Morgunblaðið - 06.11.1997, Síða 53
\ MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 53
1
J
I
J
3
I
3
I
4
4
4
í
(
<
<
<
<
<
<
<
FRÉTTIR
Fyrsta ráðstefna sinn-
ar tegundar á Islandi
Á VEGUM heilsublaðsins í Apótek-
inu hefst föstudaginn 7. nóvember
samnefnd ráðstefna á Hótel Loftleið-
um. Ráðstefnan sem er sú fyrsta
sinnar tegundar hér á landi stendur
til laugardagskvölds. Pjöldi fyrir-
lestra verður þar fluttur og einnig
umfangsmikil sýning á vegum fyrir-
tækja sem þjóna apótekum. Ráð-
stefnan er aðeins opin starfsfólki
apóteka.
Dagskrá hefst á ávarpi Sigurðar
G. Jónssonar formanns Félags ís-
lenskra lyfsöluleyfishafa. Þá syngur
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir óperu-
söngkona við undirleik Guðna Þ.
Guðmundssonar. Þvínæst verður
pallborðsdagskrá um „Breytta
ímynd apóteka og framtíðarsýn"
með þátttöku apótekara bæði af
höfuðborgarsvæðinu og af lands-
byggðinni.
Til landsins kemur dr. Raimo Hilt-
unen prófessor í Lyfja- og efnafræði
náttúruefna við Háskólann i Hels-
inki. Dr. Hiltunen hefur ritað þrjár
bækur um náttúrulyf og hann hefur
haldið fyrirlestra víða um heim. Telst
hann meðal fremstu sérfræðinga á
sviði náttúrulyíjafræði. Hér flytur
hann fyrirlestur um „Virkni kísilsýru
í örsvifi".
Fundur
á Spjallrás
Veru
FUNDUR verður á Spjallrás Veru
fimmtudaginn 6. nóvember kl.
20.30. Guðrún Jónsdóttir, starfs-
kona þingflokks Kvennalistans,
verður gestur Spjallrásarinnar, en
hún hefur starfað fyrir Kvennalist-
ann og kvennaathvörf á íslandi og
í Noregi um árabil.
Guðrún hefur kynnt sér nýja
hugmyndafræði sem náð hefur fót-
festu á Norðurlöndum og kallast
samþætting (mainstreaming). í
henni felst að stjómvöld kanni
hvaða áhrif ákvarðanir þeirra muni
hafa á stöðu kvenna og gæti þess
að taka ekki ákvarðanir sem hafa
slæm áhrif á þá stöðu, segir í
fréttatilkynningu.
Spjallrás Veru er undirflokur á
heimasíðu Veru. Slóðin er:
http://www.centrum.is/vera.
Námskeið í
áfallahjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveggja daga nám-
skeiði í áfallahjálp og stórslysasál-
fræði 10. og 11. nóvember nk.
Kennt verður frá kl. 19-22 báða
dagana.
Námskeiðið er ætlað fyrir alla
þá sem áhuga hafa á áfalla- og
stórslysasálarfræði og eru eldri en
15 ára.
Aðrir fyrirlesarar verða: Anna
Eðvaldsdóttir ljósmóðir, hjúkrunar-
og nuddfræðingur sem ræðir um
„Sveppasýkingar í leggöngum",
Guðrún Þóra Hjaltadóttir næringar-
ráðgjafi nefnir sinn fyrirlestur „Er
þjóðin að borða sig í hel?“, Ólafur
Olafsson lyfjafræðingur fjallar um
„Sýrutengda kvilla - greiningu og
úrræði“, Kolbrún Einarsdóttir nær-
ingarráðgjafi ræðir um „Næringar-
drykki", Pétur Magnússon stud.
pharm. fjallar um „Verkjalyf í lausa-
sölu“, Björg Dan Róbertsdóttir tann-
fræðingur er með umfjöllun um
„Tannholdssjúkdóma", dr. Eiríkur
Líndal sálfræðingur nefnir sinn fyr-
irlestur „Betra að verða langlífari,
þybbinn og frískur". Einnig verður
á sýningunni dagskrá um framkomu
og fatnað starfsfólks apóteka og
tískusýning undir stjórn Önnu F.
Gunnarsdóttur útlitshönnuðar.
