Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 45
HANDMENNT
„Rokkurinn bíður við rekkjustokkinn rökkur-
dökkur á lit“. Segir í kvæði eftir Halldór Helga-
son. Hér áður fyrr var það spunahljóðið í rokkn-
um hennar ömmu í hlýju baðstofunni sem svæfði
litlu börnin þegar rökkva tók. Tímarnir breyt-
ast. í dag er samt áreiðanlegt að mörg börnin
svífa ljúflega inn í draumaheiminn er þau heyra
lágvært en taktfast klingur í prjónunum hennar
mömmu á kvöldin. Þetta eru dýrmætar stundir
þar sem amstur hversdagsins er víðs fjarri.
Áhugi fyrir prjónaskap og annarri handmennt
fer greinilega ört vaxandi hjá almenningi. Þörfin fyrir að skapa ein-
staka og sérstaka hluti er mjög sterk hjá mörgum þar sem gin fjölda-
framleiðslunnar ætlar allt að gleypa og steypa í sama mótið. Ánægjan
við að skapa, horfa á látlausan þráð úr hespu renna í gegnum fingur
sína og verða að fallegri flík eða hlut er ólýsanleg. Umræða í fjölmiðl-
um og skrif um handmenntina sem er eitt af aðaláhugamálum þjóðar-
innar hefur ekki verið gerð nægjanleg skil þó þörfin sé mikil. Þessi
þáttur “SPUNI“ kemur til með að birtast einu sinni í mánuði í Morgun-
blaðinu. í hveijum þætti verða uppskriftir sem ættu að höfða til sem
flestra. Einnig verður fjallað um skemmtilega hluti sem eru að ger-
ast úti á meðal fólks er tengjast þessum efnum.
Lengsti ormur landsins
I SPURNINGAÞÆTTINUM
“Gettu betur“ s.l. vetur sást
eina örskotstund verulega
langur ormur vafinn utan um
háa súlu í stórum sal Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Við
nánari athugun reyndist orm-
urinn ekki lifandi heldur pijón-
aður í öllum regnbogans litum.
Nokkrar ungar stúlkur er
sátu við borð við hlið ormsins
svöluðu forvitni minni og tjáðu
mér ýmislegt um þetta uppá-
tæki nemenda.
Salurinn sem hýsir orminn
heitir “Miðgarður" svo það Iá
auðvitað beinast við að pijóna
“Miðgarðsorminn" sem á að
verða það langur að hann nái
utan um “Miðgarð" (Mann-
heim) líkt og í Goðafræðinni.
Margir koma að pijóna-
skapnum bæði piltar og stúlkur
og á tímabilum er slegist um
að fá að pijóna. Byijað var að
pijóna orminn 1989 og er hann
nú hátt í fimmtíu metrar og
alls óvíst um endanlega lengd
hans. Inn í hann er troðið
svampi, gömlum fötum, frétta-
pésum og ýmsu fleiru sem stúlk-
urnar vildu ekki alveg láta hafa
eftir sér en það væri áreiðanlega
fróðlegt eftir eina öld eða svo að
kílya á það.
I orminn eru prjónuð ýmis
munstur, ártöl, táknmerki, stærð-
fræðiformúla sem einn piltur
pijónaði eftir að hafa fallið í
stærðfræðiáfanga þar sem form-
úlan var aðalmálið. Fólk skeytir
sem sagt skapi sínu í pijónaskap-
inn og líður betur á eftir.
Einnig er hann notaður til
ýmissa hluta t.d. er hann notaður
sem prófsteinn á það hver er
sterkasti maður skólans og í busa-
þrautum ýmiss konar. í verkfalli
kennara 1995 örkuðu nemendur
um bæinn í mótmælagöngu í kulda
og trekki með orminn vafinn um
hálsinn og sjálfsagt komið í veg
Mynstruð
peysa
fyrir mikinn flensufaraldur á
meðal nemdanda í það skiptið.
Handmenntin eflir sjálfsmynd
og þroska, uppfyllir sköpunarþörf
einstaklingsins og er þar með
mikilvæg hverri þjóð.
Forsendan fyrir því að hand-
menntin sem er okkar menningar-
arfur glatist ekki eru hugmyndir
á borð við “Miðgarðsorminn" sem
virkja og kenna ungu kynslóðinni
hvað handmenntin getur verið
skemmtileg.
Bjallan glymur og hringir inn
síðasta timann fyrir helgina. Óró-
leikinn og spennan yfir nálægum
frítímum og frelsi leynir sér ekki
í augum þessara hressu stúlkna.
Léttar í spori svífa þær inn í skóla-
stofuna gjallandi og flissandi út í
daginn eins og stúlkna á þessum
aldri er einum lagið.
Stærðir: 6m 9m 12 4 ára
Yfirvídd: 62 67 70 74 78 sm
Sídd: 30 32 34 37 42 sm
Ermalengd: 17 19 21 25 29 sm
Handvegur: 13 14 15 16 17 sm
Garn: SISU
Dökkblátt nr. 618 2 3 3 4 4 d.
Rautt nr. 742 2 2 3 3 3 d.
Grænt nr. 640 1 2 2 2 2 d.
Gult nr. 716 1 1 1 1 2 d.
PRJÓNAR: 50 eða 60 sm hring-
pijónar nr. 2.5 og 3.5
Sokkapijónar nr. 2.5 og 3.5
Tinkrækjur: 2 pör
PRJÓNFESTA: 27 lykkjur í sléttu
pijóni á pijóna nr. 3 = 10 sm.
