Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 4 7 MINNINGAR OLGA KRIS TJÁNSDÓTTIR + Bjarnlaug Olga Krisljánsdóttir fæddist á Eskifirði 3. mars 1923. Hún lést hinn 27. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Krislján Jóns- son, útgerðarmað- ur, f. 17.1. 1881, d. 7.5. 1957, og Mekk- ín Guðfinna Bjarna- dóttir, húsfreyja, f. 6.5. 1881, d. 29.12. 1965. Systkini Olgu á lífi eru Guðrún Helga, f. 1916, Eg- ill, f. 1919, og tvíburabróðir hennar, Jóhann Pétur, f. 1923. Látnir eru Hallgrímur Þórar- inn, f. 1908, d. 1986, Karl Guðni, f. 1915, d. 1985, og hálfbróðir sammæðra, Eyjólfur Eyjólfs- son, f. 1905, d. 1960. Olga giftist 25. desember Ég sit hér í haustblíðunni í Berg- en og horfi út um gluggann. Hugur- inn er heima á íslandi eins og svo oft áður, Stjáni afi á afmæli í dag og við fengum pakka frá honum og Olgu ömmu með póstinum, harð- fisk og annað góðgæti að heiman. Þau hafa verið dugleg að hafa sam- band við okkur og senda okkur glaðning þetta ár sem við höfum dvalið hér. Þau sýna okkur áhuga sem mér þykir vænt um, hvernig Dalla gangi í framhaldsnáminu, hvenig mér líki að hjúkra Norð- mönnum og ekki síst hvernig litla langömmu- og afastelan hafi það, það er gaman að upplifa væntum- þykjuna á milli þessara þriggja ein- staklinga. í kvöld hringjum við til þeirra en það varð aldrei af því. Eftir nokkra daga komum við litla dóttir mín heim til að vera við útför Olgu ömmu. Þegar ég út- skýrði fyrir Karen Eik að langafi og langamma á Eskifirði hefðu lent í bílslysi og amma hefði dáið, sagði hún: „Aumingja afi, nú er hann aleinn, en við getum farið til hans og haldið utan um hann og svo kemur prisninn og kyssir hana ömmu mína og þá lifnar hún við.“ Ég get ekki annað en brosað inni í mér við þessa hreinskilnu hugsun fjögurra ára barns. Það er margs að minnast þegar sest er niður og hugsað um ömmu. Góðar minningar frá barnæsku rifj- ast upp, glettnin í augunum hennar og inniíegur hlátur. Við á leið til Eskifjarðar í heimsókn til ömmu og afa, ég man andrúmsloftið í bíln- um á leiðinni, fjörð eftir fjörð, til- hlökkunin var mikil og ferðalagið virtist stundum óendanlegt, og svo kapphlaup okkar systkinanna út úr bílnum í faðm afa og ömmu. Amma var búin að lenda í mörgu mótlæti og var oft þjáð af verkjum eftir langvarandi veikindi, en upp úr minningunni stendur myndarleg kona sem hafði skemmtilegan húm- or sem smitaði út frá sér gleði. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, gleðina og sorgina sem við deildum. Guð geymi þig, elsku amma mín. Þín, Elinóra (Ella). Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi. Hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson.) Þegar ég sest niður til að setja á blað nokkur kveðjuorð, um Olgu, reikar hugur minn til unglingsára minna austur á Eskifirði, efst í huga mér er þakklæti til þín, Olga mín, fyrir það hvað þú varst ætíð góð vinkona, og þótt ég væri fimm árum yngri, sýndir þú mér ávallt 1943 eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristjáni V. Kristj- ánssyni, f. 1919, fv. rafveitustjóra á Eskifirði. Þau eign- uðust fjögur börn. 1) Friðrik, f. 6.5. 1943, d. 6.10. 1986; 2) Pál Egil, f. 23.9. 1949, búsettan á Höfn í Hornafirði; 3) Þórunni Gyðu, f. 13.2. 1954, búsetta á Eskifirði; 4) Krist- ján, f. 4.4. 1962, búsettan í Mos- fellsbæ. Barnabörn Olgu eru tíu talsins og barnabarnabörnin tvö. Auk þess á Kristján son, Þórð Kristin, f. 25.11. 