Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 l'l KENNARASAMNINGAR Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Islands Ekki annað verjandi en bera ávinninginn undir atkvæði Morgunblaðið/Ásdis EIRÍKUR Jónsson, formaður KÍ, og Jón G. Kristjánsson, formað- ur samninganefndar sveitarfélaga, takast í hendur að lokinni undirritun. Á milli þeirra er Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. „VIÐ höfum átt í mjög erfiðri og langri deilu. Það hefur verið tekist hart á og við mátum stöðuna svo í morgun að það væri komið það mikið inn í þennan samning, að það væri í raun ekki annað veijandi en að bera hann undir atkvæði félags- manna,“ sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands ís- lands, í gærkvöldi að aflokinni und- irritun nýs kjarasamnings kennara- félaganna og sveitarfélaga. „Þess ber að geta að það hafa breyst mjög forsendur frá því að við fórum í verkfallsboðunina. Öll- um vinnutímahugmyndum sveitar- félaganna var ýtt út af borðinu en það voru ekki síst þær hugmyndir, sem gerðu kennara mjög reiða, því þar átti að stokka allt upp og auka við kennslu, sérstaklega eldri kenn- aranna. Fyrir það áttu menn að fá einhver 22% í launahækkun. Þetta var staðan þegar atkvæðagreiðslan um verkfall fór fram. Nú erum við með samning þar sem ekki eru gerðar breytingar á vinnutímanum. Það er opnað fyrir ákveðinn sveigj- anleika og ef hann er nýttur koma til aukagreiðslur vegna þess. Það er þó vonarpeningur og ekki í hendi,“ segir Eiríkur. Tók 12 tíma að ganga að innanhússtillögunni Eiríkur sagði að kennarar næðu því fram að byijunarlaun þeirra yrðu ekki undir 100 þúsund kr. á mánuði við upphaf næsta skólaárs og náð yrði 110 þúsund kr. byijun- arlaunum á samningstímanum. Hann sagði einnig mikilvægt að kennarar fengju afturvirkar hækk- anir frá 1. ágúst sl. Eiríkur var spurður hvort hann væri bjartsýnn á að kennarar myndu samþykkja samninginn í atkvæðagreiðslu. „Við sem eigum sæti í samninganefndinni töldum rétt að ganga að þessu. Það tók okkur tólf klukkutíma, frá því að við fengum upplýsingar um hvað myndi verða í tillögunni, að komast að niðurstöðu í samninganefndinni. Það urðu mjög hreinskiptar um- ræður og niðurstaðan varð þessi,“ sagði Eiríkur. „Hluti af samkomulaginu núna var yfirlýsing frá launanefnd sveit- arfélaga, þar sem fram kemur að þrátt fyrir þennan eina dag í verk- falli, verða laun ekki dregin af fólki. Við höfum skriflega yfirlýsingu þess efnis,“ segir Eiríkur. Ásaka ekki Morgunblaðið um rangar upplýsingar Mikil harka var í viðræðunum yfir helgina og boðaði samninga- nefnd kennara til fréttamanna- fundar fyrir hádegi sl. sunnudag vegna fréttar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins af fundi borgar- stjóra með fulltrúum launanefndar sveitarfélaga á laugardag. Settu kennarar fram harðar ásakanir um trúnaðarbrest á milli samningsað- ila. Héldu þeir því fram að trúnað- argögn hefðu borist af fundinum til Morgunblaðsins um efni fundar launanefnar og upplýsingar um laun kennara, sem kennarar sögðu rangar. „Við vissum ekki hvaða aðili þar var á ferðinni. Það hefur einhver komið til þess fundar í öðrum til- gangi en efni fundarins gaf tilefni til. Okkur fannst þetta mjög alvar- legt vegna þess að þarna var dreift röngum upplýsingum," sagði Eirík- ur. Hann sagði að launatölur í frétt Morgunblaðsins hefðu eingöngu náð yfir heildarlaun kennara í fullu starfi og að meðtalinni yfirvinnu en ekki laun annarra. Það gæfi mjög villandi mynd af