Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBÖND
BÍÓIN f BORGINNI
Sæbjöm Valdimarsson/Amaldur Indriðason/Anna Sveinbjarnardóttir.
BÍÓBORGIN
Air Force One ★★★
Topp hasarspennumynd með
Harrison Ford í hlutverki Banda-
ríkjaforseta sem tekst á við
hryðjuverkamenn í forsetaflug-
vélinni. Fyrirtaks skemmtun.
Conspiracy Theory ★★V2
Laglegasti samsæristryliir. Mel
Gibson er fyndinn og aumkunar-
verður sem ruglaður leigubílstjóri
og Julia Roberts er góð sem
hjálpsamur lögfræðingur.
Face off-khrkVx
Góð saga til grundvallar æsilegri
og framlegri atburðarás frá upp-
hafi til enda. Vel leikin, forvitni-
legir aukaleikarar, mögnuð fram-
vinda en ekki laus við væmni und-
ir lokin sem era langdregin og
nánanst eini ljóðurinn á frábærri
en ofbeldisfullri skemmtun.
Hefðarfrúin og umrenning-
urinn ★★★
Hugljúf teiknimynd frá Disney
um rómantískt hundalíf. Prýðileg
afþreying fyrir alla fjöiskylduna
sem ber aldurinn vel, var fram-
sýnd árið 1955.
Engu að tapa ★★!/2
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Air Force One ★★★ Sjá Bíó-
borgina.
Perlur og svín ★★V2
Oskar Jónasson og leikarahópur-
inn skapa skemmtilegar persónur
en töluvert vantar uppá að sögu-
þráðurinn virki sem skyldi.
Conspiracy Theory ★★V2
Sjá Bíóborgin
Volcano ★★
Allra sæmilegasta hamfaramynd,
á köflum fyndin og flott en sjald-
an sérlega ógnvekjandi eða skelfi-
leg.
Contact ★★★V2
Zemeckis, Sagan og annað ein-
valalið skapar forvitnilega, spenn-
andi og íhugula afþreyingu sem
kemur með sitt svar við eilífðar-
spui'ningunni eram við ein? Fost-
er, Zemeckis og Silvestri í topp-
formi og leikhópurinn pottþéttur.
Hollywood í viðhafnargallanum
og í Oskarsverðlaunastellingum.
Hefðarfrúin og umrenning-
urinn ★★★ Sjá Bíóborgin
Addicted to Love ★★V2
Ovenjuleg og öðravísi ástarsaga
sem á sínar góðu, gamansömu
stundir.
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
íjórða innlegginu um ævintýri
hans. Eini leikarinn sem virkilega
nýtur sín er Uma Thurman sem
náttúravemdarsinni. George
Clooney er hreint út sagt vonlaus
í aðalhlutverkinu.
Menn í svörtu ★★★V2
Sjá Stjörnubíó
Barist
við Rrissa
KEPPT var í súmóglímu á Nammidögum Fjölbrautaskóla Vesturlands og vöktu búningarnir og tilburðirnir
athygli meðal áhorfenda.
Nammidagar
á Vesturlandi
REGNBOGINN
Með fullri reisn ★★★
Einkar skemmtileg og fyndin
bresk verkalýðssaga um menn
sem bjarga sér í atvinnuleysi.
Allir segja að ég elski þig
★★★
Bráðskemmtileg mynd frá Woody
Allen þar sem ólíklegustu leikarar
hefja upp raust sína.
María ★★★
Lítil og ánægjuleg mynd sem
tekst í aðalatriðum að segja hálf-
gleymda örlagasögu þýsku flótta-
kvennanna sem komu til landsins
eftir seinna stríð.
Breakdown ★★★
Pottþétt spennumynd í flesta
staði með óslitinni afbragðs fram-
vindu, fagmannlegu yfirbragði,
fínum leik og mikilfenglegu um-
hverfi.
STJÖRNUBÍÓ
Perlur og svín ★★V2
Sjá Bíóborgin
Brúðkaup besta vinar míns
★★★
Ástralinn J.P. Hogan heldur
áfram að hugleiða gildi giftinga í
lífi nútímakvenna. Þægileg grín-
mynd sem leyfir Juliu Roberts að
skína í hlutverki óskammfeilins
og eigingjarns matargagnrýn-
anda.
Menn í svörtu ★★★V2
Sumarhasar sem stendur við öll
loforð um grín og geimverur.
Smith og Jones svalir og töff og
D’Onfrio fer skelfilegum hamfór-
um.
Dýrlingurinn
(The Saint)
S p t; n n u in y 11 (I
★★
Framleiðandi: David Brown og
Robert Evans. Leikstjóri: Phillip
Noyce. Handritshöfundur: Jonath-
an Hensleigh og Westley Strick
eftir sögu þess fyrrnefnda. Kvik-
myndataka: Phil Meheux. Tónlist:
Graeme Revell. Aðalhlutverk: Val
Kilmer, Elisabeth Shue og Rade
Serbedzija. 118 mín. Bandaríkin.
Paramount Pictures/CIC mynd-
bönd 1997. Útgáfudagur: 21.
október 1997. Myndin er bönnuð
börnum yngri en 12 ára.
DYRLINGURINN er þjófur, og
hefur nú fengið það verkefni að stela
formúlu að köldum samruna fyrir
rússneskan bijálæðing sem sækist
eftir völdum í heimalandi sínu. Höf-
undur formúlunnar er fijgur yngis-
mær og á það eftir að flækja málið
fyrir dýrlingnum sem lætur sér fæst
fjTÍi' brjósti brenna.
Þessi hetja er flestum kunn úr
samnefndum sjónvarpsþáttum og er
gaman að sjá hana hér í kvikmynd.