1942, búsettan í Keflavík. Útför Olgu fer fram frá Víði- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. umburðarlyndi og þolinmæði, og leyfðir mér stelpunni að fara með þér, eitt og annað. Þá fékk ég að reyna hvað þú varst skapgóð og svo skemmtileg, sást ávallt broslegu hliðarnar, á hveiju sem gekk, og sá eiginleiki hvarf ekki frá þér þótt árin liðu og þú mættir glíma við veikindi, þú gerðir ekkert síður góðlátlegt grín að sjálfri þér en ein- hveiju öðru. Já, heima við fjörðinn okkar eign- aðist þú mann og fjögur börn, það fyrsta lítinn yndislegan dreng, sem ég fékk oft að passa, það veitti mér ánægju, enda var Friðrik ykkar ein- staklega góður og fallegur drengur, en hann var burt kallaður í blóma lífsins aðeins 43 ára gamall árið 1986. Þótt árin séu orðin mörg síðan ég fór frá Eskifirði, rofnaði sam- band okkar ekki, þegar tækifæri gafst heimsóttum við hvor aðra, og í raun fínnst mér svo stutt síðan við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman fyrir austan, fórum í beij- amó, inn í bæ einsog það var kall- að, eða út á sjó, á spegilsléttan fjörðinn og nutum firðsældar og fegurðar heimabyggðarinnar. Fyrir allt þetta og vináttu þína vil ég nú á kveðjustund þakka þér, Olga mín. Mér þykir leitt að geta ekki fylgt þér síðasta spölinn, við Kristján sendum Kristjáni manni þínum börnum og fjölskyldum inni- legar samúðarkveðjur. Blessun Guðs leiði þig á nýjum leiðum. Nanna Helgadóttir. Elsku amma mín, það er sárt að sjá fram á það að geta ekki heim- sótt þig í framtíðinni. Það er þó huggun harmi gegn að vita af því að nú hafa þjáningar þínar verið linaðar, þú hefur loksins hlotið hvíidina sem þú áttir verðskuldaða. Þegar ég sit hér og riija upp þær stundir sem við áttum saman er mér það efst í huga hvað þú varst alltaf góð við mig og hafðir áhyggj- ur af því að mig vantaði eitthvað. Það var alltaf hægt að ganga að því vísu þegar ég kom að heim- sækja ykkur afa að það var til eitt- hvað gómsætt til í kexskápnum eða búrinu - ef ekki, þá vildirðu helst senda afa inní bæ eftir því. Það rifjast líka upp þær nætur sem ég fékk að gista hjá þér; venjulega rákum við afa fram í herbergi svo að ég gæti kúrt í hans rúmi. Þá lágum við langt fram á rauða nótt og töluðum um alla heima og geima, þegar við vöknuðum hlógum við svo hvort að öðru yfir því sem við töluð- um upp úr svefni. Þú varst jafnan iðin við að leggja mér lífsreglumar þegar við lágum þama og spjölluð- um, þú kenndir mér að vera alltaf góður drengur og því mun ég aldr- ei gleyma amma mín, svo lengi sem ég lifí. Ég vil enda þetta á bæninni sem þú kenndir mér þegar við áttum þessar stundir okkar saman. Elsku amma, þú átt alltaf vísan stað í hjarta mínu og ég mun aldrei gleyma þér. Vertu Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (H. Pétursson.) Þinn Arnar. MAGNHILD ENGER STEFÁNSSON _j_ Magnhild Enger Stefánsson fæddist í Noregi 7. nóvem- ber 1910. Hún lést á Elliheimil- inu Grund 26. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Emma og Emil Enger. Börn þeirra voru tólf og eru þau öll látin nema tvær systur. Magnhild kom ung til ís- lands, 2. apríl 1930. Hún vann sem vinnukona á mörgum góð- um heimilum eða til ársins 1935 er hún giftist Stefáni Stefáns- syni, f. 19. apríl 1903, d. 25. desember 1985. Stefán vann í mörg ár í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, þar til hann opnaði sjálfur bókaverslun á Laugavegi 8. Þau eignuðust tvær dætur: 1) Emma St. Gib- bons, búsett í Bandaríkjunum, gift Harlan C. Gibbons, þau eru barnlaus en Harlan á þijú börn frá fyrra hjónabandi. 