launum kennara. Eðlilegra væri að miða slíkar tölur við stöðugildi. Eiríkur var þá spurður hvort kennarar væru að ásaka Morgun- blaðið fyrir að birta rangar upplýs- ingar: „Nei, ég var ekki að saka Morgunblaðið um að birta annað en það sem þvi hafði borist, en það er ljóst að þangað hafa borist gögn af fundinum og okkur voru sýnd þessi gögn eftir á og allt sem i þessum gögnum stóð passaði við fréttina í Morgunblaðinu,“ sagði Eiríkur. Hann sagði að kennarar hefðu spurt sig í hvaða tilgangi þessum upplýsingum hefði verið komið til blaðsins og talið nauðsynlegt að þjóðin fengi að vita að þarna væri ekki um eðlileg vinnubrögð að ræða. „Ég held að það megi kannski segja að við höfum tapað 30 klukkutímum úr vinnu vegna alls þessa ferlis," sagði hann. Eiríkur sagði aðspurður að kenn- arar væru ekki að gera þá kröfu að Morgunblaðið lægi á slíkum upp- lýsingum. „Samninganefnd kennara er lokuð inni í Karphúsi, bundin trúnaði, en einhveijir voru þama á ferðinni sem vom að leika einhvem annan leik en við. Það er ekkert óeðlilegt við að fjölmiðlar birti þær upplýsingar sem þeim berast, ekki síst ef þær em komnar frá áreiðan- legum aðilum, en það sem mér fmnst alvarlegt er að þama hefur eitthvað annað vakað fyrir mönnum. Mér fannst að þama væri gmnn- skólinn orðinn bitbein í pólitískri baráttu og að tilgangurinn ætti að helga meðalið," svaraði Eiríkur. Úrtak náði til 632 kennara í fullu starfi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athuga- semd frá launanefnd sveitar- félaga við framsetningu Morgunblaðsins 25. október á upplýsingum um meðal- heildarlaun kennara: „í fréttinni var það ekki tekið fram að um væri að ræða meðallaun kennara í fullu starfi allt sl. skólaár miðað við tímabilið 1. sept. 1996-31. ágúst 1997, eins og gerð var grein fyrir í um- ræddu skjali. Gefa ekki heildarmynd Af um 1.300 kennurum í Reykjavík náði úrtakið til 632 almennra kennara í fullu starfí á þessu tímabili. I úr- takinu voru ekki taldir með æfíngakennarar, sérkennar- ar, aðstoðarskólastjórar og skólastjórar. Meðallaun þeirra kennara sem vora í hlutastarfí eða störfum hluta ársins vom held- ur ekki meðtalin. Þar af leið- andi gefa þessar upplýsingar ekki mynd af meðalheildar- launum allra kennara er störf- uðu í grunnskólum Reykjavík- ur á umræddu tímabili. Harma birtingu upplýsinga Þessar upplýsingar vom unnar fyrir fund stjórnar Launanefndar sveitarfélaga og eingöngu ætlaðar fyrir sveitarstjórnamenn. Rétt er að geta þess að þessi gögn vom ekki ætluð til birtingar í fjölmiðlum og ber að harma að svo hafi verið gert. Verið er að vinna að út- reikningi meðalheildarlauna allra kennara í gmnnskólum Reykjavíkur en ekki náðist að klára þær fyrir fundinn í gær.“ Þórir Einarsson ríkissáttasemjari Þurfti innanhúss- tillögu til að ná í lokahöfn ÞÓRIR Einarsson ríkissáttasemjari sagði í gær að þurft hefði að leggja fram innanhússtillögu til þess að endar næðust saman í kjaradeilu gmnnskólakennara og sveitarfé- laga í gærkvöldi, en áður hefðu hvorir tveggja verið búnir að sýna vilja til að miðla málum. Hann kvaðst frekar eiga von á að kennar- ar yrðu ánægðir með samninginn. „Það þurfti reyndar innanhússtil- lögu til þess að koma þessu áfram í lokahöfn," sagði Þórir. „Forsendan var sú að báðir aðilar höfðu reynd- ar hreyft sig áður.