Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 40

Morgunblaðið - 28.10.1997, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Vaidimar Kristinsson KÁRI Arnórsson, til hægri, sem sæmdur var g-ullmerki LH í upphafi þings, greiddi EITT hundrað og fjórar hendur á lofti og sameining atkvæði gegn sameiningu ásamt félaga sínum í Fáki, Gunnari Magga Arnasyni. hestamanna í ein heildarsamtök í höfn. Baráttunni lokið með fullnaðarsigri hestamanna HESTAR Valaskjálf á Egilsstööum ÁRSÞING LH OG HÍS HESTAMENN upplifðu stóra stund r á ársþingum Landssambands hesta- mannafélaga og Hestaíþróttasam- bands íslands þegar langþráð sam- eining þessara samtaka náði loks fram að ganga. Með réttu er hægt að segja að þar með sé lokið hátt í þriggja áratuga baráttu hesta- manna fyrir inngöngu í samtök íþróttamanna. Það var snemma á áttunda áratugnum sem hestamenn leituðu hófanna um inngöngu í íþróttasamband íslands. Sameiningarferlið hefur tekið ,4 sex ár eða allt frá 2. ársþingi HÍS þegar samþykkt var tillaga þess efnis að leitað yrði eftir könnunar- viðræðum við LH um sameiningu samtakanna. Á þessum árum hefur oft verið heitt í kolunum því framan af voru andstæðingar sameiningar margir en þeim fækkaði jafnt og þétt. Sameining var nú samþykkt með nánast öllum greiddum at- kvæðum, 3 á móti og 104 með hjá LH en enginn á móti hjá HÍS en 64 samþykktu. í stuttu máli gekk sameining þannig fyrir sig að hvor samtök fyrir sig samþykktu ný lög, sömu lögin að sjálfsögðu. í lögunum var sérstakt bráðabirgðaákvæði þar sem sagði að fyrsta stjórn samein- p aðra samtaka skyldi skipuð (ekki kjörin) fram að næsta ársþingi. Það voru formennirnir sem völdu menn í stjórnina samkvæmt umboði beggja stjórna og voru ekki gerðar athugasemdir við þessa aðferð. Samtökin heita Landssamband hestamannafélaga og aðildarfélög þess munu kallast hestamannafélög eins og verið hefur. Af þessu má sjá að skipting félaga hestamanna í íþróttadeild og hestamannafélag verður úr sögunni. Hafa hér náðst hin upphaflegu markmið frá átt- unda áratugnum þegar hestamenn hugðust fá inngöngu í heilu lagi í samtök íþróttamanna en að kröfu þeirra voru hestamenn skikkaðir til að kljúfa hreyfingu sína og aðeins annar hlutinn boðinn velkominn inn um hið gullna hlið íþróttahreyfing- arinnar. Nú er heildarhreyfing hestamanna komin með manni og mús inn í ÍSÍ og ástæða til að fagna því. Sökum sameiningar var þinghald í nokkuð öðrum farvegi en venja er til og tími til afgreiðslu annarra þingmála nokkuð knappur. Kvört- uðu nokkrir þingfulltrúar yfir því hversu dagskrá var keyrð áfram af miklu kappi. Umræða um sam- einingu var spennulaus að kalla því Ijóst þótti fyrir þinghaldið að full eining væri um málefnið. Af þessum sökum var yfirbragð þinganna beggja afslappaðra en oft áður. Mörg þeirra mála sem fyrir þing- unum lá_ var vísað til milliþinga- nefnda. Á þetta sér í lagi við um HÍS þingið en LH þingið var mun afkastameira enda var því ætlaður mun lengri tími af þesspm tveimur dögum sem þingin stóðu yfir. En af því sem samþykkt var má nefna að þingið felur stjórn að gera upp- kast að siðareglum sem nái til umgengni hestamanna við náttúru landsins á öllum sviðum. Þingið lýsti stuðningi við þá hug- mynd að kynbótadómarar hafi alla eldri dóma hrossanna sem mæta í kynbótadóm. Þá var einnig ályktað að ekki skuli breyta sköpulagsdómi hrossa sem orðin eru sex vetra gömul eða eldri nema gild rök Iiggi fyrir. Sömuleiðis lagði þingið til að afkvæmasýningar á hryssum skuli lagðar niður en eigi að síður fái þær viðurkenningu til fyrstu- eða heið- ursverðlauna. Þá samþykkti þingið að notaðir skyldu rásbásar á kappreiðum á öllum stærri mótum og einnig var Vest- og Austlendingum veitt heim- ild til að halda fjórðungsmót árin á milli landsmóta. Sömuleiðis var bætt í reglur um lands og fjórðungs- mót að heimilt sé að innheimta skráningargjöld