarfélögunum verið bættur upp væntanlegur aukinn kostnaður við rekstur grunnskólans á næstu árum bæði með flutningi á fé frá ríkinu og einnig með heimild til þess að hækka útsvar um 0,1% á árunum 1997 og 1998. í fjórða lagi hefði verið gert ráð fyrir aðstoð ríkisins við byggingu skólahúsnæðis vegna einsetningar grunnskólans og séu útgjöld ríkisins vegna þessa 1.325 milljónir króna á næstu fimm árum. 4-500 tnilljónir á næsta ári „Þá er rétt að benda á að sveitar- félögin hafa að sjálfsögðu notið hag- vaxtarins eins og aðrir í þjóðfélaginu og fengið talsvert meiri tekjur af tekjustofnunum sem fluttir voru yfir til sveitarfélaganna heldur en gert var ráð fyrir þegar samningurinn var gerður. Þetta hefur gerst bæði í fyrra og í ár og eru umtalsverðar upphæð- ir án þess að nokkur nýr samningur hafí verið gerður við kennara og á næsta ári skilar hagvöxturinn sér í því að sveitarfélögin fá 4-500 millj- ónir króna umfram þá fjárhæð sem gert var ráð fyrir 1996 þegar samn- ingurinn var gerður," sagði Friðrik. Hann benti á að samningur kenn- ara gilti fram á næstu öld og hækk- anir samkvæmt honum kæmu til framkvæmda í áföngum á þeim tíma. Ef hagvöxtur yrði sá sem spáð væri á næstu árum myndi hann einn og sér lauslega áætlað nægja til að greiða aukakostnað vegna kjara- samninganna sem nú hefðu verið gerðir. „í raun og veru gekk ríkið þannig frá samningnum við sveitarfélögin að verulegt borð var fyrir báru til þess að sveitarfélögin gætu lagt grunnskólanum til aukið fjárframlag annað hvort í formi launa eða með því að lengja og bæta skólastarfíð með öðrum hætti,“ sagði Friðrik. Einhver áhrif á kjarasamninga ríkisins Hann sagði að það væri ánægju- iegt að kjarasamningar við kennara skyldu hafa tekist, en leitt ef rétt væri að ekki skyldi hafa tekist að semja um aukið vinnuframlag í skól- unum til þess að styrkja þannig sjálft skólastarfíð. Aðspurður hvort hann óttaðist að samningar sveitarfélag- anna við kennara og leikskólakenn- ara, þar sem samið hefur verið um talsvert meiri hækkanir en almennt í öðrum samningum hefðu áhrif á þá samninga sem ríkið á eftir að gera, sagði Friðrik: „Auðvitað má gera ráð fyrir að þeir samningar sem hafa verið gerðir að undanförnu af hálfu sveitarfélaganna kunni að hafa einhver áhrif á þá kjarasamninga sem ríkið á eftir að gera við ýmsa aðila, eins og til dæmis þroskaþjálfa og lækna, þótt ég'vilji alls ekki setja jafnaðarmerki þar á milli.“ Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri Gleðiefni að samn- ingamir séu í höfn INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir það mikið gleðiefni að kjarasamningar við kennara skuli vera í höfn. „Ég er mjög ánægð með að það skuli hafa tekist að ná samningum og verkfall skuli ekki hafa staðið nema í einn dag. í mínum huga var það algjörlega óviðunandi að skólastarf legðist af og ég trúði því og vonaði allt til síð- ustu stundar að menn myndu ná saman,“ sagði Ingibjörg Sól- rún. Hún sagði að á þessari stundu lægi ekki fyrir hvernig borgin myndi mæta þeim kostnaðar- hækkunum sem fylgdu kjara- samningunum. Það væri alveg Ijóst að fara þyrfti vandlega yfir þau mál og athuga hvort hægt væri að hagræða almennt í rekstri borgarinnar og eins hvort hægja mætti á eða fresta einhverjum framkvæmdum. Það væri ekki þar með sagt að það þyrfti að gerast strax á næsta ári, því kjarasamningurinn kæmi til framkvæmda í áföngum og myndi vega æ þyngra eftir því sem á liði og uppsöfnunar- áhrifin kæmu í ljós. Engu að síður mætti búast við að strax á næsta ári yrði kostnaðurinn meiri en sem næmi þeim tekjum sem borgin fengi af þeirri út- svarsprósentu sem færð hefði verið til sveitarfélaganna vegna yfirfærslu grunnskólans og einnig því sem góðærið skilaði í auknum tekjum. Viðræður við ríkisvaldið koma til greina Aðspurð sagði Ingibjörg að skattahækkun væri ekki inni í myndinni til að mæta þessum kostnaðarhækkunum. Leita yrði allra annarra leiða áður en til þess gæti komið. Hún sagði að sér fyndist koma til greina að óska eftir viðræðum við ríkis- valdið vegna meiri kostnaðar af grunnskólunum, því þótt góðær- ið væri að skila einhveijum 500 milljónum króna í auknum tekj- um vegna þeirrar útsvarspró- sentu sem færð hefði verið til sveitarfélaganna, þá séu þær farnar og meira til hjá sveitarfé- lögunum í heild vegna þessara samninga. „Þar að auki höfum við sveitarfélögin líka verið að bæta inn í skólana ýmsu sem er kannski umfram grunnskólalög- in, einfaldlega vegna þess að við erum að taka við grunnskólan- um úr langvarandi svelti," sagði Ingibjörg ennfremur. Hún sagði að þannig hefði útgjaldaauki vegna yfirfærslu grunnskólanna verið verulegur umfram það sem menn hafi séð fyrir vegna yfirfærslunnar. Að- spurð sagði hún að það væru viss vonbrigði að ekki hefðu náðst fram þær breytingar á kjarasamningnum sem sveitar- félögin óskuðu eftir til að auka sveigjanleika í skólastarfi. Að vísu hefði náðst fram ákveðinn sveigjanleiki og gert væri ráð fyrir viðræðum í þessum efnum á samningstímanum. „Eg neita því ekki að það veldur mér viss- um vonbrigðum að við skyldum ekki ná lengra í því efni, en það getur vel verið að okkar vænt- ingar hafi þar verið óraunhæfar og menn bara ekki tilbúnir að stíga þessi skref á þessari stundu,“ sagði Ingibjörg Sólrún.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.