Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR P&S greiði landpósti bætur Yfirlýsing frá Dóm- kirkjunni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Dómkirkj- unni: „Við, prestar, sóknarnefnd og starfsfólk Dómkirkjunnar, fögnum nýjum biskupi og bjóðum hann vel- kominn til stóls síns í hinum aldna helgidómi. Okkur þykir miður sá órói sem skapast hefur um vígslu hans og teljum hann hafa stafað af óþarfri óvissu sem nú hefur verið eytt. Við munum leggja okkur fram hér eftir sem hingað til um að emb- ættisgjörðir biskups íslands megi ævinlega hæfa virðuleika embættis hans og vera þeim sem þær varða til uppbyggingar og gleði og trúnni til eflingar. Vissulega eru okkur það vonbrigði að nú skuli brotin hefð með því að biskupsvígsla fari ekki fram í Dóm- kirkjunni. Það er ákvörðun biskups og hefur hann gert grein fyrir því hvað liggi að baki henni. Allt að einu hefðum við viljað að metin hefðu verið meir sú hefð og þau sögulegu tengsl sem Dómkirkjan varðveitir en meintir annmarkar hennar. Við höfum glaðst yfir því að ekki séu uppi áform af hálfu fráfarandi og verðandi biskups um að breyta stöðu Dómkirkjunnar. Prestar, sókn- arnefnd og söfnuðurinn í heild munu jafnframt að sínu leyti standa vörð um hefðbundna stöðu og virðingu hinnar 200 ára gömlu Dómkirkju. Við lítum fram á veginn með góð- um hug til þjónsutu hins nýja bisk- ups, sr. Karls Sigurbjörnssonar, sem á vísa vináttu og fyrirbæn okkar allra.“ ------» ♦ ♦----- Teknir með smygl TVEIR menn voru teknir í Sunda- höfn í fyrrinótt þar sem þeir voru að bera áfengi frá borði og í bíl. Voru þeir að bera 28 bjórkassa og 24 hálfflöskur af vodka úr skipinu og í bíl. Átti að yfirheyra þá í gær til að rannsaka hvort þeir einir ættu áfengið eða hvort fleiri gætu tengst því. HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hefur dæmt Póst og síma hf. til að greiða fyrrverandi landpósti tæp 440 þús- und, auk dráttarvaxta frá 6. febrúar sl. þar sem P&S hafi verið óheimilt að segja upp verksamningi við hann. Landpósturinn hafði krafist tæplega 5 milljóna. Landpósturinn hóf störf í júlí í fyrra, en í lok ágúst var samningnum sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara. Landpósturinn mótmælti og benti á að honum hefðu ekki borist neinar formlegar kvartanir um störf sín. AÐFARANÓTT föstudagsins 31. október féllu margar aurskriður hér í hreppnum. Langflestar féllu úr Kotlaugafjalli eða nær 20 ef allar smáspýjur eru taldar með. Sú stærsta fór aðeins tvo metra frá Af hálfu P&S var því haldið fram að landpósturinn hefði ekki sinnt starfínu með þeim hætti sem ætlast mátti til og m.a, hefði hann fengið staðgengil til starfa, þótt ætlast væri til að hann annaðist póstdreifíngu sjálfur. Ýmislegt annað hefði verið athugavert, en landpósturinn ekki sinnt munnlegum tilmælum. Héraðsdómur taldi að verksamn- inginn yrði að skýra svo að uppsögn yrði ekki beitt nema um vanefndir hefði verið að ræða. P&S hefði hald- ið skrá yfír aðfínnslur við störf land- vatnsbólinu við bæinn Kotlaugar. Þá hafa fallið 9 skriður í Kópsvatns- ásum við bæinn Kópsvatn, einnig má sjá að minni skriður hafa fallið víðar svo sem í Berghylsfjalli. Þessar skriður, sem eru eðlilega póstsins, án þess að hann vissi eða honum væri gefínn kostur á að tjá sig um þær. Maðurinn hefði aldrei verið áminntur skriflega. Ekki væri nægilega sannað, að hann hefði gerst sekur um verulegar vanefndir á verk- samningum. Bætur fyrir kostnað við bíl Landpósturinn krafðist rúmlega 4 milljóna vegna launa það sem eftir lifði af samningstíma, um 500 þús- unda vegna reikninga frá bílaverk- mismunandi stórar, hafa valdið all- nokkru tjóni á gróðri og eftir þær eru ljót sár í hlíðum. Mikið vatns- veður gekk yfir daginn á undan og þessa umræddu nótt. Þetta er ekki óalgengt fyrirbrigði að slíkar aur- stæði, 167 þúsund króna þar sem hann þurfti að kaupa topp á skúffu vörubíls síns og 146 þúsund króna vegna kostnaðar við stærri dekk og breytingar á felgum. Dómurinn féllst á að landpósturinn hefði þurft að breyta bifreið sinni vegna starfans, en vísaði til að bíllinn hefði kostað um 2,4 milljónir, verið breytt fyrir rúmar 650 þúsund krónur og seldur fyrir tæpar 2,6 milljónir. Tjón hans væri því um 440 þúsund. Öðrum kröfum var hins vegar vísað frá, m.a. vegna vanreifunar. skriður komi þegar jarðvegur hefur safnað miklu vatni í fremur grunn- an gróður ofan á bergi. Elstu menn muna þó ekki eftir að svo margar og stórar skriður hafi fallið hér um slóðir. NOKKRAR aurskriður féllu í hlíðum Kotlaugafjalls aðfaranótt föstudagsins sl. