Morgunblaðið - 06.11.1997, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræður um húsnæði Sjómannaskólans
Húsnæðið í eigii íslensku
sj ómannastéttarinnar
ÞAÐ mun kosta um 20 milljónir króna að flytja
búnað Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla
íslands úr Sjómannaskólahúsinu og koma honum
fyrir í öðru húsnæði, samkvæmt lauslegri áætlun
Framvæmdasýslu ríkisins. Þetta kom m.a. fram í
svari Bjöms Bjamasonar menntamálaráðherra við
fyrirspumum Steingríms J. Sigfússonar og Guðrún-
ar Helgadóttur, þingmanna Alþýðubandalags og
óháðra, um húsnæðismál Sjómannaskólans, á Al-
þingi í gær. Mótmæltu þau fýrirhuguðum flutningi
skólanna úr húsi Sjómannaskólans að Rauðar-
árholti og lögðu áherslu á að húsnæðið væri í eigu
íslensku sjómannastéttarinnar. Þá sagði Steingrím-
ur ráðherra hafa farið ógætilega af stað í þessu
máli og að hann hefði skapað óþarfa tortryggni
og úlfúð sökum þess að hann hefði ekki unnið frá
byijun í fullkomnu samstarfí við skólastjómendur
og nemendur í Sjómannaskólanum.
í máli sínu lagði ráðherra hins vegar áherslu á
að unnið hefði verið að hugmyndinni um flutning
skólanna úr Sjómannaskólahúsinu á faglegan hátt
og tók í því sambandi undir bréf skólanefnda Stýri-
mannaskólans og Vélskólans frá því í byijun þess-
ara viku, þar sem, að sögn ráðherra, segir m.a.
að leggja beri áherslu á að endurskoðun húsnæðis-
aðstöðu skólanna fari fram með ítarlegri undirbún-
ingsvinnu hóps manna sem hefðu sérþekkingu á
málefnum skólanna. Að mati skólanefndanna gæti
slík vinna leitt til skoðunar á
þremur valkostum í húsnæðis-
málum skólanna, þ.e. hvort
hanna og byggja ætti nýtt skóla-
húsnæði frá granni, hvort endur-
bæta ætti núverandi húsnæði og
vinna áfram á grandvelli sam-
þykkt deiliskipulags fyrir Kenn-
araháskóla Jslands og Sjó-
mannaskóla íslands og að síð-
ustu hvort koma ætti skólunum
fyrir í öðra hentugu húsnæði.
Sagðist ráðherra gera ráð fyrir
að niðurstaða slíkrar vinnu lægi fyrir fyrir áramótin.
Endurbætur utanhúss um 60 milljónir
í svari menntamálaráðherra kom einnig fram að
áætlað hefði verið að viðgerðir Sjómannaskólans
utanhúss kostuðu að minnsta kosti 60 milljónir
króna og að því væri spáð að kostnaður við endur-
bætur á húsinu öllu myndi varla kosta undir 300
milljónum króna en ættu ekki að þurfa að kosta
meira en 400 milljónir. „Viðgerð hússins að utan
er á engan hátt tengd því hvaða skóii eða skólar
hafa þar aðsetur, sú viðgerð mun því hefjast strax
þegar nægar fjárveitingar eru fyrir hendi," sagði
hann. „Hluti af endurbótum innanhúss er hins
vegar háður því hveijir notendurnir verða.“
Eins og áður kom fram er
áætlaður flutningskostnaður á
búnaði skólanna úr Sjómanna-
skólahúsinu 20 milljónir króna,
að því er kom fram í máli ráð-
herra. í framhaldi af því sagði
hann ljóst vera að hluti tækja-
búnaðar skólanna, einkum Vél-
skólans, þarfnaðist endurnýj-
unar, en sú endurnýjunarþörf
réðist að mjög litlu leyti af því
hvar skólarnir störfuðu, þótt
flutningur myndi væntanlega
verða til þess að flýta endumýjun sumra véla og
tækja.
Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, sagði m.a. í umræðum um Sjó-
mannaskólann í gær að starfsemi Vélskólans og
Stýrimannaskólans ætti að vera þar áfram. Krist-
ján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mót-
mælti einnig flutningi skólanna og sagðist vona
að menntamálaráðherra endurskoðaði hugmyndir
ráðuneytisins um að svo verði gert.
