Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER' 1997 MORGUNBLAÐIÐ Míkíð úrval af rúmum í DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vorum að fá nvia stuðkanta, himnasænqur og sængurverasett. Verð frá kr. 10.900 Það koma 15-20.000 manns á markaðstorg Kolaportsins um hverja helgi. Panta þarf sölubása tímanlega í Kolaportinu: Hún Þóra seldi fyrir kr. 62.000 á einum degi Jólastemmningin er byrjuð í Koiaportinu. Seljendur á kompudóti sameina jólahreingerninguna og að safna fyrir jólaútgjöldunum með því að selja í Kolaportinu allt sem hætt er að nota. Mikið hefur verið af seljendum síðustu helgar, en enn eru nokkrir básar lausir í nóvember og desember. Það er því ráðlegt að "Ég lofaði mér ferð til Glaskow ef ég scldi fyrir 30.000, en seldi fyrir 62.000" Þóra Sævars- dótttir er heima- vinnandi húsmóð- ir í Eskihlíðinni. Hún var að selja um síðustu helgi og bjóst við sölu upp á kr. 10-15.000. Þóra hafði lofað sjálfri sér Glaskow ferð ef salan færi yfir kr. 30.000. "Þetta var að mestu 1-2 ára fatnaður, en ég varð ófrísk í fyrra og gat ekki notan fötin lengur" sagði Þóra. Hún seldi buxur, jakka, kjóla og dragtir á 500 til 800 kr. og bolina seldi hún á 50-100 krónur. "Ég fékk áfall þegar ég taldi peningana" sagði Þóra. "Eftir daginn hélt ég að salan væri um kr. 30.000 og fékk létt áfall þegar 62.000 komu upp úr vösunum. Eg hringdi í vinkonu mína sem var með mér og spurði hana hvort ég væri ekki með hennar pening líka, en hún var með mér á básnum að selja. Hún var með sinn pening og hafði selt fyrir 25.000 krónur og við saman því selt fyrir kr. 87.000 á einum sölubás á einum degi". tryggja ser sölubasa í tima. Matvælahátíð í Kolaportinu um næstu helgi Vinsældir Matvælamarkaðarins aukast jafnt og þétt, en þar er boðið upp á úrval matvæla á hagstæðu verði og stemmningin er frábær. Um næstu helgi verður matvælahátíð með tilheyrandi tilboðum. Bókamarkaður opinn virka daga kl. 12-18 í þrjár vikur Risa-bókamarkaður Bókavörð- unnar er opinn alla virka daga næstu tvær vikur í Kolaportinu. Nokkrir sölubásar lausir í nóvember og desember Nokkuð hundruð nýir seljendur hafa þegar bókað pláss fyrir næstu helgar og er farið að þrengjast um pláss. Enn er laust pláss flestar helgar í nóvember og desember, en búast má við að þær fyllist fljotlega. Jólamarkaður Kolaportsins verður opinn 8.-23. desember Hinn vinsæli jólamarkaður Kolaportsins verður starfræktur fjórða árið í röð 8.-23. desember og verður opið alla virka kl. 12:00- 18:00. Einstaklingar, handverksfólk og fyrirtæki geta þar fengið sölupláss á leigu gegn vægu verði. "Ég seldi sœngurverið utanaf boUastellinu hennar mömmu" "Það var með ólíkindum hvað hægt var að selja og ég seldi meira að segja notuð ilmvatnsglös sem ég óvart tók með mér. Mamma hafði gefið mér gamalt bollastell sem ég setti í sængurver til að það brotnaði ekki og meira að segja sængurverið var keypt af mér" sagði Þóra. Kolaportið opið allar helgar kl. 11:00-17:00 Mikið og fjölbreytt mannlíf er í Kolaportinu og vandfundið