“ Verkfall kennara hafði ekki stað- ið í sólarhring þegar samningar tókust í gærkvöldi. Margir höfðu spáð því að komið gæti til lang- vinnra verkfallsátaka, en Þórir kvaðst ekki hissa á því að deilan hefði leyst. Kemur aldrei neitt á óvart „Mér kemur aldrei neitt á óvart," sagði sáttasemjari. „Ég geng til svona verka með því hugarfari að ná þessu. Það tekst vitaskuld ekki alltaf, en þó held ég að það séu fá skipti, sem mér hefur ekki tekist að ná í höfn.“ Þegar saman náðist í gærkvöldi höfðu viðsemjendur setið lengi á rökstólum og í gær hafði ríkt frétta- bann allt þar til greint var frá því að skrifa ætti undir. „Þetta var mjög langur fundur,“ sagði Þórir. „Þetta er ein lengsta lokalota, sem ég man eftir. Þetta var mjög erfitt, um þrír og hálfur sólarhringur.“ Hann sagði að þótt fundirnir væru langir væri ekki erfítt að henda reiður á ötlum þeim smáatrið- um, sem fylgdu samningagerðinni. „Maður er búinn að taka þetta inn í æð,“ sagði hann. „Þetta em orðnir heimilisvinir, öll þessi ákvæði, sem ekki næst samkomulag um.“ Hann sagðist engu vilja spá um það hvernig grunnskólakennarar tækju samningnum, en hann ætti þó frekar von á því að þeir yrðu ánægðir með hann. Jón G. Kristjánsson, formaður samninganefndar launanefndar sveitarfélaganna Stöðugleikanum í þjóð- félaginu ekki raskað JÓN G. Kristjánsson, formaður samninganefndar launanefnd- ar sveitarfélaga, segir að ný- gerður samningur við kennara- félögin um nálægt 33% launa- hækkanir á samningstimanum, sem er út árið 2000, eigi ekki að raska stöðugleikanum í þjóðfélaginu. „Það hefur verið vilji stjórnmálamanna, foreldra og almennings að kennarar fengju meiri hækkun en aðrar stéttir,“ segir hann. „Menn vijja sjá skólastarf eflast, styðja og staðfesta áherslur sveitarfé- laga á skólastarf og standa með skólastjórum og kennurum að metnaðarfullu skólastarfi. Við viljum ekki síst sjá ungt fólk í auknum mæli vejja sér kenn- arastarfið sem framtíðarstarf, “ sagði Jón. Aukinn sveigjanleiki mesti ávinningurinn „Þessi samningur er að mínu mati mjög hagstæður fyrir kennara. I honum felast veru- lega góðar launahækkanir. Þetta er lengsti samningur sem gerður hefur verið, því gildis- tími hans er frá 1. mars á þessu ári til ársloka árið 2000. Lögð er sérstök áhersla á hækkun byrjunarlauna sem og til skóla- stjóra og er aukin áhersla lögð á stjórnunarþátt skólastjóra. Mesti ávinningurinn fyrir sveitarfélögin er að það fæst meiri sveigjanleiki í skipulagn- ingu skólastarfsins og sömu- leiðis er bókun um að á samn- ingstímanum munu aðilar skoða efnisatriði vinnutímans," segir Jón. Sveitarfélögin taka á sig allan kostnað Jón segir að með auknum sveigjanleika verði auðveldara að tryggja bekkjarkennurum í yngstu bekkjardeildum fullt starf og með sama hætti yrði mun auðveldara en áður að fela kennurum önnur störf en kennslu. Jón sagðist ekki hafa á tak- teinum upplýsingar um hve mikið samningurinn kostaði sveitarfélögin í heild sinni. Aðspurður hvort sveitarfé- lögin gætu staðið undir þessum launahækkunum án þess að auka tekjur sínar með hækkun útsvars eða annarra tekju- stofna svaraði hann. „Það er annarra að ákveða það og ég býst við að sveitarfélögin séu misjafnlega sett hvað það snertir. Við erum þeirrar skoð- unar að sveitarfélögin þurfi að hagræða og fara ofan í sín mál. Þessi innanhússtillaga kemur til vegna þess að það bar á milli og við treystum okkur ekki til að ganga lengra.“ Jón sagði að ríkisvaldið kæmi ekki á nokkurn hátt að þessari samningsgerð og sveitarfélögin tækju að öllu leyti á sig kostnað- inn. Kvaðst hann ekki eiga von á að ríkinu yrði sendur reikn- ingur vegna samningsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.