Steingrímur J. Sigfússon hvatti að síðustu til
þess að hafist verði handa um það að ráðast „í
löngu tímabærar endurbætur á sjómannaskólahús-
inu". Það væri öllum til skammar hvernig það
hefði verið látið drabbast niður.
’ i -i' '7 iii—r A ' '^ f~ .. ....
ffyíi • uíi / .11;! iíi :íí.! fu ;
| i 1 mm u itífl
ALÞINGI
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis
hefst kl. 10.30 í dag. Eftir-
farandi mál eru á dagskrá:
1. Skýrsla utanríkisráð-
herra um utanríkismál. Ein
umræða.
2. Friðlýsing íslands fyr-
ir kjarnorkuvopnum. 1.
umr.
3. íslenskt sendiráð í Jap-
an. Fyrri umr.
Alþingi
Stutt
Halldór baðst
afsökunar
HALLDÓR Blöndal sam-
gönguráðherra kvaddi sér
hljóðs í upphafi þingfundar
Alþingis í gær til að biðjast
afsökunar á því að hafa
rangnefnt Astu R. Jóhannes-
dóttur, þingmann þing-
flokks jafnaðarmanna, í
umræðum um málefni Pósts
og síma í fyrradag. „Mér
varð það á í gær (fyrradag)
að fara vitlaust með nafn
eins háttvirts þingmanns og
vil biðjast afsökunar á því.
Mér var bent á það eftir
umræðurnar að það hefði
komið fyrir mig fjórum
sinnum í ræðu minni og mér
er það algjörlega óskiljan-
legt og biðst afsökunar,“
sagði Halldór.
Morgunblaðið/Knstmn
NEMENDUR Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla íslands fjölmenntu á áhorfendapalla Al-
þingis í gær þegar umræður um húsnæði Sjómannaskólans fóru fram. Að þeim loknum afhentu
fulltrúar nemenda menntamálaráðherra undirskriftalista, með um 240 undirskriftum, þar sem flutn-
ingi skólanna að Höfðabakka 9 er mótmælt.
Halldór gefur ekki
upp launakjör
stjómenda P&S
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra sagði í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær að honum bæri ekki
skylda til og að honum brysti heim-
ild til þess að veita upplýsingar, sem
Ögmundur Jónasson alþingismaður
bað um, um launakjör stjómenda
Pósts og síma hf. Vísaði hann m.a.
máli sínu til stuðnings í niðurstöðu
lögfræðilegs álits Stefáns M. Stef-
ánssonar_ prófessors við lagadeild
Háskóla íslands þar sem segir m.a.
að samgönguráðherra sé ekki skylt
og jafnframt óheimilt gagnvart fé-
laginu Pósti og síma hf. að gefa
Alþingi upplýsingar sem hann telji
að leynt eigi að fara og ekki geti
talist til þeirra upplýsinga sem eigi
að vera opinberar lögum sam-
kvæmt.
Ráðherra sagði ennfremur að
samkvæmt bréfi stjórnarformanns
Pósts og síma hf., Péturs Reimars-
sonar, væri ekki unnt að veita upp-
lýsingar um kjör einstakra starfs-
manna án þess að bijóta undirritað-
an samning um gagnkvæman trún-
að. Halldór sagði hins vegar að
forstjóri og fimm framkvæmda-
stjórar Pósts og síma hf. hefðu
hver um sig til ráðstöfunar nýjan
bíl sem félagið ætti og ræki, en
viðkomandi stjómendur greiddu
skatta af eins og lög og reglur
kveddu á um.
Ráðherra hafi heimildina
Kristín Ástgeirsdóttir, þingmað-
ur Kvennalistans, sagði að ef ráð-
herra teldi sig ekki hafa lagalegar
heimildir til að veita umbeðnar upp-
lýsingar yrði einfaldlega að breyta
lögunum. „Það hlýtur að vera
skylda okkar að fylgjast með fyrir-
tækjum og stofnunum ríkisins.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingfiokki jafnaðarmanna, tók í
sama streng og benti á að fyrir
Alþingi lægju tvö frumvörp stjórn-
arandstæðinga þar sem lagt væri
til að það verði gert skylt að veita
upplýsingar um hlutafélög í eigu
ríkisins.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra, sagði
það hins vegar rangt að Halldór
hefði ekki heimild til þess að gefa
umræddar upplýsingar. Það kæmi
fram í lögfræðilegu áliti að honum
bæri ekki skylda til þess, en hann
hefði á hinn bóginn heimildina, nema
það væri til þess að skaða stofnun-
ina. Ögmundur velti því síðan fyrir
sér hvernig Póstur og sími hf. gæti
skaðast af því að greint yrði frá
kjörum stjómenda félagsins.
