Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 17
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GENGIÐ var frá gamla tónlistarskólanum í Arnardrangi að
húsnæði Listaskólans við Vesturveg við undirleik Lúðrasveit-
ar Vestmannaeyja.
Listaskóli opn-
aður í Ejrjum
Vestmannaeyjum - Listaskóli
Vestmannaeyja tók formlega til
starfa í nýju húsnæði nýlega. Opn-
un skólans fór fram með athöfn
þar sem hljóðfæraleikur var í fyrir-
rúmi ásamt ávörpum. I Listaskó-
lanum verður sameinuð tónlistar-,
myndlistar- og leiklistarkennsla en
fyrst um sinn mun tónlistarkennsl-
an verða uppistaðan í skólanum.
Tónlistarskóli Vestmannaeyja,
sem hingað til hefur annast tónlist-
arkennslu í Eyjum, var til húsa í
Arnardrangi við Hilmisgötu en það
húsnæði var bæði óhentugt og
löngu orðið of lítið fyrir starfsem-
ina. Vígsluathöfn Listaskólans
hófst með því að Lúðrasveit Vest-
mannaeyja marseraði í farabroddi
skrúðgöngu frá Arnardrangi að
nýja Listaskólanum við Vesturveg
þar sem samkoma var í tilefni af
opnun skólans.
Við upphaf samkomunnar lék
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja
nokkur lög en síðan flutti Arnar
Sigurmundsson, formaður skóla-
málaráðs, ávarp. í máli Amars
kom fram að bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hafí samþykkt í ágúst
1996 að fela skólamálaráði að
móta tillögu um starfsemi Lista-
skóla Vestmannaeyja. Þær tillögur
lágu fyrir í árslok en í þeim var
gert ráð fyrir að Listaskóli yrði
starfræktur í þremur deildum, tón-
listar-, myndlistar- og leiklistar-
deild og að skólinn yrði til húsa
að Vesturvegi 38-40.
Margvísleg starfsemi
áður í húsnæðinu
Húsnæðið við Vesturveg hefur
hýst ýmiss konar skólastarf gegn-
um árin. Húsið var tekið í notkun
árið 1967 og hýsti fyrst Iðnskólann
í Eyjum auk áhaldahúss Vest-
mannaeyjabæjar að hluta. Síðar
fluttist Vélskólinn í Eyjum í húsið
og einnig Stýrimannaskólinn.
Framhaldsskólinn í Eyjum steig
sín fyrstu skref í húsinu og á tíma-
bili voru tveir efstu bekkir grunn-
skólans þar til húsa. Síðustu ár
hefur Stýrimannaskólinn verið í
húsinu en sl. haust flutti hann í
húsnæði Framhaldsskólans þannig
að engin starfsemi hefur verið í
húsinu í vetur að undanskildu því
að kennsluaðstaða til tækja-
kennslu fyrir skipstjórnamema er
þar og verður fyrst um sinn.
Arnar sagði að þegar ákvörðun
var tekin um að koma Listaskólan-
um fyrir í þessu húsnæði hafí leg-
ið fyrir að ráðast þyrfti í talsverð-
ar endurbætur á húsnæðinu og það
verk yrði ekki unnið á skemmri
tíma en tveimur til þremur árum.
Á þessu ári hafí verið gert ráð
fyrir sjö milljónum til framkvæmda
og búnaðarkaupa í skólanum en
ljóst væri að kostnaður við verkið
hefði farið talsvert framúr áætlun
og ætti það sér eðlilegar skýringar.
Hann sagði að Listaskólinn í
Eyjum væri sá fyrsti sinnar teg-
undar á landinu og með stofnun
skólans væri tekið mikið skref
fram á við í skóla- og menningar-
málum í Eyjum.
Kórastarf og lúðrasveitir
Ekki er gert ráð fyrir að hús-
næðið verði einungis fyrir skóla-
hald í listum heldur fá Skólalúðra-
sveit Vestmannaeyja og Lúðra-
sveit Vestmannaeyja aðstöðu í
húsinu og einnig er gert ráð fyrir
að húsnæðið nýtist undir kórastarf
og hvers konar menningarvið-
burði.
Aðalverktaki við breytingar
hússins var fyrirtækið Drangur en
auk þeirra komu margir aðrir
verktakar að breytingunum. Amar
þakkaði öllum þeim sem komu að
verkinu og bauð nemendur og
starfsfólk velkomið til starfa á
nýjum stað en óskaði síðan Eyja-
mönnum öllum til hamingju með
Listaskólann.
Að loknu ávarpi Arnars var tón-
listarflutningur en að honum lokn-
um flutti Sigurður R. Símonarson,
skólamálafulltrúi og yfirstjómandi
skólans, ávarp þar sem hann rakti
hvemig áætlað væri að starfsemi
Listaskólans yrði fyrst um sinn.