Leikflétta myndarinnar virkar ágæt-
lega í hvaða spennumynd sem er, en
handritið hefði þó mátt vera frum-
► NAMMIDAGAR voru haldnir á vegum Nemendafé-
lags Fjölbrautaskóla Vesturlands í samráði við Jafn-
ingjafræðslu skólans nú á dögunum. Fjölbrautaskól-
inn fékk í september síðastliðnum 200 þúsund króna
styrk frá menntamálaráðuneytinu fyrir vel unnin
störf Jafningjafræðslunnar. I kjölfarið var ákveðið
að halda hátíð til að stuðla að eflingu heilbrigðs fé-
lagslífs sem væri vímulaust með öllu. Tveir fulltrúar
Jafningjafræðslunnar í Reykjavík voru viðstaddir og
fræddu unga fólkið um skaðsemi eiturlyfja. Bíókvöld
var haldið á sal skólans þar sem 150 manns horfðu á
gamla þætti um Heilsubælið í Gervahverfi á stóru
breiðtjaldi. Keppt var í súmóglímu í sérstökum bún-
ingum sem vakti mikla lukku meðal nemenda og
kennara. Á lokadeginum voru haldnir tónleikar með
hljómsveitinni Maus og að þeim loknum fór bflalest
akandi um bæinn með framkvæmdanefnd hátíðarinn-
ar í fararbroddi á dráttarvél. Gleðinni lauk með
dansleik á skemmtistaðnum Langasandi þar sem
diskóstemmningin var allsráðandi og boðið upp á óá-
fenga bollu að hætti vímulausrar æsku. Það
var því sannarlega líf og fjör í fjöl-
braut á Vesturlandi.
DISKÓSTEMMNINGIN réð ríkjum á Langasandi
þar sem haldinn var dansleikur og haldið var ær-
lega upp á vel heppnaða jafningjafræðslu.
Frumskógafjör ★★
Endurgerð á franskri gaman-
mynd sem hefði heppnast ef hún
hefði verið um allt annað en lítinn
indjánastrák í heimsókn í stór-
borginni.
HÁSKÓLABÍÓ
Austin Powers ★★
Brassed Off ★★★
Ljúfsár og fyndin saga af kola-
námumönnum í Yorkshire sem
lyfta sér upp með lúðrablæstri.
Ekkert síðri en Með fullri reisn.
Twin Town ★★★
Perlur og svín ★★!&
Sjá Bíóborgin.
Volcano ★★ Sjá Sambíóin,
Álfabakka
Sjálfstæðar stelpur ★★★
Mike Leigh heldur áfram að
skoða hvunndaginn og sérkenni-
leg hegðunarmynstur með aðstoð
Katrin Cartlidge og Lyndu Stead-
man. Þær standa sig frábærlega
sem vinkonur sem eyða helgi
saman eftir langan aðskilnað.
Funi ★★★
Skemmtilega gerð og vel leikin
gamanmynd um forfallinn Ar-
senal-aðdáanda.
Bean ★★★
Ágætlega hefur tekist til að flytja
Bean af skjánum á tjaldið. Rowan
Atkinson er stórkostlegur kómi-
ker, Herra Bean einstakt sköpun-
arverk.
KRINGLUBÍÓ
Air Force One ★★★ Sjá Bíó'
borgin
Conspiracy
Theory ★★1/2
Sjá Bíóborg-
in.
Brúðkaup besta
vinar míns
★★★
Sjá Stjörnubíó.
og
umrenningur-
inn ★★★
Sjá Bíóborgin
LAUGARÁSBÍÓ
Head Above Water ★!4
Mislukkuð, amerísk útgáfa á
norskri meðalmynd um morð-
gátu á afskekktri eyju. Illa skrif-
uð og þunnildisleg persónusköp-
un.
Money Talks ★★
Fislétt formúlumynd um tvo
ólíka náunga - annar hvítur hinn
svartur - sem koma sér í marg-
víslegan vanda. Léttmeti af gam-
anspennuættum sem fær mann
að vísu sjaldan til að hlæja af öllu
hjarta en aldrei beint leiðinleg.
187 ★★
Kennarinn og hugsjónamaðurinn
gagnvart afstyrmum tossabekks
fátækrahverfisins. Oðravísi, ekk-
ert happ-í-endi heldur grámyglu-
legt raunsæi. Góður leikur,
skrykkjótt framvinda og ósenni-
leg.
Spawn ★★
Heilarýr, flott útlítandi brellu-
mynd sem sækir mikið í skugga-
heim Tims Burton
legra. Dýrlingur-
inn er sérstakur
en hér er erfitt að
festa hönd á per-
sónu hans og er
tengingin við æsku
hans frekar mis-
heppnuð. Það ger-
ir að verkum að
erfitt er að lifa sig
inn í ástarsöguna,
sem er óvenju stór hluti myndarinn-
ar, og jafnvel langdregin á köflum.
Auk þess eru þau Val Kilmer og
Elisabeth Shue ekki mjög sannfær-
andi sem elskendur.
Kilmer er ágætur í hlutverki sínu,
og má segja honum til hróss að hann
er einstaklega lipur þegar að mis-
munandi hreim kemur. Honum tekst
þó ekki að skapa eftirminnilegan
dýrling, þar sem manninn bak við öll
gervin vantai'. Shue er ágæt í sínu
hlutverki sem reyndar krefst þó ekki
mikils af henni.
Dýrlingurinn er skrýtin mynd, þar
sem ekkert er útskýrt, hvorki brell-
ur né persónur. Ef manni nægir að
fljóta áfram á sæmilegri leikfléttu
getur myndin reynst fín afþreying.
Þeim sem vilja kafa eitthvað dýpra
veldur hún sjálfsagt vonbrigðum.
Hildur Loftsdóttir