um- hverfi þar sem hægt er að sameina betur notalega stund yfir kaffibolla, upplifa skemmtilega markaðs- stemmningu, hitta gamla vini og gera hagkvæm innkaup. Gull- og silfurskórnir komnir í st. 30-36 Verð kr. 2.290 í bláu húsi við Faxafen Sími 568 3919 Hækkun hjá Pósti og síma NOKKUR orð frá Inter- net-notanda. Fyrir rúmu ári kostaði klukkutíminn um kr. 25, en er nú nær kr. 60. Þetta er kvöld- og helgartaxtinn. Þetta eru grófar hækkanir. Eg er notandi í gegnum inter- net-þjónustu Pósts og síma. Álagið er svakalegt og oft er maður mjög lengi að komast inn eða kemst jafnvel ekki inn og á með- an tifar gjaldtakan. Hvert leitar maður til þess að fá hana felida niður vegna þess að maður kemst ekki inn? Sjálfumglaðar auglýs- ingar fyrirtækisins um það hvað það er ódýrt hér á landi eru villandi. Tök- um dæmi: Innanlands- skref í Noregi eru sögð kosta uppí kr. 23. Það er sjálfsagt rétt, enda er Noregur nær 2000 km á lengd. Maður á Hornafirði sem hringir 2000 km í burtu er kominn til Belgíu og þangað kostar mínútan hjá Pósti og síma nær kr. 60. Alþingi samþykkti að landið yrði eitt gjaldsvæði eigi síðar en mitt ár 1998. Af hveiju er þessu flýtt svona? Fyrirtækið segist tapa 100 Mkr á þessu. Má ráð- herrann samþykkja slíka ráðstöfun í fyrirtæki okk- ar? Hvar eru mörkin? Má hann ekki þá alveg eins samþykkja tekjulækkun fyrirtækisins uppá 1000 Mkr? Ég óttast verulega hækkun lánskjaravísi- tölunnar. Heimilin skulda, fyrirtæki landsins skulda. Hafa áhrifin verið reiknuð út? Vill ráðherrann bera þessa ábyrgð? Órn Johnson, internet-notandi. Þakkir til Nóatúns- kaupmanna NÓATÚNS-menn eiga miklar og góðar þakkir skildar fyrir að hafa haft undanfarið dönsk epli í verslunum sínum. Vonandi verður framhald á þessum innflutningi því þessi epli eru frábær og að mínu mati þau bestu sem eru á markaði nú, sérlega bragð- mikil og safarík. Aftur kærar þakkir og áfram dönsk epli í verslunum ykkar. Þakklátur viðskiptavinur. Vantar öðruvísi tónlist KONA hafði samband við Velvakanda og segist hún vera sjúklingur og liggi oft andvaka á næturnar. Hún segist ekki geta hlustað á útvarpsstöðv- arnar á næturnar því henni finnist engin tónlist vera við sitt hæfi. Reyndar segir hún að Aðalstöðin sé með bestu tónlistina fyrir sig og hún segist orðin hundleið á allri þess- ari ensku og amerísku tónlist og spyr hvort ekki sé hægt að leika annars konar tónlist, t.d. country- tónlist. Elliheimilið Grund KONA hafði samband við Velvakanda og hafði hún áhuga á að vita hvort for- ráðamenn Grundar hefðu gert eitthvað eða ætluðu að gera eitthvað fyrir vist- menn Grundar, nú á 75 ára afmæli heimilisins. Hvaðan er myndin? EIGANDA þessarar myndar langar til að vita hvort einhver kannast við hvaðan þessi mynd er, sagt er að myndin sé frá Borg- arnesi en það mun ekki vera rétt. Myndin mun vera gerð um 1930. Vin- samlega hafið samband í síma 568-7312. SKÁK Pmsjón Margcir Pctursson STAÐAN kom upp í síðustu umferð á al- þjóðlega Hellismótinu sem lauk á laugardaginn. Daninn Erling Mortensen (2.455) var með hvítt, en Þjóðveijinn Jörg Hickl (2.565) hafði svart og átti leik. 47. - Bf8! (Eftir þennan sterka leik er það hvítur sem á undir högg að sækja í endataflinu. Dan- inn uggir ekki að sér) 48. Hxa4? - Bd6+ 49. Kh4 - Hg2! (Nú verður hvítur að láta mann af hendi vegna hótunarinnar 50. - Bg3 mát) 50. Rg5+ - hxg5+ 51. Kxg5 - Be7+ 52. Kf4 - Kh6. Með manni meira SVARTUR á leik. náði Hickl nú að svíða enda- taflið. Lokin urðu: 53. Ha8 - Bd6+ 54. Ke4 - Kg5 55. Ha6 - Hd2 56. Ha8 - Hh2 57. Kd5 - Bf4 58. Hh8 - Ha2 59. Hg8 - Bg3 60. Ha8 - Hh2 61. Ke6 - Hxh3 62. Ha5+ - Kh6 63. g5+ - Kh5 64. Kf7 - Bh4 65. Ha6 - Hb3 og hvítur gafst upp. COSPER Ertu viss um að hæðar- mælirinn sé í lagi? Hvernig á ég að vita í hvaða tón ég tala, þú veist að ég er ekki músikalskur. Víkverji skrifar... VEGNA Víkveijapistils miðviku- daginn 5. nóvember óskar Fréttastofa Útvarpsins eftir því að eftirfarandi verði birt í dálki Vik- veija. Heill og sæll Víkveiji! í pistli þínum í dag, miðvikudag- inn 5. nóv. ’97, gerir þú að umræðu- efni morgunfréttir í Útvarpinu , og nefnir dæmi máli þínu til stuðn- ings. Sem sannur blaðamaður hefði Víkveiji átt að kanna málið, og afla sér fullnægjandi upplýsinga um það, áður en hann setti þessar full- yrðingar um fréttina af síldarvið- ræðum í Ósló fram í dálki sínum. Þar sagði m.a. „Fréttamaðurinn las blygðunarlaust upp svo til alla baksíðufrétt Morgunblaðsins án þess nokkru sinni að geta þess, hvar hún hefði leitað fanga.“ I stuttu máli þá kom þessi frétt fyrst í Útvarpinu kvöldinu áður, og var lesin lítið breytt í fréttum klukkan 7, eins og Víkveiji getur kynnt sér. Fréttamenn Útvarpsins voru í sambandi við íslensku samninga- mennina kvöldið áður og síðan var viðtal við einn þeirra um morgun- inn til að fylgja eftir fréttinni. Það er því spurning hvort Morgunblað- ið hafi ekki fengið fréttina úr Út- varpinu!, en ekki öfugt eins og Víkveiji gefur í skyn. Þá er þeirri fullyrðingu Víkverja, að oftar en ekki séu 7 fréttir Útvarpsins byggðar á Morgunblaðinu, vísað til föðurhúsanna. Það vill hinsvegar oft þannig til að t.d. erlendar fréttir sem lesnar eru í Útvarpinu á kvöldin og nótt- unni, eru uppistaðan í erlendum fréttum Morgunblaðsins daginn eft- ir, eðli málsins samkvæmt. Hér á Fréttastofu Útvarpsins er það vinnuregla að geta heimilda, bæði Morgunblaðsins og annarra, en okkur sem hér störfum sýnist, að þessi regla sé hinsvegar ekki við- höfð hjá mörgum öðrum fjölmiðlum. Kári Jónasson fréttastjóri Út- varpsins. xxx HAFI Víkveiji verið heldur hvat- vís í þessu einstaka tilviki er ástæða til að biðjast velvirðingar á því. En hitt stendur, að ætíð er leið- inlegt þegar blaðamenn geta ekki heimilda. Ágreiningur um slíkt er enginn á milli Víkveija og frétta- stjóra RÚV, enda hefur Víkveiji það beint frá fréttastjóranum, að vinnu- reglan er sú á fréttastofu Ríkisút- varpsins, að heimildar að frétt skal ávallt getið, hvort sem um annan ijölmiðl er að ræða, eða aðra frétta- lind.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.