Morgunblaðið - 28.10.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 51 ,
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kristindómurinn og
spíritisminn
Frá Guðbirni Jónssyni:
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 30. sept-
ember st. horfði ég á þáttinn Dags-
ljós í sjónvarpinu, þar sem fram fór
Iumræðuþáttur um trúmál og sálar-
rannsóknir. Við háborð sátu tveir
menn. Annar þeirra fulltrúi Þjóðkirkj-
unnar en hinn fulitrúi eins af fijálsu
trúfélögunum okkar, Krossins. í sal
voru nokkrir aðilar sem í daglegu
tali eru kallaðir „miðlar". Umræðu-
efnið var hvort miðlun upplýsinga frá
framliðnum gæti samrýmst trúar-
kenningum Biblíunnar.
Því miður varð strax ljóst að þeir,
sem við háborðið sátu, gátu hvorki
Isett kærleika, skilning né umburðar-
lyndi í hugarfar sitt eða skoðanir og
gerðu því það sem ég hef talið að
| Guðdómurinn vari kristna menn ein-
dregið við, en það er að dæma aðra.
Stendur ekki einhvers staðar: „Dæm-
ið eigi svo þér verðið ekki dæmdir“?
Þessum ágætu mönnum, sem greini-
lega vildu láta líta út fyrir að þeir
væru dyggari þjónar Guðs en hinir
bersyndugu í salnum, varð á sú mikla
synd að dæma verk annarra, án þess
Iað þekkja þau.
Það vakti athygii mína hve miklum
kærleika geislaði frá flestum sem í
| salnum sátu, en því miður hvfldi
drungi drottnunar yfir háborðinu.
Nánast mátti lesa úr umhverfi þess
að þar sætu þeir sem hefðu valdið
til að segja okkur hvernig við þjónuð-
um Guði best. Þó fulltrúi Þjóðkirkj-
unnar gerði drengilega tilraun til að
fara í kringum efnið, varð hann þó
að lokum sammála manninum frá
, Krossinum í því að hin kærleiksríku
verk, sem fólk með miðilshæfileika
^ hafði unnið í þágu samborgara sinna,
á samrýmdust ekki kristinni trú. Því
' til staðfestingar var bent á Biblíuna,
sem væri orð Guðs.
Ekki er hér gerð tilraun til að draga
í efa texta Biblíunnar, en í mikilli
auðmýkt bent á að hún er fyrsta
skráða heimildin um miðlun manna á
boðskap Guðs til mannkynsins. Miðlun
á upplýsingum frá öðrum víddum ai-
, heimsins er því í raun eldri en Biblían
og hefði miðlunar ekki notið við, hefði
j Biblían ekki verið skrifuð. Hvergi hef
i ég t.d. heyrt talað um heimiidir, ritað-
’ ar af Guði persónulega, sem grund-
völl fyrir texta Biblíunnar. Það voru
ekki margir vitni að samræðum Guðs
og Móse. Þær eru heldur ekki staðfest-
ar, í skilningi þeirra sem ekki trúa á
flutning boðskapar milli vídda í al-
heiminum. Engin vitni munu heldur
vera að boðskap þeim sem Guð miðl-
aði til Jesú. Engin vitni eru heldur
að flölmörgum upplýsingum í Bibl-
- íunni, sem sagðar eru komnar frá
, Guði. Með þessu er ég að benda á
að þessi merka bók, Biblían, er skrif-
uð af mönnum sem endursögðu það
sem aðrir miðluðu frá Guði.
Skrifaður texti er ávallt þannig
að menn skilja hann á mismunandi
vegu. Svo er og með Biblíuna. Trú-
lega hefur engin bók verið túlkuð á
jafn marga vegu og hún. En þrátt
fyrir að svona margir ólíkir aðilar
hafi fundið hinn eina rétta sannleika
í texta Biblíunnar, er það í raun ekki
textinn sem skiptir mestu máli. Það
er boðskapurinn um kærleikann og
elsku til meðbræðra okkar sem er
hinn mikli boðskapur þessarar bókar.
Við megum ekki gleyma því, að text-
inn er að miklu leyti dæmisögur til
fólks í gjörólíku menningarumhverfi,
sé miðað við það sem við búum við
í dag. Þar eru vegvísar til þeirra sem
eru að byrja að fóta sig á veginum
frá heiðni og kúgun yfir til kristinna
viðhorfa. Ymislegt í þessum dæmi-
sögum er auðvelt að misskilja, vegna
þekkingarskorts á þeim aðstæðum
sem voru fyrir hendi þegar dæmisag-
an var sett fram. Þess vegna er mikil-
vægast fyrir okkur að missa ekki
sjónar á meginboðskap Biblíunnar,
sem er hin hreina útgeislun kærleik-
ans og elsku til alls sem lifír. Þann
boðskap eigum við öll að geta samein-
ast um, hvaða skilning sem við leggj-
um í einstaka kafla, vers eða setning-
ar í texta Biblíunnar. Þannig þjónum
við best viija Guðs og sameinumst
gegn öflum neikvæðni og sundrung-
ar.