Á sýningunni í Apótekinu sýna
um 40 fyrirtæki vörur sem boðið er
upp á í apótekum, jafnt Iyf, heilsu-
vörur, snyrtivörur og fjölmarga aðra
vöruflokka og kynntar verða nýjung-
ar. Veglegt ráðstefnurit er gefið út
í tilefni af ráðstefnunni. Stjórnandi
ráðstefnunnar er Ólafur M. Jóhann-
esson.
HEILBRIGÐISTÆKNIFÉLAG ís-
lands í samráði við Útflutningsráð
íslands, Samtök iðnaðarins og iðn-
aðarráðuneytið boðar til málþings
um útflutning á heilbrigðistækni
föstudaginn 7. nóvember á Hótel
Sögu, sal A, og stendur frá kl.
13-17.
Heilbrigðis- og lækningatækni
er af margvíslegum toga og á seinni
árum hafa þó nokkur íslensk fyrir-
tæki hafið útflutning á lyfjum, stoð-
tækjum og rafeindatækjum með
góðum árangri.
Tilgangur fundarins er m.a. að
ljalla um þá þætti er nauðsynlegir
eru til að ná árangri við útflutning
á vörum og þjónustu í heilbrigðis-
tækni.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
Á SÍÐASTLIÐNUM vetri stóðu
raunvísindadeild HÍ og Hollvinafé-
lag raunvísindadeildar að fyrir-
lestraröðinni Undur veraldar þar
sem ýmis fyrirbæri raunvísindanna
voru matreidd fyrir almenning. Nú
er röðin komin að læknisfræðinni
og Hollvinafélag læknadeildar sér
um lestrana í vetur.
Sá fyrsti er nk. laugardag, 8.
nóvember, í sal 3 í Háskólabíói og
Umræða um
spíritismann
og kirkjuna
ÞRIÐJI umræðufundur um
spíritismann og kirkjuna verður i
Loftsalnum (sama húsi og Skútan),
Hólshrauni 3, Hafnarfírði, sunnu-
daginn 9. nóvember kl. 14.
Þar munu guðfræðingarnir
Björgvin Snorrason og Steinþór
Þórðarson kynna efnið og svara
spurningum úr sal. Til að svara
spumingum munu þeir rannsaka
hvað Biblían hefur að segja um
þetta efni.
herra flytur ávarp en fyrirlesarar
eru: Baldur Þorgilsson, tæknideild
Landspítala, Þorgeir Ástvaldsson,
Útvarpsstöðin Bylgjan, Einar Stef-
ánsson prófessor, læknadeild HÍ,
Hallgrímur Jónasson, Iðntækni-
stofnun, Hilmar Br. Janusson, Öss-
ur hf., Þorsteinn I. Víglundsson,
Gagnalind, Helgi Kristbjarnarson,
Flaga hf.; Jón Ásbergsson, Útflutn-
ingsráð Islands, Kristján Antons-
son, Landspítalinn, Guðmundur
Hreiðarsson, Hekla hf., Vilhjálmur
Vilhjálmsson, Kaupþing hf. og
Svanbjörn Thoroddsen, VSÓ Ráð-
gjöf hf.
Fundarstjóri er Páll Kr. Pálsson,
Nýsköpunarsjóði.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
hefst kl. 14. Þar mun Árni Björns-
son, fyrrverandi yfirlæknir, fjalla
um skottulækningar sem hann hef-
ur verið að rannsaka undanfarin
ár, segir í fréttatilkynningu. Hann
mun m.a. kynna Egil Skallagríms-
son til sögunnar í máli og myndum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Samhliða fyrirlestrinum fer
fram söfnunarátak til tækjakaupa
í þjálfunarstofu læknanema.
Styrktartón-
leikar á
Grandrokk
HALDNIR verða styktartónleikar
til heiðurs Hallbirni Hjartarsyni á
Grandrokk við Klapparstíg. Fjöl-
margar hljómsveitir munu koma
fram og rennur allur ágóði tónleik-
anna til Halíbjarnar og uppbygg-
ingar Kántrýbæjar að nýju.
Fram koma hljómsveitirnar
Maus, Botnleðja, Kolrassa krókríð-
andi, Soðin fiðla, Curver, Ó. Jóns-
son og Gtjóni, Andhéri, Geirfugl-
arnir o.fl.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
er aðgangseyrir 500 kr.