27 lykkjur í tvíbandapijóni á pijóna
nr. 3.5 = 10 sm.
Ef of laust er pijónað þarf fínni
pijóna.
Ef of fast er pijónað þarf grófari
pijóna.
BOLUR: Fitjið upp með rauðu á
hringpijón nr. 2.5, 150-160-170-
180-190 lykkjur. Pijónið 2 sm
slétta í hring. Pijónið þá 1 pijón
brugðinn = brotlína + 2 sm slétta.
ATHUGIÐ: Á síðasta pijóninum
er aukið í 20 lykkjum með jöfnu
millibili = 170-180-190-200-210
lykkjur. Skiptið yfir á hringpijón
nr. 3.5. Pijónið munstur A, byijið
að pijóna við örina sem sýnir rétta
stærð. Þegar bolurinn mælist
17-18-19- 21-25 sm frá brotlfn-
unni eru sett merki í báðar hliðar
með 85-91-95-101-105 lykkjur á
framstykki og 85-89-95-99-105
lykkjur á bakstykki. Pijónið áfram
2-2-3-3-4 sm. Nú er komið að
klaufinni að framan. Setjið 7 lykkj-
ur í miðjunni á nælu. Fitjið upp 4
lykkjur í staðinn (lykkjur sem allt-
af eru prjónaðar brugðnar, klippt
er upp í síðar og teljast ekki með).
Pijónið áfram þar til mælast
26-28-30- 33-37 sm. Nú er komið
að hálsmálinu að framan. Fellið
af brugðnu lykkjurnar 4. Pijónið
nú fram og til baka yfir allar lykkj-
urnar og fellið jafnframt af í byij-
un pijóns við hálsmálið 6-7-8-9-10
lykkjur einu sinni, 2 lykkjur 2 sinn-
um og 1 lykkju 3 sinnum = 26-28-
29-31-32 lykkjur á öxl. Pijónið
áfram þar til mælast 30-32-34-37-
42 sm. Setjið lykkjurnar á nælur.
ERMAR: Fitjið upp með rauðu á
sokkapijóna nr. 2.5, 34-36-38-40-
42 lykkjur. Pijónið líningu eins og
neðan á bolnum. ATHUGIÐ: Aukið
út í 56-60-64-64-
66 lykkjur á síðasta
hringnum. Skiptið
yfir á sokkapijóna
nr. 3.5. Prjónið
munstur A, teljið
út frá miðju hvem-
ig á að byrja á
munstrinu. AT-
HUGIÐ: Síðasta
lykkjan á hringn-
um er alltaf pijón-
uð brugðin =
merkilykkja. Aukið
í 1 lykkju báðum
megin við hana
með 2 sm millibili
þar til 70-76-82-
86-92 lykkjur em á
erminni. Prjónið
áfram þar til mæl-
ast 17-19-21-25-
29 sm frá brotlín-
unni. Snúið erminni
við og pijónið 5
hringi slétta (kantur). Fellið af.
FRÁGANGUR: Mælið breidd erm-
arinnar við handveginn = 13-14-
15-16-17 sm og merkið. Saumið í
saumavél 2 beina sauma með smáu
spori báðum megin við handveginn
og einnig í brugðnu lykkjurnar að
framan. Klippið á milli saumanna
og sik-sakkið þétt yfír sárkantinn.
Lykkið axlir saman. Saumið erm-
amar í innan við kantinn efst á
erminni og notið hann til að hylja
sauminn. Bijótið líningamar neðan
á bol og ermum um brotlínumar
yfír á rönguna og saumið niður.
HÁLSLINING: Pijónið upp með
rauðu á hringpijón nr. 2.5, 60-62-
66-68-72 lykkjur. Pijónið slétt pijón
fram og til baka 1.5 sm. Pijónið þá
1 pijón sléttan á röngunni = brot-
lína + 1.5 sm slétt pijón. Bijótið
líninguna um brotlínuna yfir á röng-
una og saumið niður.
LISTAR: Pijónið upp meðfram
annarri brúninni á klaufinni með
rauðu á pijón nr. 2.5, 14 lykkjur
á hveija 5 sm. Pijónið slétt pijón
fram og til baka 1.5 sm. Pijónið
þá 1 pijón sléttan á röngunni =
brotlína + 1.5 sm slétt pijón. Farið
eins að hinum megin. Bijótið líning-
amar um brotlínuna yfir á rönguna
og saumið niður. Lykkið neðri
brúnirnar við lykkjurnar 7 sem
geymdar voru (listarnir mætast í
miðjunni). Saumið krækjurnar á.
Saumið þvottaleiðbeiningamerki
innan í peysuna.
Fyrirsæta Þórdfs Kristinsdóttir
T
Miðja á ermi
) mán.
)g 2 ára
6m. 12m. 4ára
0= dökkblátt 618 Byija hér
H = rautt 742
0 = grænt 640
0= gult 716
4
4
4
4
4
4
4
4
4
H
Tilboð baðherbergissett! Kr. 23.000,- stgr.
Salerni með stút í vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
Ath. Öll hreinlætistæki hjá okkur eru framleidd hjá sama aðila sem
tryggir sama litatón á salerni, salernissetu, handlaug og baðkari.
Forðist ósamstæða litatóna!
VERSLUN FYRIR ALLA !
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm
- tryggi'
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
IBi
RADCREIÐSLUR