Ekki er erfítt að skilja hvers vegna
mennimir við háborðið í fyrrgreind-
um sjónvarpsþætti voru svo neikvæð-
ir. Þeim var áreiðanlega órótt vegna
þess að þama var til umræðu mál-
efni sem þeir höfðu litla þekkingu á
og enga reynslu af. Slíkar aðstæður
vekja alltaf innri ótta, sm fólk áttar
sig kannski ekki á. En hvað sem þvi
líður, er okkur afar mikilvægt að
átta okkur á því að Guð útskrifar
ekki þjóna sína frá neinum háskólum
og er ekki samningsbundinn neinum
prófgráðum. Þjóna sína fínnur hann
í manneskjunum sjálfum, óháð trú,
þjóðfélagsstöðu eða litarhætti. íjónar
Guðs þurfa heldur enga titla til þess
að þekkjast úr í mannhafínu. Þeir
bera geislunina með sér hvar sem
þeir em. Viðmót þeirra allt ber því
vitni hveijir þeir eru.
Eitt er þó nauðsynlegt að benda
þeim á sem tekið hafa að sér að
opna persónur fyrir áhrifum frá öðr-
um víddum: Það er alls ekki sjálfgef-
ið, að þó einstaklingur sé það sem
kallað er næmur, sé rétt fyrir hann
að opna fyrir víðari skynjun. Þar
verður að gæta að hvort þroski við-
komandi sé nægur til að slíkt sé
æskilegt. Einnig hvort næmið stafar
af lágum vömum vegna nýlegra
áfalla eða bældrar sjálfsmyndar.
Hafa verður í huga að Guð vill velja
sjálfur þá einstaklinga sem flytja boð
frá öðrum víddum. Það gerir hann
með því að opna sjálfur vitund þeirra
fyrir þeim víddum sem þeir eiga að
þjónusta. Það hefur hann gert frá
upphafi mannkyns. Það hefur ekkert
breyst og mun ekkert breytast. Inn-
grip í þessa þróun getur sett einstakl-
ing á ranga braut, sem tekur hann
langan tíma að leiðrétta. Við það
geta tapast mörg dýrmæt ár í réttri
þjónustu við Guð.
Verum þess fullviss, að i áætlun
Guðs er gert ráð fyrir hveiju og einu
okkar. Þar er enginn útundan. Ef við
gætum þess að öðlast kyrrð hugans
og stilla okkur í kyrrð á kærleiksvit-
und Guðsorkunnar, lærum við að
þekkja skilaboðin frá Guði. Guð-
sneistinn er í öllum mönnum. Þeir
þurfa einungis að öðlast hugarró og
kyrrð til að fínna hann. Og þegar
hann er fundinn, leyfa honum þá að
þroskast og geisla út til meðbræðr-
anna. Þannig sýnum við best að við
þjónum Guði, en ekki með því að
deila um orðalag í bók sem rituð er
af mönnum. Ef við trúum ekki að
miðlun geti átt sér stað, hver er þá
ástæðan fyrir að við trúum þvi sem
stendur í Biblíunni? Ég vil taka fram
að ég trúi boðskap hennar, en text-
ann les ég sem frásögn þess tíma sem
hann er ritaður á upphaflega. Ekkert
af þessu breytir í raun neinu um trú
mína og traust á handleiðslu og leið-
sögn Guðs. En þrátt fyrir að ég sé
sannfærður um að ég sé blessaður
af Guði, treysti ég mér ekki til að
áfellast leiðir annarra til að þjóna
honum. Ég er viss um að flestir sem
farnir eru að temja sér kærleiksþátt
hans, fínna sjálfír sína leið í þeim
verkefnum. Við hina má segja: Hlust-
ið á hina hljóðu rödd kærleikans,
djúpt innra með ykkur. Það mun
veita ykkur lífsfyllingu.
GUÐBJORN JÓNSSON,
Hjarðarhaga 26, Reykjavík.
Yfirlýsing
Frá Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur
og Stefaníu Þorgrímsdóttur:
VIÐ UNDIRRITAÐAR fögnum því
að kirkjunnar menn virðast nú ætla
að móta starfsreglur til meðhöndl-
unar mála svo sem okkar, og þar
með að horfast í augu við sannleik-
ann.
Allt það uppnám og sá sársauki
sem okkar mál olli, verður því von-
andi ekki endurtekið.
SIGRÚN PÁLÍNAINGVARSDÓTTIR,
kt. 081155-5509,
STEFANlA ÞORGRÍMSDÓTTIR,
kt. 110450-4949.
Viðskiptakort BYKO
er einföld leiö til aö koma
þeim lagfæringum og
breytingum á kortiö sem
þú hefurverið aö hugsa um.
Hvort sem þú vilt
staðgreiðsluafslátt eða
komast í reikning þá er þetta kortið
sem kemur þér af staö. Og ef þú hyggur á
stærri framkvæmdir ættir þú að hafa samband
við Viðskiptaráðgjöf BYKO ísíma 515 4000
íJTUooo
Þar er alltaf svigrúm til samninga.
Viöskiptakort BYKO gildir I öllum BYKO verslunum. í Byggt og Búiö og í Habitat
Sláðu til því allt sem þú þarft aö gera er að fylla út
umsókn hjá okkur eöa hringja og Viðskiptakortið er þitt.
habitat
K R I N G L U N N I
BYKO