Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Smáfólk LOOK, I POUND A LIST OF THE PLAYER5 ON THE OTHEKTEAM.. 'l ClM. BLAKE, M0R6AN.TR AVI5, TRENT, HUNTER./7 -r “BAlLEf', MADI50N. TAYLOR AND JU5TIN " N050DY‘5 NAMED 0ILL ANTMORE.. U<r Sjáðu, ég fann lista yfir leik- „Karl, Björn, Magnús, „Gísli, Ragnar, Sigurður Enginn er kailaður menn hins liðsins ... Tryggvi, Þórður, Hall- og Jón.“ Nonni lengur ... BREF TIL BLAÐSLNS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Afmælis- og útgáfu- hátíð Vindáshlíðar Frá Klöru Valdísi Þórhallsdóttur: VINDÁSHLÍÐ er staður, sem á sterk ítök í hugum margra. Þar hefur starfsvettvangur sumarbúða KFUK verið í 50 ár og þaðan eiga mjög margar stúlkur og konur kærar minningar. Fyrstu árin var dvalið í tjöldum, en svo var byggður skáli og tekinn í notkun nokkrum árum síðar. Þá hófst skipulagt sumarbúðastarf fyrir stúlkur, sem enn er rekið af fullum krafti og nýtur mikilla vin- sælda. í Vindáshlíð dvelja á sumri hveiju meir en 700 telpur sér til ánægju og þar fá þær að kynnast ýmsu, sem þeim stendur ekki til boða annars staðar. í Vindáshlíð er fagurt umhverfi og fjölbreytt náttúrufar, sem telpurnar komast í náin tengsl við. Mikil áhersla er lögð á útivist og gönguferðir til að skoða ýmis fyrirbæri í náttúr- unni. Fjöldi skemmtilegra leik- tækja er til afnota og farið er í ratleiki. Þegar svo viðrar eru kveiktir varðeldar og stundum er grillað úti. Hver morgunn hefst með hyllingu fánans og fræðslu um Guðs orð. Alla sunnudaga eru guðsþjónustur í litlu kirkjunni í Vindáshlíð, sem telpurnar und- irbúa ásamt starfsfólkinu. Þær skreyta kirkjuna, lesa ritning- arlestra, leika helgileiki, annast söng og biðja bæna. Á hverju kvöldi er kvöldvaka með skemmti- efni, sem telpurnar undirbúa og flytja sjálfar með aðstoð starfs- fólks. 1 lok kvöldvökunnar er þeim flutt hugleiðing og kenndar kvöld- bænir. í Vindáshlíð er einnig leikskáli, sem býður upp á mikla möguleika til inniveru og leikja, þegar ekki viðrar til útiveru og þar fer hin fræga brennókeppni fram. Síðasti dagurinn í hveijum flokki í Vindáshlíð er veisludagur. Þá bregða foringjarnir á leik og keppa við sigurvegarana úr brennókeppninni og er sá leikur ætíð æsispennandi. Margt af því sem fram fer í Vindáshlíð er tengt gömlum hefð- um en er alltaf síungt og sígilt. Eftir 50 ára starf er við hæfi að rifja upp gamlar minningar og er afmælisrit Vindáshlíðar, Hér andar Guðs blær, að koma út og hefur verið vel til þess vandað. Afmælis- og útgáfuhátíð verður haldin föstu- daginn 7. nóvember kl. 20 í húsa- kynnum KFUM og KFUK Holta- vegi 28. Þangað eru allir velkomn- ir. F.h. stjórnar KLARA VALDÍS ÞÓRHALLSDÓTTIR, Hlíðartúni 6, Mosfellsbæ. Sannur vinur Frá Rúnari Kristjánssyni: HALLBJÖRN Hjartarson hefur orðið fyrir miklu áfalli við brunann í Kántrýbæ. En hann segist ætla að beijast áfram. Það þarf heldur ekki að koma neinum á óvart sem haft hefur kynni af Hallbimi, að hann hyggist halda áfram sínu lífs- verki, sinni baráttu fyrir tilvist Kántrý-ævintýrsins. Hugsjóna- menn af hans tagi leggja ekki árar í bát, þeir beijast þar tii yfir lýkur. En nærri má geta hvílíkt reiðarslag þessi bruni hefur orðið þessum frumheija kántrý-tónlistarinnar á íslandi, þar sem fjöldi gripa sem höfðu einstakt tilfinningagildi fyrir hann er gjörtapaður. Þó að hið fjár- hagslega tjón sé mikið, þá þykist ég vita að Hallbirni sé sárara það tjón sem fyrst og fremst liggur í því tilfinningalega. Hann er maður tilfinninga eins og alþjóð veit. Hann segist ætla að beijast áfram. En mun hann beijast einn eða sjá aðr- ir eitthvað í því sem hann hefur verið að gera sem vert væri að styðja? Það er í raun og veru spurn- ingin sem menn ættu að spyija sjálfa sig að í dag. Við myndum sannarlega í dag gera allt sem við gætum, ef við fýndum síðasta geir- fuglinn í hreiðri sínu, til að hlynna að honum og hreiðri hans. Með því að yfirfæra slíka mynd úr ríki nátt- úrunnar yfír á svið hins mannlega lífs, þá má segja að Hallbjörn sé í vissum skilningi síðasti geirfuglinn okkar, dýrmætt eintak í alheims gripasafni. Hann þyrfti að hafa skilyrði til að lifa í andrúmslofti hugsjóna sinna. Við eigum því láni að fagna, að hann er ennþá á meðal okkar, þessi einstaki geirfugl okkar, sem hefur skapað landsfrægt ævintýri úr nánast engu. En hreiðrið hans, þetta magnaða Kántrý-hreiður við ysta sæ, er illa farið og stór- skemmt. Nú væri vel við hæfi, að allir smáfuglar landsins tækju sig saman og kæmu fljúgandi hver með sína ögn í nefi, til að hjállpa við uppbyggingu heiðursins á ný. í næsta mánuði ætlaði Hallbjörn að halda upp á 5 ára afmæli Kántrý-varpsins. Hann var með miklar ráðagerðir um að breikka nýtingarsvið þess, en bruninn í Kántrýbæ kollvarpar þeim hug- myndum hans um sinn. Hvert framhald mála verður veit enginn sem stendur. En eitt er víst, að fari svo að Hallbjörn hverfi af sviðinu nú, munu mjög margir sakna vinar sem verið hefur þeim hjartfólginn til margra ára. Að lok- um vil ég segja eftirfarandi sögu, sem er lýsandi fyrir Hallbjöm Hjart- arson: Daginn fyrir bmnann voru gmnnskólanemendur á Skaga- strönd með þátt í Kántrý-útvarpinu. Meðal efnis þar var viðtal við Hall- bjöm. í lokin var hann beðinn að velja sér lag. Hann valdi lag sitt „Sannur vinur“ því hann sagði að hann hefði ávallt viljað vera öðrum sannur vinur. Það em menn eins og Hallbjörn sem setja fleiri liti í mannlífið og raunar málar enginn sviðið á sama hátt og hann, þessi hjartahlýi, góðviljaði geirfugl okk- ar. Verum honum sannir vinir. RÚNAR KRISTJÁNSSON, Skagaströnd. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.