Utandagskrár-
umræða um RÚV
Ráð-
herra vill
endur-
skoða lög
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra telur óhjákvæmilegt að hafin
verði samhliða endurskoðun á lögum
um ijarskipti og útvarpsrekstur þar
sem stefnt sé að því að afnema laga-
og tæknilegar hindranir í fjarskipt-
um og tryggja að ekkert hamli eðli-
legri þróun í hvers kyns boðskiptum.
Þetta kom m.a. fram í máli ráðherra
í utandagskrárumræðu um stefnu í
málefnum Ríkisútvarpsins á Alþingi
í gær.
Sagði ráðherra ennfremur að út-
varpsréttarnefnd hefði vakið athygli
hans á því að nauðsynlegt væri sem
allra fyrst að setja skýrar og skil-
merkilegar reglur um réttindi og
skyldur eigenda og eða rekstraraðila
kerfa sem dreifi útvarps- og sjón-
varpsefni um þráð. Næstu skref
verði að útfæra þessar hugmyndir
með það fyrir augum að ieggja fram
framvarp um þau efni á Alþingi.
Málshefjandi, Svavar Gestsson,
þingmaður Alþýðubandalags, krafði
ráðherra um svör við því hver væri
framtíð Ríkisútvarpsins, m.a. hvort
það væri stefna ráðherra að selja
hluta af starfsemi Ríkisútvarpsins í
hendur einkaaðila. Einnig gagnrýndi
Svavar nýlegar mannaráðningar á
Ríkisútvarpinu, til dæmis ráðningu
framkvæmdastjóra Sjónvarps, og
taldi Svavar að fagleg sjónarmið
hefðu ekki ráðið þar ferðinni. Ásak-
aði Svavar Sjálfstæðisflokkinn fyrir
að hafa lagt Ríkisútvarpið í einelti.
Menntamálaráðherra svaraði því
að ekki væru uppi áætlanir um að
leggja Ríkisútvarpið niður eða selja
hluta af því. Það hefði aldrei verið
á dagskrá hjá honum sem mennta-
málaráðherra. Hvað varðaði ráðn-
ingu starfsfólks að Ríkisútvarpinu
sagði ráðherra að þar réðu ákvarð-
anir sem byggðust á málefnalegum
sjónarmiðum með hliðsjón af mennt-
un, reynslu, skólagöngu, hæfni og
öðrum persónulegum eiginleikum.
Sagði hann auk þess engin rök fyrir
því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
lagt Ríkisútvarpið í einelti.
Sjónvarp og hyóðvarp
undir sama þak
Þá kom fram í máli menntamála-
ráðherra að hann hefði þegar kynnt
þær hugmyndir á vettvangi ríkis-
stjómar að sameina bæri sjónvarp
og hljóðvarp á einum stað við Efsta-
leiti. Hann sagðist telja að nú bæri
að taka ákvarðanir um þessa fram-
kvæmd, en sagði hins vegar umdeil-
anlegt hvað hún kostaði mikið. Þar
væra nefndar tölur frá 600 milljónum
upp í einn milljarð króna.
Isólfur Gylfí Pálmason, þingmaður
Framsóknarflokks, velti því upp í
utandagskrárumræðunni í gær hvor
útvarpsráð væri hreinlega nauðsyn-
legt og hvort það tilheyrði ekki fortíð-
inni. „Við þekkjum öll umræðuna um
ráðningu starfsmanna og þar fram
eftir götunum," sagði hann. „Pólitísk
íhlutun þessa miðils er engum til
góðs og á vissan hátt stofnuninni til
vansa,“ sagði hann.
ísólfur fagnaði ennfremur þeim
ummælum menntamálaráðherra að
nú stæði til að sameina Ríkisútvarpið
undir einu þaki.
Hjálmar Árnason, Framsóknar-
flokki, tók í svipaðan streng og ísólf-
ur og sagði að útvarpsráð og ráðherr-
ar ættu að hætta afskiptum af mann-
aráðningum, dagskrárgerð og innri
málefnum Ríkisútvarpsins. Þess í
stað þyrfti að koma á skilvirku stjórn-
unarmynstri þar sem yfirmenn hefðu
vaid til að stjóma án afskipta ann-
arra en svöruðu jafnframt fyrir og
tækju ábyrgð á gjörðum sínum.