Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 25
LISTIR
Kvikmyndakvöld hjá
Alliance Fran^aise
ALLIANCE Frangaise heldur
Uvikmyndakvöld á morgun, mið-
vikudag kl. 21, í húsakynnum
félagsins, Austurstræti 3.
Sýnd verður myndin „Les tro-
is fréres“ eða Þrír bræður, en
aðalleikarar eru þrír grínistar
sem kalla sig „hina óþekktu“
(Les inconnus).
„Les inconnus" eru meðal
þekktustu grínista Frakklands
og hafa kitlað hláturtaugar sam-
landa sinna um 15 ára skeið, á
leiksviði, í útvarpi og sjónvarpi,
á hljómdiskum og nú loks í sinni
fyrstu kvikmynd, segir í frétta-
tilkynningu.
Myndin fjallar um þrjá afar
ólíka náunga, sem komast einn
góðan veðurdag að því að þeir
eru hálfbræður og hafa hver um
sig erft 100 milljónir franka.
Kvikmyndin hlaut „César-
inn“ (hinn franska Óskar) 1995
sem besta myndin.
Myndin er með frönsku tali
og án texta. Aðgangur er ókeyp-
is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MARTEINN Hunger, organisti Dómkirkjunnar, og séra Þórir
Stephensen tóku á móti nýja sembalnum.
Nýr semball í
Dómkirkjuna
Á 200 ÁRA afmæli Dómkirkjunn-
ar í fyrra var afhent fé til kaupa
á nýjum sembal. Séra Þórir Steph-
ensen hafði umsjón með söfnun
og safnaðist það mikið fé að
mögulegt var að panta hljóðfæri
frá einum af bestu sembaismiðum
Evrópu, fyrirtæki Joop Klinkha-
mers í Amsterdam.
Áhugi á flutningi barokktónlist-
ar í Dómkirkjunni hefur vaxið jafnt
og þétt. Undirleikshljóðfæri þeirra
tima var semball og skiptir þessi
gjöf þess vegna miklu máli. I frétta-
tilkynningu frá Dómkirkjunni er
séra Þóri og öllum gefendum öðr-
um þakkað hjartanlega fyrir.
Seldi
myndir til
Taiwan
Hveragerði. Morgunblaðið.
TAIWANSKIR aðilar keyptu þijár
stærstu myndirnar á sýningu
Steingríms St.Th. Sigurðssonar í
Eden í Hveragerði og einnig lögðu
kaupendurnir inn pöntun hjá lista-
manninum fyrir einni mynd í við-
bót er send verður til útlanda fljót-
lega.
Steingrímur sagði þetta vera
eina stærstu stundina á ferli sínum.
„Þetta er ekki bara spurning um
peninga heldur frekar að ég hafi
við þessa sölu öðlast ákveðna veg-
semd. Þetta sýnir líka að íslenskir
listamenn eiga mikla möguleika
erlendis."
Að sögn Braga Einarssonar,
forstjóra Edens, hefur það iðulega
gerst að erlendir ferðamenn hafa
keypt listaverk á sýningu í Eden.
Þó það hafi ekki verið í sama
mæli og nú hjá Steingrími.
-----♦ ♦ ♦-----
•DANIEL Barenboim, listrænn
stjórnandi rikisóperunnar i
Berlín, hefur hótað að segja upp
störfum vegna fyrirætlana um
að skera niður útgjöld óperu-
hússins. Segir Barenboim að
staða stóru óperuhúsanna
þriggja í Berlín, sem fá um 9,4
milljarða ísl. kr. í ríkisstyrki,
myndi versna mjög ef stjórn-
málamenn hefðu ekki hugrekki
til að taka ákvörðun um að snúa
óheillaþróuninni við. „Ef ég
stjórnaði hljómsveit eins og
stjórnmálamenn í Berlín og
Bonn starfa, myndi ekki heyrast
einn einasti tónn,“ sagði Bar-
enboim.
•HOLLENSKIR sérfræðingar
vinna nú að uppsetningu hljóð-
kerfis í óperuhúsinu í Malmö í
Svíþjóð, sem líkt hefur verið við
byltingu. Kerfið samanstendur
af miklum fjölda tölvustýrðra
hljóðnema og hátalara, og á það
að koma í veg fyrir bergmál og
aðrar truflanir. Þá er kerfið
sagt vera svo fullkomið að sama
sé hvar áheyrendur sitji í saln-
um, hljómurinn sé eins og tón-
listarmennirnir á sviðinu standi
beint fyrir framan þá. Hjóðkerf-
ið nýja verður einnig sett upp í
tónleikahöllinni í Rotterdam.
Stærri bill fyrir aðeins 1.495 þus.
Hyundai Elantra er sérlega sportlegur og öflugur
fjölskyldubíll. Elantra hefur létta 116 hestafla 1600 vél
og hefur vakið athygli fyrir gæði og gott verð.
Komdu við á söludeild okkar og fáðu að kynnast
þessum STÓRkostlega bíl.
Elantra Sedan,
Nordic style
Tveir líknabelgir eru
staðalbúnaður í
Hyundai Elantra
Nordic Style
Upphækkun, vindskeið,
álfelgur og heibársdekk
fyrir aðeins 50.000 kr.
HYunoni
- til framtíðar
B&L, Suðurlandsbraut 14 & Armúta 13, Sími: 575 1200, Söludeitd: 575 1220, Fax: 568 3818, Email: bt@bt.is, Internet: www.bt.is