■ DREGIÐ hefur verið í sumarleik
Silfurbúðarinnar „heppin brúð-
hjón“ og hlutu eftirtalin brúðhjón
helgarferð til Skotlands með Flug-
leiðum. Á myndinni eru f.v. Aðal-
björg Guðsteinsdóttir og Guðjón
Karlsson, Bertha Traustadóttir
og Ágúst Arnibjarnarson og Sig-
rún Bjarnadóttir og Olafur
Magnússon.
Skagfirð-
ingafélagið
60 ára
60 ÁRA afmælis Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavik og
nágrennis verður minnst með
sviðaveislu í félagsheimilinu
Drangey, Stakkahlíð 17,
laugardaginn 8. nóvember og
hefst kl. 19.30.
Til skemmtunar verður
hagyrðingaþáttur og Skag-
firski kvartettinn Svangerðis-
bræður og fleiri syngja undir
stjórn Björgvins Þ. Valdi-
marssonar. Hörður Ólafsson
frá Sauðárkróki leikur fyrir
dansi.
Aðgöngumiðar verða seldir
í Drangey 6. nóvember kl.
17-19 og við innganginn.
■ MIÐILLINN Björgvin Guð-
jónsson og Pýramídinn halda
skyggnilýsingarfund til styrktar
kántrýsöngvaranum Hallbirni
Hjartarsyni fimmtudaginn 6. nóv-
ember í félagsheimilinu Drangey,
Stakkahlíð 17. Húsið opnar kl. 20,
fundurinn hefst kl. 20.30. Miðaverð
1.000 kr.
Eftir fundinn sýnir ICE sýningar-
hópurinn IRK-peysur.
Krislján B. um Satýrikon
VEGNA mistaka við vinnslu
blaðsins í gær féll niður nafn gagn-
rýnandans Kristjáns B. Jónassonar
í umsögn hans um Satýrikon, einn-
ig vantaði hluta textans. Um leið
og beðist er velvirðingar á þessum
mistökum birtum við hér hluta
dómsins aftur.
„En það er þó þetta þindarmagn
sem tengir saman sundurlausar frá-
sagnirnar og býr til þá mögnuðu
blöndu af fimmauraspeki, mælsku
og skopi sem verkið er. Það birtist
í öllum gjörðum persónanna og
stjórnar síðast en ekki síst gleði og
sorgum aðalsöguhetjunnar Enkolp-
íusar, teymir hann og félaga hans
frá einum stað til annars. Hvergi
öðlast þessi straumur jafnskýra
mynd og í lokafrásögninni þar sem
segir af tilraunum Enkolpíusar til
að endurheimta getuna. ítalski
kvikmyndaleikstjórinn Federico
Fellini gerði enda mikið úr þessu
atriði í mynd sinni Satýrikon (1969)
sem byggð var á bókinni...“
í frétt blaðsins af Glæsikvöldi
konunnar á Kaffi Reykjavík var
rangt farið með nafn fatahönnuðar
sem hannaði kjólinn sem ungfrú
Norðurlönd, Dagmar Iris Gylfadótt-
ir, klæddist. Rétt nafn hönnuðarins
er Edda Sigurbergsdóttir. Einnig
var var rangt eftimafn skipuleggj-
Svartidauði
á íslandi
>
KARL Skírnisson dýrafræðingur
heldur fyrirlestur föstudaginn 7.
nóvember á vegum Líffræðistofn-
unar háskólans sem nefnist „Um
smitleiðir svartadauða á Islandi“.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Bakterían Yersinia pestis veldur
sjúkdómi í mönnum sem nefndur er
svartidauði eða pest. Auk þess að
geta Iifað í mönnum lifir bakterían
víða um heim í ýmsum tegundum
skordýra og spendýra. Við ákveðnar
aðstæður getur bakterían borist frá
þessum dýrum yfir í menn og komið
af stað faraldri. Árið 1990 greindust .
1.250 tilfelli af svartadauða í mönn-
um og varð pestarinnar vart í 12
þjóðlöndum.
Almennt er talið að svartidauði
hafi geisað á íslandi að minnsta
kosti tvisvar á 15. öld.“
í fyrirlestrinum er greint frá
helstu smitleiðum svartadauða.
Leiddar eru að því líkur að bæði
lungnapestar- og kýlapestarform
svartadauða hafi hijáð landsmenn
og eru þær dýrategundir nafngreind-
ar sem líklegt er að pestarbakterían
hafi getað lifað í hér á landi á 15. öld.
Erindið er haldið í húsakynnum
Líffræðistofnunar, Grensásvegi 12 í
stofu G-6 klukkan 12.20. Öllum er
heimill aðgangur.
