Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 30

Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 MORG UNBLAÐIÐ MEIMIUTUIM Lestrarátak í Digranesskóla ber væntanleg a varanlegan árangur og hefur víðtæk áhrif Morgunblaðið/Árni Sæberg TINNA Borg Arnfínnsdóttir á auðvelt með að lesa fyrirmæli á æfingarblöðum. Lestur vinsælli en siónvarpsgláp Böm í Digranesskóla skara fram úr í lestri og hefur skólinn sett sér sérstaka lestrar- stefnu. Gunnar Hersveinn heimsótti litla lestrarhesta og kennara þeirra sem sífellt em að leggja fyrir þá lestrarpróf. „ÞAÐ er gaman í lestrarprófum," segir Berg- ur Óskarsson, 8 ára nemi, en hann hefur senni- lega farið í yfir 20 lestrarpróf frá því hann byrjaði sex ára í Digranesskóla í Kópavogi hjá Önnu Wernersdóttur kennara. Árangurinn er, að bekkurinn hans fékk nýlega 6,0 í meðal- einkunn í lestri. 4,5 taldist áður eðlileg eink- unn fyrir 8 ára nemendur í 3. bekk. Hæsta mögulega einkunn er átta. I Digranesskóla hefur sú stefna verið sett að börn í 1. bekk séu búin að læra allt stafróf- ið í janúar og kunni að lesa hjálparlaust í maí. Ástæðan er árangursríkt brautryðjenda- starf Önnu Wernersdóttur og samkennara hennar. Hefð er að láta duga að börn á fyrsta ANNA Wemersdóttir í bekknum sínum 23. október síð- astliðinn, Elísa Óðinsdóttir og Hafdís Jóna Össurardóttir. skólaári læri flestalla stafina. „Ég var orðin sannfærð um að námsgeta sex ára bama væri vanmetin í grunnskólum, meðal annars vegna þess að þau koma vel undirbúin úr leikskólunum þar sem þau læra ákveðin vinnubrögð og að fylgja fyrirmælum,“ segir Anna. Lesa öll fyrirmæli sjálf Anna og Elín Richards sérkennari undir- bjuggu lestrarátak í skólanum sem hrint var í framkvæmd haustið 1995 hjá sex ára ár- ganginum. Börnin voru, með eðlilegum frávik- um, orðin „fluglæs" um vorið og höfðu þá gengist undir sex hraðlestrarpróf og tvö skiln- ingslestrarpróf. Fyrir tæpu ári komust börnin 57 svo í frétt- irnar vegna norrænu lestrarkeppninar Mímis fyrir að lesa 450 bækur á tveimur vikum eða 9.000 blaðsíður. í nýjasta lestrarprófínu núna í október mældist að þau læsu flest um 150 atkvæði á mínútu af áður ólesnum texta. „Árangurinn birtist líka í öðru,“ segir Anna, „þau geta til dæmis lesið öll fyrirmæli verk- efna sjálf. Núna eru þau til að mynda að leysa fremur erfitt málfræðiverkefni, en þeim tekst ágætlega að glíma við það upp á eigin spýt- ur.“ Anna telur reyndar að of létt verkefni skapi leiða. Hvort hleypur hraðar strútur eða pardusdýr ? Börnin lesa á hvetjum degi í skólanum en þau lesa líka markvíst heima. „Þetta hefði aldrei tekist nema með dyggri aðstoð for- eldra, því tíminn í skólanum dugar ekki,“ seg- ir Anna, „sérstaklega ekki núna því 3. bekk er skipt í tvennt með 28 nemendum í stofu.“ Lestrarkunnáttan hefur skapað þessum átta ára börnum forskot, að mati Ónnu. Þau geta farið á bókasafn, flett upp í atriðaorðaskrá og fundið efnið í bókunum. Þau hjálpa sér sjálf með landabréfabækur sem oft vefjast fyrir börnum. „Þau voru til dæmis að velta fyrir sér um daginn hvort strútur eða pardusdýr hlypi hrað- ar og spurningunni var svarað á bókasafninu eftir að dýranöfnin fundust í atriðaorðaskrá," segir Anna, „Börnin eru ánægð að vera svona góð í lestri." Lesturinn er grunnurinn, að mati Önnu, svo læra þau vinnubrögðin og nýir heimar opnast fyrir þeim ef þau geta hjálpað sér sjálf. Lestrar- vakningin í Digranesskóla hefur reyndar haft smitandi áhrif í Kópavogi og hafa ýmsir kenn- arar í öðrum skólum þar tileinkað sér aðferð- ina. „Börnin koma í skólann til að læra og þau gera kröfu um verðug verkefni," segir Anna. Skrifa meira en ella vegna lestrarkunnáttunnar Líney Rut Bjarnadóttir réttir upp hönd í bekk Önnu Wernersdóttir og spyr um dtthvað í sambandi við málfræðiverkefnið. „Ég lærði að lesa sex ára, amma hjálpaði mér og kenndi mér líka að skrifa nafnið mitt.