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. Aurskriður í Hrunamannahreppi UTFLUTNINGUR A HEILBRIGÐISTÆKNi Málþing á vegum Heilbrigðistæknifélags íslands í samráði við Útflutningsráð íslands, Samtök iðnaðarins og Iðnaðarráðuneytið að Hótel Sögu, Sal A föstudaginn 7. nóvember 1997 klukkan 13:00 -17:00 QQQ__________Ávarp Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra_________________________________________________________ IkttÞi Yfirlit yfir inn- og útflutning í heilbrigðisþjónustu__________________________________________________ Fyrirlesari: Baldur Þorgilsson, Tæknideiid Landsspitala Rýnir: Þorgeir Ástvaldsson, Útvarpsstöðin Bylgjan Rannsóknir á íslandi á sviði heilbrigðisþjónustu Fyrirlesari: Rýnir: Prófessor Einar Stefánsson, Læknadeild Háskóla íslands Hallgrímur Jónasson, Iðntæknistofnun Hlé Þróun á vörum fyrir heilbrigðisþjónustu Fyrirlesari: Rýnir: Nýjar vörur á nýjum mörkuðum Hilmar Br. Janusson, Össur hf. Þorsteinn I. Viglundsson, Gagnaiind Fyrirlesari: Rýnir: Helgi Kristbjarnarson, Flaga hf. Jón Ásbergsson, Útflutningsráð íslands Hlé Innkaup á íslandi Fyrirlesari: Kristján Antonsson, Landsspítalinn Rýnir: Guðmundur Hreiðarsson, Hekla hf. Fjármögnun og fjárfesting í fyrirtækjum sem framleiða fyrir heilbrigðismarkað Fyrirlesari: Rýnir: Vilhjálmur Vilhjálmsson, Kaupþing hf. Svanbjörn Thoroddsen, VSÓ Ráðgjöf Umræður Fundarstjóri Páll Kr. Pálsson, Nýsköpunarsjóði. • Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Nánari upplýsingar um málþingið veita Hilmar Br. Janusson í síma 515-1352 og Baldur Þorgilsson í síma 560-1560 IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ /fí ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS <§) SAMTOK :■ IÐNAÐARINS BSRB fær ekki upp- lýsingar um laun BSRB hefur ákveðið að skjóta til úrskurðarnefndar um upplýsingamál neitun fjármálaráðuneytisins við beiðni aðildarfélaga BSRB um að upplýsa um laun og önnur kjör allra starfsmanna stofnana ríkisins. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði á blaðamannafundi í gær að aðildarfélög BSRB væru að vinna að samningagerð við einstakar ríkisstofnanir samkvæmt nýju launa- kerfí. Fjármálaráðuneytið hafí með bréfí til ríkisstofnana hafnað óskum félaganna um upplýsingar um laun og kjör starfsmanna stofnananna. Ögmundur sagði að BSRB hefði ákveðið að skjóta málinu til úrskurð- arnefndarinnar, bæði vegna þess að samtökin teldu að það væri grund- vallaratriði að launakerfi ættu að vera opinber, jafnt hjá einkageiran- um og hinu opinbera og eins vegna þess að um sé að ræða almannafé og ekki sé eðlilegt að leynt fari hvern- ig því er ráðstafað. Ogmundur sagði að Friðrik Soph- usson hefði mikið rætt um nauðsyn þess að koma á gagnsæju launakerfi fyrir opinbera starfsmenn og væri þessi afstaða ráðuneytisins í mótsögn við þann boðskap. „Við viljum ekki sætta okkur við að fjármálaráðhera fari ekki að lögum og við teljum sið- ferðilega ótækt að reynt sé að skjóta upplýsingum um launakjör bakvið lokuð tjöld,“ sagði Ögmundur. í beiðnum félaganna jafnt og synj- un ráðuneytisins er skírskotað til upplýsingalaganna. BSRB vísar til hins almenna upplýsingaréttar sem 3. grein laganna veitir og einnig í greinargerð með 5. grein laganna og athugasemdir allsheijarnefndar Alþingis um þá grein. í greinargerð- inni kemur fram að hvað varðar laun opinberra starfsmanna séu upplýs- ingar um föst laun og önnur föst kjör ekki undanþegnar aðgangi al- mennings þótt upplýsingar um heild- arlaun hvers einstaks opinbers starfsmanns séu undanþegin. í áliti allsheijamefndar Alþingis er fjallað um málið á svipaðan hátt og sagt að með lögunum sé ekki aðeins tryggður aðgangur að upplýsingum um föst laun opinberra starfsmanna heldur einnig að þeim einstaklings- bundnu samningum sem gerðir hafa verið við starfsmenn um önnur föst kjör þeirra, svo sem fasta yfirvinnu, akstursgjald og fleira. í svari ráðuneytisins er skírskotað til þess að í greinargerð með 4. tölu- lið 6. gr. laganna sé heimilt að tak- marka aðgang að gögnummeð upp- lýsingum um fyrirhugaðar ráðstaf- anir eða próf á vegum ríkis og sveit- arfélaga ef þau yrðu þýðingarlaus eða næðu ekki tilætluðum árangri væru þau á almanna vitorði. í greinargerðinni segir að þetta taki til aðgangs að gögnum sem lúta að fyrirhuguðum ráðstöfunum í kjaramálum starfsmanna ríkis og sveitarfélaga til að tryggja jafnræði í kjarasamningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.