Hann sagði að þegar hefðu verið
myndaðir starfshópar með áhuga-
fólki á hverju sviði til að marka
stefnuna og efla áhuga á listgrein-
unum sem í boði eru.
Tónlistaratriði var síðan flutt
en að því loknu rakti Guðmundur
H. Guðjónsson, forstöðumaður
tónlistardeildar, sögu tónlistar-
kennslu í Eyjum. Ólafur Lárusson,
forseti bæjarstjómar Vestmanna-
eyja, flutti síðan ávarp og óskaði
Eyjamönnum til hamingju með
skólann en að lokum lék Lúðra-
sveit Vestmannaeyja nokkur lög.
FJÖLMENNI var við opnun Listaskólans í Eyjum.
Héraðssjúkrahúsið á
Blönduósi
Ný sjúkra-
deild tekin í
notkun
Blönduósi - Sjúkradeild Héraðssjúkrahússins á Blöndu-
ósi var formlega tekin í notkun nýlega að viðstöddu fjöl-
menni. Meðal gesta var Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra svo og nokkrir þingmenn kjördæmisins. Jafn-
framt þessu var þeirra tímamóta minnst að 40 ár eru
liðin frá því að heilsugæsla Austur-Húnvetninga fluttist
úr gamla sjúkraskýlinu á þann stað sem hún er nú.
Formaður stjómar sjúkrahússins, Guðmundur Theódórs-
son, setti hátíðina í biðstofu heilsugæslustöðvarinnar.
Guðmundur Theódórsson þakkaði öllum þeim er við-
byggingunni lögðu lið með einum eða öðram hætti en
hann þakkaði Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra
sérstaklega fyrir góða liðveislu við að ljúka þessum
áfanga. Gunnar Richardsson, formaður bygginganefnd-
ar, rakti byggingasögu viðbyggingar sjúkrahússins og
kom fram að hafíst var handa við byggingu árið 1981
og núna seinni hluta ársins 1997 sextán áram síðar sér
loks fyrir endann á þessum framkvæmdum. Endurhæf-
ingaraðstaða í kjallara er það eina sem eftir er svo við-
byggingin teljist fullgerð.
Héraðshælið eins og sjúkrahúsið á Blönduósi hefur
lengst af verið kallað var tekið í notkun síðla árs 1955
þannig að í raun era liðin tæp 42 ár síðan heilslugæsla
á núverandi stað hófst en af hagkvæmnisástæðum var
ákveðið að sameina þessa tvo merkisatburði í einni veislu.
Sigursteinn Guðmundsson yfírlæknir minntist framheij-
anna í heilsugæslumálum Austur-Húnavatnssýlu og lék
m.a. af segulbandi hluta úr ræðu sem Páll heitinn Kolka
flutti á 10 ára afmæli sjúkrahússins, hvar Kolka bar
mikið lof á Jón ísberg fyrir að sjá svo um að aldrei hefði
orðið fyár vant við byggingu eldri hluta Héraðshælisins.
Þess má geta að það tók aðeins 32 mánuði að ljúka þeim
hluta sjúkrahúss þó að byggingarsagan spanni 42 ár.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra flutti ávarp
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
SIGURSTEINN Guðmundsson yfírlæknir kynn-
ir heilbrigðisráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur,
starfsemi Héraðssjúkrahússins á Blönduósi.
FJÖLDI gesta var við opnun nýrrar sjúkradeild-
ar Héraðssjúkrahússins.
og ámaði starfseminni heilla, jafnframt þakkaði hún
heimamönnum hlý orð í sinn garð og með glettnisglampa
í augum sagði ráðherra að lítið hefði farið fyrir slíkum
orðum í sinn garð allra síðustu daga. Þingmanninum
Hjálmari Jónssyni varð að orði:
Framtíð hulin okkur er
en áfram líknum þjáðum.
Og Ingibjörg verður hjúkka hér
í Húnaþingi bráðum.
Að loknum ávörpum var gestum boðið upp á kaffíveit-
ingar og skoðunarferð um hina nýju sjúkradeild. Héraðs-
sjúkrahúsinu á Blönduósi bárust margar gjafír og heilla-
óskir á þessum tímamótum.
heimflug frá Glasgow
25.341 Lí vero a mann Tra 33.440» í 19.541 J Kr.
2 nætur 3 nætur 4 nætur
Fararstjórar:
Arnar Símonarson,
Kjartan Trausti Sigurðsson,
Hrafnhildur Pálsdóttir
og Eirný Sigurðardóttir.
Innlfalið: Flug, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting með
morgunverði á Hotel Apex, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
^ÚRVALÖTSÝN
Lágmúla 4: s(mi 569 9300, nrcent númer: 800 6300,
Hafnarfiröi: sími 565 2366, Keflavik: sími 421 1353,
Selfossi: s(mi 482 1666, Akureyri: s(mi 462 5000
- og bjá umboðsmönnum um land allt.