Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 13
FRÉTTIR
Nýtt reikningsgerðarkerfi P&S gefur ýmsa mögnleika
Mínútan ódýrari eftir að
tiltekinn tími er liðinn
NÝTT reikningsgerðarkerfi Pósts og
síma hf., sem tekið verður í notkun
í áföngum á næsta ári, mun gera
það mögulegt fyrir fyrirtækið að
koma til móts við einstaka hópa við-
skiptavina sinna með ýmsum hætti,
svo sem hvað varðar að bjóða símtöl
sem standa lengur en tiltekinn tíma
við lægra verði en ella eða ákveðinn
flölda númera sem fólk velur sér og
hringir sérstaklega oft í við lægra
verði en það sem almennt gildir.
Hins vegar hafa ekki verið teknar
neinar ákvarðanir um hvernig þessir
möguleikar verða nýttir enn sem
komið er, að sögn Hrefnu Ingólfs-
dóttur, upplýsingafulltrúa Pósts og
síma hf.
Hrefna sagði að í raun væri um
tvö kerfi að ræða. Annars vegar
væri nýtt bókhalds- og fjárhagsupp-
lýsingakerfi, sem tekið yrði í notkun
um áramótin. Það væri stjórntæki
sem auðveldaði yfirmönnum fyrir-
tækisins að fylgjast með rekstri þess
frá mánuði til mánaðar.
Hins vegar væri nýtt reiknings-
gerðarkerfi. Það kerfi yrði tekið í
notkun í áföngum á næsta ári, sá
fyrsti næsta vor og annar áfangi
síðan um haustið. Það kerfi skapaði
möguleika á því fyrir fyrirtækið að
koma til móts við ólíka hópa við-
skiptavina með ýmsum hætti, eins
og hvað varðaði afslætti og nýjung-
ar í þjónustu.
Ekki útfært ennþá
Til dæmis væru möguleikar á því
að bjóða heimilum upp á að velja
nokkur númer sem oftast væri
hringt í við lægra verði en almenn
gjaldskrá fyrirtækisins segði fyrir
um. Einnig væri mögulegt að veita
afslátt af símtölum ef þau næðu
ákveðinni lengd, þannig til dæmis
að hver mínúta yrði ódýrari eftir að
fyrsti hálftíminn væri liðinn.
Hrefna sagði að þessir möguleikar
myndu að öllum líkindum liggja fyr-
ir næsta haust. Hins vegar hefðu
engar ákvarðanir verið teknar um
það enn hvernig þessi þjónusta yrði
nákvæmlega útfærð. „Við höfum
auðvitað okkur hugmyndir um kerf-
ið og væntingar til þess, en við vilj-
um sjá það innleitt fyrst áður en
ákvarðanir verða teknar. Hér vinna
mjög margir að þessu verkefni, því
það er mikið fyrirtæki að skipta um
þessi kerfi,“ sagði Hrefna ennfrem-
ur.
Hjartað í tölvukerfum
símafyrirtækis
Viðar Viðarsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Pósts og síma
hf., sagði að nafnið reikningsgerðar-
kerfi léti lítið yfir sér. Með því væri
haldið utan um samskipti símafyrir-
tækis við viðskiptavini sína. Segja
mætti að það væri hjartað í tölvu-
kerfum hvers símafyrirtækis að
halda utan um viðskiptin og búa til
samskipti við viðskiptavininn sem
væru báðum til hagsbóta.
Hann sagði að með tilkomu
kerfisins sköpuðust feikimargir
möguleikar á því að bjóða viðskipta-
vinum tiltekna pakka og líklega
væri það fyrst og fremst hugmynda-
auðgi markaðsfólksins sem tak-
markaði möguleikana í því að búa
til pakka og samsetningar af þjón-
ustu sem fyrirtækið gæti boðið upp
á. Þetta tengdist síðan möguleikum
stafræns símkerfis, þannig að um
væri að ræða mjög skemmtilega
blöndu af tölvutækni sem yrði til
hagsbóta fyrir báða aðila og gæfi
fyrirtækinu allt aðra möguleika en
hingað til í samskiptum við við-
skiptavinina.
Missti báða fætur í Víetnam
Ekki meiri fötlun en
að vera með gleraugu
ÞAÐ er ekki að sjá á bandaríska
hjólreiðakappanum Duane
Wagner að hann sé á nokkurn
hátt fatlaður. En þegar hann
brettir upp skálmarnar koma í
íjós tveir gervifætur. Þeir eru
svartir að lit, úr koltrefjum og
harðplasti og skreyttir með
myndum af sólargeislanum hans,
barnabarninu Meggie, sem er sex
ára. Neðri hluti fótarins er húð-
litur, með tám og öllu saman, og
er frá Össuri hf. „Besti fótur í
heiminum,“ segir Duane, sem
kveðst geta farið inn í hvaða
skóverslun sem er og keypt sér
þá skó sem hann vill á gervifót-
inn.