2) Elsa Stefánsdóttir, gift Garðari Steingrímssyni, sonur þeirra er Stefán Hinrik Garðarsson, bú- settur í Þýskalandi. Elsa og Garðar búa í Mosfellsbæ. Bálför Magnhildar fór fram í kyrrþey 3. nóvember. Móðir mín, Magnhild, var ekki allra, en hún var vinur vina sinna. Hún var mjög ákveðin og dugleg. Reyndust foreldrar mínir mér mjög vel þegar ég fékk mænuveikina árið 1955, heimsóttu mig daglega þegar ég var á sjúkrahúsi. Þeim var mjög annt um að ég fengi heilsu á ný, sem varð því miður ekki. Móðir mín var mjög fróð^ hafði yndi af að lesa, kunni t.d. íslend- ingasögurnar betur en margur ís- lendingur. Það eru afskaplega ljúfar endurminningar sem ég á úr æsku minni, sérstaklega þegar við vorum í sumarbústaðnum okkar sem var við Grafarvog. Hún fékk hægt og sársaukalaust andlát, hún sofnaði. Á kvöldin var sælt að sofna við söng þinn um kærleika og frið, og vakna um vorbjarta morpa í vöggunni þér við hlið. Það var helgistund sólþyrstrar sálar, að sitja og fræðast af þér, allt sem mannlífíð málar, í minningarsjóðina fer. Vort líf er vanda bundið, þess verðgildi kærleikur er og allt sem fegurst hef fundið fann ég við hjartað í þér. Ó, elskaða milda móðir, mannlífsins göfgasta dís, ef allir yrðu eins góðir væri umhverfið Paradís. (Geir G. Gunnlaugsson.) Elsa Stefánsdóttir. Crfisdrykkjur GAPI-mn Sími S55-4477 + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN PÉTURSSON, Stekkjarhvammi 4, Búðardal andaðist á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 31. október. Útför hans fer fram frá Hjarðarholtskirkju laug- ardaginn 8. nóvember kl. 14.00. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Sigurrós Sigtryggsdóttir, Elín Sigurbjörg Jónsdóttir, Helgi Jóhannesson, Sigtryggur Ómar Jónsson, Kolbrún Jóhannsdóttir, Bryndís Rósa Jónsdóttir, Bergþór Guðmundsson, Sigrún Ásta Jónsdóttir og barnabörn. + Ástkær- maðurinn minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN ÓLAFUR SIGURÐSSON frá Siglufirði, Æsufelli 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 4. nóvember. Valdís Ármannsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Halldóra Pétursdóttir, Sigurður Jónsson, Björgvin S. Jónsson, Steinunn K. Jónsdóttir, Brynja Jónsdóttir, Salbjörg E. Jónsdóttir, Elísabet Þorvaldsdóttir, Halldóra R. Pétursdóttir, Freyr Sigurðsson, Hallgrímur Jónsson, Sigurður J. Vilmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, HANSÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Hlévangi, áður Suðurgötu 35, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja miðvikudaginn 5. nóvember sl. Útförin verður auglýst síðar. Ellert Eiríksson, Eiríkur Guðnason, Steinunn Guðnadóttir, Árnheiður Guðnadóttir, Vignir Guðnason, Birgir Guðnason, Guðbjörg Sigurðardóttir, Þorgerður Guðfinnsdóttir, Neville Young, Jónas H. Jónsson, Guðríður Árnadóttir, Harpa Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær dóttir okkar og systir, barnabarn og frænka, GUÐBJÖRG MARÍA GUÐBRANDSDÓTTIR, lést á Barnaspítala Hringsins aðfaranótt ■ þriðjudagsins 4. nóvember. Guðbrandur R. Axelsson, Margrét Andrelin Axelsson, Unnur Ósk, Richard Már, Axel Eiríksson, Columbio S. Mangubat Sr., Honoria V. Mangubat og frændfólk. + Minn elskulegi eiginmaður, faðir okkar, tengda- faðir og afi, EINAR KRISTJÁN JÓHANNESSON vélstjóri, Klettahrauni 11, Hafnarfirði, er látinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þakkir til hjúkrunarfólks Landspítala og St. Jósefsspítala, Unnur Magnúsdóttir, Einar Gunnar Einarsson, Sigurður Geir Einarsson, Elísabet Ríkharðsdóttir, Eva Katrín Sigurðardóttir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.