fyrir hross sem þátt taka í mótunum og þá meðtal- in kynbótahross og hross sem þátt taka í ræktunarbússýningum. Öllum tillögum _um breytingar á keppnisreglum HÍS var vísað til milliþinganefnda. Fram kom boð frá aðilum innan Héraðssambandsins Skarphéðins sem eru þá hesta- mannafélögin á Suðurlandi að bjóða Gaddstaðaflatir fyrir íslandsmót 1999 en ákvörðun var vísað til stjórnar og er fastlega gert ráð fyrir að það gangi eftir. Þá hefur einnig borist boð frá Akureyringum um að halda fyrsta ársþing samein- aðara samtaka sem yrði þá jafn- framt 49. ársþing LH. Þrír menn fengu gullmerki LH, Leifur Jóhann- esson og Kári Arnórsson, sem báð- ir hafa verið formenn samtakanna, og Guðmundur Þorleifsson sem ver- ið hefur virkur i starfi hestamanna á Austurlandi. Stjórn samtakanna skipa nú Birgir Siguijónsson, Sörla, sem er formaður, Jón Albert Sigurbjörns- son, Fáki, varaformaður, aðrir stjórnarmenn eru Halldór Gunnars- son, Létti, Sigrún Ólafsdóttir, Snæ- fellingi, Sigríður Sigþórsdóttir, Sörla, Sigurgeir Bárðarson, Geysi, og Bergur Jónsson, Freyfaxa. I varastjórn sitja Sigurður Ragnars- son, Andvara, Oddný Jónsdóttir, Gusti, Sigfús Helgason, Létti, Sig- urður Marínusson, Fáki, og Harald- ur Þórarinsson, Sleipni. í dómstól LH voru kjörnir Svein- björn Sveinbjörnsson Gusti, Þór Sigþórsson Sörla og Einar Öder Magnússon, Sleipni. Kjöri fulltrúa LH á þing ISÍ var vísað til stjórnar en Gísli B. Björnsson og Pjetur N. Pjetursson voru kjörnir endurskoð- endur. Valdimar Kristinsson Ánægðir með af- gerandi stuðning við sameiningu „ÉG ER fyrst og fremst ánægð- ur með að þessu langa ferli sé lokið með svona afgerandi hætti,“ sagði Birgir Sigurjóns- son, formaður sameinaðra sam- taka, og varaformaðurinn, Jón Albert Sigurbjörnsson, tók und- ir með honum og sagði að það sem væri kannski ánægjulegast væri hvað þetta hefði gengið í gegn með afgerandi hætti, nán- ast einhugur hefði verið um þessa mikilvægu ákvörðun. Þeir félagar Jón og Birgir sögðu að um eitt ár tæki að ljúka vinnunni við sameining- una. Mikil vinna færi nú í hönd hjá mörgum aðildarfélaganna. Breyta þyrfti lögum og sum þeirra þyrftu að ganga frá inn- göngu í hérðassambönd við- komandi svæða. Sagði Jón að stór hluti af vinnu stjórnar yrði aðstoð við þessar breytingar. Auðvitað væru hlutirnir örlítið í lausu lofti svona fyrst eftir sameiningu en málin myndu skýrast fljótlega. Það væri búið að gefa tóninn. Birgir sagðist aðspurður ekki óttast um hag hins almenna hestamanns við þessar breyt- ingar. Áfram yrði unnið í reið- vegamálum og öðrum hags- munamálum þessa hóps. Hann hefði ekki heyrt nein haldbær rök fyrir því að frístundareið- menn yrðu útundan í starfi sam- takanna. Um starfsmannahald eða staðsetningu samtakanna hefði að sjálfsögðu engin ákvörðun verið tekin. Þetta væri úrlausnarefni seúi biði stjórnarinnar en þeir væru ekki í vafa um að sparnaður myndi nást með sameiningunni. Þá voru þeir sammála um áð eitt af viðamestu málunum sem biði úrlausnir þegar fínspússn- ingu sameiningar lyki, væri NÝ STJÓRN og varastjórn landssamtaka hestamanna, í fremri röð frá vinstri Sigrún Ólafsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir, Birgir Sigurjónsson, Jón Albert Sigurbjörnsson og Oddný Jónsdóttir. Aftari röð frá vinstri Bergur Jónsson, Sigurður Marínusson, Sigfús Helgason, Sigurgeir Bárðarson og Halldór Gunnarsson. Á myndina vantar Sigurð Ragnarsson og Harald Þórarinsson en sá síðar- nefndi var ekki á þinginu. endurskoðun á keppnis- og mótafyrirkomulagi. Það væri löngu orðið ljóst að mótin væru alltof mörg, það væri hins vegar þegjandi samkomulag um að híða með þessi mál meðan unnið væri í félagslegu uppbyggin- unni. Sögðu formennirnir tveir, sem náðu þeim góða áfanga að leiða samtök sín í eina sæng, og voru þeir að vonum kátir með það.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.