Hann missti báða fætur í
sprengjuárás í Víetnamstríðinu
árið 1967. Aður hafði hann verið
á þeirri skoðun að ef hann lenti
í einhverju slíku, þá vildi hann
frekar deyja en vera fótalaus það
sem eftir væri. Hann skipti þó
fljótt um skoðun eftir að skaðinn
var skeður. Hann komst að því
að lífið heldur áfram, jafnvel þó
að maður missi fæturna. Nú eru
gervifætumir jafn eðlilegur hluti
af honum og aðrir líkamshlutar
og hann segist ekki vilja skipta.
Nágrannarnir báðu fyrir
fótum en hann sagði nei takk
Hann sagði blaðamanni frá
nágrönnum sinum sem eru afar
trúaðir og voru farnir að biðja
Guð þess að hann fengi fæturna
aftur. „Og þau trúðu því. En ég
sagði bara nei takk, ekki fyrir
mig. Þá þyrfti ég að fara að lifa
venjulegu meðaltalslifi og vinna
einhverja venjulega níu-til-fimm
vinnu, nei takk!“
Þó að Duane vinni ekki frá níu
til fimm, þá er hann þó alltaf að.
Hann hefur skipað sér á bekk
með bestu hjólreiðamönnum
Bandarikjanna og keppir þar
jafnt við ófatlaða sem fatlaða,
t.d. í einhverri erfiðustu hjól-
reiðakeppninni sem þar fer fram
árlega, Race Across America, en
þá er hjólað milli austur- og vest-
urstrandar Bandaríkjanna. Auk
hjólreiðanna og annarra íþrótta-
iðkana leggur hann stund á ráð-
gjöf og aðstoð við fólk sem hefur
misst útlimi. í fyrrakvöld hélt
hann t.d. fyrirlestur í Reykjavík
fyrir stoðtækjanotendur og fag-
fólk um reynslu sína, bæði frá
sjónarhóli ráðgjafans og þess
sem hefur verið aflimaður.
Hann segist alls ekki líta á það
sem fötlun að vera með gervifæt-
ur. Raunar gerir hann góðlátlegt
grín að blaðamanni, sem er með
gleraugu á nefinu, og segist telja
það álíka mikla fötlun, því séu
gleraugun tekin niður þá sjái sá
gleraugnalausi ekki glóru.
Morgunblaðið/Kristinn
DUANE Wagner sýnir stoltur
svarta fótinn með myndinni
af barnabarninu.
Opinn fundur laugardaginn 8. nóvember nk.
Hver á kvótann?
Hver ætti að eig’ann?
Sjávarútvegsstofnun Háskóla íslands
varpar Ijósi á spurningarnar:
Hver á kvótann? Hver ætti að eig’ann?
Á almennum fundi í stofu 101, Odda (hús
Háskóla íslands, ofan við Norræna húsið)
laugardaginn 8. nóvember klukkan 14-18.
Frummælendur verða:
Þorgeir Örlygsson, prófessor í kröfurétti.
Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði.
Birgir Þór Runólfsson, dósent í hagfræði.
Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði.
Þórólfur Matthíasson, dósent í hagfræði.
Umræður með takmörkuðum ræðutíma.
Aðgangseyrir 2000 kr. en 1000 kr.
gegn framvísun stúdentaskírteinis.
Sjávarútvegsstofnun
Háskóla íslands
Boðað er til
stofnfundar Samtaka
eldri siálfstæðismanna
á Hótel Sögu, Súlnasal,
fimmtudaqinn 6. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
Fundarsetning
Kosning fundarstjóra og ritara
Skýrsla undirbúningsnefndar
og umræður um hana
Lögð fram drög að lögum fyrir
samtökin og umræður um þau
Kosning stjórnar
Ákvörðun um félagsgjald
Önnur mál
IX
ár
Lokaorð Davið Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðismenn 60 ára og eldri eru hvattir til
að mæta á fundinn
Undirbúningsnefndin
Ótrúlegt hausttílboð
vou
Kringlunni
3akkaföt
nú 7.900
áður 1Sr9W
Jakkaföt m. vesti
nú 9.900
áður 17t90Ö
Herraskór
nú 2.500
áðuiÁSOO
Stakar buxur
nú 2.900
áóur 4r900
Kringlunni, sími 5331720
Laugavegi 91, sími 5111718.
- kjarni málsins!