Októberbylt-
ingar minnst
í TILEFNI af því að 80 ár eru liðin
frá Októberbyltingunni í Rússlandi
hafa félagið MÍR og Sósíalistafélag-
ið staðið fyrir vikudagskrá undir
yfirskriftinni Byltingardagar 97.
Lokaatriði og hápunktur þeirrar
dagskrár verður Hátíðarfundur
föstudaginn 7. nóvember kl. 20 í
sal Ferðafélags íslands, Mörkinni 6.
Ávörp flytja: Margrét Guðnadótt-
ir, prófessor og Þorvaldur Þorvalds-
son, trésmiður. Tónlist flytja Katla
Björk Rannversdóttir, sópran og
Tatu Kantomaa, harmonikuleikari,
Pétur Bjarki Pétursson og Kristinn
Sigurpáll Sturluson, trúbadorar,
Rússíbanar - Bjarni Sveinbjörnsson,
Einar Kristján Einarsson, Kjartan
Guðnason og Tatu Kantomaa. Upp-
lestur: Baldvin Halldórsson, leikari,
Eyvindur P. Eiríksson, rithöfundur
og Pétur Már Guðmundsson, nemi.
Aðgangseyrir er 500 kr. Kaffí
og meðlæti innifalið.
anda kvöldins sett undir mynda-
texta en hið rétta nafn er Kristín
Stefánsdóttir. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
í frétt blaðsins af útgáfuteiti
Helga Björnssonar á Skuggabarn-
um var farið rangt með nafn söng-
konunnar sem tróð upp. Rétt nafn
söngkonunnar er Jóhanna Þórhalls-
dóttir. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Upplýsingar víxluðust
í samanburði á kostnaði við símt-.
öl hér innanlands og til Danmerkur
í frásögn af utandagskrárumræðu
á Alþingi í Morgunblaðinu í gær
um málefni Pósts og síma víxluðust
upplýsingar. Rétt er að jafndýrt var
að hringja í eina mínútu til Dan-
merkur og tala í 51 mínútu hér
innanbæjar. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á mistökunum.
Ekki óheiðarlega
I frásögn af úrskurði Verslunar-
réttarins í París í máli SH gegn
fyrri eigendum fyrirtækisins Gel-
mers, er haft eftir lögfræðingi Gel-
mers, Gérard Barron, að sú mynd
sem birst hafí í málinu í fjölmiðlum,
sé skekkt vegna þess að SH hafi
ekki komið heiðarlega fram. Barron
hafði samband við blaðið og sagðist
hefðu viljað nota það orðalag, að
SH hafi gefíð ranga mynd af at-
burðum.
Kirkjustarf
Framhald af bls. 67.
Kaffi. Æskulýðsfélag
14-16 ára, kl. 20-22.
Kópavogskirkja. Starf
eldri borgara kl. 14-16
í safnaðarh. Borgum.
Fríkirkjan í Hafnar-
firði. Opið hús fyrir
11-12 ára börn kl.
17-18.30 í safnaðar-
heimilinu. Æskulýðs-
fundur kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja.
Vonarhöfn, Strand-
bergi: Mömmumorgunn
kl. 10 í. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl.
17-18.30.
Vídalínskirkja. Bæna-
og kyrrðarstund kl. 22.
Biblíulestur kl. 21-22.
Akraneskirkja. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl.
18.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Víðistaðakirkja.
Mömmumorgunn kl.
10. Starf fyrir 10-12
ára kl. 17.15-18.30.
Landakirkja, Vestm.
TTT, 10-12 ára, kl. 17.
Öldungadeild KFUM &
K fundar i húsi fél. kl.
20.30.
Keflavíkurkirkja.
Kirkjan opin kl. 16-18.
Kyrrðar- og fræðslu-
stund kl. 17.30. Fyrir-
bænir, íhugun og bæn
í umsjá Láru G. Odds-
dóttur, cand. theol.
Hjálpræðisherinn.
Vakningarherferð á
Hjálpræðishemum.
Samkomur á hveiju
kvöldi kl. 20, 5.-9. nóv.
Ræðumaður Erlingur
Níelsson frá Akureyri.
Fíladelfía. Unglinga-
samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Erling
Magnússon.
Ráðstefna um útflutning
á heilbrigðistækni
Hollvinafélag læknadeildar
kynnir undur veraldar
LEIÐRÉTT