“ „Ritunin fylgir í kjölfar lestrarkunnáttunn- ar,“ segir Anna, „þau skrifa meira, allt að 140-150 orða sögur í tímum, og þau læra réttritun með stílagerð. Fyrst skrifa þau sjálf upp textann af blaði, svo lesa foreldrar þeirra hann upp og þau skrifa hann eins rétt og þau geta, og loks læt ég þau skrifa hann í þriðja sinn í skólanum." En hraðlestrarprófin, hvernig eru þau? „Við notum hraðlestrarpróf, meðal annars vegna þess að þau eru einföld í framkvæmd, mæla það sama hjá öllum og sýna þróun hvers nemanda sem er prófaður með sex vikna milli- bili.“ Anna segist prófa börnin án þess að gera mikið mál úr því. Áður lagðist hefðbundinn skóladagur niður þegar lestrarprófin voru haldin og nemendur voru látnir bíða skjálf- andi fyrir utan kennslustofuna eftir því að vera kallaðir inn. Þetta skapar kvíða sem dreg- ur úr árangri, að mati Önnu. Lestrarprófin núna eru ekkert mál fyrir þessa krakka og jafnvel foreldrar spurðu í haust hvort það yrðu ekki örugglega lestrar- próf í vetur. Anna einblínir ekki bara á hraðann heldur líka lesskilninginn og hún kannar með sérstök- um prófum hvort þau fái einhvern botn í text- ann. „Það er skemmtilegra að lesa en að horfa á sjónvarpið," segir Elín Ólafsdóttir, nemandi Önnu, „ég horfi helst á fréttir og veður. Ég les líka stundum dagblöðin," bætir hún við i lokin. Læra að vinna í fyrirtækjum Stuttbrautir í Borgarholtsskóla eru hannaðar til að búa nemendur undir störf í verslunum, félagsþjónustu og stóriðju. Þær mæta þörf í þjóðfélaginu fyrir tveggja ára starfsmennt- un, að mati kennslustjóra skólans. STARFSNÁMSBRAUTIR eru meðal nýjunga í Borgarholtsskóla í Reykja- vík og standa tvær nemendum nú þegar til boða, eða verslunarbraut og félagsþjónustubraut. „Það er þörf fyrir stuttar starfsnámsbrautir í sam- félaginu," segir Óttar Ólafsson, kennslustjóri í skólanum, sem hefur meðal annarra komið þeim á fót, en brautirnar spanna tvö ár. Fyrirmyndin að nýju verslunar- brautinni er sótt til Danmerkur en þar og í Noregi og Svíþjóð fer um það bil helmingur þeirra sem vilja starfa á sviði verslunar og viðskipta í tveggja ára starfsnám á verslunar- braut. „Innihald nýju brautanna felst ekki í hefðbundnu bóknámi heldur í Morgunblaðið/RAX OTTAR Ólafsson, kennslustjóri í Borgarholtsskóla. faggreinum og starfsþjálfun," segir Óttar sem hefur sjálfur bæði stundað verklegt og bóklegt nám. „Það sem sannfærði mig um þörf- ina á starfsnámsbrautum var reynsla mín af ráðgjöf hjá Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar," segir Óttar, „ég hafði umsjón með úrræðum fyrir at- vinnulaust ungt fólk árin 1994-1996, en 80% af því höfðu grunnskólapróf og flest gat helst hugsað sér að stunda stutt hagnýtt starfsnám." Óttar segir að reynt sé að þróa hnitmiðaðri kennsluaðferðir á þess- um stuttu brautum, til dæmis séu ekki dæmigerðir fyrirlestrar í venju- legum stofum, heldur eru stofumar sérhannaðar og hann segir að draum- urinn sé að taka upp svokallað lotu- nám sem felst í því að helga námið einni kennslugrein í einu. Vörufræðistofan er gott dæmi um nýjung í kennsluaðstöðu því í henni er bæði hægt að kenna hið bóklega og verklega. Veggirnir gera ráð fyrir hillum og hægt er að búa til búð í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.