Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 29

Morgunblaðið - 06.11.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 29 LISTIR Nunn tekur við breska þjóð- leikhúsinu London. The Daily Telegraph. TREVOR Nunn hefur tekið við stjórnartaumunum í breska þjóðleik- húsinu. Nunn tekur við af ekki ómerkari manni en Sir Richard Eyre, sem hefur setið í leikhússtjórastóln- um sl. áratug, og fær í arf þau fjöl- mörgu vandamál sem slíkri stöðu fylgja ekki síður en óhemjumiklir listrænir möguleikar. Þrátt fyrir að Eyre hafi komist hjá mestu vandamálunum í rekstri leikhússins, t.d. flutningi þess í leik- hússtjóratíð Peter Hall, fer því fjarri að síðastliðinn áratugur hafi verið átakalaus. Eyre er þekktur fyrir að láta verkin tala en hann hefur eigi að síður komist að mestu leyti hjá hneykslismálum og stórfenglegum uppákomum. Hann þykir hafa ein- stakt auga fyrir efnilegum lista- mönnum sem fjölmargir hafa fengið Tannhauser RICHARD Wagner-félagið á íslandi stendur í vetur fyrir sýningum á þrem af fyrri óperum meistarans af myndbandi í Norræna húsinu. Á morgun, laugardag kl. 14, verður sýnd óperan Tannháuser í upptöku frá Bayerische Staatsoper í Múnchen. Hljómsveitarstjóri er Zub- in Mehta og leikstjóri David Alden. í helstu hlutverkum eru René Kollo, Waltraud Meier, Nadine Secunde, Jan Hendrik Rootering og Bernd Weikl. að spreyta sig á fjölum leikhússins, hvort heldur sem eru leikarar, leik- stjórar eða leikskáld. Eyre er 54 ára og hefur ekki dreg- ið dul á að árin í leikstjórastólnum hafi verið erfið og tekið á. Hann kveðst dauðfeginn að losna undan því oki sem stjórn leikhússins sé, enda er í raun um þijú leikhús að ræða. Eyre hyggst snúa sér að leik- stjórn af fullum krafti, hann leik- stýrði nokkrum verkum meðan hann stjórnaði þjóðleikhúsinu en nú hyggst hann m.a. snúa sér að kvik- myndum. Og ætlar auk þess að skrifa skáldsögu. Nunn hóf starfið hjá þjóðleikhús- inu með Þjóðníðingnum eftir Henrik Ibsen, sem var frumsýnt í lok sept- ember. Gagnrýnendur eru í meðal- lagi hrifnir, segja sýninguna helst minna á söngleik vegna mannfjöld- ans á sviðinu og tilrauna til að höfða til fjöidans. Sýningin sé þó að mörgu leyti skemmtileg og ekki skelfílegt upphaf á leikhússtjóraferli þótt vissulega sé þörf á dýpri og „heiðar- legri“ uppsetningum í framtíðinni. Nunn er þekktur fyrir að vera ákafamaður í vörn og sókn og skip- un hans þykir boða meiri átök í leik- hússtjórastólnum. Sem leikstjóri þykir hann hins vegar eiga það sam- eiginlegt með Eyre að setja ekki mark sitt á allar uppfærslur, upp- færslur hans eins ólíkar og þær séu margar, og slíkt sé einkenni hins sanna leikhússnillings. Morgunblaðið/Ásdís SIGRÚN Gylfadóttir og Stefán Sturla Sigurjónsson í hlutverkum sínum. NÝTT íslenskt leikrit, Gallerí Njála eftir Hlín Agnarsdóttur, verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20.30. Er efniviðurinn sóttur í Brennu-Njálssögu. í kynningu segir að Gallerí Njála sé fyndið, erótískt og rammíslenskt nútímaleikrit, fullt af magnaðri tónlist og leikhúsbrellum. Verkið er tví- leikur sem segir frá drama- tísku ástarsambandi mennta- konu og rútubílstjóra sem kynnast á ferð sinni um Njálu- slóðir. Með þeim takast spenn- Gallerí Njála frumsýnd andi kynni sem leiða áhorfend- ur inn í dularfullan myndheim Njálssögu, að því er segir í kynningu. Hún hefur óvænt áhrif á hann sem er, eins og svo margir aðrir Islendingar, forfallinn áhugamaður um Njálu. Með hlutverk rútubíl- stjórans fer Stefán Sturla Sig- uijónsson og menntakonuna leikur Sigrún Gylfadóttir. Leikstjórn hefur Hlín Agn- arsdóttir sjálf með höndum, tónlist er eftir Guðna Franz- son, söng annast Sigrún Hjálm- týsdóttir, leikmynd er eftir Vigni Jóhannsson, búningar eftir Aslaugu Leifsdóttur og lýsingu gerir Jóhann Bjarni Pálmason. Það er menningar- fyrirtækið Nótt og dagur sem framleiðir sýninguna. DRESS MANN □ SPARISKYRTUR □ VINNUSKYRTUR ÆFINGAGALLAR Ath Sendum í póstkröfu. Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730. Fax 562-9731 mm oi íjjw mo mo

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.