Morgunblaðið - 06.11.1997, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
FRÁ afhendingn bókanna f.v. Svava Pálsdóttir safnvörður, Helga Run-
ólfsdóttir og Guðrún Emilsdóttir, formaður stjórnar bókasafnsins.
Vegleg bókagjöf
Hrunamannahreppi - Nýlega af-
henti Helga Runólfsdóttir Bóka-
safninu á Flúðum veglega bókagjöf
sem eiginmaður hennar Gísli Hjör-
leifsson, bóndi frá Unnarholtskoti,
ánafnaði safninu eftir sinn dag.
Hér er um að ræða 82 innbundn-
ar bækur sem hafa að geyma blöð
sem Gísli safnaði á árunum
1962-1994. Petta eru Lesbók
Morgunblaðsins, Sunnudagsblað
Tímans, íslendingaþættir Tímans
og héraðsblaðið Þjóðólfur. Aður
hafði hann gefið safninu blaðið Suð-
urland en það blað byrjaði hann á
að binda inn. Gísli hafði ekki alveg
lokið frágangi þessara bóka þegar
hann lést 6. júlí 1995. Nú hefur því
verki verið lokið og er frágangur
bókanna vandaður og eru blöðin að
sjálfsögðu í sínu upprunalegu broti.
Gísli var alltaf mikill áhugamaður
um bókasafnið og sat í stjóm þess
um tíma, Guðrún Emilsdóttir bóka-
safnsstjóri sagðist vera afskaplega
þakklát fyrir hönd safnsins og allrar
sveitarinnar fyrir þessa stórhöfð-
inglegu gjöf. Petta sýndi best þann
hlýhug og velvilja sem Gísli sýndi
safninu alla tíð.
Furuhjalli - Kópavogi
Glæsilegt 208 fm einbýli með innbyggðum 32 fm bílskúr. Frábær staðsetning, innst við lokaða
götu. Skipti möguleg. Ákveðin sala. Ahv. húsbréfalán 5,8 millj. innst í botnlanga. Áhvílandi
5,8 millj. Verð 17,5 millj.
Fasteignasalan nýbýlavegi 14
«»5641400 Fax 554 3307
KJORBYLi Opið virka daga 9.30-12
og 13-18
0SEIGNAME)LOMN
__________________________ Starfsmenn: Sverrir Kristinsson Iðgg. fasteignasali, sölustjóri,
Þorleifur St.Guðmundsson.B.Sc., sólum., Guðmundur Sigurjónsson Iðgfr. og Iðgg.fasteignasali, skjalagerö.
Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sðlum., Magnea S. Svernsdóttir, lóag. fasteignasali, sðlumaður,
Stefán Arni Auðólfsson. sölumaður, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglysingar,
sfmavarsla og ritari, ólðf Steinarsdóttir, ðflun skjala og gagna. Ragnheiður
Síini 5J{}{ 9090 • Fax ö«}{ 9090 • SíAumúln 2 I
NETHYLUR - ARTUNSHOLT
Vorum að fá í einkasölu þessar glæsilegu verslunar-
þjónustu- og vöruskemmur u.þ.b. 1000 fm. Mjög góð
lofthæð. Innkeyrsludyr. Stór lóð með góðri aðkomu og
athafnarsvæði. Hentar sérlega vel undir ýmis konar
þjónustustarfsemi, lager, iðnað o.fl. Gott verð. Nánari
uppl. veitir Stefán Hrafn. 5404
DUGGUVOGUR.
Vorum að fá í einkasölu atvinnuhúsnæði sem er kjallari
(jarðhæð), 1. hæð og 2. hæð samtals um 1034 fm. Inn-
keyrsludyr á jarðhæð, vörudyr á 1. hæð. Plássið þarfn-
ast töluverðar lagfæringar og er laust nú þegar. Verð
32,0 m. Mjög góð kjör. 5395
HBH—M———BE
LANDIÐ
Gerð snjóflóðavarnargarða við Flateyri á lokastigi
Lokið
við efri
þver-
garða
Flateyri - Þriðjudaginn 5. nóv
lauk verktakinn Klæðning ehf.
við efri þvergarðinn. Eru þá
eingöngu eftir framkvæmdir
við neðri þvergarðinn sem mun
liggja næst byggð og verða
hlutföllin á honum lægri,
miðað við þann efri. Hæsti
punktur efri þvergarðsins er
118 metrar yfir sjávarmáli, en
sjálfur garðurinn er 30 metra
hár frá innri hluta garðsins en
20 metrar frá ytri hlutanum.
Að sögn Gunnars
Birgissonar hafa framkvæmdir
gengið þokkalega, en veðurfar
hefur sett dálitið strik í
reikninginn. Framkvæmdir við
neðri þvergarðinn hefjast í
næstu viku og er stefnt að því
að ljúka framkvæmdum í
desember ef
veðurfarsaðstæður leyfa.
Jafnframt því munu hefjast
framkvæmdir við drenskurði
hvorn sínum megin við
garðana.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
HORFT yfir varnargarðana ofan frá þvergarði. Efstu hæðarmörk
þvergarðsins eru 118 metrar yfir sjávarmáli.
ÞEGAR eru hafnar framkvæmdir við neðri þvergarðinn. í forgrunni
sjást gömlu varnargarðarnir sem fyrir voru.
HÉR sést Gunnar Birgisson standa í þeim hluta þvergarðsins sem eftir er að fylla upp.
Ertu búinn að
skipta um kúplingsdisk?
ískoðun
Nýbýlavegi 4-8
S. 563 4400
TOYOTA
QBESDBZ3
Samstarf fram-
haldsskóla á
Austurlandi
SKÓLAMEISTARAR framhalds-
skóla á Austurlandi undirrituðu í
gær samkomulag til þriggja ára
(1997-2000) um skipulegt samstarf
skólanna og fer undimtun fram í
Ráðhúsinu á Reyðarfirði. Samkomu-
lagið má rekja til frumkvæðis Björns
Bjarnasonar, menntamálaráðherra,
frá seinsta ári og hafa skólarnir og
menntamálaráðuneytið unnið saman
að undirbúningi málsins.
Samningurinn er liður í þeirri
stefnu menntamálaráðherra að efla
samvinnu og verkaskiptingu á milli
framhaldsskóla og skapa með því
grundvöll að auknum gæðum náms
og betri nýtingu fjár þegar til lengri
tíma er litið, segir í fréttatilkynn-
ingu. Petta er í fyrsta sinn sem
gengið er frá formlegum samningi í
þessa veru en nokkur hefð er fyrir
samstarfi framhaldsskóla eftir lands-
svæðum að frumkvæði þeirra sjálfra.
Menntamálaráðherra hefur skipað
Samstarfsnefnd framhaldsskóla á
Austurlandi til þriggja ára og ber
hún ábyrgð á framkvæmd samnings-
ins. Fulltrúi menntamálaráðuneytis-
ins í nefndinni er Helga Hreinsdótt-
ir, framkvæmdstjóri, og er hún for-
maður nefndarinnar. Auk hennar
eiga í sæti í nefndinni Eyjólfur Guð-
mundsson, skólameistari Fram-
haldsskólans í A-Skaftafellsýslu,
Helga Steinsson, skólameistari
Verkmenntaskóla Austurlands,
Helgi Ómar Bragason, skólameistari
Menntaskólans á Egilsstöðum og
Margrét Sigbjörnsdóttir, skólastýra
Hússtjórnarskólans á Hallormsstað.
»
I
I
»
!
f
t
I
I
F
I
t
I
j
I
I
fe
I"
i